Morgunblaðið - 11.02.1979, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.02.1979, Qupperneq 28
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979 ý) MORöJK/'V KAFf/NO 4 (!/ L_ *&V0 ' tL GRANI GÖSLARI Elsku vinur. — Ég er farin frá þér með öðrum manni. bitt einlæga tryggðatröll Stína. o;« öo 000 ’W/a/. OÉÉ. „ • Vona að hann þekki mig ekki aftur. Ég skulda honum smávegis! Er líkamsstarfsemi nemenda og kenn- ara frábrugðin? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Hversu oft höfum við ekki heyrt orðtakið, ^ásar eru til að taka með kónga“. Út af fyrir sig er þetta auðvitað aldeilis laukrétt en þó eru til undantekningar. Norður gaf, allir utan hættu. Norður S. KG H. K1084 T. KD942 L. ÁK Vestur S. D10743 H. ÁD9fi T. ÁGIO L. 6 Austur S. 8652 H. 72 T. 53 L. 85432 Suður S. Á9 H. G53 T. 876 L. DG1097 Sagnirnar: Norður 1 Tígull Dobl Vestur 3 Grönd Austur 2 TÍKlar — SiiAur 1 Grand 3 Lauf 2 Spaðar allir pass. COSPER Ég lærði sko helling af blótsyrðum í dag í skólanum, þegar skólastjórinn datt um þröskuldinn! Stundum er sagt að sum þeirra atriða sem stéttarfélög hafa náð fram í kjarasamningum séu aðeins ajálfsögð mannréttindi. Þetta gildir eflaust um þau atriði í samningum ríkisstarfsmanna o.fl., er kveða á um mötuneyti og möguleika starfsfólks til að neyta hádegisverðar í þeim. Auðvitað er rétt að kennarar t.d. sem þurfa að kenna kannski frá kl. 8—16 og hafa ekki möguleika á að fara heim til sín á þeim tíma, þurfi samt sem áður að borða. Og einmitt þess vegna hafa verið sett upp fyrir þá mötuneyti í skólun- En hvernig er það með nemend- urna sem þurfa að mæta í kennslustundum hjá þessum sömu kennurum? Þurfa þeir kannski ekkert að borða? Eða er líkams- starfsemi þeira eitthvað frábrugð- in kennaranna? Það virðast sumir halda. Alla- vega meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Síðastliðið haust ákvað Nem- endafélag Flensborgarskóla að reyna sitt ýtrasta til að fá Hafnar- fjarðarbæ til að koma upp mötu- neyti fyrir nemendur skólans. Eftir að áfangakerfi var tekið upp í skólanum, lengdist skóladagur- inn til muna og er ekki óalgengt að nemendur séu í skólanum frá kl. átta á morgnana til sex á daginn. Vegna fyrirkomulags stundataflna gefst aðeins mjög litlum hluta þeirra kostur á að fara heim til sín í hádeginu. í skólanum er þeim ekki boðið upp á neitt það sem kallast gæti hádegisverður og er því uppsetning nemendamötuneyt- is mjög brýn. í samráði við skólastjórn — sem var fyllilega samþykk þessum tilraunum nemendafélagsins — var lauslega athugað hvað upp- setning og rekstur slíks mötuneyt- is myndi kosta. Kom í ljós að með því að kaupa inn tilbúna frysta rétti (eins og nú er mjög algengt í mötuneytum) héldist stofnkostn- aður í lágmarki. Með því móti þyrfti líka aðeins einn starfsmann á launum hluta úr degi. (I skólan- um eru rúmlega 700 nemendur). Einnig kom í ljós, að ef bærinn greiddi laun þessa starfsmanns, væri hægt að halda verði til nemenda tiltölulega mjög lágu. Þóttu þetta það góð tíðindi, að þegar skólinn lagði fram óskalista inn fyrir bæjarstjórn Hafnar- fjarðar, vegna fjárhagsáætlunar 1979, var nemendamötuneytið ofarlega á blaði. Óskalisti þessi var lagður fyrir fræðsluráð Hafn- arfjarðar til umsagnar. Var fiað sammála um nauðsyn þess að koma mötuneytinu upp og lagði til við bæjarstjórn að hún samþykkti sex til átta milljón kr. fjárveitingu til uppsetningar þess. - Þar sem nefndir og ráð bæjarins hafa venjulega verið notuð til að skera niður, eða fella, hinar ýmsu fjárbeiðnir er berast bæjarstjórn, urðu nemendur mjög glaðir er fréttist um afstöðu fræðsluráðs. Þótti þeim sem nú væri mötuneyt- inu og heilsu sinni borgið. En það var öðru nær! I tillögum meirihluta bæjarstjórnar, er lagð- ar voru fram við fyrri umræðu fjárhagsáætlunarinnar, er ekki gert ráð fyrir einni einustu krónu til mötuneytisins og er raunar ekkert á það minnst. Finnst okkur furðulegt að meiri- Vestur sagði frá lengd í báðum hálitunum með tveim tíglum en norður og suður höfðu meiri hug á grandgaminu en að verjast í tveim spöðum. Vestur spilaði út spaðafjarka og útiitið var ekki sem best. En ótrauður tók sagnhafi slaginn með kóng, tók á ás og kóng í laufi og spilaði tígulkóngnum þar sem ekki voru nema sjö slagir tilbúnir. Vestur sá ekki fyrir erfiðleikana, sem síðar urðu og tók því slaginn með ás og spilaði spaðadrottningu. Þar með fór eina innkoman, sem suður átti á eigin hendi og í öllu falli var ekki annað að gera en taka laufslagina, sem eftir voru. I drottningu og gosa lét vestur tvö hjörtu en í fimmta laufið átti hann ekki öruggt afkast. Átti á hendi S. 1073, H. A, T. GIO og varð að láta spaða. Þá gat suður spilað hjarta og kónurinn varð níundi slagurinn. En lesendur ættu að líta á stöðuna, sem upp kemur drepi vestur ekki tígulkónginn. Sagnhafi fær þá áttunda slaginn en getur alls ekki náð þeim níunda. „Fjólur — mín Ijúfá" Framhaldssaga eftír Else Fischer Jóhanna Kristjónsdóttir Þýddi 57 bað máttu allir sjá að hún var gerbreytt manneskja. — Hún vissi eitthvað um þessa fórnarkrukku, sagði Gitta — en það fáum við sem sagt aldrei að vita. — Eins og það skipti nokkru máli hvað veslings Lydia vissi, sagði Jasper brostinni röddu. — Hún er dáin. Hafið þið ekki gert ykkur grein fyrir því. Hún er horfin fyrir fullt og allt og þá tölum við bara um hvers- dagslega hluti eins og fórnar- krukkur. — bað er ekkert víst að um hversdagslegt mál sé að ræða, svaraði Bernild — Hver veit hvort hún hefði dáið ef hún hefði ekki vitað eitthvað... — bér eigið þó ekki við... Herman frændi skalf svo að kaffið skvettist úr bollanum niður á hvfta dúkinn. — bað er aldeilis ómögulegt. Martin var náfölur í andliti. — Ilún hlýtur að hafa uúttið niður fyrir slysni. Við sjáum sjálf að hællinn á skónum hennar var fastur í sloppnum. — Ekki sá ég það, sagði Bernild þurrlega. — Já, en við sáum það. Martin leit á viðstödd til skiptis og þau kinkuðu öll kolli til samþykkis. — Við vissum náttúrlega ekki... Martin rak í vörðurnar. — bér eigið við með öðrum orðum, að henni hafi verið hrint niður, sagði Holm læknir og leit beint á lögregluforingj- ann. — Ef svo er, hlyti hún að hafa hrópað, sagði Gitta. — Við hefðum vaknað við það. Ég þekki Lydiu og ég veit að hefði hún rekizt á einhvern í myrkri hefði hún öskrað svo hátt að hún hefði vakið alla í húsinu. — Við vitum enn ekki hvern- ig þetta bar að, en ég get lofað ykkur því að við munum kom- ast að þvf, sagði Bernild og það var engu Ifkara en niðurhæld ógnun væri í rödd hans. — Fyrst dcyr maður að því er fyrst verður séð fyrir hreina tilviljun hér í grenndinni, en fyrir hreina tilviljun finnst hann nú reyndar í grennd við Árósa. Síðan er ung stúlka fyrir hreina tilviljun slegin niður á verkstæðinu sínu, þeg- ar hún ætlar að sækja eitur- krukku sem virðist bara ekkert koma málinu við og í síðasta lagi er svo hrap niður stiga. bað á að Ifta fjarska eðlilega út, en það virðist enginn hafa hugsað út í það, að Lydia Jörgensen fékk í gærkvöldi mjög sterkar svcfntöflur og síðan róandi sprautu. Eftir þvf sem mér skildist, þá átti hún að sofa eins og steinn til klukkan nfu. — Já, ég hef satt að segja furðað mig á þvf, sagði Holm læknir. — Ef dæma hefði átt áhrifip af þessum lyf jum, sem hún fékk f gærkvöldi, hefði ég hiklaust talið að hún myndi sofa fram að hádegi ef ekki enn iengur. — Hún hefur kannski gengið í svefni, sagði Gitta. — Og fyrst farið og klætt sig í háhælaða skó áður en hún fór að ganga í svefni. Nei, það er eitthvað meira en lítið bogið við þetta og ég mun ekki linna látum fyrr en ég kemst að því hvað það er. — Já, en ... Rödd Susanne var hikandi. — Já, en getur verið að hún hafi verið slegin niður. bað myndi vera morð... — Morð já einmitt. Rödd Bernilds var hörkuleg. — bað er annað morðið sem framið er og það vill samt enginn festa trúnað á það sem ég segi. Augnaráð hans hvarfl- aði frá einu til annars. Og með þvf að ailir viðstaddir lúra hér á einhverju, sem þeir vilja ekki segja mér, verður allt erfiðara og hver og einn verður aukin heldur f meiri hættu sjálfur ... — bað getur verið erfitt að vita, hvað skiptir máli og hvað ekki, sagði Ilolm læknir skjálf- raddaður. — Ég á við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.