Morgunblaðið - 18.08.1978, Side 10

Morgunblaðið - 18.08.1978, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. AGUST 1978 Umdæmisþing Kiwanis að Laugum í Reykjadal ÍSLENZKIR Kiwanismcnn munu halda áttunda umdæmisþinR sitt að Lauf'um í Rcykjadai, Suður-Þinscyjarsýslu. dagana 18.. 19. og 20. áííúst. Á umdæmisþin(?um eru rædd innri málefni Kiwanishreyfingar- innar, vöxtur ojí viðgangur hreyfintíarinnar, starfið framund- an o|í áran^ur starfsins undanfar- ið. Meðal annars verður ákveðið á þessu umdæmisþinfíi, hvernig nota skuli söfnunarfé frá síðasta K- de(íi, sem haldinn var í október 1977 með góðum árangri. Féð verður notað til aðstoðar geðsjúk- um, eftir á að ákveða á hvern hátt fé þetta verður bezt notað. Umdæmisþingið, sem nú er haldið í fyrsta sinni síðsumars, verður fjölskylduhátíð um leið, og munu um 500 Kiwanismenn, eigin- konur og börn þeirra, verða á þingstaðnum. Nýkomin furusett Þriggja sæta sófi Tveir stólar og borö Mjog hagstætt uorA VERIÐ VELKOMIN GARÐHÚSGÖGN Höfum fengið takmarkað magn af SÓL: SÓFUM STÓLUM OG BORÐUm' Roscrsbcrgs slott. þar scm Norðurlandamót St. Gilda var haldið nú í byrjun ágúst. Hrefna Tynes: Norðurlandamót St. Georgs gilda 1978 Nýlega er lokið Norðurlanda- móti St. Georgs gilda, sem að þessu sinni var haldið í Svíþjóð, á stað sem heitir Rosersberg, um 30 km fyrir norðan Stokkhólm. Mætt- ir voru um það bil 400 gildisfélagar frá 5 Norðurlöndum, þar af 10 frá íslandi. Eins og flestum mun kunnugt eru St. gildin alþjóða félagsskapur gamalla skáta og annarra velunn- ara skátahreyfingarinnar. Aðal- markmið þeirra er, eins og stendur í gildisheitinu, „að lifa lífinu í samræmi við hugsjónir skáta- hreyfingarinnar um bræðralag allra manna“ — og að vinna að menningar- og mannúðarmálum eftir því, sem tími vinnst til og eftir þeim ákvörðunum, sem gildin taka hverju sinni. Og síðast en ekki sízt „styðja við skátastarfið eftir því sem aðstæður leyfa“. Á alþjóðavettvangi stuðla gildin að eflingu skátastarfs í þróunar- löndunum og skátastarfs meðal vanheilia barna í ýmsum löndum. Norðurlandagildin styðja einnig eftir megni dagvistun og skóla- göngu flóttamannabarna í Nepal, byggist það á almennri menntun og hjálp til sjálfshjálpar. Öll þessi börn og ungmenni búa við mikla fátækt í flóttamanna- búðum, þekkja ekkert annað, en taka vel við því, sem þeim er kennt. Ein af sænsku gildissystrunum frú Ains Tigerstedt hefur komið þessari hjálp af stað og frá byrjun staðið fyrir þessu hjálparstarfi. Hún flutti um þetta mjög svo fróðlegt erindi og sýndi litskugga- myndir. Hún sagði meðal annars: „Hver eyrir, sem kemur inn til þessa starfs er notaður í þágu þessara barna — ég kosta ferðirn- ar mínar sjálf“. Hún fer til Nepal árlega og fylgist með því, sem þar fer fram á vegum hjálparstarfsins. Fyrir utan „Aino-hjálpina“ eins og við segjum okkar á milli var eitt af aðalmálefnum mótsins: „Samvinna milli W.W.F. alþjóða náttúruverndarráðsins og skáta- hreyfingarinnar um að vinna að verndun alls lífs — efla virðingu fyrir lífinu í hvaða mynd, sem það birtist. Hjá manninum, sem er stærsta rándýrið, þegar allt kemur til alls, verður sú hugarfarsbreyting að verða, að það sé honum ekki einu sinni samboðið að henda frá sér rusli á almanna færi eða úti á víðavangi, heldur beri að forðast alla rányrkju og skemmdarstarf- semi, hvort heldur það sé á láði, legi eða lofti. Allt líf á jörðinni er undir því komið, að þessi mál þróist í rétta átt. Þetta var mikið rætt, og komist var að þeirri niðurstöðu, að gildin skyldu hafa samband og samvinnu Loftsteinar hættu- legri mönnum en hlut- ir úr gervihnöttum — Tunguska náttúrufyrirbærið í Síberíu cr þannig tilkomið að cldhnöttur cyddi þar rúmlcga 500 fcrmílna skógarsvæði árið 1908. Eldhnötturinn var einnar milljónar tonna brot úr halastjörnunni Encke, og á fyrirbærið scr ckki aðrar skýringar. en ýmsar kcnningar um það hafa vcrið á lofti. Þessu hcldur fram visindamaðurinn dr. Luhor Kresak mcðlimur Slovak-vísinda- akademi'unnar og einn fremsti sér- fræðingur í vfsindum þeim. sem fjalla um lausahluti f geimnum. Kresak, sem stýrði nýjum athugun- um á Tunguska, segir að hnullungur, sem var um 90 metrar í þvermál og milljón tonn að þyngd, hafi komið inn í andrúmsloft jarðar með 30 kílómetra hraða á sekúndu. Við að koma í gufuhvolfið varð hnullungur- inn að eldhnetti sem stefndi á jörðina í um 10 sekúndur. í um 5 kílómetra hæö yfir Tunguska dalnum breyttist hnötturinn svo í einn gjöreyðandi eldblossa. Jörðin sviðnaði gjörsam- lega niður í svörð á svæðinu fyrir neðan. Nú er það kenning Kresaks að hnullungurinn hafi ferðazt á braut keimlíkri braut halastjörnunnar Encke þegar jörðin var í nánd sporbrautar halastjörnunnar. Encke er eftirstöðvar risastórs hnattar sem hefur verið í sólnánd á 3—4 ára fresti síðustu árþúsundin. Þessi hnöttur hefur skilið eftir sig geimryk og hnullunga víða um geiminn og um helmingur þeirra lausahluta, sem nú eru á sveimi um sólina, á rætur sínar að rekja til Encke. Þessir lausahlutir verða sjaldan á vegi jarðarinnar, tölfræðin telur að líkurnar á árekstri stærri hnatta séu þær að slíkir árekstrar verði varla nema á hundrað milljón ára fresti. Hér er átt við hnullunga sem eru um ein míla á breidd, en ætla má að um 50 slíkir séu í jarðnánd árlega, eða í um 18 milljón kílómetra fjarlægð. En minni hnullungar ættu að koma inn í gufuhvolf jarðar oftar. Hnullungur á stærð við þann sem olli Tunguska fyrirbærinu ætti að rekast hingað á nokkur hundruð ára fresti, og næst- um daglega verða á leið jarðarinnar hnullungar allt að 100 tonnum. Til allrar hamingju er gufuhvolf jarðarinnar sú hindrun að flestir hnullungarnir eyðast þegar í efstu lögum hvolfsins. Aðeins mjög lítið hlutfall þeirra kemst til jarðarinnar KJÖRGARÐI SÍMI16975 SMIDJUVEGI6 SÍMI44544

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.