Alþýðublaðið - 23.11.1958, Blaðsíða 3
KABARETTINN „Mon C»eur“
er nú sem kunnugt er hér á
ferð. — Blaðamonnum var
boðið í gær að eiga viðtal við
gestina — barna sátu þessar
frægu persónur — ja, líkt og
venjulegt fólk. — Franz Ruz-
ica hafði helzt orð fyrir hópn-
um, en allir voru fúsir til að
láia í té allar þær upplýsingar,
sem óskað var. — Hann sagði,
að það væri mjög óvenjulegt
að Friðrik og Nína kæmu fram
opinberlega; þau syngju yfir-
leitt aðeins á plötur, í sjón-
varp, í útvarp eða kvikmynd-
um.
MIKIL ös var við Austur- ;
bæjarbíó í gær er sala miða;
á kabarettinn með Nínu og I
Friðrik hófst, Voru langar;
hiðraðir oa- allt seldist upp á ;
IVa tíma. ■
Nú á miðvikudaginn næsta
kæmu þau fram í BBC. Þau
hefðu verið beðin að koma til
London, en þau hefðu kosið Is-
land — „og her finder vi os
som hjemme — publikum har
forbavset os“. — Kvikmynd
sú, sem þau léku í „Verdens
rigeste pige“ var frumsýnd í
Svíþjóð. Hún vakti þar geisi-
hrifning og hún „gekk“ í þrjár
vikur í Kaupmannahöfn,
,.Mon Coeur“ fæddist, ef svo
mætti segja, á fjallahóteli í
Noregi. Hjónin Ruzicka voru
þár í fríi og eitt kvöldið skorti
dægrastytting. Þau voru spurð,
hvort þau gætu ekki gert eitt-
hvað til skemmtunar — sung-
ið? — „Ja, — en hér er ekkert
hljóðfæri.“ En viti menn —
,,vi har jo en fin harmonika“;
svo sungu þau nokkur lög. Einn
áheyrandanna hvatti þau síðan
til að stofna kabarett. Þau
leigðu sér húsnæði í Osló — og
þar með hófst ferillinn.
— Og hvers vegna heitir
kabarettinn „Mon Coeur“ —
hiarta mitt? „Vegna þess, að
kabarett krefst alls hjartans“.
Þetta var svar frú Kate, —
Nína og Friðrik hafa þekkst
frá fyrstu sokkabandsárum. —
Þau sungu stundum að gamni
sínu í vinahóp — einn daginn
datt þeim í hug að reyna fyrir
sér hjá Ruzieka. sem nú var
fluttur til Kaupmamiahafnar
með kabarettinn. — IJann réð
þau til tíu daga. Og launin voru
Ruzicke og Kate
35.00 kr. á dag. Nokkru seinna i
sá hann sig um hönd og lækk- j
aðj launin niður í 25.00 kr.!!!j
„Men stjerner blev födt“. —j
Seinna bsettist Bödker píanó-
leikari í hópinn. — Og' nú eru
þau hér. Þau munu syngja á
Reykjalundi á mánudag eða1
þriðjudag. Sxðan liggur leiðin
til Kaupmannahafnar á ný.1
Þar munu Nína og Friðrik
syngja inn á „jólaplötu“ og
leika í nýrrj kvikmynd. —
„Men vi vil komme igen -— det
er sikkert — nár, ved vi ikke
— men vi kommer“.
NÝVERIÐ opna'ði nýr og
glæsilegur veitingasalur í Kefla
vík. Er það Matstofan Vík, en
eigandi hennar er Magnús
Björnsson, Keflavík, sem rek-
ur þennan nýja veitingasal.
Veitingasalurinn er til húsa að
Hafnargötu 80, í sama húsi og
Matstofan Vík, cn á efri hæð.
Öll innrétting salarins er
með meiri glæsibrag en Kefl-
víkingar hafa áðúr þekkt og
má hiklaust telia, að hann jafn
ist vi ðhið bezta er gerist hér-
iendis. Á stigapalli, þegar geng
ið er upp í salinn, er komið
fyrir görnlum hlóðum og um-
hverfi úr gömlu eldhúsi. Sal-
urinn er mjög fallega innrétt-
aður. Einn veggurinn er sem
j hlaðinn bæjarveggur, tveir
i veggir eru klæddir vaðmáls-
tjöidum og fjórði veggurinn
klæddur furu. Gólf er teppa-
lagt, nema það, sem ætlað er
j til dans og eins stígi. Raflýsing'
j er afar þægileg. Sívöl Ijósker
j yfir hverju borði. Húsgögn eru
látlaus en.smekkleg.
Iðnaðarmenn hafa leyst verk
1 efni sín mjög vel af hendi. Tré
j verk annaðist Sturlaugur
j Björnsson, Keflavík, pípulagn-
ir Björn Magnússon, Keflavík,
raflagnir Þorleifur Sigurþórs-
son, Keflavík. Gluggatjöld eru
frá verksm. Álafoss og gólf-
Framhald á 5. síðu.
ÞÓRSCAFE í Reykjavík urinn tók 220. Salurinn er
opnaði í gær í glæsilegum nýj-J mjög rúmgóður og vistlegur,
um húsakynnum að Brautar- dansgólfið er lagt terrassó, en
holti 20. I þaS er alger nýiung hér á landi,
Fyrir þremur árum keypti en tíðkast víða á S'páni og
Brunabótafélag íslands hús- Ítalíu. Gólfið er mjög fallegt
næði það, sem Þórscafé starf-. og þægilegt er að dansa á því.
aði í og voru þá tveir kostir Gluggatjöldin vekja athygli,
fyrir hendi: að leggja starfsem en þau eru ofin á Akureyri í
ina niður eða reisa nýtt hús, verksmiðju Gefjunar. Þorvaíd-
því að um leiguhúsnæði var ur Hallgrímsson verksmiðjustj.
ekki að ræða. Ragnar Jónsson annaðist vefnaðinn en bað, sem
valdi -síðari kostinn og hófst vekur þó kannske meiri athvgli
handa um að fá nýjan stað fyr er að gluggatjöldin eru miklu
ir starfsemina, og reisti því ódýrari en innflutt, þó að þau,
húsið að Brautarholti 20. .! að gæðum til, standi fullkom-
Hinn nvi salur á Þórscafé lega samanburð við það bezta
„RÖÐULL* nefnist nýtt og
glæsilegt veitingahús, sem opn
að var í gær. Er það í hús' Bólst
wrgerðarinnar h. f. við Skip-
holt 19, á horni Skipbolts og
Nóatúns. „Röðull“ var áður á
Laugavegi 89, en síðan í vor
hefur verið unnið að innrétt-
ingu hins nýja húsnæðis.
„RöðuH“ mun á næstu dög-
um hefja starfsemi sína í þess-
um nýju húsakynnum, sem eru
á tveim hæðum, og er gengið
inn frá Skipholti. Á götuhæð
er forsalur með fatag'eymslum,
snyrtiherbergjum og skrif-
stofu. Á millihæð er vínstúka,
sem mun vera hin stærsta á
landinu. Þar er einnig herbergi
starfsfólks, s. s. snyrtiherbergi,
matstofa og' fatageymslur. Einn
ig er þar að baki forvinnsla
matar og kalt eldhús.
DANSGÓLF UPPI.
Af millihæö er hringstigi á
veitingasali á efri biæð, sem
liggur mishátt, þannig að dans-
salur er nokkru lægra en mat-
salur. Þar er rúm fyrir 200
manns. Að baki matsalar er eld
hús fyrir heitan mat og þar
einnig glasa- og leirþvottur. Að
; húsabaki eru rúmgóðar mat-
' væla- og kæligeymslur ásamt
; þvottahúsi.
j . • ■ . .... ■ .
I. FLOKKS HÚS.
Veitingahús þetta verður í
I. flokki og muíi kappkosta að
veita gestum sínum hið bezta
af' heitum og köldum rétturn
og góða þjónustu. Fram-
kvæmdastjóri verður Ólafur
Ólafsson, veitingamaður. Dag-
legan rekstur annast Daníel
Pétursson, sem er útlærður í
yeitinga- og gistihúsarekstri.
Yfirmatsveinn verður Árni
Jónsson og yfirþjónn Gunnar
Friðjónsson.
1
HAUKUR MORTHENS
SYNGUR.
Létt og þægileg tónlist mun
verða flutt af kvartett Árna'
Elfars, en söngvarj Haukur
Morthens. Frá kl. 7,30—9 e.h,
^ munu íiðluleikarinn Jónas Dag
I bjartsson og Árni Elfar leika
| létta, sígilda músík. Húsið
j verður opið almenningi á
| venjulegum veitingatímum. Ef
til vill verða dansleikir öðru
hvoru, en það mun ekki af-
ráðið enn. ,
Fyrsta dansparið, söngvararnir Elly Vilhjalms og Ragnar
Bjarnason og KK sextettinn.
"i'
,-y •>
Aiþýðublaðið — 23. nóv. 1958