Morgunblaðið - 18.08.1978, Side 1

Morgunblaðið - 18.08.1978, Side 1
32 SÍÐUR 177. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dollar hressist vid orð Carters London. WashinKton. 17. áifúst, AP. Reuter. DOLLAR trcystist veruiega í sessi í dag eftir að Carter Bandaríkjaforseti Iét í ljós að sér væri mjög umhugað um stöðu hans. Náði bandaríski gjaldmiðillinn sér mjög á strik með hliðsjón af verðfalli hans í vikunni og var skráður nærri jafnvirði tveggja vestur-þýzkra marka við lokun á evrópskum markaði í dag. Eins og gera mátti ráð fyrir rýrnaði gull í verði og var únsan sex dollurum ódýrari við lokun. Engu að síður gætti töluverðar ókyrrðar á gjaldeyrismörkuðum og biðu verðbréfasalar þess í ofvæni að heyra hvað Carter hefði frekar til málanna að leggja á blaðamanna- fundi í gærkvöldi. „Láti hann ekki eitthvað athygiisvert frá sér fara í kvöld, springur kúlan og dollarinn sunkar aftur" var haft eftir vest- ur-þýzkum kaupsýslumanni. í Tókýo var verð dollars 185.475 yen við lokun. Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Michael Blumenthal, lét að því liggja í kvöld að verðbólga, sem nú er 10% í Bandaríkjunum á ári og ber að miklu leyti ábyrgð á ótryggri stöðu dollars, myndi minnka verulega á seinni hluta ársins. Sagði hann að stjórnin væri staðráðin í að gera allt sem í valdi hennar stæði til að hindra óreiðu á erlendum gjaldeyris- mörkuðum. Korchnoi sótti djarft Bauuio, 17. áííúst, AP. ÞRETTÁNDA einvígisskák Karpovs og Korchnois um heimsmeistaratitil- inn fór í bið á fimmtudag eftir 40 leiki. Korchnoi fórnaði óvænt hrók fyrir riddara og peð í 38. leik. „Mjög skemmtileg skipti“ var haft eftir brezka stórmeistaranum Stean og aðstoðarmanni Korchnois, „þau gefa honum þó nokkra möguleika á að vinna skákina" bætti hann við. Sjá skákskýringu bls 18. Reifir fullhugar að ferðarlokum Miserey. 17. ágúst. AP. Reuter. ÞRÍR KAMPAKÁTIR ævintýramenn frá Nýju Mexíkó lentu silfurskærum, gulum og rauðum farkosti sínum í NorðurFrakklandi á fimmtudagskvöld. sigri hrósandi eftir að hafa orðið fyrstir manna tii að fara yfir Atiantshafið í loftbelg. Fimmtíu og einu ári eftir að Charles Lindbergh lauk sögufrægri flugferð sinni frá New York til Parísar nam meira en 500 kflóa þungur loftbelgur þn'menninganna varfærnisiega við jörðu að lokinni sex daga siglingu u.þ.b. 3200 kflómetra leið. Lenti belgurinn klukkan 17.50 að íslenzkum tíma á hveitiakri um 96 kflómctra norður af París. Uppi varð fótur og fit í nágrenn- neytið hefur heitið að verðlauna inu og olli það umferðaröngþveiti á þjóðvegum er hundruð forvit- inna aðdáenda þyrptust að svæð- inu. Var afreksmönnunum fagnað sem hetjum er þeir stigu úr körfu „Tví-arnarins“ órakaðir og úr- vinda eftir að hafa aðeins nærzt á dósasardínum, pylsum og mjólk- urdufti í sex daga. Franska unglinga- og íþróttamálaráðu- þá með gullorðum og franska flugfélagið „Air France" hefur lofazt til að flytja þá ókeypis aftur með Concorde ásamt konum þeirra, er tóku á móti þeim. Bandaríska öldungadeildin vottaði loftbelgsförunum þremur, Abr- uzzo, Newman og Anderson, virð- ingu sína í dag og komst einn öldungardeildarþingmaður Nýju Anderson og Abruzzo við kom- una til Reykjavíkur 1977. Mexíkó svo að orði að sigurförin væri óbrigðull vottur um rann- sóknareðli þjóðarinnar. Newman, 31 árs, og Abruzzo, 47 ára, hafa verið atvinnuflugmenn mest allt sitt líf en Anderson er forseti úran- og koparnámufyrir- tækis. Sautján tilraunir hafa verið gerðar til að komast yfir Atlants- haf í loftbelg síðan 1873 og hafa sex menn og ein kona látið lífið í þessum tilraunum. Sjá bls. 15. Búkarest. 17. áttúst. Reuter. KÍNVERSKI þjóðarleiðtoginn Hua kuo-feng og Nicolai Ceausescu Rúmeníuforseti báru í dag saman bækur sínar og skoðaði Hua tröllaukið iðjuver eftir að hafa farið ómjúkum orðum um Sovétríkin í ávarpi við komu sína. Má næsta öruggt telja að ummælin hafi fyrt Moskvuyfirvöld og gert gestgjafana hvumsa. Fánum var veifað og mikill fagnaður hvarvetna þar sem Hua hafði viðstöðu í skoðunarferð um Búkarest. Þetta er fyrsta Evrópu- för leiðtoga kínverska kommún- istaflokksins í 21 ár og er Rúmenía eina ríkið á áhrifasvæði Ráð- Ilua kuo-feng stjórnarríkjanna, sem kappkostað hefur vinarþel gagnvart Peking- stjórn. Gestamóttakan hefur komið almenningi einkar frjálslega fyrir og skýtur því skökku við að rúmensk yfirvöld hafa færzt und- an því að skýra frá innihaldi viðræðnanna. Heimsóknin hefur haft í för með sér ýmis viðkvæm vandkvæði fyrir Ceausescu, sem er um hug að auðsýna sjálfstæða utanríkisstefnu þjóðarinnar án þess að styggja stjórnarherra í Kreml. I veizlu, sem kínverska forsætis- ráðherranum og fylgdarliði var haldin í gærkveldi, bar Hua stórveldunum á brýn að seilast til heimsyfirráða. Hann sagði: „Heimsveldastefna (Bandaríkin?) og yfirráðastefna (Sovétríkin?) breiðir úr sér hvarvetna í Asíu, Afríku, Suður-Ameríku og Evrópu til að gegnsýra, grafa undan og þrengja að og undiroka einstök lönd“. Júgóslavnesk yfirvöld hafa til- kynnt að Hua muni koma til Júgóslavíu 21. ágúst n.k. Samblástur í Afghanistan? STJÓRNARLEIDTOGAR í Afghan- istan hafa ráðið niðurlögum samsær is gegn hinni nýju stjórn lands- ins og tekið höndum varnarmála- ráðherra og starfsmannastjóra hers- ins að sögn útvarpsins f Rawalpindi. Varnarmálaráðherra landsins, Ab- dul Khadir var í fylkingarbrjósti er Mohammed Daoud var steypt af stóli 2. apríl sl. Að sögn útvarpsins komst forseti landsins, Mohammed Tarakki, á snoðir um samsærið. Sendimanni íraks banað Róm, 17. áKÚst. Reuter. FIMMTUGUR írakskur sendimað- ur var í dag skotinn til bana fyrir utan írakska sendiráðið í Trípólí, höfuðborg Líbýu, að sögn ítölsku fréttastofunnar Ansa. Samkvæmt heimildum írakska sendiráðsins var maðurinn, Hussein Mohammed Ali, skotinn þrisvar í hjartastað. Árásin var gerð er Ali steig út úr bifreið sinni fyrir framan sendiráðið. Var banamaður- inn tekinn höndum, en um þjóðerni hans er ekki vitað. Ilugleitt í fjöruborðinu. Ljósm. Jóhannes Long. Króatar taka 8 Danir veiða mest allra Efnahags- bandalagsþjóðanna á ári eða um 1.6 milljónir tonna, sem fengin eru úr Norðursjó. gísla Chicago. 17. ágúst. Routor. AP. TVEIR vopnaðir Króatar tóku átta menn í gíslingu í vesturþýzka konsúlatinu í Chicago í dag og kröfðust þess að króatískur útlagi, Stjepan Bilandzic að nafni, yrði látinn laus úr haldi. Einn gíslanna fékk síðar að fara frjáls ferða sinna. Símastúlka konsúlatsins — á tíundu hæð byggingar við Michigantorg í miðborginni — sagði að hryðjuverkamennirnir hótuðu að skjóta hana og aðra gísla. Einn gíslanna, er náðist tii í síma. var að því spurður hvort líf þeirra væri í hættu. „í bráðri hættu“ var svarið. Hryðjuverkamennirnir, sem talið er að séu maður og kona, hafa einnig sprengiefni meðferðis. Bilandzic, sem þau krefjast að látinn verði laus, er nú í fangelsi í Vestur-Þýzkalandi Árósum. 17. ágúst. Reuter. MINNKA þarf danska fiskiskipa- flotann um tíu af hundraði, ef hann á að skrimta í framtíðinni, að því er haft var eftir áhrifamiklum dönskum sérfræðingi f dag. Orsök- in er rýrnandi fiskistofnar út af ströndum landsins. Dr. K. Madsen, formaður dönsku fiski- og sjávarrannsóknastofnunar- innar, sagði að annað hvort yrði að fækka skipum stórlega eða að jafn stór hluti fiskiskipa myndi einfald- lega flosna upp. „Mörkum Norður- sjávarins hefur þegar verið náð. Síldin er upp urin og makrílstofnin- um ógnað. Þorskinum má bjarga með því að lækka aflamörk,“ sagði hann. Glóðarauga ráðgjafans 17. ágúst. Reuter. Washington, ÞAÐ FÖR víst ekki fram hjá neinum, er öryggisráðgjafi Bandarikjaforseta. Brzezinski, mætti með rauðhlaupið auga til vinnu í Hvíta húsinu í morgun. Skýrðist þó von bráðar að glóðarauga ráðgjafans var ekki afrakstur handalögmála við em- bættismenn um utanríkisstefnu, heldur höfðu læknar afnumið blett á vinstra augnloki. „Þið hefðuð átt að sjá hinn gaukinn," var haft eftir Brzezinski. Hua snefsinn í garð Rússa Draga Danir úr fiskveidunum? í Chicago og bíður þess að verða framseldur til Júgóslavíu, þar sem hann á yfir höfði sér réttarhöld fyrir ýmis ofbeldis- verk allt aftur til ársins 1962. Neyðarnefnd vestur-þýzka utan- ríkisráðuneytisins kom saman í Bonn í dag til að leita lausnar á vandanum og hefur Schmidt kanzlari náið auga með atburðunum. Ýmsir hópar króatískra þjóðernis- sinna hafa látið á sér kræla í því skyni að knýja fram sjálfstæði til handa Króatíu. Árið 1976 rændu félagar króatísks öfgahóps flugvél í innanlandsflugi í Bandaríkjunum og beindu henni til Parísar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.