Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1979
Misjöfn
kjörsókn
hjá BSRB
K.IÖRSÓKN var nokkuð misjöfn
eftir landshlutum og vinnustöð-
um fyrri dag allsherjaratkvæða-
Kreiðslu BSItB. Kosningunum
lýkur klukkan 22 á þeim kjör-
stöðum. sem síðast loka. Að sögn
Ifarðar Zóphaníassonar for-
manns yfirkjörstjórnar var
kjörsókn dræm víða á Norður-
landi, en þó var kosningu lokið á
Vopnafirði og Þórshöfn. Hjá
hjúkrunarfrarfiingum í Reykja-
vík var t.d. dræm kjörsókn, en
hins vegar um 80% hjá sjónvarp-
inu og um 70% hjá simamönn-
um.
Talning atkvæði byrjar senni-
lega ekki fyrr en í fyrramálið, þar
sem ekki er hægt að byrja að
telja fyrr en utankjörstaðarat-
kvæði hafa skilað sér. Úrslit
verða varla ljós í kosningunni
fyrr en á mánudag, en það veltur
mjög á samgöngum. Að sögn
Harðar verður allt kapp lagt á að
ljúka talningu sem fyrst.
Haraldur Steinþórsson fram-
kvæmdastjóri BSRB sagði að sér
fyndist kjörsókn vera full dræm,
en þó væri erfitt að meta kjör-
sóknina þar sem síðari dagurinn
væri eftir. Haraldur sagðist engu
vilja spá um úrslitin, sagðist hafa
fyrir vana að gera ekki slíkt. —
Aðalatriðið er að ótvíræður vilji
fólksins komi fram, sagði Harald-
ur Steinþórsson.
Þá hafði Morgunblaðið sam-
Ljósm. Kristján.
Frá kosningunni á skrifstofu
BSRB að Grettisgötu 89.
band við Pétur Pétursson tals-
mann „Andófs ’79“ og hafði hann
eftirfarandi að segja:
„Það má segja að dagurinn sem
valinn er til atkvæðagreiðslu sé
að ýmsu leyti táknrænn. Á
krossmessu reyndu húsbændur
með ýmsu móti að lokka hjú sín
til þess að una vistum með
gómsætum réttum og vel smurðu
þann daginn. Það átti að tryggja
undirgefni þeirra í vistinni næsta
árið. Við Andófsmenn viljum
fylkja liði gegn niðurlægjandi
samningum um augljósan rétt
okkar. Nú svipumst við um eftir
þingmönnum allra flokka er vilja
bera fram breytingatillögu við
lög þau, sem hefta samningsrétt
okkar. Við ætlumst til þess að þá
sé að finna er bera vilja fram
breytingatillögu við lögin þannig
að við fáum fullan samningsrétt,
án þess að ríkisvaldið selji hann.
Samstaða okkar sem segjum nei á
að tryggja það.“
Afturkalla ekki undan-
þágu fyrir Fjallfoss
Á fundi samninganefndar Farmanna- og fiskimannasamhands Islands.
sem haldinn var í gær. var samþykkt. að þrátt fyrir harkalegar
verkbannsaðgerðir Vinnuveitendasambandsins. eins og það er orðað í
fréttatilkynningu frá FFSÍ, hafi aðstæður bænda á hafíssvæ-ðinu fyrir
norðan og austan ekki breytzt. Því sjái nefndin ekki ástæðu til að
afturkalla undanþágu vegna Fjallfoss. sem verið hefur við áburðarflutn-
inga til hafíssvæðanna.
I fréttatilkynningu FFSI segir:
Fundurinn telur að bezt fari á að
harka og þvermóðska í deilunni
komi hér eftir sem hingað til
frá Vinnuveitendasambandinu. —
Fundurinn átelur harðlega þá áróð-
ursherferð sem Vinnuveitendasam-
bandið hefur rekið gegn farmönnum
í fjölmiðlum. Bendir fundurinn á að
í sjónvarpsþættinum „Kastljósi" s.l.
föstudag hafi Þorsteinn Pálsson
bætt 50% við tekjur annars stýri-
manns fyrir 316 tíma vinnu á
mánuði og stórlega ýkt tekjur skip-
stjóra og vélstjóra. Óhaggað stend-
ur, að laun stýrimanna og undirvél-
stjóra eru frá 213 þúsundum til 320
þúsunda á mánuði fyrir 40 stunda
vinnuviku."
KOSNINGAR í BRETLANDI
Thatcher á von
á 5% meirihluta
London. 3. maí. AP. Reuter.
UM ÞAÐ bil sem Morgunhlaðið fór í prentun lá ljóst fyrir að
íhaldsflokkurinn hafði allt að níu af hundraði atkvæða fram yfir
Verkamannaflokkinn í einstökum kjördæmum og er það hærnen
síðustu kannanir fyrir talningu höfðu gert ráð fyrir. í heild er
áætlað að um sjötíu og fjórir af hundraði kjósenda hafi gengið að
kjörborði og er það um tveimur prósentum meira en í síðustu
þingkosningum árið 1974.
Þegar síðast spurðist hafði
Verkamannaflokkurinn tapað sjö
þingsætum til íhaldsflokksins en
bætt einu við sig. Frjálslyndi
flokkurinn virtist standa í stað
hvað varðar tölu þingmanna.
Með hliðsjón af hlutföllum
flokkanna í þrjátíu kjördæmum
hafði Verkamannaflokkurinn 37,3
af hundraði, íhaldsflokkurinn 46,6
af hundraði, Frjálslyndi flokkur-
inn 13,4 af hundraði og aðrir
flokkar um 2,7 af hundraði. Til
samanburðar voru lokaúrslit í
þingkosningunum 1974 eftirfar-
andi, Verkamannaflokkurinn 39,3
af hundraði, íhaldsflokkurinn 35,7
af hundraði, Frjálslyndi flokkur-
inn 18,3 af hundraði og aðrir 6,7.
Fyrsti nafntogaði frambjóðandi
Ihaldsflokksins, til að tryggja sér
áframhaldandi þingsæti var
Edward Heath fyrrverandi for-
sætisráðherra en hann hafðl um
þrettán þúsund atkvæði fram yfir
andstæðing sinn á Suður-Eng-
landi.
Um þrjátíu milljónir Breta
neyttu atkvæðisréttar síns þrátt
fyrir slæm veðurskilyrði og er
sennilegt að tafir verði á lokaúr-
slitum vegna hinnar óvæntu þátt-
töku. Er ekki búist við að talningu
verði lokið fyrr en síðla föstudags.
Frú Thatcher ávarpaði frétta-
menn í kjördæmi sínu í nótt og
kvaðst ánægð með þá stefnu sem
talningin hefði tckið og notaði
tækifærið til að þakka stuðn-
ingsmönnum. Call ighan foringi
VerkamannaflokKsms leit við í
borgarráðshúsinu í kjördæmi sínu
Cardiff meðan talning fór fram.
Hann brosti dauflega en sagði
ekki orð.
Stórir hlutar aðalvega
liggja undir skemmdum
v.egna skorts á viðhaldsfé
— segir í skýrslu samgönguráðherra
um framkvæmd vegaáætlunar 1978
SAMGÖNGURÁÐHERRA Ragn-
ar Arnalds lagði í gær fram á
Alþingi skýrslu um framkvæmd
vegaáætlunar 1978. í skýrslunni
kemur m.a. fram að fjármagn til
vegamáia hefur ekki haldið í við
verðbólguna og er svo komið að
stórir hlutar aðalveganna liggja
undir skemmdum vegna skorts á
viðhaldsfé, eins og segir orðrétt í
skýrslunni.
í skýrslunni kemur fram að
framlög til vegamála námu 11,2
milljörðum króna árið 1976. Er
það svipuð upphæð og árið 1976, ef
miðað er við verðlag ársins 1978
en nokkru hærri en árið 1977, en
þá var varið 10,6 milljörðum til
vegamála sé miðað við verðlag
ársins 1978. Hins vegar náði
framlag til vegamála hámarki
árið 1973, þegar varið var 16,2
milljörðum króna til vegamála á
verðlagi ársins 1978. Árið eftir var
framlag til vegamála 14,8 millj-
arðar en hefur síðan farið minnk-
andi.
I skýrslu samgönguráðherra
segir síðan orðrétt.
Slík þróun í fjármagni til vega-
mála setur óhjákvæmilega sitt
mark á vegakerfið og ástand þess.
Viðhaldsfé hefur í megindráttum
staðið í stað, þó að ástand vegakerf-
isins og sívaxandi umferð kalli á
stóraukið átak á því sviði. Er svo
komið að stórir hlutar aðalveg-
anna liggja undir skemmdum
vegna skorts á viðhaldsfé, einnig
þeir vegir sem byggðir hafa verið
upp fyrir tiltölulega fáum arum.
Hið bágborna ástand kemur ber-
legast í ljós á vorin, en þá er mikill
hluti vegakerfisins lamaður í 1 —
1V2 mánuð vegna aurbleytu.
Ekki er þróunin síður alvarleg,
þegar litið er til fjármagns til
nýrra þjóðvega og brúa, en þar er
fjármagn nú minna en helmingur
þess sem var 1973. Með þvi
fjármagni sem nú er til ráðstöfun-
ar er ekki svigrúm til að ráðast í
stærri verkefni í vega- og bruár-
gerð. Það er heldur ekki svigrúm
til að hefjast handa um lagningu
bundinna slitlaga í þeim mæli að
verulega muni um það. Mörg brýn
verkefni þarf að leysa innan
þessara verkefnaflokka, ef ekki á
að vera um stöðnun og afturför að
ræða.
Þrestir hafaþyrpst í
hlöður í haröuidunum
Slæmt útlit með grassprettu og vorið óvenju
seint á ferðinni á austanverðu Norðurlandi
BÆNDUR víða á Norðurlandi og þá einkum á Norðausturlandi eru mjög uggandi um sumarið og
óttast að spretta verði með minnsta móti. Eftir harðan, en þó ekki ýkja snjóþungan vetur, gerði mikið
norðanáhlaup í síðustu viku, en í gær virtist vera að rofa til. Bændur eru víðast hvar birgir af heyjum,
en þó einhverjir séu illa staddir með hey, eru aðrir aflögufærir. Almennt byrjar sauðburður eftir um
viku og er fyrirsjáanlegt að bændur verða í miklum erfiðleikum ef allt fé verður þá á húsum.
Almanakið segir okkur að sumarið sé komið en það er þó alls ekki sumarlegt um að litast.
Morgunblaðið ræddi í gær við Grím Jónsson ráðunaut í Ærlækjarseli í Öxarfirði, Sigurð P.
Björnsson á Húsavík og Stefán Skaftason jarðræktarráðunaut í Straumnesi í Aðaldal. Rabbað var um
ástand og horfur og fara viðtölin hér á eftir.
Til farfuglanna
heyrist ekki
í Aðaldalnum
Flest tún
í nágrenni Húsavíkur
undir snjó
Þorraveður
í Öxarfirðinum
síðustu daga
— Tíðin er eins og nú væri
marzmánuður, en ekki maí, sagði
Stefán Skaftason, Straumnesi í
Aðaldal. — Ég held að það sé
fyllsta ástæða til að vera uggandi.
Feikna mikil frost eru í jörðu og
hér vorar með eindæmum seint.
Óhætt er að segja að það sé
mánuði á eftir því sem gerzt hefur
undanfarin ár og enn sér ekki fyrir
endann á vetrinum. Það lítur ekki
vel út með sumarið og ég óttast
sprettulítið sumar. í dag er hér
renningur og um 5 stiga frost.
— Við vorum farin að heyra í
farfuglunum, en heyrum ekki til
þessara vorboða lengur. Þrestir
hafa mikið leitað heim að húsum
og þeir hafa þyrpst i hlöðurnar,
þar sem þeir hafa komist inn, að
undanförnu. Einn og einn fugl
hefur fundist dauður heima við
bæi síðustu daga. Ég er hræddur
um að sá fugl, sem ekki leitar heim
að húsum, gæti farið illa. Einstöku
maður er orðinn heylaus, en í heiid
eru næg hey og þá aðrir, sem eru
aflögufærir, sagði Stefán Skafta-
son að lokum.
— Eftir mjög kaldan vetur, en
þó ekki snjóþungan, vonuðust
menn hér um slóðir eftir góðu vori,
en það hefur brugðist, sagði
Sigurður P. Björnsson á Húsavík í
samtali við Mbl. í gær. — Um
sumarmál fór að snjóa og má heita
að flest tún her um slóðir séu undir
snjó. Klaki er þó mikill í jörðu, svo
að útlit með grassprettu er ekki
gott, því að gróður mun vera seinn
til.
— Sauðburður er víða hafin og
sums staðar í fullum gangi, en
rúmleysi í húsum skapar mörgum
bóndanum erfiðleika. Geldfé er
enn allt á gjöf, en venjulega er búið
að hleypa því út um þetta leyti.
Almennt munu bændur þó vera
sæmilega birgir af heyjum.
— Menn líkja þessu við vorið
1949, en þá var snjókoma fram
eftir maímánuði, en þá hófst sauð-
burður seinna en nú, svo að erfið-
leikarnir voru ekki þeir sömu,
sagði Sigurður að lokum.
— Menn hér um slóðir hafa
þann háttinn á að vona allt hið
bezta, en taka síðan erfiðleikunum
ef þeir koma, sagði Grímur Jóns-
son ráðunautur í Ærlækjarseli í
Öxarfirði. — Ég geri ráð fyrir að í
heild sé allsæmilegur heyforði hjá
bændum og sjálfsagt í góðu meðal-
lagi. í vetur hefur verið óvenju
svellalítið á túnum, en í áhlaupinu
síðustu daga fraus saman.
Persónulega held ég að mikið frost
sé í jörðu, en menn eru ekki
sammála um það.
— Á einstöku stað er sauð-
burður byrjaður og eftir um viku
verður hann kominn í fullan gáng.
Það er því óálitlegt með féð og útlit
fyrir mikil þrengsli í húsum og
erfiðleika því samfara.
Undanfarið hefur verið hér
versta þorraveður, hálfgerð vetrar-
stórhríð, þó svo að ekki hafi mikil
snjókoma fylgt þessu áhlaupi. í
dag sér á milli bæja og það þykir
gott miðað við siðustu daga, sagði
Grímur í Ærlækjarseli.
Fullt hús við setn-
ingu landsfundar
fóru í gær
RÚSSNESKU herflutningavélarnar
sex, sem hér hafa dvalið undanfarna
daga, héldu héðan upp úr klukkan 10
í gærmorgun. Ferðinni var heitið til
Kúbu með viðkomu á Gander á
Nýfundnalandi og hafði veður sett
strik í ferðaáætlun Rússanna, þann-
ig að dvöl þeirra hér varð lengri en
áætlað hafði verið.
HÁSKÓLABÍÓ var troðfullt í
gærkvölddi er Geir Ilallgrímsson
setti 23. landsfund Sjálfstæðis-
flokksins og skipaði Gunnar
Thoroddsen, varaformann
flokksins. fundarstjóra og Hildi
Einarsdóttur. Bolungarvík, fund-
arritara, á þcssum fyrsta fundi.
Geir Hallgrimsson flutti síðan
setningarræðu sína og er hún
birt í heild á miðopnu Morgun-
blaðsinc í dag.
Að ræðu Geirs Hallgrímssonar
lokinni sungu þau Sieglinde Kah-
man og Sigurður Björnsson ein-
söng og tvísöng og einnig síðar í
dagskránni. Matthías Johannes-
sen las kafla úr óbirtu ritverki
sínu um Ólaf Thors og Gísli
Jónsson menntaskólakennari
flutti ávarp, sem birt verður í heild
í Morgunblaðinu á morgun. Gunn-
ar Thoroddsen mælti síðan nokkur
orð áður en hann frestaði fundi
þar til kl. 9 árdegis í dag, er
störfum landsfundarins verður
haldið áfram í Sigtúni.