Morgunblaðið - 02.03.1979, Side 16

Morgunblaðið - 02.03.1979, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 Útgefandi Framkvaamdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúí Fróttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 3000.00 kr. 6 mónuði innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakið. Stórmerk tillaga Fáar þjóðir heims geta státað af jafnháum meðalaldri þegna sinna og við íslendingar, enda hefur hann hækkað verulega á þessari öld. Þessari þróun hefur fylgt, að einstaklingarnir varðveita heilsu og starfsgetu til mun hærri aldurs en áður var. Orsakir þessarar jákvæðu þróunar eru margþættar en felast allar í þeirri lífskjara- breytingu í atvinnumálum, húsnæðismálum og heilsu- gæzlu, sem fylgt hefur í kjölfar fullveldis, aukinnar menntunar þjóðarinnar og tæknivæðingar þjóðarbúskap- arins. Auðvelt er að meta lífskjarabreytinguna á sviði atvinnu og húsnæðis á mælikvarða nútíma reiknikúnstar, en þáttur heilbrigðiskerfisins, sem skilar sér ekki einungis í færri veikindadögum frá vinnu og lengri starfsævi einstaklingsins, heldur einnig í meiri lífshamingju en ella, yerður illa í tölum skráður. Hinn hái meðalaldur íslendinga, sem nú er staðreynd, hefur skapað ný viðhorf og viðfangsefni í þjóðfélaginu, sem ekki hefur verið nægur gaumur gefinn. Fyrst verður að nefna þann þátt í lífshamingju allra manna, aldraðra sem yngri, sem starfið veitir, að þeim finnist þeir koma að gagni í þjóðfélaginu og skila af höndum viðunandi dagsverki. Þessi ómissandi þáttur í hamingju hvers og eins stangast á við ríkjandi aldursreglur um störf hér á landi, einkum varðandi þá, sem varðveita starfsgetu sína lítt eða ekki skerta fram á háan aldur. Og jafnvel þeir, sem sæta skertri starfsgetu á efri árum, þurfa að eiga aðgang að störfum við hæfi, meðan vinnuvilji er til staðar. Heil- brigðisþjónusta við aldraða, sem og dægradvöl í frístund- um, er svo önnur hlið málsins, sem ekki verður gerð hér að umtalsefni. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykja- víkur hafa nú lagt fram stórmerka tillögu um endurskoðun hámarksaldurs starfsmanna ríkis og sveitarfélaga, sem og aukin tækifæri eldra fólks til starfa hluta úr degi. Samkvæmt núgildandi reglum ber mönnum að hætta störfum, er sjötugsaldri er náð, hvort sem starfsgeta er skert eða ekki, en aðalregla er sú, að menn hætta störfum fyrr vilji þeir njóta eftirlaunaréttar. Höfuðþættirnir í tillögu þorgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins eru tveir: 1) að endirskoðaðar verði reglur um þessi mál, hvort ekki sé rétt að hækka aldursmörk þau, sem nú er við miðað, í ljósi þeirrar breytingar sem orðin er í þjóðfélaginu og 2) að settar verði fastari reglur um möguleika eldri starfsmanna til að gegna hlutastörfum, ýmist á sínum gamla starfs- vettvangi eða í öðrum stofnunum. Lagt er til að borgarstjórn skipi starfsnefnd í þetta verkefni, er skili áliti og tillögum ekki síðar en í lok þessa árs. Starfsmanna- félag Reykjavíkurborgar eigi aðild að nefndinni. Þess eru mörg dæmi að starfsmissir vegna aldurs, brýtur niður viðkomandi einstaklinga, heilsufarslega, og veldur þeim hugarangri, er skyggir á æviár, sem vera ættu kóróna á lífsferil og lífshamingju þeirra. .Fámenn þjóð, sem hefur mörgu að sinna, hefur heldur ekki efni á því að nýta ekki gamalreynda starfkrafta fullorðins fólks, sem enn hefur vinnuvilja, auk verkþekkingar og starfsgetu, með einum eða öðrum hætti. Vinna, eftir að ákveðnum aldri er náð, á að vera frjáls valkostur hvers og eins; og jafnframt sá, að hætta störfum á viðunandi eftirlaunum, eftir tilskilinn starfsferil. Það þarf engum að koma á óvart að Sjálfstæðisflokkur- inn hefur forystu um að taka þennan mannlega þátt í þjóðfélagi okkar til endurmats og breytingar. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur haft forystu um öll helztu nýmæli á sviði félagslegrar þjónustu, bæði við aldraða og aðra, sem sérstöðu hafa í þjóðlífinu, á undanförnum áratugum. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur frjálsræðis og framtaks, hvort heldur sem er á sviði verðmætasköpunar í þjóðar- búskapnum eða verðmætasköpunar á sviði menningar og lista, en hann er jafnframt flokkur þeirra mannlegu viðhorfa, er byggja á rétti allra þjóðfélagsþegna til þeirra atriða, er lífshamingja fólks grundvallast á. Baltasar við verk á sýningunni. Ljósm. Mbl: ól.K.M. Baltasar sýnir grafík í Norrœna húsinu „ÞETTA er fyrsta grafík- sýningin mín og með henni má segja að komi nýtt mótíf fram hjá mér, en það eru fantasíur um flóru íslands,“ sagði Balt- asar í samtali við Mbl. í gær, en á laugardaginn opnar hann í Norræna húsinu sína áttundu einka- sýningu hér á landi síðan 1961. „Ég Iærði grafík á Spáni á sínum tíma, en það hefur tekið sinn tíma að koma sér upp viðunandi vinnuað- stöðu,“ sagði Baltasar. „Þessar grafíkmyndir á sýningunni eru 52 talsins og hef ég unnið þær á síðustu tveimur árum. Þetta þýðir þó alls ekki að ég sé hættur að mála. Ég ætla að stunda grafík og málaralist jöfnum höndum og láta þessar tvær list- greinar grípa hvor inn í aðra. Ég hef ekki málað blómamyndir, en mér finn- ast villt blóm falla ákaflega vel að grafíkinni. Ég sótti mér fróðleik um flóru ís- lands í fræðibækur og lék mér svo áfram með hug- myndirnar í grafíkinni. Þannig verður listamaður- inn stöðugt að þreifa sig áfram og færa út kvíarnar svo að hann staðni ekki.“ Milljarður til að breyta lausaskuld- um bænda í föst lán? Landbúnaðarráðherra hefur lagt fyrir Búnaðarþing frumvarp til laga um breytingu á lausa- skuldum bænda í föst lán. Sam- kvæmt frumvarpinu er Veðdeild Búnaðarbankans heimilað að gefa út nýjan flokk bankavaxta- bréfa, sem eingöngu skulu notuð til að breyta í föst lán lausa- skuldum bænda, sem hafa ekki fengið nægileg lán til hæfilegs tima vegna fjárfestinga, sem þeir hafa ráðist í á jörðum sínum á árunum 1970 til 1979, svo og lausaskuldum vegna jarðakaupa, véla-, bústofns- og fóðurkaupa á sama tíma. í greinargerð með frumvarpinu kemur fram, að þegar hafa 455 bændur sótt um að fá slíka fyrirgreiðslu og er gert ráð íyrir, að umsækjendum íjölgi enn. Gert er ráð fyrir að miðað við núverandi lausaskuldir og umsóknir þurfi um einn milljarð króna til að sinna þess- um lánveitingum. Frumvarpið um þetta efni samdi nefnd, sem í áttu sæti Stefán Valgeirsson, alþingsimaður, Bjarni Bragi Jónsson, hag- fræðingur, og Árni Jónasson, erindreki og kemur fram í greinar- gerð þeirra, að heildarskuldir þeirra 409 bænda, sem teknir voru með í uppgjöf nefndarinnar, voru 2,3 milljarðar og þar af voru lausaskuldir 1,2 milljarðar króna. Að meðaltali skuldar hver bóndi um 5,8 milljónir króna og þar af eru í lausaskuldum um 3 milljónir. Fram kemur að mestar eru lausa- skuldir þessara bænda við kaup- félögin eða tæpar 583 milljónir lausa skuldir við einstaklinga og önnur fyrirtæki en kaupfélögin og bankana eru 228,5 milljónir, lausa- skuldir í Búnaðarbankanum eru 174 milljónir og lausaskuldir við sparisjóði eru tæpl. 125 milljóir en skuldir við aðrar bankastofnanir eru lægri. Eftir kjördæmum skiptast umsækjendur þannig, að 79 eru af Vesturlandi með að meðaltali í lausaskuldum 2.183 þúsund, af Vestfjörðum eru 27 umsóknir, að meðaltali eru skuldirnar 2.906 þús. af Norðurl. v. eru umsækjendur 47 og meðalskuldir 3.514 þús. af Norðurl eystra 93 og meðallausa- skuldir þeirra 4,5 millj., af Austur- landi eru umsóknirnar 55 og að meðaltali eru lausaskuldirnar 2.884 þús. og af Suðurlandi eru 105 umsóknir og lausaskuldir þeirra eru að meðaltali 2.064 þús. Nefndin tekur fram, að það sé athyglisvert, að þeir bændur sem fengu skuldabreytingu samkvæmt lögum um þetta sama efni frá 1969, virðist hafa komist út úr fjárhagsvanda sínum, þar sem sárafáir þeirra sæki nú um skulda- breytingu. Mikil atvinna á Fáskrúdsfirði Fáskrúðsfirði, 1. marz. MIKIL ATVINNA heíur verið á Fáskrúðsfirði það sem af er vetri og er heildarafli frá áramótum um 25 þúsund lestir, sem skiptist þannig: 12.400 lestir eru bolfiskafli, 12.600 lestir loðna. Héðan eru gerðir út 2 skuttogar- ar, Hoffell SU 80, sem landað hefur 441 lest, og Ljósafell SU 70 er með 352 lestir. Tveir línubátar voru gerðir út héðan í janúar og febrúar, Þorri SU 402 og var afli hans 186 lestir og Sólborg SU 202 og er hún með 149 lestir. Báðir þessir bátar hafa nú tekið net. Um mánaðamót janúar og febrúar hóf þriðji báturinn róðra með net, Guðmundur Kristinn SU 404, og er afli hans 115 lestir. Skuttogararnir landa hjá Hrað- frystihúsi Fáskrúðsfjarðar hf og netabátarnir og línubátarnir hjá Pólarsíld hf. Hér hafa verið miklar skipa- komur í vetur vegna mikilla af- skipana hjá fyrirtækjunum. Tré- smiðja Austurlands, sem að und- anförnu hefur verið heldur verk- efnalítil, hefur haft nóg verkefni í vetur þar sem nú er unnið að því að smíða 17 lesta bát sem lengi hefur verið stopp í kerfinu, en er nú verið að ljúka. Auk þess annast fyrirtækið viðgerð á 27 tonna báti sem strandaði í Hornafjarðarósi í vetur. Þá hafa verið gerðir samn- ingar af hálfu fyrirtækisins um smíði 12 íbúða í fjölbýlishúsi á vegum Húsnæðismálastjórnar og leiguíbúðanefndar og er undirbún- ingur þess verks í fullum gangi. Félagslíf hefur verið allþokka- legt og hafa hin ýmsu félög starfað allvel í vetur. í gær var hér öskudagsskemmtun en fyrir henni stóð starfsmannafélag KFFB. For- maður þess er Stefán Stefánsson og eftir því sem hann tjáð mér voru á þessari skemmtun yfir 300 manns. Hér hefur verið mjög gott veður að undanförnu og sl. laugar- dag var hér sumarveður, en nú hefur aftur brugðið til kaldara veðurs og var 10 stiga frost í gærkvöldi. Albert.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.