Morgunblaðið - 02.03.1979, Síða 21

Morgunblaðið - 02.03.1979, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 21 heyrðu Þorstein tala opinskátt um samfélagsmál, því að vegna stöðu sinnar og raunar einnig að eðlis- fari var hann ógjarn á að flíka skoðunum sínum og tilfinningum. Nú við fráfall Þorsteins Þorsteinssonar er mér efst í huga þakklæti fyrir ómetanlega hand- leiðslu og hjálpsemi, sem hann lét mér í té fyrr og síðar. En þó að þetta skipti miklu, met ég enn meir þá gæfu að hafa haft náin kynni af eins göfugum, vitrum og heilsteyptum manni og Þirsteinn var. Klemens Tryggvason. í dag er til moldar borinn dr. oecon Þorsteinn Þorsteinsson fyrrv. hagstofustjóri, sem lést í hárri elli 15. þ.m. Þorsteinn hefur nú um áratuga- skeið verið sannkallaður Nestor íslenskra hagfræðinga. Vegna hins háa aldurs, sem hann náði, eru nú mjög teknar að þynnast raðir þéirra, sem mest og nánust kynni höfðu af lífsstarfi hans og færastir hefðu verið um það að minnast hans. Vil ég nú gjarnan, þótt á ófullkominn hátt sé, leitast við, með þessum línum, að fylla ofur- lítið í skarðið, þótt ég sé af yngri kynslóð og hefði aðeins um tæpra 4 ára skeið, er ég var starfsmaður Hagstofunnar, af honum náin persónuleg kynni. Þorsteinn var fyrsti forstöðumaður Hagstofu Islands frá því að henni var komið á fót 1914 og þar til hann lét af störfum fyrir alurs sakir árið 1950. I hans hlut kom því hið erfiða starf brautryðjandans hvað snert- ir skipulega söfnun hagskýrslna hér á landi. Auðvitað er ekki svo að skilja, að ekki hafi verið safnað hagskýrslum hér á landi fyrr en Hagstofunni var komið á fót. Um einstaka þætti hagmála, svo sem magn og verð útfluttrar og inn- fluttrar vöru hafði verið safnað skýrslum mestalla 19. öld og jafn- vel aftur á þá 18. auk þess sem mannfjöldaskýrslur ná allt aftur til 1703. En kerfisbundin söfnun slíkra upplýsinga undir sameigin- legri stjórn kemur fyrst til sög- unnar með Hagstofunni. Því verki að gera slíka upplýsingasöfnun og úrvinnslu hennar fullkomna verður aldrei lokið. En mikilvægi þess brautryðjandastarfs, sem unnið var undir forystu Þorsteins með þeirri ófullkomnu tækni, sem þá var völ á, og erfiðri aðstöðu m.a. vegna skilningsleysis þeirra, sem upplýsingunum þurfti að safna hjá verður varla ofmetið. Samviskusemi Þorsteins sem embættismanns var sérstök og væru vandamál opinberrar stjórn- sýslu minni en þau eru og hafa verið, ef íslenska ríkið ætti mörg- um slíkum á að skipta. Eg komst þannig að orði um þessa hlið starfa Þorsteins í grein, sem ég skrifaði hér í blaðið á sjötugs- afmæli hans 1950 og leyfi mér að endurtaka það hér: „Um störf Þorsteins sem embættismanns mun ég ekki fjöl- yrða hér, því að til þess er nákvæmni hans, samviskusemi og vinnuharka gagnvart sjálfum sér alltof kunn. Enda þótt íslenska ríkið hafi og hafi haft í þjónustu sinni margt dugandi og ósérhlíf- inna embættismanna, mun það þó fátítt að þeir fórni stofnun sinni 2—3 stunda vinnu á dag, fram yfir lögboðinn vinnutíma, en þeir, sem undir stjórn Þorsteins hafa unnið, vita, að svo hefur hann að jafnaði gert. Þeir eru nú orðnir margir sem unnið hafa undir stjórn Þorsteins þau 37 ár, sem hann hefur veitt Hagstofunni forstöðu, og er sá er þetta ritar einn í þeirra hópi. Veit ég engan í þeim hópi, er eigi myndi líklegur til þess að taka undir það með mér, að engan húsbónda myndu þeir sér fremur kjósa, en eigi get ég þó í því sambandi fram hjá þeirri hugsun komist, að tæp- lega væru vinsældir hans hjá starfsfólki sínu svo almennar, sem raun er á, ef hann hefði að jafnaði gert til þess sömu kröfur um vinnu og afköst, sem hann hefur til sjálfs sín gert“. Annars verður embættis- og fræðistörfum Þorsteins gerð nánari skil í annarri minningar- .grein hér í blaðinu, og verða þau því ekki frekar rædd. Á hagstofunni undir stjórn Þorsteins og ekki síður frá sam- starfi við hann sem prófdómara.í hagfræði við Háskólann en það var hann um alllangt skeið, þá eru það þó ekki kynni mín af Þorsteini sem embættismanni og vísinda- manni, sem mér eru efst í huga nú, þegar hann er allur, heldur kynni mín af manninum. Ég átti þess stundum kost að loknum vinnu- tíma að ræða við hann um annað en viðfangsefni dagsins, auk þess sem ég stöku sinnum naut þeirrar ánægju að vera gestur á hinu fagra heimili hans og hinnar mikilhæfu konu hans frú Guðrún- ar Geirsdóttur, f. Zoega. Ahugamál hans voru fjölþætt, en efst á baugi hygg ég að hafi þó þar verið þjóðfélagsmálin í fullu sam- ræmi við menntun hans og lífs- starf. Hann taldi að vísu ekki virka stjórnmálaþátttöku sam- rýmast starfi sínu, en mjög fylgd- ist hann þó með þeim málum og hafði sínar ákveðnu skoðanir á félagsmálum, sem í öllu mótuðust af viðhorfum hins víðsýna og samgjarna mannvinar. I eitt skipti vék Þorsteinn þó frá þeirri reglu, er hann að því ég best veit annars ávalt fylgdi, að taka ekki virkan þátt í stjórnmálum. En það mál var einmitt á döfinni á þeim árum, er ég var starfsmaður á Hagstof- unni. Ræddum við það mái oft og féllu skoðanir okkar þar mjög saman. Honum var það hjartfólgið mál, að íslendingar kæmu drengi- lega og virðulega fram við sam- bandsþjóð sína og konung, þegar fullvendinu yrði endanlega komið á. En honum fannst því mjög áfátt, að það sjónarmið væri lagt til grundvallar þeim málatilbún- ingi, sem mikill meiri hluti alþingismanna og annarra virkra stjórnmálamanna hafði komið sér saman um. Gerðist hans því virkur í baráttunni fyrir því að fá ein- hverju um þokað til skaplegri málsmeðferðar. Margt góðra drengja og þjóðkunnra manna úr öllum stjórnmálaflokkum urðu til þess að leggja þeim málstað lið. Ekki var sú barátta með öllu árangurslaus, því að m.a. tókst fyrir hana að koma fyrir kattarnef henni svo kölluðu vanefnda- kenningu sem rökstuðningi fyrir sambandsslitum fyrir þann tíma, er sambandslögin kváðu á um, en eins og á stóð á styrjaldarárunum samrýmdist sú kenning tæpast reglum drengskapar í samskiptum þjóða á milli. En þrátt fyrir takmarkaðan árangur sem þannig náðist, verður ekki annað sagt, en að baráttu þessari lyki með ósigri, enda skorti hreyfinguna málgagn og aðstöðu til þess að kynna almenningi málstaðinn. Því get ég hér þessa máls, sem að öðru leyti tilheyrir sögunni, að mér finnst það lýsa Þorsteini vel, að í það eina skipti, sem hann gerðist virkur þátttak- andi í stjórnmálum, þá var það í þágu málstaðar, sem ekki var líklegur til öflunar fylgis, heldur þjónaði þeim tilgangi einum, að virtar væru reglur drengskapar í viðskiptum við þjóð, sem var þess ómegnug við þáverandi aðstæður að bera hönd fyrir höfuð sér. Ég tel, að það hafi verið mikil gæfa fyrir mig að hafa notið handleiðslu þessa góðgjarna og vitra manns fyrstu starfsár mín eftir að háskólanámi lauk. Blessuð sé minning hans. Ólafur Björnsson. I handbók alþjóðaþings esperantista sem haldið var í Reykjavík sumarið 1977 er dr. Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrum hagstofustjóri, kallaður „pioniro de Esperanto en Islando" (þ.e. frumherji eða brautryðjandi esperantós á Islandi). Er þetta sannmæli. Það er fyrst að nefna að Þorsteinn tók saman kennslubók í esperantó með orðasafni, og kom hún út árið 1909. Hann hafði kynnst esperantó á námsárum sínum í Lærða skólanum og átt bréfaskipti við höfund málsins, dr. L.L. Zamenhof í Póllandi, um orð á esperanto. Hann hafði skrifað grein um hlutverk esperantós í Þjóðólf 1903, og 1907 hafði hann sagt þar frá 3. alþjóðaþingi esperantista í Cambridge í Eng- landi, en á því þingi var Þorsteinn og komst þar í kynni við dr. Zamenhof. Um kennslubók Þorsteins í esperantó er það að segja, að af henni lærðu málið ýmsir þeirra manna sem síðar gerðust áhuga- menn í esperantó-hreyfingunni og er vafa undirorpið að þeir hefðu lært það ella. Kennslubókin var endurprentuð 1927. Það var enn að Þorsteinn hag- stofustjóri tók saman íslenska útgáfu af svonefndum esperantó-lykli með orðasafni er kom út 1933. Þessi orðasöfn Þor- steins voru lögð til grundvallar þegar esperantó-orðabók með þýð- ingum á íslensku var samin síðar. Ritgerð eftir Þorstein Þorsteins- son um dr. Zamenhof og esperantó birtist í Almanaki Þjóðvinafélags- ins fyrir árið 1919 og vakti athygli manna um allt land á því hve mikilvægu hlutverki alþjóðamál eins og esperantó gæti gegnt. Fleiri greinir og ritgerðir skrifaði Þorsteinn í blöð og tímarit um þetta efni þótt hér verði ekki nefndar, skýrar og rökfastar eins og honum var lagið, og tók þá röggsamlega svari esperantó-hreyfingarinnar þegar svo bar undir. Þegar esperantófélag var stofn- að í Reykjavík 1927 varð Þorsteinn formaður þess og gegndi því starfi til 1931, en þá var Esperantista- sambandið (eldra) stofnað og varð Þorsteinn formaður þess. Var hér um merk spor að ræða í sögu esperantó-hreyfingarinnar á Is- landi og henni mikið happ að eiga á að skipa til forustu svo hæfum manni sem Þorsteinn var og sem naut jafnmikils trausts og virðing- ar. Það er því eðlilegt og raunar sjálfsagt að Islenska esperant- ista-sambandið síðara vottaði hon- um þökk sína og virðingu með því að gera hann að heiðursfélaga. Þorsteinn Þorsteinsson hafði mjög gott vald á esperantó hvort sem var í ræðu eða riti. Þegar hann var kominn hátt á níræðis- aldur tók hann sig til og þýddi á esperantó sögu Sigurðar Nordals, „Ferðin sem aldrei var farin", og kom hún út 1 tímaritinu „Norda prismo" undir nafninu „La vojago kiu neniam efektivigis". Þýðingin þykir vel af hendi leyst. Og það var Þorsteini líkt að velja sér einmitt þessa sögu að viðfangsefni. Eitt sjálfsagt hlutverk alþjóða- máls eins og esperantó á að vera er að skila til manna af öðrum þjóðum á'gripi af fræðilegum rit- gerðum eða skýrslum sem á þjóð- tungu er ritaðar. í hagskýrslu um manntalið 1703, sem Þorsteinn bjó til prentunar og Hagstofa Islands gaf út 1960, er slíkt ágrip af ritgerð hans um manntalið á esperantó, auk þess sem það er á ensku. Þess var áður getið að Þorsteinn Þorsteinsson hefði verið á 3. alþjóðaþingi esperantista í Cam- bridge 1907. Sjötíu árum síðar veittist honum sú ánægja að sitja setningarfund á fjölmennu alþjóðaþingi esperantista hér í Reykjavík, hinu 62. í röðinni. Hann hélt til æviloka órofa tryggð við hugsjón alþjóðamálsins sem hann hefði tekið ungur og ætíð unnið að með festu og aðgætni. Kominn nokkuð yfir áttrætt gekkst hann fyrir undirskrifta- söfnun esperantó til framdráttar hjá UNESCO og lét þá orð falla á þá leið að hann vildi gjarnan verja kröftum sínum meðan hann gæti eitthvað í þágu þessa málefnis. Ekki orkar tvímælis að dr. Þor- steinn Þorsteinsson, fyrrum hag- stofustjóri, var farsæll og áhrifa- drjúgur brautryðjandi í kynningu og útbreiðslu esperantós hér á landi. En samstarfsmenn hans minnast ekki síður hins hógláta, starfshæfa manns, sem ætíð mátti treysta og ekki vildi vamm sitt vita í neinu. ólafur Þ. Kristjánsson. Með Þorsteini Þorsteinssyni, fyrrv. hagstofustjóra, sem nú er fallinn frá í hárri elli, kveðjum við einn síðasta fulltrúa þeirrar kyn- slóðar, er leiddi íslendinga á fyrra helmingi þessarar aldar frá ör- birgð til bjargálna og byggðu innlenda stjórnsýslu frá grunni, en fáir samtímamenn hans lifðu lengri og farsælli starfsdag en hann. Er á engan hallað þótt sagt sé, að hann hafi verið einstakur fulltrúi alls hins bezta í íslenzkri mennta- og embættisstétt síns tíma. Þorsteinn var ekki aðeins óvenjulega vel gefinn og vel að sér í fræðigrein sinni, heldur var elja hans og starfsþrek með fádæmum, eins og rit Hagstofunnar á em- bættistíma hans bera gleggst vitni. Mannkostir Þorsteins, skarpur skilningur, rólegt og hlut- drægnislaust mat í hverju máli, óbrigðul vandvirkni og samvizku- semi, unnu honum óskorað traust allra, sem hann þekktu, en þeirri stofnun, sem hann helgaði starfs- krafta sína, Hagstofu Islands, sérstakan og öfundsverðan sess í stjórnkerfi íslands. Áhugamál Þorsteins Þorsteins- sonar lágu þó langt út yfir starf hans á sviði hagsýslugerðar. Þor- steinn var bróðir hins mikla fræði- manns Hannesar Þorsteinssonar, og átti með honum sameiginlegan áhuga á íslenzkri sögu, sem m.a. lýsti sér í hinni merku útgáfu hans á Manntalinu frá 1703. Alla tíð, á meðan honum entist heilsa, tók Þorsteinn mjög virkan þátt í starfsemi Vísindafélags Islend- inga, og kom þar glöggt fram víðsýni hans og þekking á fjöl- mörgum sviðum. Énn er þó ótalið það mál, sem var Þorsteini e.t.v. öllum öðrum hjartfólgnara, en það var útbreiðsla hins nýja alþjóða- máls esperantó, sem miklar vonir voru við bundnar á fyrra helmingi aldarinnar. Lagði hannn á sig mikla vinnu í þágu þeirrar hug- sjónar um frið og bætt samskipti þjóðanna, sem vakti fyrir forvígis- mönnum esperantista. Lýsti öll hin mikla vinna hans á þessum vettvangi vel þeirri'manngæku og óeigingirni, sem honum var í blóð borin. Ég átti því láni að fagna, þótt aldursmunur væri mikill, að kynn- ast Þorsteini Þorsteinssyni allvel. Var hann bæði góðkunningi föður míns, en ég bekkjarbróðir yngsta sonar hans, svo að ég kom oft á heimili hans þegar í æsku. Verður mér alltaf minnistæð hin látlausa og hlýlega framkoma hans, lifandi hugsun og víðtæk þekking á hverju, sem um var rætt, en á stærilæti eða dómhörku örlaði aldrei. Hann var mér því alla tíð sönn ímynd hins vitra, góðviljaða og hófsama manns. Yfir minningu hans verður því ætíð birta og heiðríkja. Jóhannes Nordal. Nú er lokið sambýli okkar við Þorstein. I fimm ár bjó hann með okkur, sér miklu yngra fólki í húsi sínu við Laufásveginn, rétt eins og kynslóðabilið hafi aldrei verið fundið upp. Einstakir mannkostir hans gerðú þetta sambýli bæði ljúft og lærdómsríkt. Víðsýni hans og umburðarlyndi var meira en ég hef kynnst hjá nokkrum öðrum manni, þótt á besta aldri væri. Aldrei brá Þorsteinn skapi, kvart- aði eða fann að nokkru, þótt lifnaðarhættir og tíðarandi væru um flest öðruvísi en hann áttiað venjast. Hógværð og lítillæti geta verið af mörgu tagi og ekki alltaf sálar- bætandi fyrir þann sem það sýnir. í dagfari Þorsteins voru þessir þættir eins ekta og hugsast getur, sprottnir af hreint ótrúlegu innra jafnvægi. Hann var sjálfum sér nógur og samkvæmur í öllu, og þurfti því ekki að leita sér stað- festingar í umhverfinu, hvorki þessa heims né annars. Það er að vonum erfitt að greina á milli meðfæddra og áunninna eiginleika fólks sem maður kynn- ist fyrst á tíræðisaldri. Mér sýnist samt að Þorsteinn hafi verið gott dæmi um hvernig menntun getur bætt manninn, ef tekið er við henni með réttu hugarfari. Bóka- safn hans er nánast snið af heims- menningunni allri; fagurbók- menntir, þjóðleg fræði, málvísindi, hagfræði, félagsfræði, sálarfræði, stjórnmál og heimspeki meðal annars. Þessar bækur hafa ekki rykfallið. I fjölmörgum þeirra eru blaðaúrklippur og athugasemdir tengdar innihaldinu, sem sýna að Þorsteinn var sívakandi í þekking- aröflun sinni. Ekkert var fjær Þorsteini en að troða skoðunum sínum og venjum upp á aðra. Ekki síst þess vegna hafði hann mikil áhrif á okkur sem kynntumst honum, og við munum ávallt vera þakklát fyrir að hfa fengið tækifæri til þess. V.Þ.K. t Móöir okkar, KATRÍN VIGFUSDÓTTIR lézt f Landakotsspítala aöfaranótt 1. marz. Kristin B. AndtrMn, Viooó Björgólfsaon. t Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúö og hlýhug við fráfall og minningarathöfn föður okkar og sonar, SIGURDAR BRYNJÓLFSSONAR Hringbraut 11, Hafnarfiröi. Ingi Torfi Siguröaaon, Brynjótfur Sigurðason, Valgerður Þórarinadóttir. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda vináttu og samúö viö andlát og jarðarför KARLS EMILS GUNNARSSONAR Dvergasteini, Húsavík. Dagrún Jónsdóttir, börn, fengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför mannsins míns, fööur okkar og sonar, HALLGEIRS EGGERTSSONAR, Nesvegi 67 Einnig þökkum viö af alhug læknum og hjúkrunarfólki Borgarspítalans fyrir frábæra umönnun. Hildur Kjartansdóttir og böm. Rósbjörg Sigurösrdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.