Morgunblaðið - 16.08.1978, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978
+
Móöir okkar,
HELGA ÞORBERGSDÓTTIR,
Rauöalæk 32,
lézt mánudaginn 14. ágúst.
Jaröartörin auglýst síöar.
Þorbjörg Jónsdóttir,
Gunnar Jónsson.
+ Bróöir okkar, DAGUR BRYNJÚLFSSON, Hátúni 10, lést 14. ágúst. Sigríöur Brynjúlfsdóttir, Þórlaug Brynjúlfsdóttir, Hulda Brynjúlfsdóttir.
+ Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR MARGRÉT ÞÓROARDÓTTIR, Suóurgötu 31, Akranesi, lézt aö heimili sínu aöfararnótt 14. ágúst. Jaröarförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Faöir okkar og tengdafaöir, HELGI ÍVARSSON, fyrrverandi fiskmatsmaöur, veröur jarösunginn frá Frikirkjunni fimmtudaginn 17. ágúst kl. 13.30. Lilja Ingimundardóttir ívar Helgason Siguróur G. Helgason
+ Eiginmaöur minn, SIGURÐUR TÓMASSON, Goöheimum 8, sem lézt 9. þ.m., veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. ágúst kl. 3. Fyrir hönd vandamanna, Herborg Guðmundsdóttír.
+ Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma JÓHANNA G. GÍSLADÓTTIR, Yrsufelli 15, lést sunnudaginn 13. ágúst. Útför hennar veröur gerö frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. ágúst kl. 10.30. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn.
+ Útför systur okkar, ÞÓRUNNAR PÉTURSDÓTTUR, sjúkrabjáifi, Álfaskeiöi 40, Hafnarfirói er lést á Landspítalanum 8. ágúst veröur gerö frá Fossvogskirkju 18 ágúst kl. 1.30. Blóm og kransar eru vinsamlega afbeöin. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á kvenfélagið Hringinn í Hafnarfirði eöa aörar góögeröarstofnanir. Aðalheiöur Pétursdóttir, Sigríöur Þátursdóttir, Karl Pétursson.
+ Þökkum hjartanlega samúö og vinsemd viö andlát og jaröarför ÞORBJARGAR KJARTANSDÓTTUR, frá Dalsmynni, Hringbraut 99. Dætur, tengdasynir og aöstandendur.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hluttekningu viö fráfall og jaröarför SIGURÐAR MAGNUSSONAR Samtúni 32, Ingibjörg Jónadóttir börn, tengdabörn og barnabörn.
Minning:
Bjarni Einarsson
vélsmíðameistari
Fæddur 30. ágúst 1903.
Dáinn 5. ágúst 1978.
Laugardagskvöldið 5. ágúst
hringdi mágur dóttur minnar til
mín til þess að segja mér lát föður
síns, Bjarna Einarssonar vélsmiðs,
Hrísateig 45.
Þar með hrundu vonir mínar um
að hann mætti hressast og fá að
sjá börnin sín tvö, sonarson og
tengdadóttur sem dvelja í Svíþjóð.
Oskir okkar allra voru að hann
ætti eftir að koma til þeirra.
Ekki komst hann heldur í
Elliðaárnar á þessu sumri, en þar
átti hann tvo daga í júlí, eins og
undanfarin ár.
Bjarni Einarsson fæddist í
Strandahjáleigu í Vestur Landeyj-
um 30. ágúst 1903. Foreldrar hans
voru Olöf Bjarnadóttir og Einar
Isleifsson er þar bjuggu. Ólst hann
upp hjá þeim ásamt þrem bræðr-
um, og eru tveir þeirra á lífi. Föður
sinn missti Bjarni aðeins 13 ára að
aldri. Eftir það sá hann um sig
sjálfur. En sitt mesta gæfuspor
steig hann, er hann kvæntist
eftirlifandi eiginkonu sinni, Elísa-
betu Þorkelsdóttur, 17. apríl 1937.
Var hún þá aðeins 18 ára að aldri.
I byrjun maímánaðar, skrapp
Bjarni í bíl sínum austur að
Þingvallavatni í sumarbústað
sinn. Á leiðinni mun hann hafa
fundið til fyrir hjarta, og kannski
oftar þó ekki hefði hann orð á því.
Nokkru seinna fékk hann svo
slæmt kast, að hann var fluttur á
gjörgæsludeild Landakotsspítala
— en svo var harkan mikil að ekki
mátti ná í lækni um nóttina sem
hann veiktist, heldur bíða morg-
uns, þrátt fyrir að báðir synir hans
og tengdadóttir eru læknar. —
Nei, það mátti ekki raska ró
þeirra.
Eftir nokkra legu á Landakoti
var hann fluttur heim, þar sem
hans ágæta eiginkona hefir annast
hann og hjúkrað, nótt sem dag af
svo mikilli elju og ósérhlífni að
einstakt er.
Það munu vera átta—níu ár
síðan ég kynntist þessum góðu
hjónun, en yngri sonur þeirra er
kvæntur dóttur okkar og bjó hér í
húsinu um árabil.
Svo eftir að sonur þeirra,
Kjartan Bjarni, fæddist, var hann
í fóstri meira og minna hjá afa og
ömmu á Hrísateig. Allt vildu þau
fyrir hann gera bæði tvö, og hvergi
hefði honum getað liðið betur.
Elísabet ól drenginn svo vel upp,
t.d. kenndi hún honum að þekkja
alla stafina á öðru árinu o.fl. o.fl.
Þessi litli snáði mátti ekki koma
nálægt Skólavörðu- né Hallveigar-
stíg, þá vildi hann ólmur komast í
smiðjuna til afa síns.
Það voru honum sár vonbrigði,
er Bjarni afi veiktist og fór á
spítala, hann talaði um það
grátklökkur að aumingja afi
Bjarni væri lasinn á Landakoti.
Og einmitt um það leyti fluttist
hann til Svíþjóðar með foreldrum
sínum og föðursystur, sem hefir
gætt hans í sumar — þar var hann
heppinn og við öll, svo vel hefir
+
Innilegt þakklæti sendum viö öllum, sem vottuöu okkur samúö og vinarhug
við andlát og útför móöur okkar,
INGIBJARGAR ÁRNADOTTUR.
Einnig sendum viö beztu þakkir til allra, sem hjálþuöu henni í langvarandi
veikindum.
Skúli Magnússon,
Guörún F. Magnúsdóttir,
Þorkell Magnússon,
Kristinn Magnússon,
Rafn Thorarensen.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför móöur okkar,
tengdamóöur, ömmu og langömmu,
VIGDÍSAR SOFFÍU ÞÓRDARDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Elliheimilisins Grund fyrir hlýju og góöa
umönnun.
Gunnfríóur Ólafsdóttir, Gisli Auöunsson,
Jóhanna Ölafsdóttir, Jón N. Pólsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóöur og ömmu,
MÁLFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Gamla-Hrauni,
Eyrarbakka.
Helgi Þorvaldsson,
SteinÞóra Þorvaldsdóttir,
Sigurjón Þorvaldsson, Ólafía Siguröardóttir,
Guögeir Þorvaldsson, Alma Ásmundsdóttir,
Siguróur Þorvaldsson,
Hulda Þorvaldsdóttir, Rögnvaldur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
hún hugsað um hann. Þá hefir hún
skrifað kort og bréf frá honum til
áfa og ömmu, sem hafa stytt
Elísabetu ófáar stundir.
Þau Elísabet og Bjarni hafa
verið gæfumanneskjur, eignast
þrjú fyrirmyndarbörn, búið þeim
ágætis heimili, og ekki legið á liði
sínu, að gera allt fyrir þau, sem í
þeirra valdi stóð.
Elstur barna þeirra er Þorkell
læknir á Landakoti, kvæntur Ásu
Kristínu Oddsdóttur, eiga þau tvö
yndisleg börn, Odd Þór níu ára og
Elisabetu Gerði fjögurra ára, sem
nú sakna sárt afa síns.
Næstur er Björgvin Ásbjörn,
hans kona er Kristjana Sigrún
Kjartansdóttir, eru þau bæði
læknar og eiga einn son, Kjartan
Bjarna, nýlega tveggja ára.
Yngst er svo Ólöf Halldóra, sem
varð stúdent s.l. vor frá Mennta-
skólanum v. Sund og er innrituð í
Háskólann.
Það er ekki bara að þetta séu vel
gefin og menntuð systkini, heldur
eru þau svo innilega góð og
tillitssöm við aðra — eins og
foreldrarnir, sem allt vildu gera
fyrir börnin, barnabörnin og
tengdadæturnar, enda kunnu þær
svo sannarlega að meta tengdafor-
eldra sína. Alltaf voru þau öll
boðin í mat, sannkallaðan veislu-
mat hvern einasta sunnudag á
Hrísateig 45 og var þar ekkert til
sparað.
Þaðan eigum við hjónin einnig
góðar minningar, svo og lítil.
dótturdóttir og bróðir hennar.
Fyrir þetta allt vil ég nú þakka,
en kveðjustund getur verið sár.
Elísabet mín hefur staðið sig eins
og sönn hetja, verið svo sterk, gert
allt fyrir sinn góða eiginmann.
Hann kaus að vera heima og hún
annaðist hann alein, án utanað-
komandi hjálpar. En þó, hún var
ekki ein — sonur þeirra Þorkell
kom oft á dag, þrátt fyrir annríki,
og vildi allt fyrir þau gera. Hann
var sá eini af börnunum hérlendis,
og hefur stutt hana vel. Enginn
sonur hefði getað reynst betur á
örlagastundu. Hann er góður
drengur og mannlegur læknir. Á
hann skilið mikið og gott þakklæti
og þau hjón bæði.
Þá er að kveðja með hjartans
þakklæti frá okkur tengdafólkinu í
Kópavogi, en þó alveg sérstaklega
frá litlum rauðhærðum afadreng í
Svíþjóð, sem man afa svo vel og
dáir. Smíða eins og Bjarni afi,
segir hann og lemur litlum, nei
stórum hnefa í borðið.
Megi guð og allar góðar vættir
styrkja eiginkonuna og börnin.
J.B.I.
Athugasemd
í Morgunblaðinu laugardaginn
12. ágúst s.l. er ranglega farið með
tölur um skemmdan fisk í togar-
anum Ólafi Bekk frá Ólafsfirði.
Þar stendur að 50 tonn fari í
mjölvinnslu, — rétta talan er
17.260 kíló.
Ég vil taka það fram að
fiskurinn var ekki metinn af mér
í mjölvinnslu, heldur í þriðja
flokk, en þriðja flokks fiskur má
ekki fara til vinnslu í frost. Að
öðru leyti eru skýringar verkstjór-
anna réttar.
Jón Steinsson
ferskfiskmatsmaður
Ólafsfirði.