Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 46 ÉG VIL með þessari plötu reyna eitthvað nýtt, ekki alltaf það sama. satfði Hafnfirðingurinn Björgvin Halidórssun í stuttu spjalli er Mbl. hafði samband við hann í tilefni nvútkominnar hljómplötu hans, „Ég syn>{ fyrir þi«“. sem Hljómplötuútgáfan hf. Kefur út. — Þar á ég við, að ég er að reyna að þróa með mér eigin söngstfl, þ.e. það sem kallast „songstylist". Þessi hijómplata Björgvins cr jafnframt fyrsta sólóplata hans eftir rösklega sjö ára hlé. Björgvin kemur hér fram í öðru ljósi en landsmenn hafa kynnst honum til þessa. Hann er róman- tískari í lagavali á þessari hljóm- plötu en áður, en lögin eru ástarsöngvar úr ýmsum áttum. — Ég byrjaði í hljómlistinni, þegar ég var sautján ára, en hafði frá því ég var fimm ára gamall patti ákveðið að verða tónlistar- maður og ekkert annað. Ég er sjálfmenntaður, hef ekki gengið á tónlistarskóla. Að sumu leyti er það hagstætt, maður fer sínar eigin götur í tónlistinni. Nokkur lög hef ég samið, en fimm eða sex þeirra verið gefin út á plötu. Björgvin hefur sungið inn á fjölmargar hljómplötur, svo sem með Hljómum, Lónlí Blú Bojs og Brimkló. Einnig hefur hann sungið inn á tvær vísnaplötur. — Plötunum mínum hefur verið tekið með ýmsu móti, en í heildina hafa þær hlotið ágæta dóma. Til dæmis fyrri vísnaplatan, sem gefin var út með lögum í nútíma- útsetningu mæltist misjafnlega fyrir, en ég vona að útkoma plötunnar hafi orðið til að lífga upp á gömlu þjóðvísurnar okkar. A hinni nýju plötu Björgvins eru „Ég syng fyrir þigM Björgvin Halldórsson og Ragnheiður Reynisdóttir kona hans. tólf lög, þar af fjögur eftir íslenzka höfunda. Eitt laga Björgvins er á plötunni við Ijóð Vilhjálms Vilhjálmssonar heitins söngvara, Skýið, og er það lag jafnframt tileinkað Vilhjálmi. Meðal ann^ arra eru tvö lög eftir Jóhann G. Jóhannsson og eitt lag eftir Magnús Kjartansson. Texta við lögin gerðu Jón Sigurðsson, Jóhann G. Jóhannsson, Jónas Friðrik, Kristmann Vilhjálmsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson eins og áður segir. Björgvin syngur einnig nær allar bakraddir en með honum syngja í einu laganna Karlakór Reykjavíkur og í tveimur Ragn- hildur Gísladóttir. Hljóðfæraleikarar eru bæði erlendir og innlendir, en þeir eru Sigurður Karlsson, Stuart Elliot, Pálmi Gunnarsson, Dave Olney, Halldór Pálsson, Ted Burrows, Magnús Kjartansson, Mike Mac- Naught og Ray Cooper, ásláttar- hljóðfæraleikari Elton Johns. Upptaka plötunnar fór að mestu fram í Hljóðrita í Hafnarfirði, en endanleg vinnsla í Red Bus Recording Studios í Lundúnum. Upptöku stjórnuðu Geoff Calver, Björgvin Halldórsson og Magnús Kjartansson. — Mér hefur verið boðið að gefa út tvær plötur fyrir enskan markað hjá Red Bus, en hef ekki ákveðið neitt í því efni enn. Taki ég þessu boði, stendur til að þrjú laganna á þessari plötu verði gefin út með enskum texta. Ég reyni að vanda til þess sem ég geri, en ekki borgar sig að færast of mikið í fang í einu, því að þá er hætta á að lögunum verði ekki sinnt eins vel og skyldi, sagði Björgvin Halldórs- son að lokum. TVÍBYTNAN LÖKH\? UNGLHfGABÆKUR E.W Hildick FANGARNIR í KLLTTAVIK Þetta er einhver skemmtilegasta og viðburðaríkasta unglingasaga metsöluhöfundarins Edmund W. Hildick. Hann er breskur höfundur sem hefur hlotið margvíslega við- urkenningu fyrir bækur sínar. Sag- an um Fangana í Klettavík mun falla öllum vel í geð, sem hafa ánægju af spennandi og dularfull- um atburðum. Andrés Kristjáns- son þýddi. Sven VCLrnström LEIKHÚSMORÐIÐ Fyrir nokkrum árum kom út hjá Iðunni bókin Ævintýraleg útilega eftir Sven Wernström, þennan víð- fræga og umdeilda höfund. Sú bók hiaut verðskuldaðar vinsældir. Leikhúsmorðið segir frá því þegar Barbro og Tommi gera hópverkefni um Litla leikhúsiö. Þar er eitthvað meira en lítiö dularfullt á ferðinni. Smám saman átta þau sig á aö það er verið að undirbúa morð að tjaldabaki — morðiö á Litla leik- húsinu. Þórarinn Eldjárn þýddi. Bent Haller TVÍBYTNAN Tvíbytnan er verðlaunabókin í sam- keppni sem bókaforlagið Borgen í Kaupmannahöfn efndi til árið 1976 um bækur handa börnum og ung- lingum. Verðlaunaveitingin og bókin ullu strax gífurlegum umræðum og deilum, sem hafa m.a. snúist um, hvort bókin ætti yfirleitt nokkurt erindi til unglinga. Tvíbytnan á því ekki síst erindi til foreldra og annarra sem fullorðnir eru. Guólaugur Arason þýddi. Gunnel Becktnan ÞRJÁR VÍKUR FRAM YFIR Maja er nýbyrjuð í menntaskóla. Örvænting grípur hana þegar hún gerir sér grein fyrir, að kannski á hún von á barni. Margvíslegum lausnum skýtur upp í kolli hennar. Gunnel Beckman er meðal virtustu barna- og unglingabókahöfunda Svía og hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir bækur sínar, m.a. Nils-Holgersonsverðlaunin. Jóhanna Sveinsdóttir þýddi. Evi Bogenæs DRAUMAHEIMUR KITTU Kitta er kyrrlát, feimin og hlédræg. Móðir hennar er fræg leikkona sem hefur lítinn tíma til að sinna dóttur sinni, föður sinn þekkir Kitta ekki. Það sem hjálpar Kittu að sigrast á erfiöleikunum er draumaheimur hennar. Þar skipar Sveinn æsku- vinur hennar, mikið rúm. Evi Boge- næs er meöal virtustu barna- og unglingabókahöfunda Norömanna. Andrés Kristjánsson þýddi. Bræöraborgarstig 16 Síml 12923-19156 I / / BHBBKI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.