Morgunblaðið - 18.08.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1978
19
11 fulltrúar á
framhaldsfund
Hafréttarráð-
stefnunnar
SJÖUNDA fundi þriðju hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
verður fram haldið í New York
dagana 21. ágúst til 15. september
n.k. en fyrrihluti fundarins var
haldinn á tímabilinu 28. mars til 19.
maí sl. f Genf.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu verða fulltrúar
íslands á framhaldsfundinum 11, eða
þeir Hans G. Andersen sendiherra,
formaður sendinefndarinnar, Jón L.
Arnalds ráðuneytisstjóri
sjávarútvegsráðuneytisins. Már
Eliasson fiskimálastjóri, Jón Jóns-
son forstjói Hafrannsóknastofnun-
arinnar, Guðmundur Eiríksson
aðstóðarþjóðréttarfræðingur utan-
ríkisráðuneytisins, dr. Gunnar G.
Schram prófessor, Eggert G.
Þorsteinsson fyrrv. sjávarútvegsráð-
herra, Eyjólfur Konráð Jónsson
alþingismaður, Jónas Árnason al-
þingismaður, Magnús Torfi Ólafsson
fyrrv. menntamálaráðherra og
Þórarinn Þórarinsson ritstjóri.
Einar Ágústsson utanríkisráð-
herra var í gær spurður hvernig
háttað hefði verið vali á fulltrúum í
sendinefnd íslands. Sagði Einar að
þessir fulltrúar hefðu verið valdir
með sama hætti og fulltrúar á fyrri
hluta þessa fundar ráðstefnunnar og
í henni væru embættismenn og
fulltrúar þingflokkanna, ýmist þeir
sömu og sátu fyrri hluta fundarins
eða þeir, sem þingflokkarnir hefðu
tilnefnt i þeirra stað. Aðspurður um
hvers vegna Magnús Torfi Ólafsson
væri í nefndinni, þar sem Samtök
frjálslyndra og vinstri manna ættu
nú ekki mann á Alþingi, sagði Einar
að þetta væri sama sendinefndin og
setið hefði fyrri hluta fundarins
enda væri þetta sami fundur, aðeins
framhald á honum.
íslendingar
sigruðu Fær-
eyingaílands-
keppni í skák
SÍÐARI hluti landskeppninnar í
skák milli Færeyinga og Íslendinga
fór fram á Akurcyri 10. ágúst.
íslenzka sveitin var eingöngu skip-
uð skákmönnum frá Akureyri.
Úrslitin urðu þau að Akureyringar
hlutu G'/i vinning gegn 4‘/i.
Fyrri hluti landskeppninnar fór
fram á Eskifirði 7. ágúst og sigruðu
þá Færeyingar Austfirðinga með 6
vinningum gegn 5. Samanlagt sigr-
uðu þvi Islendingar i landskeppninni
með 1114 vinning gegn 10V4.
Einar S. Einarsson forseti Skák-
sambands Islands og Högni Torfason
varaforseti fylgdust með keppninni á
Akureyri og afhenti Einar Islending-
um bikar að keppni lokinni, en bikar
þennan gáfu Flugleiðir h.f.
Þorvaldur Jónsson, Sunnuhvoli 2
Fáskrúðsfirði, er sjötugur í dag,
18. ágúst. Hann hefur í fjölda ára
verið afgreiðslumaður Eimskipa-
félags íslands á Fáskrúðsfirði.
Takiö grilliö
meö
í feröalagiö
Ódýr
matarkaup
Skráð verð Okkar verð
Nauta-T-bone ...... 2.847..... kr. 2240- kg.
Nauta-grillsteik .. 1.922..... kr. 1.480- kg.
Nauta-bógsteik .... 1.922..... kr. 1.480 - kg.
Nauta-snitchel .... 5.603..... kr. 4.600 - kg.
Nauta-roast .......4.890/..... kr. 3.840- kg.
Nauta-hamborgari...............kr. 130- stk.
Svínakótelettur.............. kr’ 3J270- kg.
Lambalærisneiöar ............ kr. 1.864.- kg.
Lambakótilettur.............. kr. 1496.- kg.
Unghænur .................... kr. 1.450- kg.
Kjúklingar .................. kr. 2.090- kg.
Kjúklingar 10 stk. í kassa . kr. 1.790- kg.
Unghænur 10 stk. í kassa kr. 1.290- kg.
Villigæsir .kr. 3.100- stk.
Lundi . kr. 200- stk.
Glænýr heill smálax ., kr. 1.790- kg.
Folaldahakk .. kr. 990- kg.
Kálfahryggir .. kr. 810- kg.
Reykt folaldakjöt .. kr. 790- kg.
Nýtt hvalkjöt ..kr. 695- kg.
Reykt hvalkjöt .. kr. 750- kg.
10. kg. nautahakk .,kr. 2.150- kg.
Bacon í sneiðum ..kr. 2.100- kg.
Lambasvið (lækkað verð) ..kr. 665- kg-
Nýtt
grænmeti
Úrvals gulrófur
Gulrætur
Hvítkál
Grænkál
Rabarbarí
Salat
Paprika
Blómkál
Tómatar
Agúrkur
Lauaalœk 2, sfmi 35020.