Morgunblaðið - 08.12.1978, Side 8
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978
Líkantilraunir valda byltingu
í hönnun hafnarmannvirkja
Rætt við Magnús Oddsson, bæjarstjóra á Akranesi
Líkantilraunir eru að verða snar
þáttur í hönnun hafnarmann-
virkja hér á landi, eftir að
Hafnamálastofnun ríkisins
eignaðist tæki til slíkra rannsókna
og fékk aðstöðu fyrir þau inni á
Ártúnshöfða í Reykjavík. Þegar er
búið að gera rannsóknir og
athuganir á vandamálum
nokkurra hafna. Þær umfangs-
mestu hafa verið gerðar á líkani af
Akraneshöfn, sem er ein af mestu
flutningahöfnum landsins og mikil
fiskihöfn, en þar er við stór
vandamál að glíma, eins og fram
kemur í eftirfarandi viðtali við
Magnús Oddsson, bæjarstjóra á
Ákranesi:
— Hve miklum afla er iandað á
Akranesi?
Það er nokkuð mismunandi frá
ári til árs. Árið 1975 var landað
31.000 tonnurfi. árið 1976 40.000
tonnum og á síðasta ári 51.000
tonnum. Mismunurinn stafar aðal-
lega af löndun bræðslufisks, en
magn hans getur verið mjög
breytilegt frá ári til árs. Þó er ljóst
að veruleg aukning er í löndun
slíks fisks hjá okkur á síðstu árum
og eiga, sumarveiðarnar og hin
góðu og afkastamiklu fiskiskip
sinn þátt í þeirri þróun.
— Hve miklir flutningar fara
árlega um höfnina?
Á s.l. ári var uppskipað hér
Líkantilraunir gefa mjög ákveðnar vísbendingar um þann árangur er
vænta má. Á þessu linuriti er sýnt hve átök í landfestar við
Sementsverksmiðjubryggjuna minnka. eftir því, sem grjótgarðurinn
er slétt við enda hafnargarðsins eru átökin 117 tonn. en þegar
garðurinn er kominn 150 m fram fyrir enda hans verða átökin 18 tonn.
Með 120 m. garði eru átökin 28 tonn.
Sjómenn á Akranesi fylgdust af áhuga með lfkantilraununum. Mynd þessa tók Bergsteinn Gissurarson,
verkfræðingur, er hópur sjómanna ræddi við starfsmenn Hafnamálaskrifstofunnar um vandamálin.
Lengst til vinstri er Gísli Viggósson, verkfr. að útskýra fyrirkomulag tilraunarinnar. Fremst sést
hafnargarðurinn með grjótgarði, er nær út á enda hans. Að innanverðu við garðinn liggur flutningaskip
(Dettifoss) en fyrir innan hann togari. Við bátabryggjuna (vinstra megin við miðju) er flutningaskip og
togari. Við Sementsbryggjuna lengst t.h. er flutningaskip. (Freyfaxi).
226.000 tonnum af vörum og
hráefni. 121.000 tonnum var út-
skipað, aðallega fullunninni vöru.
Mikið af þessum flutningum eru
tengdir Sementsverksmiðju
ríkisins. Til viðbótar má nefna að
Akraborgin flutti 165.000 farþega
og 38.000 bíla á árinu.
— Hver eru vandamál hafnar-
innar?
Stærstu vandamálin stafa af
hreyfingu sjávar innan hafnarinn-
ar. Akraneshöfn er á Skipaskaga,
fremst á Akranesi. I suðvestan og
vestanátt er ölduhæð við hafnar-
mynnið 13% af hæð úthafsöldunn-
ar áður en hún kemur inn í
Faxaflóa. í Flóanum myndast
vindalda, sem í þessum áttum
leggst ofan á úthafsölduna. Á
hverri úthafsöldu geta verið 2—3
vindöldur. Þessar tvær öldugerðir,
mynda saman margbrotnar og
þungar öldur. Þær geta orðið allt
að 180 m langar og dæla miklu
magni sjávar inn í höfnina, þegar
þær fara fyrir hafnarminnið og
soga það út aftur þegar þær eru
farnar hjá. Þetta veldur öldugangi
og sogum víðsvegar um höfnina.
Ölduhæð innan hafnarinnar getur
orðið hálfur annar metri.
Afleiðingarnar eru miklar
hreyfingar skipa. Skip geta
hreyfst 6 m fram og aftur
meðfram bryggju, önnur hreyfast
að og frá bryggju og berjast þá oft
illa saman og utan í hafnarmann-
virkin, enda er Akraneshöfn ein-
hver mesta tjónahöfn landsins,
hvað slíkar skemmdir varðar.
— Hvað hefur verið gert til
úrbóta?
Fyrstu kannanir til úrbóta voru
gerðar af Dansk Hydrolisk
1 Institut árið 1963. Þessar kannanir
voru að ýmsu leyti ófullkomnar og
meira byggðar á mati en
mælingum.
Sumarið 1973 var hafin bygging
tveggja steinsteyptra kera og var
fyrirhugað að framlengja hafnar-
garðinn með þeim. Álit sér-
fræðinga með hliðsjón af fyrr-
Bókin um Jón á Akri
Skrifuð af vinum hans
MAN ÉG ÞANN MANN
„ BDKIN UM
JON A AKRI
Vinir Jóns Pálmasonar fyrrum alþingismanns og ráðherra, pólitískir
andstæðingar jafnt og samherjar, lýsa eðliskostum hans vel í þessari bók.
Þeir minnast glaðværðar hans á góðri stund, drengilegrar framgöngu hans er
þjóðarsómi krafðist, trygglyndis hans og vinsælda, sem voru með eindæmum.
Veigamesti þáttur bókarinnar er viðtal,
sem Matthías Johannessen átti við Jón,
drög að ævisögu hans, en aðrir, sem efni
eiga í bókinni, eru« Ágúst Þorvaldsson,
Björn Bergmann, Brynhildur H. Jóhanns-
dóttir, Hjörtur Kristmundsson, Emil
Jónsson, Guðmundur Jónsson, Guðrún P.
Helgadóttir, Gunnar Thoroddsen, Halldór
Jónsson, Jóhann Hafstein, Ingólfur
Jónsson, Jónas B. Jónsson, Magnús
Þorgeirsson, Pétur Þ. Ingjaldsson,
Sigurður Bjarnason og Þorsteinn
Bernharðsson.
Jón á Ákri var óefað í hópi svipmestu
og merkustu menna sinnar samtíðar og
þessi fagra og myndskreytta bók mun
verða aufúsugestur þeirra, er muna
þennan glaðbeitta þingskörung og
héraðshöfðingja.
SKUGGSJA
„Ágúst
eftir Hugrúnu 1
nýrri útgáfu
UT er komin skáldsagan
„Ágúst í Ási“ eftir Hugrúnu í
annarri útgáfu. Hún kom
fyrst út 1955 og seldist þá
UPP hefur verið ófáanleg
síðan.
Útgefandi er Bókamiðstöð-
in.