Morgunblaðið - 18.08.1978, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTÚDAGUR 18. ÁGÚST 1978
Góður bústofn for-
senda góðrar afkomu
„LandbúnaðarKýning þarf að
vera fjölbreytt og bústofninn er
náttúrlega sá þáttur í búrekstrin-
um. sem mestu skiptir. Góður
bústofn er veÍKamikil forsenda
þess að búreksturinn skili góðri
afkomu,“ sagði Sveinn Skúlason.i
Sveinn Skúlason. bóndi f Bræðra-
tun^u, við hlið Tfbrár í fjósi
landbúnaðarsýniriKarinnar.
bóndi í Bræðratungu í Biskups-
tungum, cn hann á eina þeirra 16
mjólkurkúa. sem sýndar eru á
sýningunni. kúna Tíbrá. Bústofn-
inn hjá Sveini cr rúmleKa 40 kýr
ok tæpleKa 600 fjár <>k nokkuð af
hrossum.
„Ég held að bændur séu almennt
ánægðir með þessa sýningu. Því að
auk þess, sem þeir geta hér kynnt
sér ýmsar nýjungar á einum og
sama staðnum, ætti sýning sem
þessi að vera góð kynning fyrir
landbúnaðinn. Þessi sýning gefur
góða mynd af þeirri starfsemi sem
fer fram í sveitunum," sagði
Sveinn.
Um það hvort nytin lækkaði ekki
í kúnum við þá flutninga, sem væru
samfara sýningu sem þessari, sagði
Sveinn, að það kæmi eitthvað til
með að minnka í þeim nytin en þær
næðu sér fljótt þegar heim kæmi,
fengju þær gott atlæti og góða beit.
„Það er sjálfsagt að leggja eitthvað
til sýningarinnar, ef það verður
sýningunni einhver styrkur. Kýr
eru trúlega viðkvæmasta búféð á
þessari sýningu að því er varðar
afurðir," sagði Sveinn.
Fyrirtækið Ilamar kynnir á sýningunni meðal annars stærstu dráttarvélina hér á landi, en hún er 180
hestöfl. Ljósm. RAX.
MUNUM TÉKKOSLÓVAKÍU
Útifundur á Lækjartorgi
mánudaginn 21.ágúst n.k.
Magnús Kjartansson, Pálmi Gunnarsson,
Siguróur Karlsson og félagar leika
átorginu frá kl 17,30
Ræðumenn veróa:
Finnur Torfi Stefánsson,alþingism.
Jóhanna Thorsteinsson,fóstra
Jón Magnússon, lögfr.
Jón Sigurðsson,ritstj.
Fundarstj. Einar Guðfinnsson,nemi
Tinna Gunnlaugsdóttir leikari flytur Ijóð
Lýóræöissinnuó æska
Búreikningastofa
vinnur úr búreikn-
ingum 250 bœnda
„Við erum að reyna að kynna
okkar starfsemi, hvernig
Búnaðarfélag íslands er byggt
upp ok hvað félagið gerir,“
sagði Sigurjón Bláfeld ráðu-
nautur og bætti við að mesta
áherzlan væri lögð á að kynna
húreiknistofnunina. Ennfrem-
ur er vakin athygli á útgáfu-
starfsemi Búnaðarfélagsins og
loks er starfsemi Stéttarsam-
hands bænda kynnt.
Búnaðarfélagið á rót sína að
rekja. til Suðuramtsins bús og
búsetufélags, er stofnað var
1837. Það er uppbyggt af
hreppabúnaðarfélögum, sem
si'ðan mynda búnaðarsambönd,
cn alls munu húnaðarsambönd-
in vera 15. Búnaðarsamböndin
halda sitt þing. Búnaðarþing,
þar sem fjallað er um málefni
bænda og gerðar tillögur.
Búnaðarfélagið tekur að sér
alla leiðbeiningarþjónustu og
alla félagslega þjónustu, en
kemur ekki nálægt fjármálun-
um. Búnaðarsamböndin hafa
sína eigin landbúnaðarráðu-
nauta og eru þeir minnst tveir
,í hverju búnaðarsambandi.
Stærri búnaðarsamböndin hafa
hins vegar fleiri ráðunauta á
sínum snærum og veita þeir þá
bændum tilsögn í hinum marg-
víslegustu fræðum.
Sigurjón Bláfeld við líkan af Bændahöllinni við Hagatorg, en á
líkaninu er sýnd hin fyrirhugaða stækkun Bændahallarinnar.
Eins og áður sagði leggur
Búnaðarfélagið mesta áherzlu á
að kynna búreiknistofnunina, en
hún hefur með höndum að safna
búreikningum frá bændum og
gera tillögur um bústærð og
segja hvaða bústærðir koma
bezt út í rekstri. Alls munu nú
um 250 bændur senda inn
búreikninga sína, en að sögn
Sigurjóns er að finna margvís-
legan fróðleik í skýrslunum.
Sagði Sigurjón að búreikni-
stofnunin styddi landbúnaðinn
mikið með sínum útreikningum.
Þá kynnir Búnaðarsambandið
einnig útgáfustarfsemi sína á
sýningunni, en Búnaðarfélagið
gefur út ýmsar fræðibækur, auk
þess sem það gefur út tímaritið
Frey og námsbækur fyrir
bændaskólana. Eru nokkrar
bækur seldar á sýningunni.
Stéttarsamband bænda er í
nánum tengslum við Búnaðar-
félagið, en Stéttarsambandið er
í raun verðlags- og kjaramála-
samband bænda. Á sýningunni
er sýnt hvernig Stéttarsam-
bandið er uppbyggt og hver
tengsl þess við aðrar stofnanir
og sambönd landbúnaðarins eru.
Stéttarsamband bænda á sjö
menn er sitja í framleiðsluráði
landbúnaðarins, en framleiðslu-
ráðið sér um sölumálin og hvaða
vöru á að leggja áherzlu á að
selja.