Morgunblaðið - 02.03.1979, Síða 15

Morgunblaðið - 02.03.1979, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2, MARZ 1979 15 Ian Smith forsætisráðherra Rhódesíu sést hér lúta höfði eftir að hann flutti kveðjuræðu sína í þing ,u í gær þegar það lauk störfum. Væntanlega er þetta í síðasta sinn sem hvítir menn eru í meirihluta á þinginu f Rhódesíu. Símamynd AP. Loftárás á herbúðir í Mósambík Salisbury, 1. marz. AP. RHÓDESÍSKAR herflugvélar hertu í dag á árásum sfnum á griðarstaði skæruliða f nágranna- löndunum og gerðu ioftárás á mósambfskar herffúöir 225 km innan landamæra Mósambfk að sögn herstjórnarinnar í Salis- bury. Búðirnar tilheyrðu Zanla, her stjórnmálahreyfingar Robert Mugabes. Þetta er fjórða árás Rhódesíumanna á nágrannalönd á undanförnum tveimur vikum. Rhódesíumenn segja að aðeins sérstaklega valdar byggingar hafi orðið fyrir árásum og þær hafi verið gerðar með hárfínni ná- kvæmni. Baskar láta lausan gisl Vitoria, Sýani, 1. marz. AP. LUIS Abaitua, framkvæmda- stjóri hjá Michelin-fyrir- tækinu, var látinn laus f dag, 10 dögum eftir að aðskilnaðar- sinnar Baska rændu honum, og kom heim til sín heill á húfi. Schlesinger spáir lokun benzínstöðva um helgar Ræningjar hans voru úr sam- tökunum ETA og höfðu krafizt þess að gengið yrði að kröfum 3.400 starfsmanna verksmiðju fyrirtækisins. Samkomulag var á næsta leiti þegar Abaitua var leystur úr haldi. New York, 1. marz. AP — Reuter JAMES Schlesinger, orkuráð- herra Bandarfkjanna, segir að stjórnvöld kunni að neyðast til að loka benzfnstöðvum um helgar á sumrum og Samtök olíusölurfkja, OPEC, hafa samþykkt verð- hækkanir sem nokkur aðildarrfki hafa kunngert. Samtökin sögðu f yfirlýsingu sem var gefin út f aðalstöðvum þeirra í Vín, að „ákvarðanir teknar á ráðstefnum um hækkun hráolfuverðs kæmu ekki f veg fyrir að aðildarrfki hagræddu verðinu upp á við f ljósi rfkjandi kringumstæðna." Nokkur aðildarríki OPEC hafa hækkað hráolíuverð upp fyrir þá 13.35 dollara sem samtökin hafa ákveðið að skuli vera grundvallar- Konungleg meinloka „EFTIR er 21 einvaldsherra" var fyrirsögn á frétt í Mbl. sl. miðviku- dag, þar sem taldir voru upp keisarar, konungar, drottningar, furstar o.fl.. sem enn ríkja í ýmsum löndum heims. í upptaln- ingunni voru m.a. drottningar Breta, Dana og Hollendinga, svo og konungar Noregs og Svíþjóðar. Af því má augljóslega ráða, að fyrirsögn fréttarinnar stafar af meinloku, en samt sem áður vill Mbl. leiðrétta hana hér með. verð fyrir hverja olíutunnu til að reyna að nota sér þann birgðaskort sem hefur gert vart við sig vegna öngþveitisins í íran. Þar sem engin olía hefur borizt frá íran hafa mörg olíufyrirtæki neyðzt til að tak- marka það magn sem þau selja viðskiptavinum sínum. Félögin segja að þau geti ráðið Veður víða um heim Akureyrí +• lóttskýjaó Amsterdam 5 heióskírt Apena 15 sólskin Barcelona 11 skýjaó Berlín vantar BrOssel 1 heiðskírt Chicago 5 skýjaó Frankfurt 8 skýjaó Genf 4 skýjaó Helsinki 2 skýjaó Jerúsalem 18 bjartviðri Jóh.borg 27 skýjaó Kaupm.höfn 3 sólskin Lissabon 13 rigning London 7 sólskin Los Angeles 19 rigning Madríd 5 heióskírt Malaga 11 léttskýjaó Mallorca 8 rigning Míami 22 skýjað Moskva 2 heiöskírt New York 14 rigning Ósló 1 skýjaö París vantar Rio De Janeiro 37 sólskin Reykjavík 48 léttskýjaó Rómaborg 9 heióskírt Stokkhólmur 3 skýjaö Tel Aviv 20 bjartvíóri Tókýó 10 sólskin Vancouver 8 rigning Vínarborg 5 snjókoma við birgðaskortinn án þess að stjórnvöld fyrirskipi skömmtun, en Schlesinger varar þau við að stjórnin kunni að neyðast til að loka benzínstöðvum um helgar í sumar. Hann sagði einnig að ekki væri ólíklegt að fyrirskipað yrði fastákveðið hitastig í opinberum byggingum og sérstakt gjald á benzín. Alice M. Rivlin, forstöðumaður fjárlagaskrifstofu þingsins, sagði í vitnaleiðslu í öldungadeildinni að ástandið í Iran gæti haft í för með sér stórfelldar verðhækkanir er gætu leitt til samdráttar um allan heim á næsta áratug. Hann sagði að ef áfram héldi sem nú horfði ykist tala atvinnulausra í 200.000 á einu ári og verðbólgu- hraðinn um 0.4%, Iran hefur jafnframt tilkynnt, að olía landsins verði seld hæstbjóð- anda þegar olíuútflutningur hefst aftur en ekki fyrirtækjasamsteyp- unni sem stjórn landsins hefur skipt við. Kuwait hefur neitað því að dag- leg olíuframleiðsla þar hafi verið aukin úr tveimur í 2.5 milljónir lesta á dag. Tvær milljónir lesta er það þak á daglegri framleiðslu sem samkomulag er um. ERLENT Elzti sonur Carters forseta vill í framboð Calhoun, Georgia, 1. marz. Reuter. ELZTI sonur Carters forseta, Jack, segir að hann bjóði sig ef til vill fram tii þjóðþingsins á næsta ári. Jack Carter er 31 árs gamall, lögfræðingur og kaupsýslu- maður. Hann sagði að þótt hann færi sennilega í framboð gætu nokkrar ástæður orðið til þess að hann skipti um skoðun. Vinur hans sagði að ef hann færi í framboð mundi hann vera eins óháður forsetanum í baráttu sinni og hann gæti. Bandaríkin opna sendiráð í Kína Peking 1. marz AP BANDARÍSKI fáninn var dreginn að húni við fyrsta sendiráð Banda- ríkjanna á meginlandi Kína í tæp 30 ár og þar með er stjórnmála- samband landanna komið í eðli- lcgt horf. Michael Blumenthal fjármála- ráðherra var fulltrúi Carters forseta við athöfnina og hann sagði að 300 viðstöddum, aðallega Bandaríkjamönnum, að „þjóðir okkar og ríkisstjórnir hefðu alltof lengi verið aðskildar. Þeim aðskilnaði er nú lokið. Saga okkar, stjórnmálakerfi og hagkerfi er ólík, bætti hann við, „en samt getum við stundað viðskipti og við getum unnið saman að betri heimi". Um 200 Kínverjar fylgdust með athöfninni við bandaríska sendi- ráðið. Starfsmenn sendiráðsins sögðu, að þeir hefðu beðið í marga klukkutíma án þess að sýna nokkur svipbrigði eða þreytumerki. Kínverska stjórnin hefur enn ekki veitt samþykki sitt til þess að landgönguliðar verði á verði í sendiráðinu eins og í öðrum banda- rískum sendiráðum. Nokkrir kínverskir hermenn voru á verði. Kínverskum embættismönnum var ekki boðið að vera við athöfnina en þeim var boðið í veizlu sem var haldin á eftir og fréttamenn fengu ekki aðgang að. Við athöfnina sungu um tólf bandarísk börn „America the Beautiful" og bandaríski þjóð- söngurinn var leikinn á plötu- spilara þegar Blumenthal hafði dregið fánann að húni. Á eftir voru sprengdir kínverjar. Sendiráðsbyggingin hefur verið aðsetur bandaríska stjórnarfull- trúans síðan það embætti var stofnað 1973. Leonard Woodcock, sem hefur gegnt því starfi í sex mánuði, tók formlega við starfi sendiherra í gær. Hann var ekki viðstaddur athöfnina en er væntan- legur til Peking eftir nokkra daga. Opnun sendiráðsins fylgir í kjölfar þeirrar ákvörðunar frá 1. janúar að koma á stjórnmálasam- bandi sem hefur legið niðri síðan kommúnistar tóku völdin í Kína árið 1949. Sendiherra Kína í Washington verður Chai Tse-min, núverandi stjórnarfulltrúi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.