Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 Anna Bjamadóttir skrifar frá Svíþjóð: Vandamál í velferðar- þjóðfélagi Drykkjusýki Fyrir skömmu var kveðinn upp dómur í máli tveggja drykkjusjúkra starfsmanna Voivo í Gautaborg. Þeim hafði verið sagt upp störfum og höfðu kært uppsagnirnar fyrir at- vinnudómstólnum. Starfsmenn- irnir unnu málið og var Volvo gert að greiða þeim skaðabætur og þeir héldu vinnunni. Dómurinn var felldur sam- kvæmt lögum um atvinnuör- yggi. Þar segir að ekki megi segja upp starfsfólki vegna aldurs, sjúkleika eða hnignandi orku heldur eigi að fela starfs- fólki störf sem það ræður við innan fyrirtækisins. Dómstóll- inn leit svo á að drykkjusýki starfsmanna Volvo væri sjúk- dómur sem fyrirtækið hefði átt að hjálpa mönnunum að komast yfir. í vörninni fyrir dómnum var bent á að Volvo hefði reynt að hjálpa mönnunum en ekki tekizt og slæm mæting hefði að síðustu ráðið úrslitum um upp- sagnirnar. Annar mannanna hafði unnið hjá fyrirtækinu í 7 ár og er 29 ára. Hann hafði mætt illa og aldrei sýnt læknis- vottorð um veikindi. Hann hafði átt við drykkjuvandamál að stríða þegar hann byrjaði aö vinna hjá fyrirtækinu. 1974 var byrjað að reyna að hjálpa honum. Hann var sendur í meðferð hjá lækni fyrirtækisins og á sjúkrahúsum en þrisvar hætti hann meðferðinni áður en henni var lokið og mætti nokkr- um sinnum undir áhrifum áfengis á vinnustað. Hinn maðurinn er 40 ára og hefur unnið hjá Volvo í 9 ár. Strax 1969 var byrjað að hjálpa honum. Hann var látinn skipta um starf innan fyrirtækisins, honum var hjálpað til að flytja í betra umhverfi og honum var veitt peningaaðstoð. En ástund- un hans og orka fóru síversn- andi þangað til að honum var sagt upp störfum 1977. Atvinnudómstóllinn viður- kenndi í dómsúrskurðinum að Volvo hefði reynt að hjálpa mönnunum en hefði ekki gert nóg og allar leiðir hefðu ekki verið reyndar. Öðru máli gæti gegnt um smærri fyrirtæki, en hjá Volvo í Gautaborg starfa yfir 7000 manns og dómstóllinn taldi að svo stórt fyrirtæki ætti að hafa góða aðstöðu til að hjálpa drykkjusjúkum starfs- mönnum og styrkja þá. , Úrskurður dómstólsins að ekki megi segja drykkfelldum starfsmönnum upp störfum vegna þess að þeir eigi við sjúkdóm að stríða vakti athygli hér. Dagblaðið Dagens Nyheter skrifaði til dæmis í leiðara að héðan í frá yrði auðveldara að misnota lagabókstafinn sem á að veita sjúkum og öldruðum atvinnuöryggi. Dómurinn hefur í för með sér að minni hætta er á uppsögn úr starfi þó að starfsmenn stundi ekki vinnuna sem skyldi og mæti undir áhrifum á vinnustað. Taugaveiklun Sjálfsmorð eru orðin algeng- ari dánarorsök í Svíþjóð en banasiys í umferðinni. Næstum annar hver karlmaður og þrjár af hverjum fjórum konum fara yfir á taugum og þurfa á læknishjálp að halda fyrir sextugt. Þetta kemur fram í greinargerð starfshóps sem hef- úr starfað. síðan 1969 að athug- un á því hvernig hægt sé að koma í veg fyrir sálræna erfið- leika fólks. Greinargerðin var lögð fyrir Gabriel Romanus, félagsmálaráðherra, nýlega. Niðurstöður starfshópsins sýna að miklum hluta Svía líður ekki sem bezt þrátt fyrir vel- ferðarþjóðfélagið. Einmanaleiki hrjáir marga. 770.000 manns eru einstæðingar en hálf milljón þeirra eru ellilífeyrisþegar sem' búa einir. Alls eru íbúar Svíjojóðar rúmlega 8 milljónir. Ar hvert fremja 2000 manns sjálfsmorð en 20.000 gera til- raun til sjálfsmorðs. Þeir sem eiga við áfengisvandamál að stríða eru ekki taldir með geðveikum. Tíundi hver maður á við áfengisvandamál að stríða og alls hefur hálf milljón Svía beðið tjón líkamlega eða félags- lega vegna áfengisneyzlu. Starfshópurinn leggur til í greinargerð sinni að styrkir til rannsókna á orsökum geðrænna vandamála verði auknir. Hann telur að aukinnar þekkingar sé þörf á umhverfi barna og bæklaðra og á aðstæðum á vinnustað og áhrifum þeirra á geðheilsuna. Nú fara um 20 millj. s.kr. til sálrænna rann- sókna á ári. Mælt í mannafla er álíka miklu varið til rannsókna á sálrænum og félagslegum vandamálum og er varið til rannsókna á tannheilsu fólks. ... og tannheilsa Tannlæknir nokkur í Lundi, Jan Hákanson, lauk fyrir skömmu rannsókn og ritgerðar- smíð um tannheilsu fólks. Hann komst að þeirri niðurstöðu að fólk með meiri menntun, hærri laun og í efri stigum þjóðfélags- ins fer oftar til tannlæknis en þeir sem hafa lægri laun og minni menntun. Þó þurfa hinir síðar nefndu ekki endilega að hafa verri tennur en hinir fyrr nefndu. Konur í hvorum hópn- um sem er fara oftar til tannlæknís en menn. Hákanson byggði niðurstöður sínar á svörum 1302 aðspurðra. Um 10% þeirra sögðust draga það í lengstu lög að fara til tannlæknis vegna óþægindanna sem því fylgir. 87% sögðust myndu fara reglulega ef þeim væri það skylt með lögum. Ókeypis tannþjónusta væri mik- ilvæg umbót í augum 39% en 58% voru á öðru máli. Athuganir margra tannlækna á sjúklingum hafa sýnt að þeir sem fara reglulega til tannlækn- is halda tönnunum lengur og hafa færri skemmdar en þeir sem fara sjaldan og óreglulega. 63% af þeim sem enn hafa eigin tennur láta líta á þær einu sinni á ári. Á aidrinum 20—24 ára hefur fólk að meðaltali 29 af sínum eigin tönnum en á aldrin- um 55—60 ára eru aðeins 11 tennur að meðaltali eftir á réttum stað. Og nýverið kom í ljós sam- kvæmt rannsókn Jan-Erik Berg- ström og Stig Lavstedt, tann- lækna við tannlæknaháskólann í Stokkhólmi, eð þriðji hver mað- ur burstar tennurnar vitlaust og veldur þannig tönnunum tjóni. Helzt á að bursta tennurnar að minnsta kosti tvisvar á dag en auk tannburstans má styðjast við tannþráð og tannstöngla við tannhreinsun. Tannburstinn á að hafa stutt og mjúk hár sem eru alltaf dregin í sömu átt eða frá gómnum. — En samkvæmt rannsókn Jan Hákansson hreinsa 19% Svía ekki tennurn- ar nema endrum og eins. mi * 1 wmwmmm •uiiitniimHiimii llllllllillliillllillll1’

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.