Morgunblaðið - 02.03.1979, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.03.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 19 Að koma áhættuspilurum mannlífsins fyrir kattarnef UNDARLEGT þetta hús, Iðnó, hvað það býr yíir miklum hlýj- um straumum. Þar hittir mað- ur fólk með glampa í augum, fólk sem að öllu jöfnu er með steinrunninn svip í hversdags- legu fasi. Við heimsóttum Iðnó eitt Geggjaða konan fra París heimsótt í Iðnó kvöldið til þess að fylgjast með sýningu þar á Geggjuðu kon- unni frá París og auðvitað heimsóttum við leikarana í búningsklefa þeirra undir fjöi- unum i Iðnó. Steindór leikstýr- ir þeirri geggjuðu. Geggjaða konan í París er eftir Jean Giraudoux, eitt helzta leikritaskáld Frakka, er fæddur var 1882, en sú „geggjaða" er með þekktustu verkum hans. Verkið ritaði hann á stríðsárun- um síðustu þegar nazistar höfðu hernumið París og mun leikrita- skáldið hafa skrifað verkið und- ir rós sem ádeilu á yfirdrottnun þess tíma, en þó þannig, að verkið fjallar í rauninni fyrst og fremst um það á gamansaman hátt, í búningi ævintýris um umhverfisvandamálin. Það er ádeila á það, hvernig þeim sem ráða fjármagninu er á stundum ekkert heilagt. Þegar við fylgdumst með sýn- ingunni stundarkorn liðu hlát- urkviður um veggi og það var létt stemmning í leikhúsinu, enda fjölmargir reyndustu leik- arar hússins á fjölunum. Verkið fjallar um það að olía finnst í hjarta Parísar og þeir, sem mæla öll verðmæti í fjár- festingu líðandi stundar hyggj- ast bora eftir dýrmætinu þótt hin gamla góða París muni ekki lifa það af. En þá kemur sú „geggjaða" til sögunnar og fær til liðs við sig þrjár vinkonur sínar eins „geggjaðar". Spilin stokkast upp og eitt og annað ber fyrir, sumt er gefið í skyn, annað dregið fram á raunsærri hátt, en út úr þessu sameinast fólk Parísar, mergur, stofn og kvistir mannlífsins, tuskusalinn og listamaðurinn, hann og hún og markmiðið er að koma áhættuspilurunum í framtíð borgarinnar fyrir kattarnef. Leikurinn æsist og möguleik- arnir til allra átta. Á stangast olían, olían, olían, eða það hvort sólin nær að skína á stræti borgarinnar, hvort dúfurnar haldi þar áfram kurri sínu, hvort mannlífið fái áfram tæki- færi, og það vorar á ný eftir klækjaleik þeirra, sem höfðu skapað stemmningu borgarinn- ar, skapað líf hennar. — á.j. Sundlaugin verður aðalverkefni ársins — segir framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar — STEFNT er að því að haldið verði áfram byggingu sundlaug- arinnar á næstunni og verður hún þá aðalverkefni í bygginga- málum okkar á þessu ári, sagði Trausti Sigurlaugsson fram- kvæmdastjóri Sjálfsbjargar í samtali við Mbl. í gær. Trausti sagði að fram til þessa hefði verið lögð aðaláherzla á ýmsa aðra þætti í byggingum Sjálfsbjargar og væri t.d. nú verið að ljúka smíði 36 íbúða og yrði þá tekið til við sundlaugina. Væri verið að leggja síðustu hönd á 18 íbúðir af þessum 36 og væri þá í framhaldi af því hægt að athuga hvaða fjármagn væri til ráðstöfunar í sundlaugina. Trausti kvað gjafir sífellt vera að berast og til væri nú nokkurt fjármagn sem Lionsfélögin í Reykjavík og nágrenni hefðu safnað og kvaðst hann hafa fregnir af að Hjálpar- stofnun kirkjunnar væri með söfn- un í undirbúningi. — Búið er að grafa grunn og steypa undirstöður, sagði Trausti, og teikningarnar sem gerðar voru árið 1966 verða endurskoðaðar á næstunni og hafa þeir bjartsýn- ustu talað um að hægt yrði að ljúka þessari sundlaugargerð á árinu 1980. Talað er um að það kosti milli 110 og 120 milljónir króna að fullljúka henni miðað við verðlag nú, en við höfum sem sagt ekki ennþá getað gengið frá fjár- hags- og framkvæmdaáætlunum fyrir verkið. Rækjusjómenn á Húsavík vilja óbr ey ttan kvota NOKKRIR rækjusjómenn frá Húsavík voru staddir í Reykjavík í gær til viðræðu við ýmsa aðila í sjávarútveginum. Að sögn Bjarna Karlssonar eins rækjusjómann- anna, héldu þeir til Reykjavíkur til að andmæla hugmyndum sem þeir segja að fram hafi komið hjá vissum öflum um skerðingu á rækjukvóta þeirra. — Við höfum veitt rækju á Axarfirði í fjöldamörg ár og það voru okkar sjómenn sem fundu þessa rækju, sagði Bjarni, og þess vegna teljum við okkur eiga hefð- bundinn rétt til veiða á miðunum þarna. Við viljum ekki níðast neitt á Kópaskersbúum, en við munum heldur ekki þola að þeir gangi á okkar hefðbundna rétt til veiða og taki til sín meira en 50% kvótans sem veiða má. I dag ræddum við við starfsmenn Hafrannsókna- stofnunar, Fiskifélagsins, sjávar- útvegsráðuneytisins og alþingis- menn úr kjördæmi okkar og allir þessir aðilar tóku málstað okkar af skilningi og erum við þakklátir fyrir það. Við viljum halda okkar 50% kvótans og sættum okkur ekki við skerðingu hans eins og viss öfl virðast vinna að. SM-2700 Stereo-samstæðan Verð kr. 234.670.- Stórfallegt hljómflutningstæki á einstaklega góðu verði Allt í einu tæki: Stereo-útvarp, cassettusegulband, plötuspilari og 2 stórir hátalarar. Magnarinn er 28 wött. Tveir hátalarar eru í hvorum kassa. Stór renndur 28 sm plötudiskur. Útvarpið er meö langbylgju, miðbylgju og FM Stereo. CR 0 Selektor. Komið og skoöið þetta stórfallega tæki og sannfærist um að SM 2700 Toshiba-tækið er ekki aöeins afburða stílhreint í útliti heldur líka hljómgotl. SM 2700 gefur yöur mest fyrir peningana. Háþróaður magnari, byggður á reynslu Toshiba í geimvfsindum. Utsölustaðir: Akranes: Bjarg h.f. Borgarnes: Kaupf. Borgf. Bolungarvík: Versl. E.G. isafjörður: Straumur s.f. Hvammstangi: Versl. S.P. Blönduós: Kaupf. Húnvetninga. Sauðárkrókur: Kaupf. Skag- firðinga Akureyri: Vöruhús Kea Hljómver h.f. Húsavík: Kaupf. Þingeyinga Egilsstaðir: Kaupf. Héraðsbúa Ólafsfjöröur: Verslunin Valberg Siglufjörður: Gestur Fanndal Hornafjöröur: K.A.S.K. Hvolsvöllur: Kaupf. Rangæinga Vestmannaeyjar: Kjarni h.f. Keflavík: Duus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.