Morgunblaðið - 02.03.1979, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979
rÞakkarorð '
Öllum þeim naer og fjær, sem
glöddu mig á sjötugsafmælinu
16. febrúar síðastliðinn með
skeytum, heimsóknum og gjöf-
um, sendi ég innilegar þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Kristjana S.
Jósefsdóttir,
^^^^^^r^Raufarhöfn^
Tréklossar
Dömu og herra-
klossar.
Nýjar geröir.
Póstsendum
Mynd um ferð
páf a til Mexíkó
„Þetta eru svipmyndir sem
fjalla um för Jóhannesar Páls páfa
til Mexíkó á þing biskupa í róm-
önsku Ameríku. Myndin lýsir vel
móttökunum í Mexíkó og þeim
miklu fagnaðarlátum sem urðu
þegar páfi kom þangað."
Þannig mælti Ingi Karl
Jóhannesson í spjalli við Mbl.
Hann er þýðandi og þulur breskrar
fréttamyndar um ferð páfa til
Mexíkó fyrir skömmu, en myndin
er á dagskrá sjónvarpsins kl. 20.35.
„Myndin fjallar um þau viðhorf
sem eru uppi á teningnum í róm-
önsku Ameríku, sérstaklega með
tilliti til stjórnmálaástandsins í
þessum löndum. Hvaða afstöðu
kirkjan eigi að taka, hverjar henn-
ar skyldur eru o.þ.h. I myndinni er
farið nokkrum orðum um þau
grundvallarsjónarmið sem þarna
liggja að baki.“
Meðfylgjandi mynd er úr heim-
sókn páfa til Mexíkó.
Útvarp í kvöld kl. 22.05:
„ Ameríkubréf ”
í útvarpi í kvöld kl. 22.05
hefur Hjörtur Pálsson lest-
ur úr bókinni „Gelgjuskeið“
eftir Ivar Lo-Johansson, og
nefnist kaflinn Ameríku-
bréf. „Bókin er fyrsta bindi
af endurminningum Ivars
Lo-Johanssons,“ sagði
Hjörtur er hann var inntur
nánar, „en hún er sjálfstætt
verk samt sem áður og hægt
að lesa hana eina út af fyrir
sig, þó manni sýnist hann
vera að skrifa ritröð. Fyrir
þessa bók fékk Ivar
Lo-Johansson bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs
nú í ár, sem honum voru
afhent í sambandi við þing
Norðurlandaráðs í Stokk-
hólmi 20. febrúar.
Hiörtur Pálsson
Johansson er 78 ára gam-
all, afmælisdagur 23. febrú-
ar. Þá tók ég saman kafla
um hann í útvarpið þar sem
ég kynnti höfundinn og verk
hans. Hann hefur skrifað
yfir 50 bækur á 50 árum og
er nú tvímælalaust einhver
þekktasti rithöfundur Svía
og þar með einhver þekkt-
asti rithöfundur á Norður-
löndum. Tilheyrir hann
kynslóð sænsku öreiga-
skáldanna, sem kölluð voru
og hösluðu sér völl í sænsk-
um bókmenntum á fjórða
áratugnum.
Johansson hefur skrifað
ákaflega mikið um hugar-
heim, verkahring og reynslu
alþýðufólks, einkum hús-
mennskufólks og hjáleigu-
bænda í Svíþjóð, sem hann
var sjálfur kominn af og
Jenny Agutter og Anthony Andrews í hlutverkum si'num í sjónvarps-
kvikmyndinni A War of Children — Bræður munu berjast —, sem
hefst í sjónvarpi í kvöid kl. 22.00.
Sjónvarp í kvöld kl. 22.00:
Bræður munu berjast
„Bræður munu berjast,"
bandarísk sjónvarpskvikmynd
frá árinu 1972, hefst í sjónvarpi í
kvöld kl. 22.00.
„í myndinni er brugðið upp
svipmynd af lífi alþýðufólks í
Norður-írlandi og að nokkru
leyti lýst þeim hörmungum, sem
hafa heltekið þessa frændur
okkar í vesturvegi," sagði Bogi
Arnar Finnbogason, er hann var
inntur eftir myndinni.
„Tvær fjölskyldur kynnast af
tilviljun í skemmtiferð á strönd-
inni og hafa tengst nokkrum
vináttuböndum áður en það upp-
götvast að þær tilheyra hvor
sinni kirkjudeildinni. Þær reyna
þó að viðhalda vináttunni með
því að hittast á laun um helgar
utan alfaravega.
Sýnt er hvernig stríð er orðið
hluti af daglegu lífi fólksins,
bæði barna og fullorðinna. Eng-
Útvarp Reykjavik
FOSTUDfcGUR
2. marz.
7.00 Veðurfregnir, Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Um-
sjónarmenn: Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Hauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
greinar dagbl. (útdr.). Dag-
skrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ým-
is iög að eigin vaii. 9.00
Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Si^ríður Eyþórsdóttir les
„Aslák í álögum“ eftir Dóra
Jónsson (5).
9.20 Leikfimi.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ým-
is lög; — frh.
11.00 Eg man það enn: Skeggi
Áshjarnarson sér um þátt-
inn.
11.35 Morguntónleikar; Ríkis-
hljómsveitin í Berlín leikur
Konsert í gömium stíl op.
123 eftir Max Reger; Otmar
Suitner stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Fyrir
opnum tjöldum“ eftir Grétu
Sigfúsdóttur. Herdfs Þor-
valdsdóttir les (2).
15.00 Miðdegistónleikar: John
Williams, Rafael Puyanan
og Jordi Savall leika Sónötu
nr. 3 fyrir gítar, sembal og
víólu de gamba eftir Rudolf
Straube.
Félagar úr Vínaroktettinum
leika Kvintett í c-moll op. 52
eftir Louis Spohr.
15.40 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.30 Popphorn. Dóra Jóns-
dóttir kynnir.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Bernska í byrjun aldar“
eftir Erlu Þórdísi Jónsdótt-
ur. Auður Jónsdóttir Ieik-
kona les (9).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
FÖSTUDAGUR
2. mars
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Ferð páfa til Mexíkó
Bresk fréttamynd.
Þýðandi og þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
21.00 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Helgi E.
Ilelgason.
22.00 Bræður munu berjast
(A War of Children)
Bandarísk sjónvarpskvik-
mynd frá árinu 1972.
Aðalhlutverk Vivien
Merchant og Jenny
Agutter.
Sagan lýsir högum
kaþólskrar fjölskyldu í
átökunum á Norður-írlandi
árið 1972.
Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
23.25 Dagskrárlok.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.40 Fróðleiksmolar um ill-
kynja æxli.
Annar dagskrárþáttur að
tilhlutan Krabbameinsfé-
lags Reykjavíkur. Þátttak-
endur: Sigurður Björnsson,
Þórarinn Sveinsson og Þór-
arinn Guðnason.
20.05 Frá franska útvarpinu.
Pascal Regé leikur með
Frönsku ríkishljómsveit-
inni.
Píanókonsert mr. 2 í g-moll
op. 22 eftir Camille
Saint-Saéns; Youri Aron-
ovitsj stj.
20.30 Fast þeir sóttu sjóinn.
Fjórði og síðasti þáttur Tóm-
asar Einarssonar: Kaupa-
vinnufólk nyrðra úr ver-
stöðvum syðra. — Rætt við
Einar Kr. Einarsson fyrrum
skólastjóra. Lesarar: Baldur
Sveinsson og Snorri Jóns-
son.
21.05 Kórsöngur.
Kirkjukór Akraness syngur
veraldleg lög.
Píanóleikari: Fríða Lárus-
dóttir. Söngstjóri: Haukur
Guðlaugsson.
21.25 Rithöfundur, listmálari
og blaðamaður.
Kristín Bjarnadóttir ies
stuttan pistil um Hans
Scherfig eftir Ingu Birnu
Jónsdóttur og þýðingu
hennar á ritgerð Scherfigs
„Um sjálfstæði".
21.45 Samleikur á fiðlu og pí-
anó.
22.05 Kvöldsagan: Ameríku-
bréf.
Hjörtur Pálsson les þýðingu
sína á kafla úr minningar-
bókinni „Gelgjuskeiði“ eftir
Ivar Lo-Johansson.
22.3Ó Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passíusálma (17).
22.55 Bókmenntaþáttur. Um-
sjónarmaður: Anna Olafs-
dóttir Björnsson. Rætt við
Hjört Pálsson dagskrár-
stjóra um bókmenntir í út-
varpinu.
23.10 Kvöldstund með Sveini
Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.