Morgunblaðið - 02.03.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979
23
Heimdallur, félag ungra sjálf-
stæðismanna, og Hvöt, félag
sjálfstæðiskvenna í Reykjavík,
gengust nýlega fyrir fundi um
efnið: „Friðhelgi einkalífs með
sérstöku tilliti til foreldra og
barna.“ Frummælandi á fundin-
um var Ragnhildur Helgadóttir,
alþingismaður, en hún hefur
flutt frumvarp til breytinga á
grunnskólalögunum sem m.a. er
ætlað að tryggja nemendum
aukna friðhelgi einkalífs síns og
foreldrum aukin áhrif á skóla-
starfið. Einn hvatinn að þessu
frumvarpi var könnun sem var
gerð 1976 á persónulegum hög-
um nemenda í 8. bekk grunn-
skólans í Reykjavík. I máli
Kjartans Gunnarssonar lög-
fræðings sem var einn af þátt-
takendum í pallborðsumræðum á
fundinum kom m.a. fram eftir-
farandi:
Hugtakið friðhelgi einkalífs.
Erfitt getur verið að skilgreina
nákvæmlega hugtakið friðhelgi
einkalífs. Flestir eru þó sammála
um, að umhverfis einstaklinginn
eigi að vera nokkurs konar „friðað
svæði". Svæði þar sem einstakl-
ingurinn getur verið í friði fyrir
afskiptum annarra bæði annarra
einstaklinga og hins opinbera.
Þetta friðaða „svæði" nær til
nánustu einkamála manna, til
líkams- og sálarfriðar þeirra, til
þess að menn megi eiga leyndar-
mál og tryggir þeim vernd gegn
lognum sökum, áburði og frásögn-
um af einkamálefnum þeirra.
Þessi friðhelgi hefur lengi verið
talin sjálfsagður þáttur í mann-
réttindum meðal frjálsra þjóða og
er veitt margvísleg vernd, bæði í
stjórnarskrám og sérlögum t.d.
refsilögum.
Kriðhelgi-einkalífs verður rofin
með margvíslegum hætti. Oft
geta orðið árekstrar milli
friðhelgi einkalífs annars vegar
og prentfrelsis og þess sem kalla
mætti almennt frásagnarfrelsi
hins vegar. Slíkan ágreining er þó
oftast fremur létt að jafna. En því
getur verið öðru vísi farið með
önnur brot gegn friðhelgi einka-
FRIÐHELGI EINKALIFSINS
Kjartan
Gunnarsson:
misnota hana, aðeins er vakin
athygli á möguleikanum og
auðveldri framkvæmd, ef einhver
ætlaði sér að misnota upplýsing-
arnar, sem fengust með könnun-
inni.
Það er frumskylda allra, sem
framkvæma kannanir á persóuu-
legum högum og viðhorfum
manna að gæta þess vandlega að
svör sé alls ekki unnt að rekja til
svarandans. Þessa var ekki gætt
við þá könnun, sem hér er til
umfjöllunar. En önnur atriði
skipta einnig máli. Var nokkur og
er yfirleitt nokkur þörf fyrir
svona nákvæmar kannanir um
þessi málefni? Þjónar könnun af
þessu tagi nokkrum viðurkennd-
um vísindalegum markmiðum?
Og jafnvel þótt svo væri, er þá
ekki einstaklingurinn og friðhelgi
málefna hans mun meira virði
heldur en óafmarkaður og óskýr
vísindatilgangur. Þótt vísindin
„efli alla dáð“ þá eru þau alls ekki
Mannréttindi ofar
rannsóknarréttindum
lífsins. Brot, sem orðið hafa æ
algengari með framförum í tækni
og vísindum sem opnað hafa
stórkostlega möguleika til njósna
og eftirlits með einstaklingunum.
Nú orðið er einstaklingurinn
nánast hvergi óhultur, æviferill
hans er nákvæmlega skráður frá
upphafi til enda og ef vilji er fyrir
hendi er hæft að fylgjast
nákvæmlega með öllu atferli
manna og næstum því sem
hugsunum þeirra og tilfinningum.
Þessi staðreynd leiðir okkur til
könnunar þeirrar eða rannsóknar
á högum skólabarna, sem segja
má að hafi orðið kveikjan að
þessum fundi.
Hátternis- og viðhorfa-könnunin.
Það blandast engum hugur um
það, sem lesið hefur hinar 114
spurningar, sem í könnuninni eru
(og flestar eru í 5 og allt upp í 19
liðum), að nákvæm svör við
þessum spurningum „afhjúpa"
eða „afklæða" gjörsamlega þann
einstakling sem svarar þeim.
Könnunin er svo nákvæm að þar
er engu sleppt, sem skiptir máli
fyrir 13 ára ungling. Dr. Ragnar
Ingimarsson hefur rækilega sýnt
fram á, að vandalaust er að gera
nafnleynd könnunarinnar að engu
og fá nákvæmar upplýsingar um
hverjir þeir einstaklingar eru,
sem svöruðu spurningum í
könnuninni. Það er þó alls ekki
verið að halda því fram að þeir
íslenzku námsmenn, sem könnun-
ina gerðu, hafi ætlað sér að
æðri grundvallarmannréttindum
manna — síður en svo.
Þá má og benda á, að sam-
kvæmt erlendri löggjöf um tölvur
og vernd einstaklinga gagnvart
misnotkun talva (og raunar
samkvæmt ákvæðum í íslenzku
lagafrumvarpi um þau efni) er
almennt óheimilt að skrá og
geyma í tölvutæku formi lang-
mest af þeim atriðum, sem spurt
er um í þessari alræmdu könnun.
Og í öllum lögum um þessi mál-
efni er algerlega bannað að tölvu-
vinna upplýsingar af þessu tagi
fari fram erlendis. (I lögum
sumra landa er þó heimilt að gera
undanþágur frá þessu í sérstökum
afmörkuðum tilvikum en ríkar
ástæður þurfa að vera fyrir hendi
til þess að slík heimild sé veitt).
Með hliðsjón af þessum
atriðum tel ég að viðkomandi
yfirvöld, m.a. þeir, sem heimiluðu
þessa könnun, eigi að gera
gangskör að því að fá tafarlaust í
hendurnar öil frumgögn og úr-
vinnslugögn þessarar könnunar
og eyða þeim. Með því væru
tryggð réttindi þeirra sem spurðir
voru, en með könnuninni hefur F
freklega verið vegið* að grund- g
vallarmannréttindum þeirra.
Markmið skólans og gildi hans
Það er fleira en spurningalistar *
sem hér er á dagskrá. Við ætlum >
einnig að fjalla um markm? ,,
skólans og gildi hans. Það t
auðvitað ekki rétt að skólinn eigi |
að vera hlutlaus þótt honum be
að vera hlutlægur. Skólinn á <
hlýtur að meta hvað hann teh
eftirsóknarvert og hvað ekk
hvað hann telur rétt og rangi s
o.s.frv. Það er löggjafinn í landir.t
sem fyrst of fremst setur skólan- '
um markmið og gildi og í star
löggjafans endirspeglast no
og skoðanir þjóðarinnar. Þei
sem ekki vilja hlýta þessum gi<
um eiga í sjálfu sér ekki rin
sem uppalendur og ker
skólana. Það eru s.
réttindi foreldra og barn i
sé gengið gegn viðurk? di.
grundvelli skólastarfsins
á sér stað, er ekki rétt -
því með umburðarlynd
með markvissum endur!. g
breytingum, sem tryggi , i-
inn starfi í þeim anda ög-
gjafinn hefur ákveðið í -:mi
við þjóðarviljann. Þetta nerkir
auðvitað ekki að hin við ; senndu
uppeldisvöld foreldrn verði
afnumin. Það er réttur be.rra og
skylda að ala upp börn og sá
skyldubundni réttur ve; ,r ekki
af þeim tekinn, meðar. uppeldið
stefnir ekki barninu og velferð
þess í sannarlega hættu. Islenzki
skólinn hlýtur fyrst og fremst að
leita gilda sinna í mennréttindum
og lýðfrelsi borgaranna og í
siðgæðishugmyndum og náunga-
kærleika kristinnar trúar.
Mígreni
SAMTÖK mígrenisjúklinga
voru stofnuð 1978 og eru opin
öllum höfuðveikisjúklingum á
landinu og velunnurum þeirra.
Skrifstofa samtakanna er opin
einu sinni í viku, á miðvikudög-
um kl. 5—7, í húsakynnum
Félags heyrnarlausra að Skóla-
vörðustíg 21 (sími 13240). Er
þar m.a. hægt að fá fréttablað
samtakanna, en tvö komu út á
s.l. ári.
Samtökin hafa beðið blaðið
að birta eftirfarandi spjall eftir
Sverri Bergmann lækni, er þau
telja að eigi erindi til hinna
mörgu, sem þjást af mígreni:
Það er svolítið vandasamt að
gefa mönnum gagnleg heilræði
við höfuðverk í stuttu spjalli. Ég
verð því að snúa mér eingöngu
að tveim algengustu tegundum
höfuðverkar þ.e. s.n. spennuverk
eða tauga- og vöðvagigt annars
vegar og svo migraine, sem
heitir því fremur óskemmtilega
nafni höfuðkveisa á okkar
tungu. Þetta eru ekki aðeins
algengustu tegundir höfuðverkj-
ar heldur einnig þær sem ein-
hverjum heilræðum verður við
komið. Á hitt ber þó að líta að
vandamálið höfuðverkur er ekki
alveg svo ainfalt og því er
nauðsynlegt að gefa örstutta og
hvergi nærri tæmandi fræðslu
um höfuðverk en reyna þó að
koma til skila þeim upplýsing-
um, sem verða mættu gagnleg-
ar. Er þá fyrst nauðsynlegt að
átta sig á helstu orsökum höfuð-
verkjar og raunar enn áður en
að því kemur að glöggva sig á
því í hverju við finnum til í
höfðinu. Við finnum t.d. mjög
lítið til í heilanum sjálfum. Það
er slæmt að því leyti að við erum
okkur minna meðvitandi um
hina stöðugu starfsemi þessa
æðsta líffæris okkar. Hinsvegar
er þetta gott að því leyti til að
ekki myndum við hugsa meira ef
við fyndum verulega til í höfð-
inu við það. En af þessu leiðir
m.a. að heilaæxli valda lengst af
ekki miklum höfuðverk og það
er yfirleitt eitthvað annað en
hann, sem rekur sjúklingana til
læknis. Höfuðverkur í sambandi
við fyrirferðaaukningu i heila er
oftast mildur lengst af, bundinn
við ákveðinn tíma dagsins og
lætur undan venjulegum verkja-
lyfjum. Það leiðir einnig af eðli
slíkra sjúkdóma að hafi höfuð-
verkur verið til vansa mánuðum
saman jafnvel árum saman er
lítil ástæða til að ætla að slíkir
alvarlegir sjúkdómar liggi að
baki. Þeir ganga mun hraðar
fyrir sig en svo. Þetta vona ég
séu gagnlegar upplýsingar ef
haft er í huga hversu margir
þjást af höfuðverk og hversu
margir a.m.k. í upphafi láta sér
detta það versta í hug. Hins
vegar finnum við til í heila-
himnunum, en hafa verður það í
huga að þar eru yfirleitt á
ferðinni bráðir sjúkdómar, þar
sem heilahimnur ertast vegna
blóðs eða sýkla. Fái menn
skyndilegan mikinn höfuðverk
uppköst og hnakkastífleika og
verði sljóir eða rænulausir ber
þeim eða nærstöddum að kalla
strax á læknishjálp. Þetta vona
ég séu einnig gagnlegar upplýs-
ingar. Við finnum einnig til í
æðunum inni í og ekki síður
utan á höfðinu. En gagnstætt
því sem margir halda skeður
þetta þegar æðar eru ofþandar
en ekki þegar þær eru þröngar
og kalkaðar. Þetta vona ég að
fólki sé nytsamt að vita um.
Migraine er gott dæmi um höf-
uðverk vegna ofþandra æða.
Sjúkdómurinn stafar sennilega
af mjög tímabundinni efnarösk-
un í líkamanum og er orsökin
oftast óþekkt en verður stund-
um sett í samband við ákveðin
innri og ytri áhrif. Af efnarösk-
uninni leiðir í fyrstu skamm-
vinnan æðasamdrátt og koma af
því margvísleg einkenni svo sem
dofi, sjóntruflanir, svimi, mátt-
leysi, taltruflanir og jafnvel
yfirlið og má skýra þetta með
því að hinar þrengdu æðar flytji
ekki nægjanlegt blóð til ein-
stakra hluta heilans. En svo
þenjast æðarnar út og þar af
kemur höfuðverkurinn, oft í
hálfu höfðinu og uppköst og
ljósfælni fylgja. Þetta er sjúk-
dómur hjá ungu fólki, sjaldnast
eftir miðjan aldur, flestir eru
góðir í höfðinu milli hinna
einstöku migraine kasta og yfir-
leitt skiptast á tímabil, þar sem
köst koma oft og önnur er þau
koma sjaldan.
Þrennt þarf að ráðleggja
migrainesjúklingum; í fyrsta
lagi að hyggja að því er gæti
komið af stað köstum, s.s. birta,
matur, vín, lyf (pillan), þreyta,
svefnleysi, spenna og andleg
áreynsla, tíðir hjá konum
o.s.frv. Sumt af þessu má forð-
ast og draga þannig verulega úr
tíðni kastanna. I öðru lagi
reyna að átta sig vel á einkenn-
um er fara á undan höfuðverkn-
um og sem ég hef áður lýst. Hin
s.n. migrainelyf duga best ef þau
eru tekin á því stigi en öll
hindra þau ofþenslu æðanna. í
þriðja lagi ef þetta bregst er
lítið annað að gera en koma sér í
bólið, hafa kyrrt, myrkt og hafa
kalda bakstra með nokkrum
þrýstingi á höfuðið og reyna að
koma niður verkjatöflum og/eða
róandi töflu eða svefntöflum en
með hvíld verða köstin yfirleitt
styst. Migraine-lyf gagna lítt
þegar köst eru komin og tiltölu-
lega meinlaus fyrirbyggjandi lyf
eiga aðeins við að köst komi
mjög ört. Allt sem eykur þenslu
höfuðæða getur valdið höfuð-
verk sem þá líkist migraine.
Þetta verður fyrst og fremst
vegna minnkaðs súrefnis í blóð-
inu. Þetta gæti verið svo t.d.
vegna þess að í umhverfinu væri
þungt loft s.s. vegna lélegrar
loftræstingar eða efna, sem
menga andrúmsloftið. Reyking-
ar geta þannig t.d. skapað svona
höfuðverk ekki aðeins þeim, sem
reykja heldur einnig hinum, er
við reykinn búa. Höfuðverkur
vegna hækkaðs blóðþrýstings
stafar af æðaþani en höfuðverk-
ur er ekki góður mælikvarði á
hækkaðan blóðþrýsting. Vona
ég það sé nytsöm upplýsing sem
og mikilvægi heilbrigðs og
ómengaðs andrúmslofts innan
sem utan dyra.
Sá höfuðverkur sem er al-
gengari en allar aðrar tegundir
samanlagt oft nefndur spennu-
verkur, tauga- eða vöðvagigt.
Þetta eru misgóð réttnefni en
hann á orsök utan á höfði í
beinhimnu, vöðvum, vöðva-
festingum, taugum og æðum, er
þar liggja. I þessu öllu finnum
við til. Þessi verkur vill verða
þrálátur, stöðugur og á köflum
afleitur. Hann er um allt höfuð-
ið, oft verstur á einum stað,
leitar niður á hnakka, út í
herðar, fram í handlegg, niður
bak og fram í brjóstvegg. Þetta
skilur fólk vel en hins vegar
fylgir oft særindi í höfði eða það
þá dofnar, tómleiki í kollinum,
svimi, sjóntruflanir, slappleiki,
óeðlileg þreyta og pirringur.
Þessu gengur fólki oft illa að
koma heim og saman en þannig
er nú þetta og eru á því líffæra-
iegar og lífeðlisfræðilegar skýr-
ingar sem því miður er ekki tími
til að fara út í nánar hér.
Þessi verkur á sér fjölmargar
orsakir. Hann kemur af öllu því
er veldur almennum slappleika
s.s. eins og blóðleysi, einnig
vegna skemmdra hálsliða, lé-
legra tanna, slæmrar sjónar og
heyrnar og gigtar í andliti og
öxlum. Allt framkallar þetta
spennu og óeðlilegt átak á vöðva
höfuðs, hnakka og herða. Að
þessu verður að hyggja eftir því
sem skoðun _og önnur einkenni
gefa tilefni til.
Margt af þessu má leiðrétta
með lyfjum og annarri sér-
hæfðri meðferð og þar með losa
fólk við höfuðverkinn. En oft
finnst engin þessara orsaka og
er þá til að dreifa óhóflegu
líkamlegu og/eða andlegu álagi.
Hið líkamlega er auðvitað of
mikil vinna miðað við aðrar
aðstæður, en ekki síður óheppi-
leg vinnuaðstaða s.s. kuldi, ónóg
loftræsting, óheppileg birta og
stöðug óeðlileg vinnuaðstaða
sérlega við störf er leggja mikið
á herða- og hnakkavöðva. Eru
hér þau ráð ein að gefa að
hyggja að þessu öllu og leiðrétta
sem kostur er. Hið andlega álag
er auðvitað streitan þegar kraf-
ist er hraða og afkasta umfram
mannlega getu þótt oftar liggi
sjálfskaparvítin til grundvallar.
Fólk ætlar sér meira en það fær
risið undir í kappi um þau atriði
í lífinu, sem það heldur skipta
máli og bugast loks af líkamleg-
um einkennum, áhyggjum og
spennu. Hér er kapp best með
forsjá, einnig í prjónaskapnum,
og hér verða ráðin um það
hversu iifa skuli lífinu en til
þess eru alla daga margir kall-
aðir að gefa slík ráð og læt ég,
þau því liggja milli hluta. En
almenn ráð við þessum höfuð-
verk er að forðast kulda, læra og
iðka slökun og stunda heit böð.
Lyf milda en lækna ekki ein sér.
í stuttu máli: Höfuðverkur er
langoftast af meinlausri orsök
þótt bót geti verið torsótt. Sjálf-
sagt er að láta athuga um
orsakir síns höfuðverkjar og fer
eftir mörgu hve langt sú athug-
un þarf að ná. Niðurstaðan er sú
að langoftast þarf sjúklingurinn
sjálfur að taka umtalsverðan
þátt í því að losna undan sínum
höfuðverk eftir að orsök hans
liggur fyrir og skýringar og ráð
hafa verið gefin. Öll sérhæfð
meðferð er nánast að létta
honum þetta á stundum.