Morgunblaðið - 18.08.1978, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1978
31
i
— Óskar náöi fjóröa bezta árangri í heiminum í gær,
en því miður íæfingakasti aö keppninni lokinni
'• Þorvarður Guðmundsson brýzt inn á línu og skorar Kegn HK.
Haukar unnu Vík-
inga í myrkrinu
HAUKAR unnu Víking í útimót-
inu í handknattieik í gærkvöldi
með 23 mörkum gegn 19. Víking-
ar leiddu 12il0 í leikhléi, en f
seinni hálflciknum sigldu Ilauk-
arnir örugglega fram úr og átti
Gunnlaugur markvörður þeirra
stórleik. Svo virðist, sem Hauk-
arnir uppgötvi alltaf nýja mark-
verði þegar þeir eldri hverfa af
sjónarsviðinu eins og raunin
hefur nú orðið á með Gunnar
Einarsson. Margt skemmtilegt
sást í þessum leik framan af, en
undir lokin var þó orðið það
dimmt að leikmenn sáu varla
hver til annars.
I fyrsta leiknum léku KR, sem
féll úr 1. deild í vetur, og HK sem
kemur nú upp úr 2. deild. Liðin
mættust því á miðri leið og það
voru KR-ingarnir, sem sigruðu
örugglega, 26:19 urðu úrslitin eftir
10:5 í leikhléi. Síðan léku Fram og
Ármann og unnu Ármenningar
15:14, eftir að leikurinn hafði verið
í járnum allan tímann. Ármann
var þó aldrei undir er líða tók á
leikinn, en oft var jafnt eða eins
marks munur.
í kvöld verða þrír leikir hjá
kvenfólkinu. Klukkan 18.15 leika
ÍR—Haukar í 2. flokki kvenna og
klukkan 18.55 Valur—Fram í sama
flokki. Klukkan 19.35 leika síðan
FH—Víkingur í meistaraflokki
kvenna. Mótið fer fram við Mela-
skólann. — áij
• LEIK íbv og Þróttar, scm fram
átti að fara í Eyjum í gærkvöldi,
varð að fresta þar sem ekki var
ha>gt að fljúga til Vestmannaeyja
síðdegis í gær. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær leikurinn fer
fram.
• EINN leikur er á dagskrá í
íslandsmótinu í knattspyrnu í
kvöld. Reynir fær Fyiki í heim-
sókn til Sandgerðis og leikur
liðanna í 2. deild hefst klukkan
19.
• ÚRSLITALEIKNUM í þriðja
flokki í knattspyrnu, sem átti að
vera í Mosfellssveit í kvöld, hefur
verið frestað. Leikurinn fer fram
á sunnudaginn og hefst klukkan
13 á Selfossi. Það eru ÍBK og
UBK. sem leika til úrslita og er
þetta annar úrslitaleikur liðanna.
leikmanna liðsins. Atli Héð-
insson lék með Holbæk í tvö
sumur, en hann leikur nú
• Á leið til Holbæk.
með Herfölge, efsta liðinu í
3. deildinni í Danmörku.
— Vissulega langar mig
til að leika áfram með KR
og þá sérstaklega í 1.
deildinni næsta sumar,
sagði Stefán í spjalli við
Mbl. í gær. — Ég held þó að
ég grípi þetta tækifæri, en
ég gerði örugglega ekki
samning nema mér líki
allar aðstæður hjá Holbæk.
- áij
MAC WILKINS kastaði kringlunni lengra á Laugardalsvellinum í gærkvöldi, en hann hefur áður gert
i keppni í Evrópu. Kringlan flaug 70.02 metra og er þetta kast hans meðal albeztu kasta í kringlukasti
í hciminum í ár. Wilkins vantaði þó rúman metra til að hnekkja heimsmeti A-Þjóðverjans Wolfgang
Schmidt. en það er 71.16. Wilkins hefur þó ekki gefizt upp og í dag klukkan 17 hefur verið ákveðið
nýtt mót í kringlukasti, þar sem Wilkins gerir enn atlögu að heimsmetinu. Að sjálfsögðu vonast hann
eftir snörpum suðaustanvindi, en vindur var töluverður í gærkvöldi.
KR-INGURINN Stefán
Örn Sigurðsson heldur til
Danmerkur eftir helgina
og mun dvelja við æfingar
hjá danska 2. deildarliðinu
Ilolbæk fram á haustið.
Stefán hefur gert hálfat*
vinnumannssamning við
félagið tii loka keppnis-
tímabilsins í Danmörku, en
því lýkur í byrjun nóvem-
ber. Líki Stefáni vistin
ytra og lítist forystumönn-
um Holbæk á þennan
skemmtilega leikmann eru
allar líkur á að Stefán geri
atvinnusamning við félag-
ið og dvelji í Danmörku
næstu tvö árin.
Stefán hefur þegar fengið
leyfi hjá félagi sínu fyrir
skiptunum og ekki er talið
líklegt að KSÍ leggi stein í
götu hans. Lið Holbæk er
nú um miðja 2. deildina í
Danmörku, en fyrir nokkr-
um árum varð liðið í 2. sæti
í Danmörku, en þá var
Jóhannes Eðvaldsson meðal
Óskar Jakobsson varð annar í
kringlukastinu í gærkvöldi með
61.52 metra. en hann á bczt 62.64
metra, náði þeim árangri á
Reykjavíkurleikunum. óskar tók
nokkur aukaköst að keppninni
lokinni og í einu þeirra flaug
kringlan lengra en nokkru sinni
áður hjá óskari. Kastið mældist
um 66'Á meter og hefði það verið
í keppni hefði það verið fjórði
bezti árangur í kringlukasti í
heiminum í ár. Sannarlega góður
árangur hjá Óskari og sýnir hvað
í honum býr. Óskar vildi þó ekki
miklast af þessu afreki sínu.
benti á að vindurinn hefði fleytt
kringlunni vel. Það segir þó ekki
alla söguna. Óskar er greinilega
að verða mjög sterkur og undan-
farið hefur Ólafur Unnsteinsson
verið honum til aðstoðar á
æfingum.
Erlendur Valdimarsson náði
sínu hezta kasti á keppnistímabil-
inu og var hann aðeins 12 cm frá
því að ná lágmarkinu, sem sett
hefur verið fyrir Evrópukeppn-
ina í Prag. Kringlan fór 59.88
metra hjá Erlendi, en lágmarkið
er 60. Erlendur fær annað tæki-
færi í dag og síðan f bikarkeppn-
inni um helgina. Elías Sveinsson
varð fjórði í keppninni með 48.04
metra.
í kúluvarpinu kastaði Hreinn
Ilalldórsson 20.15 metra og er
það ágætt afrek miðað við að
Hreinn hefur keppt mikið að
undanförnu og stefnir ekki að
toppárangri að nýju fyrr en um
mánaðamótin í Prag. Auk þess
köstuðu kúluvarpararnir á móti
vindi í gærkvöldi. Guðni Hall-
dórsson kastaði 17.44 m og Elías
Sveinsson 14.28 m. — áij.
FRAMARAR
í ÞJÁLFUN
ALLAR líkur eru á að Karl Benediktsson verði með 1. deildarlið
Fram í handknattleik na>sta vetur. Þá er líklegt að Arnar
Guðlaugsson hætti með Fram í haust og gerist þjálfari og leikmaður
með Þór frá Akureyri í vetur. Arnar lék þó með Fram í útimótinu
í gærkvöldi. Þá er líklcgt að Pétur Jóhannsson, Framari, þjálfi
Aftureldingu í Mosfellssveit í vetur.
Ilannes Leifsson verður að lfkindum áfram með Þór í Eyjum.en
hins vegar er óvíst hvað Andrés Bridde gerir. Ragnar Hilmarsson
úr Fram fer að öllu óbreyttu til Eyja og leikur með Þór. Þjálfari
Þórsliðsins verður sá gamalreyndi Þórarinn Ingi Ólafsson. sem á
sínum tíma lék með Víkingi.
Loks má geta þess að þjálfari KA verður Birgir Björnsson.
- áij
BABBI BÁT-
INN HJÁ ÍBV
VESTMANNEYINGUM barst í íyrradag skeyti frá Glentoran í
Belfast þar sem segir að liðið geti ekki leikið hér á landi í
UEFA keppninni 5. september, eins og ákveðið hafði verið. Segja
Írarnir að ekki sé mögulegt að fá flugfar til íslands dagana fyrir
lleikinn. Bjóðast írarnir til að leika hér á landi þriðjudaginn 29.
ágúst, en ýmis vandkvæði eru á að það sé framkvæmanlegt.
í fyrsta lagi eru ekki nema 12 dagar fram að þcim tíma og
leikir ÍBV mjög örir þessa dagana, þannig að lítill tími gæfist
til að undirbúa liðið fyrir lcikinn. I annan stað er þetta lítill
frestur fyrir UEFA að ákveða dómara á leikinn og boða þá með
þessum fyrirvara. Reglugerðir segja að nauðsynlcgt sé að
tilkynna breytingu á ákveðnum leikdögum með þriggja vikna
fyrirvara. í þriðja lagi reynist Vestmanncyingum trúlega erfitt
að fá inni fyrir Irana á hótelum í Reykjavík í lok mánaðarins.
Vestmanneyingar ræða við forystumenn Glentoran í dag og
verður þá athugað hvort ekki sé hægt að koma leikmönnum
Glentoran til íslands dagana fyrir 5. september eftir öðrum
leiðum en í gegnum London eða Glasgow. —áii.
STEFAN ORN
TIL HOLBÆK
EFTIR HELGI
• — Mér gengur yfirleitt betur seinni daginn á frjálsiþróttamótum, sagði Mac Wilkins í gær og e.t.v.
tekst honum að hnekkja heimsmetinu í kringlukastskeppninni, sem hefst á Laugardalsvellinum klukkan
17.00 í dag. í gær bætti hann vallarmetið á Laugardalsvellinum í þriðja sinn á einni viku.
(Ljóm. Mbl. RAX)
WILKINS REYNIRÁ
NÝJAN LEIK í DAG