Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 1
99. tbl. 66. árg. Ofstækisöfl drápu vörð í Rómaborg Róm. 3. maí. Reuter. AP. IIRYÐJUVERKAMENN réð- ust í da« á aðalstöðvar kristi- logra demókrata á Ítalíu moð spronjfjum og byssuskothríð ok tókst að drepa lögreglu- mann og særa tvo aðra alvar- leíja áður en þeir komust undan. Grunur leikur á að ofbeldis- hópurinn. um það bil fimm- tán menn og konur, hafi verið úr röðum „Rauðu herdeild- anna“. en einhver árásar- manna hafði skrapað stjörnu- merki hreyfingarinnar á vegg byggingarinnar með eft- irfarandi orðum: „Við mun- um gera stéttastríð úr svika- kosningunum“. Sjónarvottar segja, að hryðjuverkamenn vopnaðir vélbyssum og hljóðdeyfðum skammbyssum hafi látið til skarar skríða um tíuleytið í morgun. Afvopnuðu þeir fyrst tvo lögreglumenn og hand- járnuðu utan byggingarinnar nærri ánni Tíber og héldu því næst upp á kosningaskrifstofu flokksins á annarri hæð. Þar hófu þeir skothríð, rændu og rupluðu og komu síðan fyrir fimm sprengjum sem gereyði- lögðu tvær hæðir hússins, sem er á sex hæðum. Sjónarvottar segja að árásarmenn hafi hrópað „þetta er öreigainnrás" er þeir ruddust inn. Þeir ráku starfsmenn flokksins út úr húsinu með bundnar hendur áður en sprengingarnar urðu. — Sjá mynd á bls. 14. Arðbær nafli New York. 3. maf. AP. Reuter. KONA nokkur, er kvartaði yfir að skurðlæknar hefðu fært nafla hennar um fimm sentimetra úr stað, hefur fengið um 280 milljón- ir islenzkra króna í skaðabætur. Konan fór í aðgerð til að fá „sléttan, fagran og kynæsandi maga“. Hinn ákærði, Bellin skurð- læknir, kallar úrskurðinn hlægi- legan og hyggst áfrýja honum. Aðgerðin fór fram 1974. Sovézkar stríðsþyrlur á vettvang Washington. 3.maí. AP. SOVÉTMENN háfa sent stjórnvöldum í Afghanistan tólf eldflaugaþyrlur til stuðnings hinum hliðhollu bandamönnum sfnum í bar- áttunni við fslamska upp- reisnarmenn og fjallabúa. Óstaðfestar heimildir banda- rísku leyniþjónustunnar herma að sovézkir flugmenn stjórni þyrlunum. Sovétmenn hafa þegar þrjú til fjögur þúsund ráðgjafa í Afghanistan og er talið að um það bil þúsund þeirra séu hernum til halds og trausts. Heimildarmenn leyniþjón- ustunnar, telja að þessi her- stuðningur Sovétmanna kunni að hafa úrslitaáhrif í tilraunum stjórnarinnar til að kveða uppreisnarmenn í kútinn. 32 SÍÐUR FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Geir Hallgrímsson í setningarræðu á landsfundi: 1 frjálshyggju eygja menn von Rikisforsjáin hefur bedid skipbrot - Skattborgarar rísa upp í setningarræðu sinni á 23. landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem hófst í Háskólabíói í gærkvöldi, sagði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, að flokkurinn og þjóðin í heild stæðu á mikilvægum tfmamótum. „Ríkisforsjáin hefur beðið skipbrot víða um lönd með atvinnuleysi, hægum eða engum hagvexti og verðbólgu. Skattborgarar hafa risið gegn skattpíningarstefnu stjórnvalda. I frjálshyggjunni eygja meiin von um betri tíma,“ sagði formaður Sjálfstæðisflokksins. Geir Hallgrímsson sagði að sí- felldar málamiðlunarlausnir dygðu ekki lengur. Hér yrði að brjóta blað. „Reynsla síðustu og núverandi ríkisstjórnar í barátt- unni við verðbólguna sýnir okkur, að aðeins frjálsræði í samskiptum manna er til þess fallið að koma á jafnvægi og ráða hiðurlögum verðbólgunnar." Geir Hallgrímsson gerði að um- talsefni gagnrýni andstæðinga Sjálfstæðisflokksins á efnahags- stefnu hans og sagði, að í því frelsi, sem Sjálfstæðisflokkurinn boðar fælist ekki réttur hins sterka og kúgun hins veika, frelsi einstaklingsins takmarkaðist af frelsi annarra og frelsi fylgdi aðhald og ábyrgð. „Kristin lífs- viðhorf, sem eru grundvöllur vest- rænnar menningar og óaðskiljan- legur þáttur sjálfstæðisstefnunn- ar, gera kröfu um samhjálp, sem tryggir að enginn þurfi að líða skort eða fara á mis við þjónustu í sjúkdómum og elli. Eflingu þess- arar samhjálpar er hvergi nærri lokið og forsendan er traust atvinnulíf og vaxandi fram- leiðsla," sagði formaður Sjálf- stæðisflokksins. Geir Hallgrímsson fjallaði um málefni launþega og verkalýðs- samtaka í ræðu sinni og sagði að þrátt fyrir árekstra á síðasta ári væru Sjálfstæðismenn reiðubúnir til þess að eiga jákvætt samstarf við verkalýðssamtökin og forystu- menn þeirra, hvar í flokki sem þeir stæðu. Formaður Sjálfstæðisflokksins gerði að umtalsefni innri málefni flokksins og sagði: „Innan stjórn- málaflokks sameinast menn um hugsjónir, þess vegna byggist vel- ferð flokks á því, að menn láti stefnuna blómstra, en hafni valda- streitu. Eðlilegt og sjálfsagt er að kjósa um menn og málefni. Eng- inn einn maður er sjálfsagður formaður Sjálfstæðisflokksins, ákvörðun er í höndum landsfund- arfulltrúa. En formaður flokksins á hverjum tíma verður að hafa flokksmenn að baki sér og að forsvari gegn sameiginlegum and- stæðingum. Við látum ekki and- stöðuflokka eða málgögn þeirra velja okkur forystumenn.“ Sjá landsfundarræðu Geirs Hallgrímssonar í heild á miðopnu. MSSI Geir Hallgrímsson setur 23. landsfund Sjálfstæðisflokksins í Háskólabíói í gærkvöldi Thatcher London. 3. maí. AP, Reuter. Allt benti til að íhalds- flokkurinn ynni góðan sigur í brezku þingkosningunum er niðurstöður í um það bil hundrað tuttugu og fimm kjördæmum lágu fyrir í nótt. Þrátt fyrir að menn hefðu litið svo á að framúrskar- andi kjörsókn yrði Verka- mannaflokknum til fram- dráttar gáfu síðustu spár til kynna að Margaret Thatcher kynni að njóta allt að sextíu sæta meirihluta á næsta þingi og þar með verða fyrsta konan til að fara með embætti forsætisráðherra í Vestur- Evrópu. Þegar úrslit voru fengin í forystu þótti ljóst að atkvæðasveiflan frá Verkamannaflokki til Ihaldsflokks næmi um 5,3 af hundraði. Firystumenn Verkamannaflokksins játtu í nótt að svo virtist sem Thatcher bæri hinn efri skjöld enn sem komið væri en neituðu þó að viðurkenna ósigur. Allt bendir til að íhaldsfiokkurinn hafi einkum bætt við sig fylgi í suðurhluta landsins en Verkamanna- flokkurinn hins vegar haldið sínu í Skotlandi, þar sem gífurlegt hrun skozkra þjóðernissinna hefur vakið athygli. Sjá „Thatcher á von á 5 prósent meirihluta" á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.