Morgunblaðið - 16.08.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978
19
Félag járniðnaðarmanna:
r
Itrekar óskir um samstöðu
Alþýðuflokks og Alþýðubandalags
MOBGUNBLAÐIÐINU hefur
borizt fréttatilkynning frá stjórn
Félags járniðnaðarmanna frá því
á fundi sl. mánudag en þar
ítrekar félagið ályktun Verka-
mannasambandsins um að Al-
Aðalfund-
urNAUST
um helgina
NAUST-Náttúruverndarsamtök
Austuriands halda árlegan aðal-
fund á Fáskrúðsfirði um næstu
helgi. Aðalfundurinn sjálfur
verður haldinn í félagsheimilinu
Skrúð á sunnudag. en á laugar-
dagsmorgun kl. 9 verður farið í
skoðunarferð frá Egilsstöðum um
Breiðdal og Stöðvarfjörð til
Fáskrúðsfjarðar og munu jarð-
fræðingar og fleiri lýsa því sem
fyrir augu ber á viðkomustöðum.
Að kvöldi laugardags gengst
NAUST fyrir kvöldvöku fyrir
almenning í félagsheimilinu Skrúð
með fjölbreyttu efni og á sunnu-
dag 20. ágúst, verður opinn
umræðufundur, þar sem Jakob
Jakobsson fiskifræðingur hefur
framsögu um ástand fiskstofna,
verndaraðgerðir og nýmæli í
veiðum. Segir í nýútkomnu frétta-
blaði NAUST, að áhugamenn um
sjávarútveg og sem flestir, sem við
hann vinna, séu hvattir til að
sækja þennan umræðufund, þar
sem kostur gefist á að spyrja
Jakob í þaula.
Veðrið leik-
ur við þátt-
takendurá
vinabæjamóti
„ÞAÐ er víst óhætt að fullyrða að
veðrið hefur leikið við okkur hér
á vinabæjamótinu í Keflavík,“
sagði Jóhann Einvarðsson bæjar-
stjóri þegar Mbl. ræddi við hann
í gær.
í gærmorgun var farið með
þátttakendur í vinabæjamótinu í
kynnisferð um Keflavíkurkaup-
stað, síðan var kvikmynd um
kaupstaðinn sýnd. Eftir hádegið
var farið í ferð um Reykjanes,
komið var við í Svartsengi og síðan
var snæddur kvöldverður í Kefla-
vík.
I dag verður farið með þátttak-
endur í ferð að Gullfossi og Geysi
og þaðan verður haldið til Þing-
valla. Eiríkur Eiríksson þjóðgarðs-
vörður rekur sögu staðarins og á
eftir verður kvöldverður í Valhöll
á vegum Norræna félagsins í
Keflavík.
Á föstudag verður farið til
Vestmannaeyja í tveimur flugvél-
um og Eyjar skoðaðar. Komið
verður til baka um kvöldið og
lokahóf verður haldið í Stapa þá
um kvöldið. Flestir Norðurlanda-
búanna halda utan á laugardag, að
undanskildum Finnunum, sem
ætla að dvelja hér á landi fram
yfir helgi.
Smygl í Skaftá
ÞEGAR tollverðir voru á ferð um
borð í skipi Hafskips, Skaftá, í
gær, fundun þeir 42 flöskur af
áfengi og 16000 sígarettur, sem
átti að smygla í land. Smyglgóssið
var falið í stefnisgeymi skipsins.
þýðuflokkur og Alþýðubandalag
haíi samstöðu um myndun
ríkisstjórnari
„Stjórn Félags járniðnaðar-
manna ítrekar fyrri samþykktir
félagsins og 8. þings Málm- og
skipasmiðasambands Islands,
gegn riftun ákvæða kjarasamn-
inga um greiðslu fullra verðlags-
bóta til málmiðnaðarmanna og
annars fastlaunaðs verkafólks.
Jafnframt minnir stjórn Félags
járniðnaðarmanna á atvinnu- og
kjaramálaályktun 8. þings M.S.Í.,
þar sem félagsmenn sambandsfé-
laganna voru hvattir til að greiða
ríkisstjórnarflokkunum ekki at-
kvæði í nýafstöðnum kosningum,
til að hnekkja efnahagsstefnu
fráfarandi ríkisstjórnar, sem
reynzt hefur andstæð hagsmunum
alls verkafólks.
Þessi afstaða málmiðnaðar-
manna, sem einnig var afstaða
yfirgnæfandi meirihluta verka-
fólks um allt land, er megin
forsenda kosningasigurs verka-
lýðsflokkanna, Alþýðubandalags
og Alþýðuflokks.
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna telur það eðlilegt og
rökrétt framhald út frá niðurstöð-
um kosninga að Alþýðubandalag
og Alþýðuflokkur hafi samstöðu
um myndun ríkisstjórnar og mót-
un nýrrar efnahagsstefnu, leið-
réttingu á verðlagsbótaskerðing-
unni og verndun kaupmáttar
fastlaunaðs verkafólks við þær
efnahagsaðgerðir sem yfirvofandi
eru.
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna telur einnig að traust
samstarf Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks geti tryggt framgang
félagslegra hagsmunamála verka-
fólks, svo sem í húsnæðismálum,
lífeyrismálum, vinnuverndarmál-
um, og stuðlað að því að aðilar
vinnumarkaðarins komi sér saman
um einföldun á uppbyggingu
kauptaxta og verulegri fækkun
þeirra.
Stjórn Félags jarniðnaðar-
manna beinir þvi til Alþýðubanda-
lags og Alþýðuflokks að þessir
flokkar skapi víðtæka samstöðu
sín á milli og við verkalýðssamtök-
in til að tryggja fulla atvinnu og
óskert lífskjör verkafólks.
þúflýgurí
vestur
til New York.
Svo suður
á sólarstrendur Florida.
Flatmagar
á skjannahvítri Miami
ströndinni eða buslar
í tandurhreinum sjónum.
Tekur í hendina
á Mikka mús á fimmtugsafmælinu.
Snæðir
safaríkar amerískar
steikur. (Með öllu tilheyrandi).
Býrðálúxus
hóteli
í tveggja manna herbergi,
með eða án eldunaraðstöðu,
eða í hótelíbúð.
Shoóar Cape
Kennedy
Safari Park, Everglades þjóðgarðinn
og hin litríku kóralrif Florida Keys.
Slæró til
og færð þér bílaleigubfl
fyrir 19-23 þúsund kr.
á viku. Ekkert kflómetragjald.
íslenskur
fararstjóri
verður að sjálfsögðu öllum
hópnum til halds og trausts.
Næstu 3ja vikna ferðir verða»
1. september (uppseld), 21. september, 12. október, 2. nóvember, 23. nóvember.
FLUCFÉLAC LOFTLEIDIR
ÍSLAMDS
Nánari upplýsingar: Söluskrifstofur okkar Lækjargötu 2 og Hötel Esju, sími 27800, farskrárdeild,
sími 25100, skrifstofur okkar úti á landi, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
QYLMIR ♦ Q&H 3.1