Morgunblaðið - 02.03.1979, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979
i
(
!
i
[
Togarakaup BÚR:
Mótmælum samningnum,—
eins og börn hafi gert hann
— segja borgarfulltrúar Sjáli'stæðisflokksins
Eins og kunnugt er hafa undanfarið orðið nokkuð snörp orðaskipti í borgarstjórn Reykjavíkur vegna togarakaupa BÚR.
Á fundi borgarstjórnar 15. febrúar kvaddi Ragnar Júlíusson (S) sér hljóðs vegna þessa máls. Hann sagði í upphafi, að 4.
október 1978 hefði útgerðarráð samþykkt að hefja samningaviðræður við ríkisstjórnina um kaup á öðrum þeirra tveggja
skuttogara af minni gerð, sem ákveðið hafði verið að láta smíða í Portúgal. Jafnframt samþykkti útgerðarráð að taka upp
á ný viðræður við Stálvík hf. Fyrir liggi verð og afhendingartími frá Stálvík hf. svo samanburður fáist við hugsanlegan
samning við Portúgal, áður en til endanlegrar ákvörðunar kemur. Á útgerðarráðsfundi 26. janúar hefði svo Björgvin
Guðmundsson lagt fram eftirfarandi tillögu: „Útgerðarráð samþykkir að kaupa tvo nýja skuttogara af minni gerð annan
frá Portúgal en hinn frá Stálvík. Jafnframt samþykkir útgerðarráð að einn af eldri skuttogurum BÚR skuli seldur er hinir
nýju togarar hafa verið afhentir.
Utgerðarráð óskar heimildar borgarráðs fyrir því, að ganga frá samningum um kaup á togara frá Portúgal. Jafnframt
samþykkir útgerðarráð að hefja samningaviðræður við Stálvík um smíði togara þar fyrir BÚR.“
Ragnar Júlíusson sagðist þá
hafa bókað. „Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Utgerðarráði
Reykjavíkurborgar munu greiða
atkvæði með fram kominni til-
lögu með því ófrávíkjanlega skil-
yrði, að jafnframt undirskrift um
kaup á skipi frá Portúgal verði
gengið til samninga um kaup á
skipi frá Stálvík hf. og þeim
samningum verði hraðað svo sem
unnt er, enda verði fjárhagsleg
fyrirgreiðsla vegna Stálvíkur-
skipsins í samræmi við yfirlýs-
ingu formanns útgerðarráðs hér á
fundinum. Verði frávik frá þessu
ber að endurskoða tillöguna í
heild."
Ragnar Júlíusson vitnaði síðan
í fundargerð útgerðarráðs frá 29.
jan. sl. Þá var formanni og fram-
kvæmdastjórum falið að ræða við
forsvarsmenn stjórnarráðsins um
hvernig að samningunum yrði
staðið og ennfremur að setja í
gang viðræður við umboðsmann
skipasmíðastöðvarinnar um véla-
gerð í skipinu og um aðrar breyt-
ingar að því tilskildu, að borgar-
ráð staðfesti samþykkt útgerðar-
ráðs. A fundi borgarstjórnar 1.
febrúar hefði hún síðan samþykkt
að festa kaup á tveimur togurum.
Það kvöld hefði staðið yfir
mikil hátíð hjá stjórnarráðsfólki
og stjórnarráðið ekki verið opnað
fyrr en eftir hádegi daginn eftir.
Strax við opnunina hefði svo
formaður útgerðarráðs Björgvin
Guðmundsson verið mættur til að
skrifa undir yfirlýsingu þar sem
reyndar fremst stæði, að væri
„samkomulag".
í þessu samkomulagi segi m.a.,
að „með yfirlýsingu þessari lýsi
aðilar því yfir, að BÚR muni
ganga inn í samninginn og yfir-
taka í einu og öllu réttindi og
skyldur þær, sem þar væri um
samið. Sé samningurinn og fram-
Ragnar
kvæmd hans ríkissjóði óviðkom-
andi frá undirskrift samnings-
ins.“ Varðandi þetta atriði kvaðst
Ragnar vilja vekja athygli á, að
þegar BÚR hefði keypt alla
Spánartogarana hefði staðið í
annarri grein kaupsamningsins:
„Seljandi (ríkið) ábyrgist gagn-
vart kaupanda að skipasmíða-
stöðin Astilleros standi við samn-
inginn um smíði skipsins." Lýsti
Ragnar furðu sinni á því ósam-
ræmi sem væri í síðustu samning-
um og hinum fyrri. Þá væri og
ljóst, að líklegast væri, að yfirlýs-
ingin hefði verið tilbúin áður en
borgarstjórnarfundurinn 1.
febrúar hefði farið fram og í raun
verið samþykkt að kaupa togar-
ana, þó með skilyrðum.
Þann 8. febrúar hefði umrædd
yfirlýsing verið borin undir at-
kvæði í útgerðarráði og verið
samþykkt af meirihlutanum gegn
þrem atkvæðum sjálfstæðis-
manna, sem óskað hefðu bókað:
„1. Samkvæmt upplýsingum
formanns útgerðarráðs í út-
gerðarráði, borgarráði og borgar-
stjórn varð að hraða samnings-
gerð vegna vals á vél og búnaði
fyrir 1. febrúar, ella yrði það á
valdi umboðsmanns en ekki út-
gerðarráðs að ákveða véla- og
tækjabúnað. Fyrir lá samkvæmt
upplýsingum umboðsmanns, að
vélaframleiðandi var gjaldþrota
og velja þyrfti nýja gerð aðal-
vélar.
2. Samningurinn er undirritað-
ur án fyrirvara um samþykki
útgerðarráðs.
3. í samningnum er ríkissjóði
sleppt undan allri ábyrgð, enn-
fremur aþri íhlutun um breyting-
ar á honum svo sem um hafði
verið rætt.
4. Skip skal selt ella útborgun
greidd áður en skipið afhendist.
Þetta er ekki í samræmi við
samþykkt útgerðarráðs frá 29.
jan. sl.
5. Af þriggja mánaða láni ríkis-
sjóðs, að upphæð kr. 48 milljónir
skulu greiðast yfirdráttarvextir í
sex mánuði þ.e. 1. nóvember 1978
— 1. maí n.k.
6. Engin yfirlýsing liggur fyrir
um samning við Stálvík hf. sbr.
bókanir á fundi útgerðarráðs 26.
janúar sl. og á fundi borgar-
stjórnar 1. feþrúar sl.
• •
Markús Orn Antonsson:
Niðurskurður vinstri manna miskunn-
arlausastur á sviði félagsmála
MIKLAR umræður urðu um fé-
lagsmál við afgreiðslu fjárhagsá-
ætlunar Reykjavíkurborgar.
Birgir ísleifur Gunnarsson sagði,
að félagsmálin yrðu hvað harðast
úti hjá borgarstjórnarmeirihluta
vinstri manna. Fögru orðin fyrir
kosningarnar væru nú orðin að
endurminningu um fóik, sem öllu
ætlaði að breyta og ætlaði allt að
bæta, en stendur síðan ekki við
neitt vegna innbyrðis sundurlynd-
is og getuleysis.
Birgir ísieifur sagði, að nefna
mætti meðferðarheimilið við Kleif-
arveg. Það væri heimili fyrir börn
sem ættu við sérstök vandamál að
stríða. Húsið hefði verið gefið
borginni í þessu skyni. Nú hefðu
vinstri menn flutt breytingatillögu
við fjárhagsáætlun sem fæli í sér
að leggja heimilið niður, en á
þessum fundi borgarstjórnar hefði
sami meirihluti flutt tillögu um, að
sú tillaga nái ekki fram að ganga
heldur sé gert ráð fyrir áframhald-
andi rekstri. Þarna hefði ekki verið
talað við starfsmenn áður en fyrri
tillagan var fram sett. Forstöðu-
maður og starfsmenn hafi lesið um
þetta í blöðunum og harðlega mót-
mælt. í Fræðsluráði, sem þetta
heimili heyri undir hefðu fulltrúar
allra flokka mótmælt. Þá væri hér
tillaga um að leggja útideild niður.
Þetta væri deild stofnsett fyrir
frumkvæði sjálfstæðismanna til að
leysa félagsleg vandamál unglinga.
Þessu hefðu bæði æskulýðs- og
félagsmálaráð mótmælt. Starfsfólk
hefði mótmælt. Félag ungra fram-
sóknarmanna hefði mótmælt. Sig-
urjón Pétursson einn af oddvitum
meirihlutans hefði einnig mótmælt,
en á fremur einkennilegan hátt
með svo felldri bókun í borgarráði
9. febrúar. „Ég tel, að sú ákvörðun
að leggja útideild unglinga niður sé
varhugaverð. Unglingavandamál
hafa farið vaxandi í Reykjavík og
útideildin hefur verið ein virkasta
vörnin gegn þeim. Ég tel því, að
þegar deildin hefur verið lögð niður
Birgir ísl. Gunnarsson
þá verði borgin að leita annarra
ráða til að sinna vandamálum
þeirra unglinga sem deildin hefur
annast. Þrátt fyrir þessa skoðun
mun ég greiða atkvæði með þeim
breytingatillögum á fjárhagsáætl-
un, sem hér hafa verið lagðar
fram.“
Um mæðraheimilið við Sólvalla-
götu væri að segja, að þar ætlaði
meirihlutinn að koma á dagvistun
ungbarna. Eindregin mótmæli
hefðu borist því þörfin fyrir
mæðraheimilið væri viss. Ekkert
samráð hefði verið haft við hina
Markús Örn Antonsson
ýmsu aðila. Meirihlutinn hefði ekki
einu sinni haft samráð við sjálfán
sig.
„F élagshygg jumennirnir“
Markús Örn Antonsson (S)
sagði, að það vekti sérstaka athygli
hve þessir „félagshyggjumenn" í
borgarstjórnarmeirihluta Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags og Fram-
sóknarflokks beittu miskunnar-
lausum niðurskurði á sviðum fé-
lagsmála. Þetta hefði verið þeirra
fyrsta verk. Sigurjón Pétursson og
félagar hans hefðu á liðnum árum
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
gagnrýnt sjálfstæðismenn sérstak-
lega fyrir að of mikið fé á sviði
félagsmála færi í beina fjárhagsað-
stoð fyrir skjólstæðinga stofnunar-
innar. En nú þegar Sigurjón og
félagar hans væru komnir í valda-
stóla meirihlutans þá byggðist
niðurskurður þeirra fyrst og fremst
á fyrirbyggjandi meðferðarstarfi
sem þýddi auðvitað, að viss hætta
væri á, að seinna þyrfti að beita
beinni fjárhagsaðstoð. Markús Örn
sagðist lýsa furðu sinni á því
hvernig breytingar á félagsmálum
hefðu frétzt. Margt hefði fyrst
komið í blöðum. Hann sagði, að
Guðrún Helgadóttir
FRÁ BORGARSTJÓRN — FRÁ BORGARSTJÓRN — FRÁ BORGARSTJÓRN — FRÁ BORGARSTJÓRN — FRÁ BORGARSTJÓRN