Morgunblaðið - 18.08.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1978
Stjómarfundur SH:
segja frystihúsamenn á Austf jörðum
Fögnuður Þjóðviljans:
Hefðu helzt viljað utan-
ríkisráðherraembættið
STJÓRNARFUNDI Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, sem hófst eftir
hádegi í gær, lauk ekki þá um
daginn og verður fundinum haldið
áfram kl. 10 árdegis í dag. Eftir því
sem Morgunblaðið kemst næst, þá
mun hafa verið ákveðið á fundinum
í gær að freista þess að ná taii af
núverandi ríkisstjórn í dag, og
skýra frá þeim gífurlega vanda,
sem frystihúsin eiga við að etja, f
þeirri von, að frystihúsin þurfi ekki
almennt að stöðvast um mánaða-
mótin. Þó ekki hafi verið haldinn
fundur hjá stjórn Sambandsfrysti-
húsanna nú síðustu daga, þá liggur
það fyrir að þau hús standa í sömu
sporum og frystihús innan vébanda
SH og munu flest eða öll stöðvast
þann 1. september n.k. ef hreyting
á rekstrargrundvelli hefur ekki
orðið þá
Frystihúsamenn á Austfjörðum
komu saman til fundar á Egilsstöð-
um á miðvikudag og í ályktun frá
fundinum segir m.a. að tap frysti-
húsa á svæðinu sé nú 6—10% af
veltu, en engu að síður virðist það
álit margra að hægt sé að reka
fyrirtæki með tapi.
Þá segir að 3% hagnaður sé
nauðsynlegur til þess eins að eigið fé
fyrirtækjanna í afurðum haldi í við
Tveir
hlaupahestar
týndir
TVEIR kunnir hlaupahestar töpuð-
ust aðfaranótt sl. sunnudags úr
hesthúsi í Víðidal í Reykjavík og
hafa ekki fundist enn þrátt fyrir
mikla leit. Báðir eru hestarnir í eigu
Baldurs Oddssonar í Reykjavík en
þeir eru Þrumugnýr, rauður, nær
sótrauður með litla nös og Rosti,
brúnn með örlitla stjörnu, sem ekki
sést þó nema vel sé skoðað. Báðir eru
hestarnir frekar stórir og járnaðir
álskeifum. Eru þeir, sem orðið hafa
varir við þá, beðnir að hafa samband
við eiganda þeirra.
Á BAKSÍÐU Morgunblaðsins
Morgunblaðsins í dag er frétt
um fögnuð Þjóðviljans eins og
hann birtist í blaðinu í gær, en
þar segir hann á forsíðu, að það
marki söguleg tímamót, að
forseti íslands hefur falið
Lúðvík Jósefssyni, formanni
Alþýðubandalagsins, forystu
um stjórnarmyndun á íslandi
og er það rétt. Um þetta vísast
til fréttar á haksíðu Morgun-
blaðsins í dag, en blaðið hefur
einnig fjallað um mál þetta í
forystugreinum undanfarna
daga, og í Staksteinum blaðsins
í dag er einnig um þetta rætt.
Það hefur vakið gífurlega
athygli. að Lúðvík Jósefssyni
skuli hafa verið falin forysta
um stjórnarmyndun, enda þótt
það hafi áður legið fyrir, að
Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag hafi ekki getað komið
sér saman um stefnu til lausn-
ar efnahagsvandanum, en þeir
höfðu einnig átt rækileg samtöl
við framsóknarmenn án árang-
urs. Undir þessari frétt á
forsíðu Þjóðviljans, þar sem
talað er um hin sögulegu
tímamót. er önnur frétt, sem er
byggð á samtali við Ólaf
Jóhannesson og er fyrirsögnin
á hennii Erum reiðubúnir,
segir Ólaíur Jóhannesson for-
maður Framsóknarflokksins.
En það sem e.t.v. hefur vakið
hvað mesta athygli af öllu því,
sem gerzt hefur undanfarna
2—3 daga, eru yfirlýsingar
alþýðubandalagsmanna um ut-
anríkismál. I útvarpinu í fyrra-
kvöld lýsti Lúðvík Jósefsson því
yfir, að þeir alþýðubandalags-
menn hefðu helzt viljað fara
með utanríkismál Islands í
nýrri ríkisstjórn, og í frétt á
forsíðu Þjóðviljans í gær, undir
fyrirsögninni: Minnihlutastjórn
næst? kemst blaðið svo að orði,
að Alþýðubandalagið sæktist
ekki sérstaklega eftir tilteknum
ráðherrastólum, „en búast
mætti við, að þó að alþýðu-
bandalagsmenn vildu fegnir fá
utanríkisráðherrann myndi það
mæta hefðbundinni andstöðu."
Lúðvík Jósefsson áttaði sig í
sjónvarpsviðtalinu í fyrrakvöld
og talaði mun gætilegar um
utanríkismálin en þegar hann
var tekinn „glóðvolgur" tali eftir
fund hans við forseta íslands og
missti út úr sér, að hann vildi
helzt stjórna utanríkismálum
landsins, en utanríkisráðherr-
ann fer með varnar- og öryggis-
mál, eins og kunnugt er, aðild
íslands að NATO og samstarfið
viOð vestræn ríki. í sjónvarpinu
sagði Lúðvík Jósefsson aftur á
móti, að þeir alþýðubandalags-
menn væru reiðubúnir til að ýta
varnarmálunum til hliðar og
einbeita sér að lausn efnahags-
vandans, en sú yfirlýsing vakti
ekki síður athygli en ummæli
hans um utanríkisráðherraem-
bættið.
Allt hefur þetta að vonum
þótt meira en lítið fréttnæmt.
verðbólguna. Ennfremur sé nauðsyn-
legt að hagnaður til viðbótar þessu
nemi 4—5% af veltu, svo um eðlilega.
endurnýjun og hagræðingu geti verið
að ræða.
í ályktuninni segir, að stöðvist
þessi fyrirtæki á Austfjörðum,
lamist allt athafnalíf í viðkomandi
byggð. Komi slíkt fyrir, þó ekki sé
nema einu sinni, geti það haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir
viðkomandi byggðarlög. Fólk hvorki
velji sér búsetu, né starf áfram á
slíkum stöðum, þegar hægt sé að fá
örugga vinnu t.d. í höfuðborg
landsins við störf sem ekki séu tengd
sjávarútvegi.
Ennfremur segir í ályktuninni að
saltfiskframleiðslan sé enn óhag-
kvæmari en frystingin og hafi S.Í.F.
hvatt til þess að söltun verði hætt.
Það sé ekki hægt, því ekki verði
komizt hjá því að salta fisk á
Austurlandi, eigi fiskveiðar að ganga
eðlilega fyrir sig.
Myndin er af Þorsteini Þorsteins-
syni, sem drukknaði s.l. mánudag
skammt frá Akranesi. Þorsteinn
var tæplega sextugur að aldri,
fæddur 29. júlí 1920.
Þessi mynd var tekin á slysstaðnum við Vesturá í Miðfirði s.l.
miðvikudagsmorgun og má sjá hvar bíllinn er ofan í ánni.
Banaslysið
í Miðfirði
MAÐURINN, sem fórst í bílslysi
við Vesturá í Miðfirði s.l. miðviku-
dag, hét Hafþór Óskarsson og var
35 ára, fæddur 18. júni 1943 og bjó
að Hraunbæ 122 í Reykjavík.
Hann var kvæntur og lætur eftir
sig þrjú börn.
Víkingur með
1350 lestir
af loðnu
Akranesi, 17. ágúst.
V/S VÍKINGUR AK 100 kom
hingað til hafnar í gær með 1350
lestir af loðnu. í dag er verið að
landa úr honum í Sfldar- og
fiskimjölsverksmiðjuna. Loðnan
er í góðu ásigkomulagi en nokkuð
smá að hluta.
V erkamannasambandið:
Guðmundur sagði, að forráða-
menn frystihúsanna segðu að
þessum uppsögnum væri á engan
hátt stefnt gegn verkafólkinu
heldur væri um neyðarráðstöfun
að ræða, og kvað Guðmundur
greinilegt að frystihúsaeigendur
væru að notfæra sér óljósa réttar-
stöðu verkafólksins til að þrýsta á
stjórnvöld um aðgerðir. Við þetta
kvað Guðmundur ekki hægt að
una, og til grundvallar áformum
Verkamannasambandsins um
málshöfðun nefndi hann lög frá
Margeir er í 2. sæti
MARGEIR Pétursson gerði í gær
jafntefli við Griinfeld frá ísrael á
alþjóðaskákmótinu 1 Gausdal 1
Noregi. Á sama tíma vann Norð-
maðurinn Wibe Sydov og er þar
með búinn að ná forystu á
mótinu.
Annars gekk Islendingum
þolanlega á mótinu í gær, Guð-
mundur og Schlússler gerðu jafn-
tefli, Jón L. vann Iskov frá
Danmörku, Haukur Angantýsson
vann Jensen frá Noregi, en Jóhann
Hjartarson tapaði fyrir Niklason
frá Svíþjóð.
Staðan á mótinu í Gausdal er nú
sú, að efstur er Wibe með 6'á
vinning, í 2.-3. sæti eru Margeir
og Grunfeld með 6 vinninga, í
4.-5. sæti eru Schússler og
DeFirmian með 5% vinning og í
6.—13. sæti eru Guðmundur Sigur-
jónsson, Westerinen, Sydov, Pytel,
Schneider, Eggström og Gouch-
berg með 5 vinninga.
Jón L. Árnason er nú kominn
með 4 V2 vinning og Haukur
Angantýsson 4 vinninga. Jóhann
Hjartarson er með 3.
Margeir Pétursson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
skák sín við Grúnfeld hefði verið
frekar stutt. Snemma hefðu orðið
mikil uppskipti á mönnum og
skákin ekki boðið upp á miklar
sviptingar. Hann kvað Schússler
hafa teflt upp á jafntefli við
Guðmund Sigurjónsson, skipt upp
á mönnum eins og frekast hann
hefði getað og Guðmundur hefði
orðið að sætta sig við jafntefli. Þá
sagði Margeir að Jón L. Árnason
hefði unnið Iskov frá Danmörku á
skemmtilegan hátt í 29 leikjum.
Haukur Angantýsson vann Jensen
frá Noregi á enn skemmtilegri
hátt, fórnaði manni og kom síðan
með skemmtilega fléttu.
íhugar málshöfðun vegna
uppsagna í fiskiðnaðinum
VERKAMANNASAMBAND ís-
lands mun á fundi. sem fyrirhug-
aður er n.k. mánudag, taka
ákvörðun um hvort sambandið
höfðar mál á hendur vinnuveit-
endum í frystiiðnaðinum vegna
uppsagna þessara aðila á starfs-
fólki í frystihúsum. Guðmundur
J. Guðmundsson, formaður
Verkamannasambandsins, sagð-
ist telja, að uppsagnir á þeim
forsendum sem frystihúsaeigend-
ur gæfu upp, væru ólögmætar og
kvaðst hafa áhuga á því að Iáta
á það reyna fyrir dómstólunum.
1958 um uppsagnarfrest verka-
fólks, þar sem kveðið er á um að
hafi starfsmaður unnið hjá sama
fyrirtæki í eitt ár eigi hann rétt á
mánaðar uppsagnarfresti, og taldi
Guðmundur að undanþáguákvæði
þessara laga ættu nú ekki við en
þar eru veitt frávik frá meginregl-
unni, ef um aflabrest eða önnur
óvænt áföll er að ræða.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
tali af fulltrúa Vinnuveitendasam-
bands íslands og leita álits VSÍ á
þessu máli.
Wibe hefur tekið foryst-
una á mótinu í Gausdal
Rætt verður við stjóm-
völd í dag — 7-8%
hagnaður nauðsynlegur
— Júlíus.