Morgunblaðið - 11.02.1979, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRUAR 1979
39
Zambíumenn eru glaðir, kátir og frjálslegir í framkomu, að því er
Edda segir. Hér eru vinir hennar.
matseldinni, breiðir hún stóra
strámottu á hlaðið. Þar setjast
síðan allir, heimamenn og gestir,
hver með sitt ílát í kring um
stóra pottinn, og svo er borðað
með guðsgöfflunum. Mikið var
glatt á hjalla meðan á máltíð
stóð. Á sunnudögum eru soðnir
heilir maísstönglar. David litli
færði mér alltaf heita maís-
stöngla, sem mér þóttu svo góðir.
Okkur var boðið í mat til þessa
fólks. Sjálft ræktar fátæka fólk-
ið maís, grænar baunir og sætar
kartöflur, en ekkert annað. Ekki
veit ég hvers vegna. I görðum
eru þó avokato, gauguvava,
mango og bananar. En konurnar
taka blöðin af Hawairósum, sem
alls staðar vaxa, merja þau og
hella á sjóðandi vatn og er það
drukkið eins og te.
Það er mikill munur á fátæk-
um og ríkum. En fátækt fólk er
engu síður stolt og glaðlynt, ekki
til þessi auðmjúka framkoma,
sem víða finnst annars staðar.
Drengirnir, sem ég nefndi, áttu
ekki margar flíkur utan á kropp-
inn á sér. Noa á eldgamla skó,
sem hann notar aðeins í skólann.
En þeir eru glaðir og kátir. Einn
daginn kom David með gítar,
sem frændi hans hafði smíðað úr
gömlum ferköntuðum blikk-
brúsa, sem fest var á fjöl og
vírspotti strengdur yfir og upp í
gítarhálsinn. Á þetta spilaði
hann og söng allan daginn og lék
á alls oddi. Þetta gera krakkarn-
ir í götunni hjá mér allir. Þau
búa til ásláttarhljóðfæri úr mis-
stórum graskerum eða slá takt-
inn á ruslatunnu og dansa. Það
er svo mikil músík í þessu fólki
og það er svo frjálslegt í fram-
komu. Ég held að þetta sé mjög
gott fólk. Bræðurnir, vinir mínir,
komu dag einn og gáfu mér sinn
hvolpinn hvor, svo að nú sit ég
uppi með tvo hunda. Annar er
mjög sjálfstæður og hlaut nafnið
Bjartur í Sumarhúsum. Hinn
heitir rússnesku nafni, Slava.
— Jú, við umgöngumst mikið
heimafólk, Zambana. Og þarna
er líka nokkuð af útlendingum,
tæknimenntuðu fólki, læknum
og kennurum. Aðkomufólkið eru
Norðurlandabúar, Englendingar,
Bandaríkjamenn og mikið af
Indverjum. Og í kóparbeltinu
öllu eru um 400 fjölskyldur frá
Ceylon eða Sri Lanka. Svo und-
arlega vildi til að í götunni okkar
búa 7 fjölskyldur úr heimalandi
mannsins míns, sem við um-
göngumst að sjálfsögðu mikið.
Þeir tala ensku þegar ég er
viðstödd. En ég hefi ekki talað
íslenzku við aðra en Bjart í
Sumarhúsum síðan ég kom hing-
að. Ceylonbúar eru líka mjög
frjálslegt fólk og samlagast öll-
um vel. Kannski af því að þeir
eru eyjabúar eins og við. Þegar
ég fór heim, voru óvænt mættir
á flugvellinum 25 manns til að
kveðja mig, Arabar, Zambar,
Ceylonbúar og Englendingar,
heilu fjölskyldurnar með börnin.
Og þar sem var hálfs fimmta
tíma seinkun, biðu allir. Það var
sannarlega glatt á hjalla.
Á þessum slóðum er hið fræga
Zambesi-fljót, sem Livingstone
var að leita að upptökunum að,
svo sem frægt er orðið. Viktoríu-
fossarnir eru á landamærum
Zambíu og Rodesíu, og í landinu
eru merkilegir þjóðgarðar. Edda
sagði, að þau hjónin hefðu farið
að sjá Viktoríufossana, sem ekki
væri hægt að lýsa, svo stórkost-
legir séu þeir. Þeir eru meira en
1700 metrar á breidd og vatns-
magnið gífurlegt. Áður en dr.
Livingston fann fossana hétu
þeir á máli innfæddra „Þrumu-
reykur", sem er ágæt lýsing á
þeim. Fossarnir eru hálfir í
Zambíu, syðst í landinu. Nú
hefur eiginmaður Eddu verið að
reyna að ná í hana, til að fá
samþykki hennar til þess að þau
flytji til höfuðborgarinnar
Lusaka, sem er 400 þús. manna
bær. Ef af því verður, þá munu
þau búa miklu nær Viktoríufoss-
um, en umhverfið þar segir hún
að sé stórkostlegt.
Eiginmaður Eddu þarf að
ferðast nokkuð mikið um, þar
sem hann er staðarverk-
fræðingur hjá rafmagnsveitun-
um, en hún hefur ekki getað
farið með honum í bíl fyrir-
taékisins, þar sem það er ekki
leyft. En þau hafa þegar ferðast
svolítið um þar fyrir utan, en
eiga marga staði eftir. I þjóð-
görðunum er margt fallegra
dýra. Þau hafa séð nashyrninga,
gíraffa, ljón og fleiri dýr. En
heima í Ndola, sem er um 200
þúsund manna bær, koma
aparnir í heimsókn í stórum
hópum.
Áð lokum var Edda spurð um
það sem varð til þess að við
náðum í hana — stjórnmála-
ástandið og þjóðhöfðingjann
Kaunda. Hún sagði, að sem
gestir í landinu vildu þau hjónin
ekki blanda sér í stjórnmál
heimafólks. En Kaunda sagði
hún greinilega mjög vinsælan.
Indverjarnir, sem þarna búa,
kalla hann gjarnan Mahatma
Gandi Afríku. Hann er kannski
ekki mikill pólitíkus, segir Edda.
Sumir segja að blessaður karlinn
veðji oft á vitlausan hest, og eiga
þá gjarnan við Ródesíumálið,
miðað við að Mugabe komist þar
til valda. En hann er mikill
friðarsinni, og dáður af sínu
fólki, sem segir að hann einn geti
sameinað alla þessa þjóðflokka í
landinu í eina þjóð. I landinu eru
72 þjóðflokkar, sem tala jafn-
mörg ólík tungumál. Segja
margir að það hafi verið krafta-
verk, að honum skyldi takast að
sameina þetta fólk, svo ólíkt sem
það sé. Til dæmis eru Losiarnir
fínlegir og fallegir, með beint
nef, en Bembar stórir og grófir,
svo dæmi sé tekið.
— Þegar Kaunda var að ná
þeim saman, ferðaðist hann um
og lét þá syngja sameiningar-
söng, sem hann samdi sjálfur.
Og það er nú sem annar þjóð-
söngur þeirra og alltaf sunginn,
þegar Kaunda kemur einhvers
staðar. Hann hrífur fólk með
sér, sem ég skil ákaflega vel,
eftir að hafa séð hann í sjón-
varpi. Hann er hrífandi persónu-
leiki. Sjálfri finnst mér af því að
hlusta á hann, að hann muni
vera mjög einlægur og til-
finninganæmur. Kannski
svolítið barnalegur, en stór-
gáfaður. Hann hefur að vísu
tekið mikil völd, en þannig tekst
honum að halda þjóðinni saman
og hann fékk gífurlegt fylgi í
kosningunum. Hann hefur
tvisvar verið beðinn um að láta
kjósa sig til æviloka, en hafnað
því.
— Ekki átti ég von á því að
það ætti fyrir mér að liggja að
lenda inni í miðri Afríku, sagði
Edda í lok samtals okkar. En ég
kann mjög vel við mig. Ef meira
öryggi væri í löndunum í kring,
gæti ég vel hugsað mér að
setjast þar alveg að. Kannski fer
fyrir mér eins og Ira nokkrum,
sem við þekkjum, sem kom þang-
að í sumarleyfi, og er búinn að
dvelja þar í 21 ár. — E.Pá.
Falleg lítil Zambíustúlka. sem oft kemur í heimsókn.
Gríðarstór mauraþúfa er hinum megin við götuna. Þangað kona
konurnar með krakkana og tína maura upp í sig. Stærðina má sjá af
börnunum. sem standa við hana.
öllum árstíðum og hitinn er
jafnaðarlega 23—26 stig. Nú
gegnur yfir regntími. Þá koma 3
hellidembur á dag og allt flýtur,
en svo skín sólin á milli. í júní og
júlí er þó vetur og getur hitinn
þá mest farið niður í 7 stig, og
þar sem engin upphitun er í
húsunum, verða þau hráslagaleg.
— Kvöldin eru svo unaðsleg,
segir Edda. Þeir sem lesið hafa
Jörð í Afríku eftir Karen Blixen
vita hvað ég á við. Mér dettur sú
bók alltaf í hug, þegar við sitjum
úti á veröndinni okkar, þar sem
við eyðum kvöldunum, hvort sem
gesti ber að garði eða við erum
ein.
— Karen Blixen hafði fullt af
þjónum í kringum sig?
— Já, það átti aldeilis að láta
mig hafa þjóna, segir Edda og
hlær. Ég yrði að minnsta kosti
að hafa einn „housboy". En ég
sagðist vera farin heim ef ég
ætti að sitja og horfa á einhvern
gera það litla, sem gera þyrfti á
heimilinu. í þrjá daga gengu
skilaboðin milli rekstrarstjórans
hjá Orkustofnun og mín gegn
um manninn minn. Og það varð
víst frægt svarið, sem hann gaf
að lokum: Konan mín er íslenzk
og Islendingar eru þrjóskasta og
duglegasta fólk sem til er! Og
þar við sat. En ég er víst sú eina
af starfsfólkinu, sem ekki hefur
húshjálp. Það er raunar ekki
heitara en svo að ég get unnið í
garðinum.
Það er allt þægilegt þarna.
Það eina, sem ég hefi yfir að
kvarta, er moskito-flugan. Ég
fékk þrisvar sinnum malaríu,
sem er andstyggilegur sjúkdóm-
ur með köldu- og hitaflogum.
Tek ég þó alltaf kínín og var
byrjuð á því áður en ég fór
héðan. Sjúkdómurinn fór í aug-
un á mér, með bólgum kring um
augun og kvölum, og ég var lengi
að jafna mig. Annars held ég að
heilbrigðiseftirlit sé þarna
ágætt. Þar eru ekki landlægir
neinir aðrir af þessum hitabelt-
issjúkdómum og bólusótt gegn
þeim reglulega og án kostnaðar.
Og vatn er óhætt að drekka, þó
að það sé ekki mjög gott á
bragðið.
— Éinasti tíminn sem mér
leiddist var fyrst, meðan við
þurftum að búa á hóteli. En svo
kynntist ég tveimur litlum
strákum, 6 og 9 ára gömlum, sem
bjuggu með foreldrum sínum í
örlitlu húsi á bak við gistihúsið.
Sá eldri gat talað ensku, en
enska er sameiginlega málið í
landinu. Þarna voru alltaf ein-
hverjir næturgestir úr nærliggj-
andi sveitum, því þar sem er
hjartarúm, þar er líka húsrúm.
Öll eldamennska fór fram utan
dyra á hlóðum og vatn í krana
utandyra, en ágætt vatnssalerni.
Og þannig er það í flestum
húsunum. Alltaf vatnssalerni, en
eldað úti. í allar máltíðir er
soðið maísmjöl, malað úr maís,
og gerður úr saltlaus hnaus-
þykkur grautur, sem þeir kalla
Nshima. Það er aðalfæða hinna
fátæku. Þegar frúin hefur lokið
Edda kveðst ekki hafa talað íslenzku síðan hún fór að heiman, nema
við hundinn Bjart í Sumarhúsum. Hinn hundurinn ber rússneska
nafnið Slava. Hér er hún með þá fyrir framan húsið.