Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1979 Áhöfnin á Kópi. afiahæsta bátnum úr Grindavfk á vertíðinni. (Ljósmynd Guðfinnur). Kópur aflahæstur Grindavíkurbáta Grindavfk, 3. maí. , VETRARVERTÍÐ í Grindavík er nú lokið og aflahæstur Grinda- víkurbáta varð Kópur GK með 1030 tonn, skipstjóri Jóhannes Jónsson. Vörður ÞH fékk 944 tonn, Hafberg GK 878, Geirfugl með 838 tonn, fimmti aflahæsti bátur héðan varð Hópsnesið með 827 tonn. Alls bárust á land í Grindavík fyrstu fjóra mánuðina 37.168 tonn í 2748 róðrum. Þar af var þorskur 15.450 tonn, loðna og hrogn 15.838 tonn og ýsa, ufsi og annað 5880. Vetrarvertíðina í fyrra bárust í land í 2.162 löndunum 12.316 tonn af bolfiski, 7.079 tonn af loðnu, samtals 19.395 á sama tíma í fyrra. Aflagæði voru mun meiri í vetur en undanfarin ár enda hafa gæftir verið mjög góðar. Mikil atvinna hefur verið hér við verkun aflans í vetur og um 550 manns víða að af landinu hafa verið hér við vinnu, bæði á sjó og í landi, þeirra á meðal nokkrir útlending- ar. A þessum fjórum mánuðum hafa verið flutt frá Grindavík 5.108 tonn af frystum fiski og söltuðum. — Guðfinnur. Höfn í Horaafirði: Meðalafli í róðri var meiri í fyrra Höfn, Hornafirði, 3. maí. í LOK netavertíðar var heildar- afli Hornaf jarðarbáta 9864 tonn í 1065 sjóferðum og er það 2200 tonnum meira en var á sama tfma í fyrra, en þá voru farnar 774 sjóferðir. Meðalafli í sjóferð var meiri í fyrra eða 9,9 tonn á móti 9,3 tonnum í vetur. Aflahæsti bátur er Hvanney með 863 tonn i 74 sjóferðum, skipstjóri Einar Björn Einarsson. Annar er Þórir með 793 tonn í 74 sjóferðum og.þriðji er Gissur hvíti með 762 tonn í 66 sjóferðum, en hann hætti löndun eftir páska og fiskaði til siglingar. Heildarafli hans mun hafa verið um 862 tonn. Nokkrir bátar hafa nú byrjað togveiðar, margir fara í slipp og einn mun fiska til sigling- ar, en það er Þórir. — Gunnar I gæzluvarðhald fyrir bílþjófnaði TVEIR piltar hafa verið hand- teknir, grunaðir um að hafa ásamt fleiri piltum stolið þremur bifreiðum á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi og notað eina þeirra til bíræfins innbrots í áfengisverzlunina við Lindar- götu í Reykjavík. Annar piltanna, sem er 16 ára gamall, var í vikunni úrskurðaður í viku gæzluvarðhald og í fyrradag krafðist Rannsóknarlögregla rikisins gæzluvarðhalds yfir félaga hans, sem er nokkru eldri. Var hann einnig úrskurðaður í viku gæzluvarðhald. og mnbrot Talið er að piltarnir hafi fyrst stolið bíl í Hlíðunum í Reykjavík. Óku þeir bílnum suður í Kópavog, þar sem þeir skiptu um bíl. Á nýja bílnum óku þeir suður í Hafnar- fjörð og þar skiptu þeir aftur um bíl. Rúntuðu þeir á bílnum góða stund og fóru m.a. til Reykjavíkur. Ákváðu þeir að reyna óvenjulegt og bíræfið innbrot í útsölu ÁTVR. Óku þeir á afgreiðsluhurðina og brutu hana en síðan fóru þeir inn í afgreiðsluna og höfðu á brott með sér allmargar flöskur af áfengi. Báðir piltarnir hafa margsinnis komið við sögu hjá lögreglunni vegna bílþjófnaða. / Island kynnt um allt Finnland NORRÆNA fclagið í Finnlandi beitir sér fyrir víðtækri kynningu á hinu Norðurlöndunum um allt Finnland nú í ár. Það hefur um hana samvinnu við héraðs- og sveitarstjórnir landsins. Allt frá því í ársbyrjun hefur Island verið kynnt í skólum Lapp- landsléns, nyrsta hluta Finnlands. Nefnd hefur verið starfandi á vegum Norræna félagsins hér á landi, sem lagt hefur þessari kynn- ingu lið. I henni eiga sæti Anna Einarsdóttir, Jónas Eysteinsson og Hjálmar Ólafsson. Sendar hafa verið bækur, litskyggnur og kvik- myndir til Finnlands. Á sunnudag 6. maí nk. verður svo íslandskynningin formlega hafin með hátíðasamkomu í glæsilegum húsakynnum Lappia-hússins í Rovaniemi sem er stærsta borgin í Lapplands-léni. Þar mun forsætis- ráðherra Ólafur Jóhannesson halda ræðu, svo og formaður Norræna félagsins Hjálmar Ólafsson, enn- fremur syngja og leika Þrjú á palli en það eru þau Edda Þórarinsdótt- ir, Halldór Kristinsson og Troels Bendtsen. Þá mun verða opnuð sýning á vegum Heimilisiðnaðrfélags ís- lands og hefur Gerður Hjörleifs- dóttir framkvæmdastjóri veg og vanda að henni. Á sama tíma verður opnuð ísl. málverkasýning í borginni Kemi, sem er næststærsta borg Lapplands og stendur við Bottneska flóann. Þeir sem taka þátt í þeirri sýningu eru: Hringur Jóhannesson, Jóhannes Geir, Jón Reykdal, Þórður Hall, Bragi Ásgeirsson, Gunnlaug- ur Stefán Gíslason. Þeir sýna sam- tals 36 myndir. Ennfremur er sýn- ing á málverkum Sigríðar Björns- dóttur, 24 myndir svo og ljós- myndasýning. Þessar sýningar eru allar í listasafni Kemiborgar. Þau Hjálmar Ólafsson og Þrjú á palli ferðast svo um Lappland næstu viku og kynna Island á 7—8 stöðum. Firmakeppni Fáks á laugar- dag og hópreið á sunnudag FIRMAKEPPNI Hestamannafé- lagsins Fáks fer fram á morgun, laugardaginn 5. maí, á skeiðvelli félagsins og hefst keppnin klukk- an 15. Fram koma um 180 góðhest- ar og verður keppt í tveimur flokkum, þ.e. í flokki knapa á unglingsaldri og fullorðinna. Er keppni þessi meðal alstærstu góð- hestasýningum sumarsins og verða verðlaun afhent strax að lokinni keppni. Þeir sem taka þátt í keppninni þurfa að vera mættir til skráningar klukkan 14. Sýndur verður reiðhestur af góðu kyni, en hann er aðalvinningur í happ- drætti, sem kvennanefnd Fáks er með í gangi. Á sunnudag efna Fáksfélagar til hópreiðar að Hlégarði í Mosfells- sveit. Þar taka kvenfélagskonur úr sveitinni á móti Fáksfélögum með rjúkandi kaffi og veitingum. Frá blaðamannafundinum í gær f tilefni útkomu bókarinnar „Uppreisnar frjálshyggjunnar.“ Ljósm: Emíiía Bjömsd. Uppreisn frjálshyggjunnar Ný bók um hugmyndabaráttu samtímans „UPPREISN frjálshyggjunn- ar“ nefnist ný bók, sem Kjartan Gunnarsson lögfræðingur hef- ur geíið Tit, en á baksíðu bókar- innar segir svo um bókina og tildrög útgáfu hennar: „Bókin Uppreisn frjálshyggjunnar er samin fyrir hugmyndabaráttu samtfmans, baráttuna milli stjórnlyndis og sósíalisma ann- ars vegar og sjálfstæðis og frjálshyggju hins vegar. Höf- undar bókarinnar eru allir sjálfstæðismenn, en þeir eru óhræddir við að gagnrýna flokkinn hreinskilnislega. All- ar tillögur þeirra miða að því að gera Sjálfstæðisflokkinn, sem er fimmtíu ára 25. maí 1979, að voldugri fjöldahreyf- ingu fólksins í landinu, sem berst gegn Bákninu. íslenzkir frjálshyggjumenn hafa of lengi setið og þagað við sósíalisman- um. Nú rísa þeir upp og taka til máls.“ í bókina skrifa eftirtalin: Bessí Jóhann’sdóttir um Frjáls- hyggjuna og skólamálin, Geir H. Haarde um „Ekkert land er sjálfu sér einhlítt", Erna Ragn- arsdóttir um Menningu og sjálf- stæðisbaráttu, Jón Ásbergsson um Vanda atvinnuveganna, Þrá- inn Eggertsson um Hagkerfið og verðbólguna, Jón Steinar Gunn- laugsson um Frjálshyggjuna og lögin, Hannes H. Gissurarson um Hugmyndabaráttuna á Vest- urlöndum, Pétur J. Eiríksson um Hagkerfi frjálshyggju og sósíal- isma, Þór Whitehead um Raun- sæi og þjóðernishyggju, Björn Bjarnason um í öryggismálum er enginn annar kostur, Baldur Guðlaugsson um Viðreisn á vinnumarkaðnum, Halldór Blöndal Af sjónarhóli launþega, Friðrik Sophusson um Starf Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson um Sjálfstæðisflokkinn og tregðulögmálið og Þorsteinn Pálsson skrifar grein er ber yfirskriftina Hvað vildum við? Hvað gerðum við? Baksíða hinnar nýju bókar, „Uppreisnar frjálshyggjunn- ar . UÚtgefandi er sem fyrr segir Kjartan Gunnarsson, og boðaði hann í gær til blaðamannafund- ar ásamt þeim er í bókina skrifa. Kjartan sagði, að í bókinni væri að finna hvassa gagnrýni á Sjálfstæðisflokkinn, og þá eink- um á störf hans í síðustu ríkis- stjórn, en hafa yrði það í huga, að gagnrýni þessi væri fram sett í þeim tilgangi að efla flokkinn en ekki veikja. Sagði Kjartan að sennilega mætti orða þetta best með þessum orðum Þorsteins Pálssonar í grein hans: „Sú gagnrýni, sem ég hef hér sett fram á framkvæmd sjálf- stæðisstefnunnar, væri ekki þess virði að færa hana í letur, ef Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki eina vonin, sá farvegur, sem umbótaöfl frjálshyggjunnar geta enn nýtt til þess að brjótast fram í.“ Bókin er prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar, en auk útgef- enda eru í framkvæmdastjórn útgáfunnar þau Inga Jóna Þórð- ardóttir og Skafti Harðarson. Almenna BókafólagiO, Au*lur*trnti 18, Sk«mmuv*gur 36, sfmi 19707 sfmi 73055. Gunnar Gunnarsson hefur um langt skeið verið einn virtasti hófund ur á Norðurlondum Ritsafn Gunnars Gunnarssonar Saga Borgarættarinnar Vargur i véum Svartfulg Sælir eru einfaldir Fjallkirkjan I Jón Arason Fjallkirkjan II Sálumessa Fjallkrikjan III Fimm fræknisögur Vikivaki Dimmufjöll Heiðaharmur Fjandvinir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.