Morgunblaðið - 16.08.1978, Side 32
,U(;lVsin<;asíminn kr.-
22480
jrcgpinltifafrUÞ
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978
Ríkisstjómin veitir
1,5 millj. styrk vegna
framboðs Friðriks
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi sínum í gær að veita
Skáksambandi íslands 1.5 millj. kr. styrk til að standa
straum af framboði Friðriks Ólafssonar til forseta
Alþjóðaskáksambandsins FIDE. Áður hafði Skáksam-
bandið sótt um 2 millj. kr. styrk í þessum tilgangi.
Einar S. Einarsson forseti Skák-
sambands íslands sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, að
þessi styrkveiting þýddi það að nú
væri hægt að ráðast í kosninga-
baráttu Friðriks af fullum krafti
og kappkostað yrði að fá sem
flestar aðildarþjóðir til að lýsa
yfir stuðningi við Friðrik á næstu
vikum. Ennfremur yrði haft frek-
ara samband við þær þjóðir, sem
þegar hefðu lýst yfir stuðningi við
framboð Friðriks í þeim tilgangi
að þær ynnu framboðinu samhliða
Skáksambandi íslands.
Verður Lúðvík nú falin
Ilver skyldi hann vera — maður-
inn sem sést í bakið á í Pósthös-
strætinu og er greinilega í þung-
um þönkm? Jú, Lúðvík Jósefsson,
sem vill nú fá að spreyta sig næst
á stjórnarmyndun.
LJ4g>i 0l K M
myndun ríkisstjómar?
BEÐIÐ er með eftirvæntingu
ákvörðunar forseta íslands um
hverjum skuli falin forysta um
næstu tilraun til stjórnarmyndun-
ar. en Geir Ilallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, gekk á fund
forseta í gærkvöldi og tjáði honum.
að hann sæi sér ckki fært að halda
tilraunum til stjórnarmyndunar
áfram að svo stöddu eftir að
forsvarsmenn Alþýðuflokksins
höfðu slitið viðræðunum um 3ja
flokka stjórn Sjálfstæðisflokks.
Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks. í samtali við Mbl. í gær-
kvöldi sagði dr. Kristján Eidjárn,
að hann vonaðist til að unnt yrði að
taka einhverja nýja ákvörðun f
þessum efnum í dag, miðvikudag.
Ýmsir telja, að forsetinn hafi til
athugunar að snúa sér næst til
Lúðviks Jósefssonar, formanns
Aiþýðubandalagsins.
Lúðvík Jósefsson átti í gærmorgun
viðræður við forseta íslands. Ekkert
25 af160
ætla að
leggjanið-
ur vinnu
STARFSFÓLK í frystihúsi
ísbjarnarins h.f. á Seltjarnar-
nesi efndi til mótmælaaðgerða
í fyrradag sökum þess að
fyrirhugað er að rckstur
frystihússins. — eins og
flcstra annarra frystihúsa á
SV-horni landsins verði stöðv-
aður þann 1. september nk. ef
ekki verður búið að leysa
rekstrarvandamál frystihús-
anna íyrir þann tíma.
Eftir hádegi í gær var síðan
efnt til fundar með starfsfólk-
inu, sem m.a. hafði hótað að
hætta að vinna yfirvinnu. A
fundinn mættu einnig fulltrúar
frá Dagsbrún og Verkakvenna-
félaginu Framsókn. Þegar mál-
in höfðu verið rædd, kom í ljós,
að aðeins 25 af 160 manna
starfsliði frystihússins ætluðu
sér að hætta að vinna yfir-
vinnu. Um aðrar aðgerðir var
ekki frekar rætt, samkvæmt
því sem Morgunblaðinu var
tjáð.
hefur verið látið uppi um viðræðurn-
ar, en eftir því sem Mbl. hefur
fregnað mun Lúðvík þar hafa tjáð
i'orseta þá skoðun sína að hann teldi
að fela ætti sér að hafa forystu um
næstu tilraun til stjórnarmyndunar.
Ragnar Arnalds, formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins, kvaðst
ekki draga dul á þá skoðun sína að
forsetinn ætti næst að snúa sér til
Lúðvíks Jósefssonar, þegar Mbl.
ræddi við hann um horfurnar, og
sagði aðspurður að ekki ætti þá að
binda hendur hans við myndun
meirihlutastjórnar, eins og í fyrri
tilfellum.
Verði Lúðvík Jósefssyni falin
forysta um næstu tilraun til stjórn-
armyndunar er það í fyrsta sinn í
sögu lýðveldisins sem forseti Islands
felur forsvarsmanni þess flokks, sem
stendur lengst til vinstri í íslenzkum
Ljósm. Mbl.: Kristján
Fjöldi fólks lagði leið sína í Laugardalshöll í
gærkvöldi til að horfa á kínverska fimleikafólkið.
stjórnmálum og á fulltrúa á þingi,
slíkt umboð.
Miklar hræringar hafa verið að
tjaldabaki bæði innan Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags, og er auðheyrt
á áhrifamönnum innan beggja flokk-
anna að ötullega er að því unnið að
skapa grundvöll fyrir viðræðum, sem
aðgengilegur getur verið fyrir báða
aðila en mjög er þó mismunandi
túlkun manna á hinum breyttu
viðhorfum eftir því hvort rætt er við
framámenn í Alþýðuflokki eða
Alþýðubandalagi. Að mati þeirra,
sem gerst til þekkja, er þó uppreisn
verkalýðsarms Alþýðubandalagsins
gagnvart flokksforystunni undirrót
þessara síðustu vendinga og megi
líta á ályktun Verkamannasam-
bandsins sem útspil í kjölfar þess.
Formlegur fundur flokkanna tveggja
hefur þó ekki enn verið boðaður,
enda má ætla að það ráðist nokkuð
af ákvörðun forseta íslands.
Ýmsar hugmyndir eru á lofti um
hugsanlegt stjórnarsamstarf í kjöl-
far viðræðna flokkanna tveggja, og
þá jafnvel í þá veru að reynt verði
við nýsköpunarstjórnarmöguleika á
ný eða vinstri stjórn en þó er
greinilegt að innan Alþýðubandalags
á hugmyndin um minnihlutastjórn
flokkanna tveggja, með eða án
hlutleysis Framsóknarflokks, tölu-
verðan hljómgrunn.
Sjá „Þegar taka átti til við
málefnin, sleit Alþýðuflokk-
urinn“ á miðsfðu en þar
segir frá stjórnmálafréttum
gærdagsins.
Seiðarannsóknir hafnar:
Landburð-
ur af loðnu
NÚ HAFA veiðzt um 64
þúsund lestir af loðnu. en á
sama tíma í fyrra hafði veiðin
ekki náð 50 þúsund lestum. Er
sumarloðnuveiðin nú því orðin
um 14 þús. lestum meiri en á
sama tíma í fyrra. þrátt fyrir
viku veiðibann, en þess ber og
að gæta að fleiri skip en áður
stunda nú loðnuveiðar
Loðnuveiði hefur verið ein-
staklega góð síðustu sólar-
hringa og á tímabilinu frá kl.
15 í fyrradag fram til kl. 17 í
gær tilkynntu 18 skip um afla,
samtals 11835 lestir. Loðnu-
skipin fara með aflann á flestar
hafnir landsins, þar sem loðnu-
bræðslur er að finna. eins og
t.d. á svo til alla Austfirðina.
Hver verksmiðja tekur nú á
móti mjög takmörkuðu magni,
þar sem sumarloðnu er aðeins
hægt að geyma í stuttan tíma.
Töluvert magn er af þorsk-
og ýsuseiðum við Vestfirði
VIÐ FYRSTU sýn virðist klak þorsks og ýsu á sl. vetrarvertíð hafa heppnazt nokkuð bærilega. en árlegar
seiðarannsóknir Ilafrannsóknarstofnunar eru nú hafnar- svokallaðar grúppurannsóknir. Bæði
rannsóknaskipin. Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson, eru við þessar rannsóknir, en fullnaðarmynd
af kiakinu verður ekki Ijós fyrr en í lok næstu viku.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur, sem er við þessar
rannsóknir á rannsóknaskipinu
Árna Friðrikssyni, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að tölu-
vert magn væri af þorskseiðum
inni á ísafjarðardjúpi og eins væri
mikið af ýsuseiðum, meira en verið
hefði á undanförnum árum, úti
fyrir Vestfjörðum. Um loðnuseiði
sagði Hjálmar, að enn hefði ekki
fundizt tiltakanlega mikið af þeim,
en þess bæri að geta að ís hefði
síðustu daga legið yfir því svæði,
sem loðnuseiði héldu sig mest á.
Hjálmar sagði, að það bæri að
taka fram, að aðeins hluta rann-
sóknanna væri lokið, myndin gæti
gjörbreytzt þegar komið væri
lengra austur með Norðurlandi,
allt eins til hins verra. í fyrra
hefðu málin staðið þannig, að
þegar rannsóknum var lokið úti
fyrir öllu Norðurlandi virtist klak
þorsksins hafa að mestu mis-
heppnazt, en undan Austfjörðum
hefði fundizt mun meira magn af
seiðum en menn hefðu átt von á.