Morgunblaðið - 16.08.1978, Page 23

Morgunblaðið - 16.08.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978 23 Guðrún Helgadótt- ir—Minn- ingarorð Fædd 22. október 1914. Dáin 23. júlí 1978. Hinn 23. júlí s.l. andaðist frú Guðrún Helgadóttir, Eiríksgötu 11, hér í Reykjavík. Hún var jarðsett hinn 1. ágúst s.l. Ekki má svo fara, að við samstarfsfólk hennar í Laugarnessókn um mörg liðin ár, minnumst hennar ekki nú, þegar hún er horfin úr hópnum. Þegar Laugarnessókn var stofnuð árið 1940 áttu þau hjónin Guðrún og Ríkharður Kristmundsson heima við Laugarnesveginn. Hún gerðist strax einn af frumherjum við starf safnaðarins og söng við messurnar, sem þá fóru fram í Laugarnesskólanum. Þegar Kven- félagið var stofnað 1941 gerðist hún brátt félagi og vegna hæfi- leika sinna var hún oft í stjórn félagsins ýmist sem ritari eða gjaldkeri. Hún var samvizkusöm og traust og því var hún kosin aftur og aftur, þó að smá hlé hafi verið á. Og einmitt núna átti hún sæti í stjórninni. Hún var einnig í mörg ár fulltrúi félagsins í Bandalagi kvenna í Reykjavík. Þó að þau hjónin flyttust úr sókninni héldu þau tryggð við gamla hverfið og við litum alltaf á Guðrúnu sem Laugnesing, enda bar hún hag Laugarneskirkju og Kvenfélagsins þar mjög fyrir brjósti. Óteljandi eru þær stundir, sem hún vann t.d. fyrir basara og kaffisölur. Myndarskapur hennar var alveg sérstakur, hið fagra heimili hennar bar vott um iðjusemi og smekkvísi. Henni féll áreiðanlega sjaldan verk úr hendi. Fregnin um andlát hennar í framandi landi kom eins og reiðarslag. Hún var svo lifandi og mannlega séð átti hún mörg ár eftir ólifuð. En Guðrún var einlæg trúkona, hún treysti Guði. Hún sagði svo oft bæði í samtölum og bréfum: „Guð, sem öllu ræður, mun leiða allt á bezta veg.“ Þetta má vera eftirlifandi börnum henn- ar huggun nú. Við, sem störfuðum með lienni í mörg ár, þökkum samfylgdina og munum sakna hennar djúpt og innilega. Við viljum votta öllum ástvinum hennar okkar innileg- ustu samúð. Vivan Svavarsson. ATIIYGLI skal vakin á því. að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum íyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. F ! A T Sérstakt bflatilboð sýningarsalur Mikiö úrval af notuðum nýlegum bílum. DAVÍÐ SIGURÐSSON H.F Sfðumúla 35. Sýningarsalur, sími 85571 r--- ? Memorex kassettan — nær háu tónunum paö vel aö hún getur jafnvel brotið glas. Meö nýja Memorex MRX 2 Oxide tónbandinu (einkaleyfi Memorex) sem er eitt þaö besta sem framleitt er, næst hinn hreini tónn, hvort sem um er aö ræöa há- eöa lágtíönissviö. Memorex kassettan — fólk á í erfiðleikum með að greina á milli lifandi tónlistarflutnings og Memorex. Heildsölubirgðir: FÁLKINN _____ Sími 84670_y 1 Eila Fitzgerald er í hljóöupptöku. Upptakan er gerð á Memorex snældu og Ella ætlar að reyna að _ brjóta glas með raddstyrk sínum 2. Hún hækkar rödd sína óspart og glagið brotnar. 3. Nýtt glas í stað þess sem brotnaöi. Upptakan spiluð og menn bíöa spenntir. Brotnar þetta glas líka? Getur Memorex kassetta náö rödd hennar þaó vel Tilraun sem gerð var með Memor- ex kassettu og „drottningu jass- ins“: 4 Þetta glas brotnar líka Frábær ! tóngæði Memorex eru staðreynd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.