Morgunblaðið - 08.12.1978, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978
52
Stjórnarandstaða í verkstjórn:
Þungur skriður
þingmála í fyrradag
Fundir voru í báðum deildum þings í fyrradatj. í forsetastól í efri deild var Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S),
nýkjörinn forseti dcildarinnar, en í neðri deild Sverrir Hermannsson (S), 1. varaforseti þeirrar deildar. Segja má
því að stjórnarandstaðan hafi verið við verkstjórn á Alþingi í gær.
Enn forsetakjör
í efri deild
• — Jón Helgason (F) var kjörinn
1. varaforseti efri deildar með 12
samhljóða atkvæðum. Þrír kjörseðl-
ar voru auðir. 5 þingmenn fjarver-
andi. Þar sem J.H. var 2. varaforseti
deildarinnar þarf enn að kjósa
forseta í efri deild, þ.e. 2. varaforseta
í stað Jóns Helgasonar.
• — Fram var haldið 1. umræðu um
stjórnarfrumvarp um fuglaveiðar og
fuglafriðun. Stefán Jónsson (Abl)
lauk ræðu um málið, er hann hóf á
fyrri fundi deildarinnar, og var
málið afgreitt til 2. umræðu og
menntamálanefndar.
• — Frumvarp til laga um leiklist-
arlög, þess efnis að fjárveitingar
ríkissjóðs nái ekki einungis til
atvinnuleikhúsa og áhugaleikfélaga,
heldur „annarrar leiklistarstarf-
semi, svo sem sjálfstæðra leikhópa"
var afgreitt til 2. umr. og mennta-
málanefndar.
• — Frumvarp til staðfestingar á
bráðabirgðalögum fyrri ríkisstjórn-
ar, þess efnis að hækkun launa að
vissu marki, skv. kjarasamningum í
júní 1977, skerði ekki tekjutryggingu
ellilífeyrisþega, var afgr. til 2. umr.
og heilbrigðis- og trygginganefndar.
• — Félagsmálaráðherra mælti
fyrir stjórnarfrumvarpi, þess efnis
að Ferðaskrifstofa ríkisins greiði
landsútsvar, til samræmingar á
lögum um þá stofnun og lögum um
tekjustofna sveitarfélaga. Málið var
afgreitt til félagsmálanefndar og 2
umr.
• — Landbúnaðarráðherra mælti
fyrir frv. um verðjöfnunargjald á
sauðfjárafurðum, þess efnis að
ríkissjóði sé heimilt að endurgreiða
verðjöfnunargjald það, sem fram-
leiðsluráð landbúnaðarins tók af
framleiðslu sauðfjárafurða haustið
1977. Hér er talið að sé um 1300
m.kr. að ræða. Málið var afgreitt til
landbúnaðarnefndar
• — Ilelgi F. Seljan (Abl) mælti
fyrir frv. um sölu á notuðum
iausafjármunum, þ. á m. sölu
notaöra bíla. Sagði hann Arnmund
Backmann, lögfr., höfund frum-
varpsins, sem sniðið væri eftir
norskri löggjöf og í því sambandi
stuðst við ábendingar landssam-
bands löggiltra bílasala í Noregi. Jón
G. Sólnes (S) sagði rétt að samhæfa
viðskiptalög og reglur hér á landi því
er gilti í nágrannalöndunum. Mætti
sú samhæfing ná til víðara sviðs, s.s.
verðlagsmála, verzlunarsamkeppni
og vegferðar fjármagns í þjóðfélag-
inu. Tími væri til kominn að hefja
vakningu í þá veru.
• — Þá urðu fjörugar umræður um
Félagsmálaskóla alþýðu.
Neöri deildar mál
• — Frumvarp Vilmundar
Gylfasonar og Jóhönnu Sigurðar
dóttur (A) um sérstakan dómstól í
skatta- og bókhaldsmálum, og rann-
sóknardeild við hann, var afgreitt til
allsherjarnefndar og 2. umr.
• — Matthías Bjarnason (S) mælti
fyrir frumvarpi sem hann flytur,
ásamt fleiri þingmönnum, um að
aflatryggingarsjóður greiði bætur
vegna veiðistöðvunar, sem grípa þarf
til fyrirvaralítið, vegna hrygningar
nytjafiska eða hættu á seiðadrápi,
enda hafi viðkomandi útgerðir ekki
haft aðstöðu til að hefja annars
konar veiðar. I greinargerö er vitnað
til rækjuútgerðar. Málið var afgreitt
til sjávarútvegsnefndar og 2. umr.
• — IlaTldór Ásgrímsson (F)
mælti fyrir frv. sem hann flytur
ásamt Ingvari Gísiasyni (F) um að
ríkisendurskoðun heyri undir
Alþingi en hvorki ríkisstjórn né
ráðuneyti Flutti hann ítarlega
framsögu, sem m.a. fól í sér
staðhæfingu um, að þessi breyting
fæli í sér virkara eftirlit með
ráðstöfun og nytsemi fjárlagafjár-
veitinga og aðhald í ríkisbúskapnum.
Eiður Guðnason (A) taldi frv. spor í
rétta átt en fleira þyrfti til að koma.
Vitnaði hann til „sólseturslöggjafar"
í Bandaríkjunum, þess efnis að
samþykkt ríkisútgjöld eða samþykkt
ríkisstofnun fái ekki sjálfvirkt
framhaldslíf í ríkiskerfinu, heldur
þurfi endurskoðunar og endursam-
þykktar með vissu millibili. Þá þyrfti
bættar stjórnunaraðgerðir, sem víða
væri fordæmi að finna um í rekstri
stærri fyrirtækja erlendis, kerfis-
bundnar sparnaðaraðgerðir o.fl. sem
á dagskrá væri í stjórnun og
fjármagnsstýringu. Halldór E. Sig-
urðsson (F) taldi margt hafa áunn-
ist um aðhald í ríkisrekstri, s.s. hjá
Pósti og síma, en eflaust horfði þetta
frumvarp enn til bóta
• — Þá var rætt um biðlaun
alþingismanna, sem frá er sagt á
öðrum stað hér á síðunni.
VILMUNDUR Gylfason (A) mælti sl. mánudag fyrir frumvarpi til laga
um sérstakan dóm í skatta- og bókhaldsmálum með tilheyrandi
rannsóknardeild. Dómurinn hafi aðsetur í Reykjavfk en geti haldið
dómþing hvar sem er á landinu. Við þetta embætti starfi svo margir
fulltrúar sem dómsmálaráðherra ákveður. Forstöðumaður rann-
sóknardeildar verði skattrannsóknarstjóri og stýrir hann rannsóknar-
starfi í samráði við ríkisskattstjóra, en deildin heyri eins og
dómstóllinn undir dómsmálaráðuneytið.
Sérdómstólar
gefa góöa raun
Vilmundur Gylfason (A) sagði í
framsögu að sérdómstólar gæfu
góða raun og vitnaði í því sam-
bandi til starfs, m.a. fyrirbyggj-
andi starfs fíkniefnadómsstólsins.
skattstofa, og efla rannsóknar- og
dómsaðila með sérhæfðu starfs-
liði. Það yrði mun ódýrari leið en
stofna til sérdómstóls á þann hátt,
sem frumvarpið gerði ráð fyrir. Að
auki væri það mat manna að
fremur bæri að aðskilja rannsókn-
Skattsvik og skattheimta:
Nýr skattadóm-
stóll eða efling
frumrannsókna?
Sagðist hann persónulega sann-
færður um að sérstakur dómstóll
af þessu tagi, með tilheyrandi
sérhæfðri rannsóknardeild, myndi
ná mun meiri árangri en náðst
hefði með núverandi fyrirkomu-
lagi. Taldi VG pott víða brotinn í
þessum efnum í þjóðfélaginu, sem
mýmörg dæmi sönnuðu, nú síðast í
verzlun með notaða bíla.
Tilgangur góöur en
aöferö vafasamari
Steingrímur Hermannsson
dómsmálaráðherra fagnaði lofs-
verðri viðleitni, er í frumvarpinu
fælist. Enginn vafi væ i á því, að
skattsvik viðgengjust i þjóðfélag-
inu og að ýmsir kæmust í gegn um
glufur skattalaga. Hann taldi hins
vegar heppilegra að efla frumað-
gerðir í þessum efnum, á vegum
ar- og dómsaðila en sameina, eins
og þetta frv. fæli í sér.
Órökstuddar
fullyrðingar
Albert Guðmundsson (S) sagð-
ist sízt mæla gegn því að efld yrði
hvers konar viðleitni gegn skatt-
svikum. Hins vegar kæmi flest í
greinargerð með þessu frumvarpi
spánskt fyrir sjónir, enda órök-
studdar fullyrðingar. Snertu þær
fullyrðingar skattsvikaáburð á
heilar starfsstéttir og dygleysi
skattstofa og dómstóla. Ekki væri
við hæfi að bera svo afgerandi
fullyrðingar á borð Alþingis án
minnstu tilraunar til rökstuðn-
ings. Hann auglýsti og eftir
frekari skilgreiningu á nafngift-
inni „neðanjarðarhagkerfi".
AG tók undir nauðsynlega eflingu
skatteftirlits, sér í lagi af hálfu
JOLABÆKURNAR 1978
A öllum borðum
í Unuhúsi
200 ÚRVALSVERK
Á KR. 1.500.- TIL KR. 15.000.-
Hér verður aöeins fátt taliö:
Sjömeistarasagan, nýjasta Laxnessbókin.
í túninu heima.
Ungur ég var
Úr fórum fyrri aldar, úrvai heimslistar, valiö og þýtt af
aldamóta-snillingunum, Þorsteini Erlingssyni, Matthíasi, Hannesi
Hafstein, Steingrími, Páli Ólafssyni og fleirum.
Feröalok, skáldsaga eftir Kristján Albertsson.
Heim til Þín ísland, nýjasta Ijóöabók Tómasar Guömundssonar.
Besta bók skáldsins.
Hagleiksverk Hjálmars í Bólu, eftir dr. Kristján Eldjárn.
í verum, snilldarverk Theodórs Friörikssonar.
Ljóöasafn Sigurðar frá Arnarholti,
Æviþættir eftir Jóhann Gunnar Ólafsson, vin skáldsins.
Allar þýöingar Magnúsar Ásgeirssonar í tveim stórum bindum.
Steinn Steinarr Ijóöasafn og greinar ásamt Tímanum og vatninu.
Þorsteinn Erlingsson, Þyrnar og Eiöurinn
Tvö listaverk fyrir unglinga, Berjabítur og Dimmalimm og sjö
Þjóðsagnabækur.
Kaupið bækurnar í Unuhúsi,
Helgafelli,
Veghúsastíg 7, sími 16837.
Helgafell