Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 17 Þingsályktunartillaga um þingrof og nýjar fcosningar: Engin samstaða í stjórn- arliði um efnahagsstefnu —Fyrirheit um „samningana í gildi,f svikin HÉR FER á eftir í heild þings- ályktunartillaga sú um þingrof og nýjar kosningar, sem þing- menn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram á Alþingi í gær: Sþ. 408. Tillaga til þiíigs- ályktunar um þingrof og nýjar kosningar. Flm.: Geir Hallgrímsson, Gunnar Thoroddsen, Albert Guðmundsson, Eggert Haukdal, Ellert B. Schram, Eyjólfur K. Jónsson, Friðjón Þórðarson, Friðrik Sophusson, Jón G. Sólnes, Jósef H. Þorgeirsson, Lárus Jóns- son, Matthías Bjarnason, Matthías Á. Mathiesen, Oddur Ólafsson, Ólafur G. Einarsson, Pálmi Jónsson, Ragnhildur Helgadóttir, Steinþór Gestsson, Sverrir Hermannsson, Þorv. Garðar Kristjánsson. Alþingi ályktar að skora á forsætisráðherra að leggja til við forseta íslands að Alþingi verði rofið og efnt til nýrra almennra þingkosninga svo fljótt sem við verður komið. Greinargerð í dag, 1. mars eru 6 mánuðir liðnir frá því núverandi ríkis- stjórn tók við völdum. Misseris ferill ríkisstjórnar- innar leiðir í ljós: í fyrsta lagi: Að fyrirheit það, sem tveir stjórnarflokkarnir gáfu fyrir kosningar um „samningana í gildi“ og þriðji stjórnarflokkur- inn tók undir við myndun ríkis- stjórnarinnar, hefur ekki verið efnt. I öðru lagi: Að samstaða hefur ekki náðst með stuðnings- flokkum ríkisstjórnarinnar um neina stefnu í efnahagsmálum. Flutt hefur verið tillaga af hálfu eins stjórnarflokksins um, að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram til þess að leysa ágreining stjórnarflokkanna um efnahags- frumvarp forsætisráðherra, sem hefur ekki enn verið lagt fram á Alþingi. Slík tillaga ber uppgjöf og vantrausti á núverandi ríkis- stjórn ljóst vitni. Aukin skattheimta, ríkisíhlut- un og eignakönnun eykur á vand- ann. Meðan algert stefnu- og úrræðaleysi ríkir að öðru leyti, sígur sífellt á ógæfuhlið. Án efa hefur verulegur hluti kjósenda í síðustu alþingis- kosningum ætlast til annars en nú er komið á daginn og því þykir nauðsyn, að kjósendum gefist kostur á að kveða upp dóminn að nýju. Allir flokkar hafa kynnt stefnu sína í efnahagsmálum, þannig að kostirnir liggja fyrir. Með tilvísun til þess og reynslu af aðgerðum og aðgerðarleysi núv. ríkisstjórnar, vilja Sjálfstæðis- menn með tillögu þessari greiða fyrir því að þjóðin fái tækifæri til að kveða upp sinn dóm, hvaða efnahagsstefnu beri að fylgja á næstu árum. Markaðsnefnd landbúnaðarins: Aherzla á eftirgjöf tolla og innftutningsgjalda á búvörum til útfiutnings Súlan EA 300 landaði loðnu í Sundahöfn í Reykjavík í gær. Ljósm. Rax. 26 skip með loðnu — Nokkur löndunarbið TUTTUGU og sex bátar höfðu allt fram á laugardag og sunnu- ur 950, Ljósfari 360, Hákon 740, tilkynnt loðnunefnd aíla frá dag. Magnús 500, Rauðsey 540, Gull- miðnætti miðvikudags til kl. 23 í Eftirtalin skip höfðu tilkynnt berg 580, Árni Sigurður 800, gærkvöldi samtals 15.090 tonn. afla Jón Kjartansson 1.000, ís- Heimaey 150, Jón Finnsson 580, Að sögn taismanns loðnunefndar leifur 430, Helga II 500, Þórs- Þórður Jónasson 450, Huginn 250, er nokkur bið að landa, jafnvel hamar 400, Eldborg 1.570, Víking- Gísli Árni 600, Pétur Jónsson 650. „Hálfir skósólar” á bókauppboði MARKAÐSNEFND land- búnaðarins sem stofnuð var í framhaldi ályktunar á búnaðarþingi 1977 hefur nú sent frá sér skýrslu um störf sín. Einkum hefur verið athugað hvort unnt sé að auka kindakjötsútflutning og fá betra verð. í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá land- búnaðarráðuneyti, Búnaðar- félagi íslands, Stéttarsam- bandi bænda, Framleiðslu- ráði og Búvörudeild SÍS. I niðurlagi skýrslunnar segir að verðbólgan hafi rýrt mjög viðskiptakjör í út- flutningi búvara og auknar niðurgreiðslur í Svíþjóð og Noregi svo og síhækkandi tollar EBE-landanna. Nú fáist aðeiná lítill hluti af skráðu verði fyrir útflutning en meðan þörf sé á að flytja út búvörur megi hvergi slaka á til að ná sem Seztum árangri, mögulegt sé að lag- færa verðið ef unnt er að semja um eftirgjöf á tollum og innflutningsgjöldum í ýmsum löndum. Þá er í niðurlagi skýrslunnar lögð áherzla á nauðsyn aug- lýsinga- og kynningarstarfs og telur nefndin að leggja þurfi áherzlu á eftirfarandi atriði: Eftirgjöf tolla og inn- flutningsgjalda, kynningar- starfsemi í Danmörku og Þýzkalandi, pökkun á kjöti, framleiðslu á „sérmeti“ og sölutilraunir í Evrópu og Bandaríkjunum að kannaður sé til hlítar útflutningur á lifandi sláturfé, aukna fjöl- breytni á innlendum mark- aði, nýtingu og sölu auka- afurða, heyútflutning og að fylgst verði með þróun mark- aða. Markaðsnefndin gerði sl. sumar nokkrar tilraunir með að flytja út ferskt kjöt flug- leiðis og voru send 2—4 tonn sem sýnishorn til Frakk- lands, Danmerkur, Þýzka- lands og Bandaríkjanna. Allir kaupendur kjötsins voru sammála um að verkun kjötsins væri óaðfinnanleg, segir í skýrslu markaðs- nefndar, og hafa Danir óskað eftir að framhald verði á þessum tilraunum næsta haust, og athugað hefur verið að halda áfram í Þýzkalandi og Bandaríkjunum. „Ef um útflutning verður að ræða á fersku kjöti í framtíðinni er ljóst að koma þarf upp búnaði í sláturhúsunum til að kæla kjöt. Ef útflutningur á fersku kjöti verður jákvæður opnast möguleikar á að lengja sláturtíð og þar með fæst betri nýting á slátur- húsunum. Þá munu einnig opnast möguleikar á að selja ferskt kjöt á innlenda markaðinum," segir í skýrslu markaðsnefndar. Um sölufyrirkomulag við útflutning segir markaðs- nefndin m.a. svo: Nefndin telur rétt að hafa 2—4 kaupendur á kjöti á hverjum markaði og skal viðskipta- ráðuneytið gefa út út- flutningsleyfi sem fram- leiðsluráð staðfestir. Verður með því hægt að tryggja samkeppni um að fá sem bezt verð. Umboðslaun verði ákveðið hlutfall af söluverði sem verkar hvetjandi á sölu- aðila og nauðsyn er á að semja reglugerð um út- flutning búvara og greiðslur útflutningsbóta. KLAUSTURHÓLAR, listmuna uppboð Guðmundar Axels- sonar, efna til 52. uppboðs fyrirtækisins n.k. laugardag 3. marz. Að þessu sinni verða seldar bækur og rit af ýmsu tagi. Uppboðsskrá er greind í flokka eftir efni bóka: Ymis rit, trúmál, sagnaþættir, rit ís- lenzkra höfunda, fornritaút- gáfur, rímur, ríki náttúrunnar, blöð og tímarit, ljóð, þjóðsögur, æviminningar og æviskrár, saga lands og lýðs. Það er einkennandi fyrir þetta uppboð, að þar verður selt óvenju mikið af alls kyns smáprenti, pésum, ritlingum og bæklingum, en margt slíks prentmáls hefur með tímanum orðið mjög fágætt. Fágætasta smáprent þessa uppboðs er sennilega fyrsta rit, sem út kom eftir Þorberg Þórðarson, sem árið 1016 gekk undir nafninu Styr stofuglamm og sendi frá sér bæklinginn „Hálfa skósóla“. Af öðrum bókum og verkum á uppboðinu má m.a. nefna eftir- talið: Ný jarðabók fyrir Island, Kaupmh. 1861, Nýtilegt barna-gull eður Stöfunar- og lestrar qver handa börnum, samantekið af Bjarna Arngríms- syni, Viðeyjarklaustri 1821. Áðvörunar og sannleiksraust eftir Þórð Diðriksson, frægt rit um Mormónatrú, prentað í Kaupmannahöfn 1879. Drauma-Jói eftir próf. Ágúst H. Bjarnason, Rvík 1915. Ordbog til rimur útg. af Finni Jónssyni Kh. 1926—1927. Viðeyjarnjála, Viðey 1844, ein síðasta bók, sem prentuð var í Viðey, áður en prentsmiðjan þar var flutt til Reykjavíkur. Doktorsrit Helga Pjeturss. Om Islands Geologi, Kh. 1905. Frumútgáfu hins þekkta grundvallarrits dr. Bjarna Sæmundssonar: Fiskarnir, Rvík 1926. Tímaritið Veiðimaðurinn 1.—100. Iðunn I-VII, Reykjavík 1884-1889, ýmis smárit eftir Jóhs. S. Kjarval: Þrjú lítil ljóð, Eimskip fjörtíu ára, Alfreðsljóð og Berg- mál til Éggerts Stefánssonar á sumardaginn fyrsta 1959. Dala- menn I-II, Reykjavík 1951, og ritsafnið Safn til sögu íslands I-VI, Kaupm.höfn og Rvík 1856—1930 og Menn og menntir I-IV. Rvík 1919-1926. Uppboðsmunirnir verða til sýnis að Klausturhólum, Lauga- vegi 71, á verzlunartíma allan föstudaginn, en uppboðið hefst síðan á laugardaginn kl. 14.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.