Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAI1979
Þess var sérstaklega gætt
að reyna að sneiða hjá
öllum misklíðarefnum
— segir Einar S. Einarsson forseti S. í. um
framboðskaflann í skýrslu stjórnarinnar
„EG FÆ ekki séð, hvernig hægt
hefði verið að gefa skýrslu um
störf stjórnar Skáksambands
Islands án þess að minnast á
framboð Friðriks Ólafssonar til
forseta Fide. Hvort sem það hafði
einhver áhrif eða ekki, þá eyddu
Einar S. Einarsson
stjórnarmenn drjúgum tíma í
störf vegna framboðsins og fram
hjá því er ekki hægt að ganga í
starfsskýrslu," sagði Einar S.
Einarsson forseti Skáksambands
íslands, er Mbl. leitaði álits hans
á þeim undirtektum, sem kafli í
skýrslu stjórnar um framboð og
kosningu forseta Fide fékk á
aðalfundi S.í. á laugardag.
„Þessi kafli í skýrslunni nær að
sjálfsögðu aðeins til þess hluta
framboðsstarfsins, sem stjórnar-
menn S.í. inntu af höndum,“
sagði Einar. „í honum eru ekki
tíunduð störf annarra, en þar
með er þó engan veginn verið að
draga úr þeim eða gera hlut
annarra lítinn. Þessi kafli er
skýrsla um störf stjórnar S.I. en
alls ekkert heildaryfirlit yfir
sögu framboðs Friðriks Ólafsson-
ar og kjör hans í embætti forseta
Fide.
Við samantekt þessa kafla var
þess sérstaklega gætt að reyna að
sneiða hjá öllum misklíðarefnum
og taka aðeins saman hlutlausa
frásögn byggða á fundargerða- og
bréfabókum stjórnar S.I. Á aðal-
fundinum var ekki bent á nein
tiltekin atriði í þessum kafla, sem
væru röng eða villandi og því
kemur mér á óvart að sjá yfirlýs-
ingar um að efni hans sé í
veigamiklum atriðum villandi og
kaflinn morandi af rangfærslum.
Það stendur ekkert á því að
leiðrétta þennan kafla, ef menn
geta bent á einhverjar rangfærsl-
ur í efni hans.
Varðandi gang mála á aðal-
fundinum er það að segja, að
aðeins reikningarnir voru bornir
undir atkvæði, en skýrsla
stjórnarinnar telst afgreidd um
leið og umræðum um hana lokið.
í umræðum um skýrsluna komu
engar athugasemdir frá öðrum
stjórnarmönnum og í þeim
umræðum fór Jón Böðvarsson
skólastjóri meðal annars þeim
orðum um skýrsluna, að hún bæri
vott um stórvel unnið starf og
verðskuldaði hið mesta lof. Síðan
gerðist það undir Iok fundarins,
þegar hluti fundarmanna var
farinn, að umræður hófust á ný
um skýrsluna undir liðnum önnur
mál, sem reyndar þýðir nú önnur
mál, en þau sem áður hafa verið
rædd. Þá gerist það að Jón
Böðvarsson og fleiri koma með
tillögu um að fundurinn lýsi sig
ósammála efni kaflans um fram-
boðsmálin, án þess þó að tiltaka
nokkur efnisatriði, sem væru
röng eða villandi. Þessi tillaga
var samþykkt. Reyndar má draga
í efa að sú atkvæðagreiðsla hafi
verið marktæk, þar sem búið var
að afgreiða skýrsluna fyrr á
fundinum. En burtséð frá því, fæ
ég ekki séð að menn geti sam-
þykkt svona hluti án þess að
benda á, hvaða atriði það eru,
sem þeir ekki geta fellt sig við. Ég
sé ekki að neinn geti dæmt um
innihald þessa kafla án þess að
bera það saman við frum-
heimildir. Og nú er spurn, hvort
þessi samþykkt þýði, að menn
vilji að efni gerðabóka S.I. sé
breytt.
Ég vil taka það skýrt fram, að
það var og er enn ætlun mín að
láta framboðsdeilunum lokið.
Þær heyra til fyrri stjórn Skák-
sambands Islands og þar með
liðinni tíð. Það var og er reyndar
enn von mín að eftir þennan
aðalfund, þar sem fráfarandi
stjórn skilaði sínum málum af
sér, megi að nýju skapast full
eining innan skákhreyfingarinn-
ar og við forseta Fide tekast gott
samstarf, sem gæti mótast af
góðum anda og samstarfsvilja
allra aðila."
Vildi aðeins fjar-
lægja hindrun í vegi
eðlilegs samstarfs
— segir Jón Böðvarsson
„ÉG bar þessa tillögu fram fyrst
og fremst vegna þess, að mér
þótti sýnt af viðbrögðum Frið-
riks ólafssonar, að þessi kafli
gæti orðið hindrun í vegi þess að
eðlilegt samstarf komist á milli
íslenzkrar skákhreyfingar og
forseta Fide,“ sagði Jón
Böðvarsson skólastjóri, er Mbl.
spurði hann um tillögu þá, sem
hann fiutti ásamt tveimur öðr-
um á aðalfundi S.í. á laugardag,
þess efnis að fundurinn lýsti sig
ósammmála þeim kafla í starfs-
skýrslu stjórnar S.Í., sem fjallar
Jón Böðvarsson
um framboð og kosningu forseta
Fide.
Jón sagði, að hann hefði ekki
fengið starfsskýrsluna í hendur
fyrr en á aðalfundinum og í ræðu
sinni hefði Einar ekki gert grein
fyrir efni þessa kafla, heldur
aðeins látið hans getið. „Starfs-
skýrslan ber með sér að stjórn
S.I. hefur á ýmsum sviðum unnið
mikið og gott starf og gat ég þess
í ræðu, sem ég flutti í umræðum
um skýrslu itjórnarinnar," sagði
Jón. „Það gafst þó ekki tími þá til
að lesa þennan framboðskafla
nákvæmlega, en þegar ég hafði
gert það og fyrir lá, að hann gæti
orðið ásteytingarsteinn, tilkynnti
ég fundarstjóranum að ég myndi
taka hann til umræðu síðar á
fundinum, undir liðnum önnur
mál. Það var leyft og einnig
atkvæðagreiðslur, en eftir að ég
lagði fram okkar tillögu, kom
fram frávísunartillaga, sem var
felld með 27 atkvæðum gegn 17.
Tillaga okkar var svo samþykkt
án talningar, en samkvæmt úr-
skurði fundarstjóra með megin-
þorra atkvæða.
Ég legg áherzlu á, að ég var
reiðubúinn til að taka tillöguna
aftur, ef þessi kafli væri felldur
út úr skýrslunni, en því tilboði
var ekki sinnt," sagði Jón
Böðvarsson.
Humarvertíð
frá 21. maí
til 15. ágúst
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið hvaða reglur skuli gilda
um þumarveiðar á komandi ver-
tíð, og eru þessar hinar helstu,
samkvæmt tilkynningu sem send
hefur verið út.
1. Humarvertíð hefst 21. maí
n. k. og stendur ekki lengur en til
15. águst n.k.
2. Ekki verður leyft að veiða
meira en 2500 lestir humars á
vetíðinni og verða veiðarnar
stöðvaðar fyrirvaralaust þegar því
magni verður náð.
3. Humarleyfi verða aðeins
veitt bátum, sem eru minni en 105
brúttórúmlestir. Þó verður stærri
bátum veitt leyfi til humarveiða
séu þeir búnir 400 hestafla aðalvél
eða minni.
4. Umsóknir sem berast eftir
15. maí n.k. verða ekki teknar til
greina.l Auk þess gilda
venjulegar reglur um gerð humar-
vörpu, skýrslugerð um veiðarnar
o. fl. í fyrsta sinn á humarveiðum
verður bátum gert að hirða og
færa til hafnar allan humarafla
án tillits til stærðar. Einnig er nú
skylt að ísa allan aukaafla í kassa.
Ráðuneytið mun hafa eftirlit
með því, að allar reglur sem um
humarveiðarnar gilda, verði
haldnar.
Sýna „7
stelpur” á
Nesinu
LITLA Leikfélagið úr Gsrðinum
ætlar að sýna leikritið Sjö stelpur
í Félagsheimilinu Seltjarnarnesi,
föstudaginn 4. maí kl. 20.30.
Leikstjóri er Sigmundur Örn
Arngrímsson.
Sýningar eru bannaðar börnum
innan 12 ára.
REYKJAVlK (•.
Vikulegar áætlunarferðir:
Rotterdam - Reykjavfk
Forðizt óþarfan kostnað
Spyrjiö okkur ráöa. Viö þekkjum flutningakerfi Evrópu.
Meö samtengdri þjónustu á láöi og í lofti (surface/air combination)
fáiö þér vörurnar frá verksmiðjudyrum framleiöanda, hingaö heim,
án óþarfa tafa og kostnaðar.
Fljótt og vel meö flugi
-samtengd þjónusta á láöi og í lofti.
ISCARGO HF
Reykjavíkurflugvelli
Símar: 10541 og 10542
Telex: 2105 Iscarg-is
ISCARGO