Morgunblaðið - 02.03.1979, Síða 31

Morgunblaðið - 02.03.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 31 Fatt gladdi augaó er ÍR sigraói HANN var ekki vel leikinn né skemmtilegur á að horfa leikur ÍR og ÍS í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í íþróttahúsi Kennaraháskólans í gærkvöldi. Leikurinn hafði sama og enga þýðingu fyrir liðin og bar hann þess greinilega merki. Það voru aðeins fyrstu mínútur leiksins, sem voru vel leiknar af hálfu ÍR-inga enda gerðu þeir út um leikinn á þessum mínútum. Stúd- entar tóku reyndar smá kipp undir lokin og tókst þá að minnka muninn niður í 3 stig, en sigur ÍR-inga var þó aldrei í hættu. Lokatölur urðu 76:72 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 44:29, ÍR í vil. Stúdentar hófu leikinn á því að komast í 4:0, en þá gerðu ÍR-ingar sér lítið fyrir og skoruðu 15 næstu stig og léku á þessum kafla virki- lega vel. Þeir héldu síðan áfram að auka forskotið sem varð mest 21 stig, 42:21. í leikhléi var hann hins vegar 15 stig eins og áður sagði, 44:29. Síðari hálfleikur var afspyrnulé- legur af beggja hálfu. Stúdentar voru þó öllu skárri og minnkuðu muninn hægt og sígandi. Þegar um 3 mínútur voru til leiksloka var staðan 69:66 ÍR í vil og hljóp þá nokkur spenna í leikinn, en Kol- beinn Kristinsson skoraði þá góða körfu og fékk að auki 1 vítaskot, sem hann hitti úr og má segja að þá hafi úrslitin verið ráðin. IR-ingar notuðu síðustu mínúturn- ar vel og héldu knettinum og sigruðu í leiknum 76:72. Hjá ÍR lék Paul Stewart mjög vel í fyrri hálfleik, en sást varla í þeim síðari. Kolbeinn Kristinsson var góður og bræðurnir átti þokka- legan leik, Kristinn í þeim fyrri og Jón í þeim síðari. ÍS-liðið var jafnt að þessu sinni. Trent Smock skoraði mest, en lék alls ekki vel, gerði sig sekan um allt of mörg mistök. Stigin fyrir ÍR: Paul Stewart 28 (22 í fyrri hálfleik), Kolbeinn 16, Jón Jör. 14, Kristinn 10, Sigmar Karlsson og Stefán Kristjánsson 4 hvor. Stigin fyrir ÍS: Trent Smock 23, Jón Héðinsson 13, Bjarni G. Sveinsson 11, Steinn Sveinsson 10, Gísli Gíslason 9, Albert Guðm., Ingi Stefánsson og Jón Oddsson 2 hver. Góðir dómarar voru Kristbjörn Albertsson og Jón Otti Ólafsson. - ÁG • Þetta er unglingalandslið íslands í badminton. Þetta unga fólk á erfitt verkefni fyrir höndum. Talið frá vinstri: Garðar Alfonsson fararstjóri, Kristín Magnúsdóttir, Broddi Kristjánsson, Guðmundur Adolfsson (öll TBR), Helgi Magnússon ÍA og Sif Friðleifsdóttir KR. Ljósm Mbl: Kristján Einarsson. Fimm unglingar á NM i badminton Islandsmótid í innanhússknattspyrnu hefst í kvöld ÍSLANDSMÓTIÐ í innanhússknattspyrnu hefst í Laugardalshöllinni í kvöld kl. 20.00. Mótinu lýkur svo ekki fyrr en á sunnudagskvöld. Mótið hefst kl. 09.00 bæði á laugardag og sunnudag. Alls taka 40 karlalið þátt í mótinu og leika 16 115 í A-riðli, 16 lið í B-riðli og 8 lið í C-riðli. í flokki kvenna verða 5 lið. Það var Valur sem vann mótið í flokki karla á síðasta móti, en FH í kvennaflokki. Nú má búast við hörkukeppni í öllum leikjum. Framkvæmd mótsins annast mótanefnd K.S.Í. FÖSTUDAGINN 2. mars halda 5 fslenskir keppendur í badminton til Svíþjóðar til þátttöku í N.M.-unglinga, sem fer fram í Malmö dagana 3. og 4. mars. Hafa eftirtaldir keppendur verið valdir til ferðarinnar. Kristín Magnúsdóttir TBR Sif Friðleifsdóttir KR Broddi Kristjánsson TBR Helgi Magnússon ÍA Guðmundur Adolfsson TBR Fararstjóri verður Garðar Alfonsson Á þessu móti verða þátttakend- ur frá öllum Norðurlöndunum, alls 75 talsins, þar af senda Svíar og Danir 28 keppendur hvor þjóð, enda eru þetta þær þjóðir, sem vafalaust keppa um flesta meist- aratitlana á þessu móti. Um styrk- leika þeirra keppenda sem íslend- ingarnir mæta í sínum fyrstu leikjum er erfitt að dæma, en í öllum leikjum nema tveimur lenda þeir á móti Svíum eða Dönum. Annar þessara tveggja leikja er í einliðaleik kvenna, þar sem Kristín Magnúsdóttir keppir við finnska stúlku og í hinum sem er tvenndarleikur eru Finnar líka annars vegar, en gegn þeim lenda Guðmundur Adólfsson og Sif Friðleifsdóttir. Þetta gætu hvoru tveggja orðið skemmtilegir og tvísýnir leikir og óvíst um úrslit. Um aðra leiki er ekki gott að spá, þar sem Svíar og Danir eru annars vegar. Þegar litið er á árangur íslensku keppendanna í Síðasta N.M.-ungl- inga, sem var mjög viðunandi á okkar mælikvarða og árangur í öðrum mótum sem við höfum tekið þátt í síðan er hægt að gera sér vonir um góðan árangur í þessu móti. Fyrsti k vennalandsleikurinn i blaki á Akureyri í dag FYRRI lands'leikirnir í blaki af fjórum fara fram í íþróttaskemmunni á Akureyri í dag. Kvenna- landsleikurinn hefst kl. 18.00. Er það fyrsti lands- leikur kvenna í blaki. Verður fróðlegt að fylgjast með útkomunni hjá stúlkunum í þeim lands- leikjum sem framundan eru. Karlaliðin leika svo saman kl. 20.00 og verður það 9. landsleikur íslands og Færeyinga í blaki. Landsliðsþjálfarinn Halldór Jónsson hefur lýst því yfir að ekkert nema sigur komi til greina í öllum leikjunum. Síðari landsleikirnir fara svo fram í íþróttahúsi Hagaskólans á laugardag. Kvennaleikurinn hefst kl. 13.00 en karlaleikurinn kl. 16.00. IR-ingar í vandræðum í GÆRKVÖLDI léku ÍR-ingar og Afturelding í 16 liða úrslitum bikarkeppni IISÍ. Lentu ÍR-ingar í hinu mesta basli með heimamenn sem léku vel og börðust ákaft í leiknum. Staðan í hálfleik var 13—9 Afturelding í hag. Lengst af í síðari háifleik hafði Aftureldning forystu í leiknum, og var það ekki fyrr en á síðustu mínútu að ÍR tókst að jafna metin 19—19. Var leiknum nú framlengt í 2x5 mínútur, og tókst ÍR að knýja fram sigur í leiknum og lokatölur urðu 27—24. ÍR-ingar eru því komnir áfram í átta liða úrslit. EinkunnaglOfln Þessar stúlkur eru úr ÍS Þrótti og UBK, en stúlkurnar úr Völsung og ÍMA sem eru kjarninn í 1. landsleiknum á Akureyri 2.2. tókst því miður ekki að mynda. Attari röð trá vinstri: Guðrún Hreinsdóttir ÍS, Anna Guðný Eiríksdóttir ÍS, Margrét Ólafsdóttir ÍS, Birna Kristjánsdóttir UBK, Sólveig Þráinsdóttir Þrótti, Helga Garðarsdóttir Þrótti, Helga Jónsdóttir ÍS, Ingibjörg Helgadóttir Völsung. Fremri röð frá vinstri: Sigurborg Gunnarsdóttir UBK, Þorbjörg Rögn valdsdóttir UBK, Biörg Björnsdóttir Þrótti, Málfríður Pálsdóttir ÍS. Þóra Andrésdóttir ÍS. Svanhvít Helgadóttir Þrótti, Sigurhanna Sigfúsdóttir Þrótti. ÍS: Albert Guðmundsson 2, Bjarni G. Sveinsson 2, Gísli Gíslason 2, Ingi Stefánsson 1, Jón Héðinsson 3, Jón Oddsson 1, Steinn Sveinsson 2. ÍR: Jón Jörundsson 3, Kristinn Jörundsson 3, Kolbeinn Kristinsson 3, Kristján Sigurðsson 1, Sigmar Karlsson 2, Stefán Kristjánsson 2. ÞÓR: Jón Indriöason 2, Eiríkur Sigurösson 2, Hjörleifur Einarsson 1, Sigurgeir Sverrisson 1, Þröstur Guöjónsson 1, Ómar Guöjónsson 1, Birgir Rafnsson 1. VALUR: Kristján Ágústsson 3, Ríkharður Hrafnkelsson 3, Þórir Magnússon 2, Hafsteinn Hafsteinsson 2, Torfi Magnússon 1, Lárus Hólm 1, Gústaf Gústafsson 1, Sigurður Hjörleifsson 1. Þór: Jón Indriðason 2, Eiríkur Sigurðsson 2, Karl Ólafsson 2, Hjörtur Einarsson 1, Birgir Rafnsson 1, Sigurgeir Sveinsson 1, Ómar Gunnarsson 1, Alfreð Tuliníus 2. UMFN: Gunnar Þorvarðarson 3, Geir Þorsteinsson 3, Stefán Bjarkarsson 2, Guðjón Sigurösson 2, Guðsteinn Ingimarsson 2, Árni Lárusson 1, Júlíus Valgeirsson 1, Brynjar Sigmundsson 1 og Jónas Jóhannesson 1.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.