Morgunblaðið - 02.03.1979, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.03.1979, Qupperneq 1
64 SÍÐUR 51. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 Prentsmiðja Morg'unblaðsins. Carter lagði hart að Begin Washington, 1. marz. AP. Reuter. VIÐRÆÐUR ÞEIRRA Jimmy Carters Bandaríkjaforseta og Menach- em Begins forsætisráðherra Israels hófust þegar eftir komu Begins til Bandaríkjanna í gærkvöldi og var húist við því að Carter myndi leggja mjög hart að Begin með að gefa eftir í kröfum sínum svo að grundvöllur skapaðist fyrir frekari viðræðum fulltrúa ísraelsmanna og Egypta. Haft var eftir blaðafulltrúa Carters fyrir komu Begins að horfur á því að samningar tækjust væru ekki bjartar, Carter myndi hins vegar ræða öll vandamál sem upp væru komin í deilunni við Begin af fullri hreinskilni. Mætti því búast við því að línurnar yrðu nokkuð farnar að skýrast í fyrra- málið. í ísrael voru skoðanir mjög skiptar um hvort árangur yrði af för Begins. Moshe Dayan utan- ríkisráðherra gagnrýndi Begin mjög harðlega fyrir þvergirðings- hátt sem gæti haft varanlegar afleiðingar. I sama streng tók Ezer Weissmann varnarmálaráðherra. Kókið hefur hafið innreið sína í Kína. Þessir ungu menn voru viðstaddir formlega opnun bandaríska sendiráðsins í Peking í dag og skáluðu að sjálfsögðu í kóki. Símamynd AP. Geysilegur mannfjöldi Ekki breytinga að vænta á Spáni Madrid, 1. marz. AP. Reuter. ÞRÁTT FYRIR óhagstætt veður víða á Spáni í dag. snjó og rigningu, fjölmenntu kjósendur að kjörborðinu til að kjósa til þings landsins í fyrsta sinn cftir að hin nýja stjórnarskrá Spánar tók gildi á síðasta ári. Skoðanakannanir síðustu daga benda þó til þess að kjörsókn verði lægri en í kosningunum 1977 og muni það koma Mið- flokkasambandi Suarezar til góða, en haft hefur verið eftir forystumönnum sambandsins að öll aukning á kjörsókn myndi fara til stjórnarandstöðunnar. Um miðjan dag höfðu um 20% þeirra sem á kjörskrá eru neytt réttar síns til að kjósa til hinna l 350 þingsæta í þinginu. Fyrir kosningar hafði Miðflokkasam- bandið 158 þingsæti á móti 125 þingsætum sósíalista og nokk- urra smáflokka sem þeim eru hliðhollir. Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var í gær mun Suarez halda sínu en ekki ná hreinum meirihluta eins og hann hafði gert sér vonir um. fagnaði Khomeini í Qom Qom, Teheran, 1. marz. AP. Reuter. AYATOLLAH Khomeini trúar- leiðtogi íranskra múhaméðstrúar- manna sagði í dag á geysifjölmenn- um útifundi í borginni Qom að öllu þjóðskipulagi landsins yrði gjör- brcytt að íslamskri fyrirmynd, allt frá bönkum til þjóðfána landsins. Þetta var í fyrsta sinn sem Verður Bhutto náðaður? Islamabad, Pakistan. 1. marz. AP. MOHAMMED Zia UI-Haq forseti Pakistans sagði á fundi með fréttamönnum í dag að hann sæi ekkert réttlæti í því að milda dauðadóminn yfir Zul- fikar Ali Bhutto. fyrrver- andi forsætisráðherra landsins, í ævilangt fang- elsi eins og kröfur væru uppi um. Haq sagði að þrátt fyrir þessa skoðun sína myndi hann á næstunni íhuga vel málið sem æðsti maður landsins. Þá gagn- rýndi hann harðlega þá aðila, sem hann sagði reyna að gera glæpamál eins og Bhuttos að pólitísku þrætuepli, slík mál ættu ekkert skylt við stjórn- mál. Khomeini kemur til borgarinnar heiiögu frá þvf hann sneri heim úr útlegðinni og fögnuðu honum hundruð þúsunda manna við komuna þangað. Gífurleg fagnaðarlæti brutust út hjá æstum lýðnum þegar Khomeini sór þess dýran eið að eyða fyrir fullt og allt öllum vestrænum áhrifum í landinu, jafnframt því sem hann notaði tækifærið til að hvetja fólk til að kjósa í kosningunum 30. marz n.k. þegar borið verður undir kjós- endur hvort stofna skuli íslamskt lýðveldi. — „Við viljum hvorki lýðveldi að vestrænum hætti né alþýðulýðveldi að hætti kommúnistaríkja," sagði Khomeini ennfremur. Khomeini sagði að kosningarnar yrðu algerlega frjálsar þannig að fólk „gæti kosið einveldi keisarans" ef það vildi án þess að „hróflað" yrði við því. Frá Teheran, höfuðborg landsins, bárust þær fréttir í dag að þrír fyrrverandi félagar í öryggissveitum landsins hefðu verið teknir af lífi eftir að þeir höfðu verið dæmdir til dauða fyrir að hafa banað nokkrum andstæðingum keisarans í átökum fyrir skömmu. Það var íslamskur byltingarréttur sem kvað upp dóminn. Carmen Franco ekkja einræðisherrans fyrrverandi kemur á kjörstað í Madrid í morgun og eru skilríki hennar skoðuð áður en hún fær atkvæðascðilinn afhcntan. Símamynd AP. Kínverjar vilja setjast að samningaborði hið fyrsta Afhentu sendiherra Vietnam formlega beiðni um viðræður Peking. Tokyo, Bangkok, Moskvu. 1. marz. AP. Reuter. KÍNVERSKA ríkisstjórnin fór þcss formlega á leit við sendiherra Víetnams í Peking í dag að fulltrúar landanna tækju upp viðræður svo fljótt sem auðið væri til að ná sáttum í landamæradeilu þeirra. Gerðu Kínverjar það að tillögu sinni að aðstoðarutanrikisráðherrar landanna yrðu fulltrúar þeirra í fyrstu umfcrð. Li Hsien Nien, einn aðstoðarfor- sætisráðherra Kína, sagði í Bang- kok í dag, að Kínverjar hefðu þegar eytt mörgum víetnömskum her- fylkjum og gert mikið magn vopna upptækt og væru um það bil að ná takmarki „refsiherferðar“ sinnar inn í Víetnam. Víetnamar segja hins vegar ekkert lát vera á bardög- im sem geisi víða í landinu, sérstak- lega sé hart barist við bæinn Long Son. Utvarpið í Hanoi sagði í dag að frá upphafi stríðsins hefðu Víet- namar felit um 27 þúsund Kínverja og eyðilagt a.m.k. 200 skriðdreka. Þessar tölur Víetntma hafa ekki fengist staðfestar, en fréttaskýr- endur í Bangkok sem fylgjast með átökunum segja, að auðsætt sé að Víetnamar hafi orðið fyrir mun meiri skakkaföllum frá upphafi heldur en Kínverjar. Þá benda þeir á mikla liðsflutninga Víetnama frá Kambódíu til landamæranna við Kína sem sé ótvírætt merki þess að skakkaföll þeirra séu meiri en búist hafði verið við. I Moskvu var haft eftir Alexei Kosygin forsætisráðherra Sovét- ríkjanna að innrás Kínverja væri villimannleg og sýndi glöggt heims- valdastefnu þeirra, jafnframt því sem hann varaði Kínverja við því að ráðast inn í grannríki Víetnams, Laos. Ennfremur var haft eftir forsætisráðherranum að Víetnamar yrðu ekki skiidir eftir hjálparlausir ef bardagarnir drægjust verulega á langinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.