Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAÍ1979 3 Fyrsti fundur F.I.A.- gerðardómsins í gær GERÐARDÓMUR sá sem skipað- dómsins, Auður Þorbergsdóttir ur var eftir samninga flugmanna í formaður dómsins, Jón Finnsson Félagi ísl. atvinnuflugmanna og hrl. og Guðmundur Skaptason hrl. Flugleiða til að fjalla um jafn- launastefnu flugmanna tók til starfa í gær. Var þá haldinn fyrsti fundur til undirbúnings frekari störfum og sátu fundinn fulltrúi Flugleiða, Jón Júlíusson, lögmað- ur F.Í.A. Guðmundur Yngvi Sig- urðsson hrl. og dómarar gerðar- INNLENT Ljósmynd Guöfinnur. Hluti skemmdanna í lofti íbúðar um borð í Hrafni Sveinbjarnarsyni III. Neisti olli bruna í Grindavíkurbát Grindavík, 3. maí. ELDUR kom upp í mannaíbúðum ím klukkan 21 í gærkvöldi í i'élhátnum Hrafni Sveinbjarnar- syni III, sem lá við bryggju í Srindavík. Nokkru áður hafði verið unnið við iogsuðu um borð í dripinu. Nokkrar skemmdir urðu í lofti í tveimur klefum, en talið ?r að neisti frá suðu hafi valdið brunanum. Slökkvistarf gekk mjög fljótt og vel. í sambandi við þennan bruna má minna á að félagar í Kiwanis- klúbbnum Boða í Grindavík munu næstu daga ganga í hús og bjóða til sölu slökkvitæki og reykskynj- ara. Ágóði rennur til Þroskahjálp- ar Suðurnesja. — Guðfinnur. Sígrœnum gróðri nokkurhætta búin VEÐRÁTTAN að undanförnu hefur verið viðsjárverð fyrir gróður og á það jafnt við sunnan fjalla og norðan. Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri í Reykjavík sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að tíðarfarið hefði varla nokkur áhrií á lauftré, en hins vegar væri sígrænum gróðri nokkur hætta búin. Varðandi plönturæktun á veg- um borgarinnar sagði Hafliði að fyrir nokkru hefðu harðgerðustu plönturnar verið settar út til herzlu fyrir útplöntun. Þær væru í sérstökum timburstokk- um, með tvöfaldri gluggaröð og einangraðar frá jörð, en að auki héfði í vor þurft að setja striga ofan á gluggaraðirnar. Sagði Hafliði að mjög fátítt væri að grípa þyrfti til slíkra aðgerða, en með þeim sagðist Hafliði reikna með að tryggt væri að þeir misstu ekki plöntur. Aðspurður um hvort hann hefði góð ráð handa garðeigend- um sagði Hafliði að hann gæti einkum bent fólki á að bíða og vona það bezta. — Við verðum að þreyja þennan tíma eins og Þorrann og vera minnug þess hvar við búum á hnettinum, en reyna síðan að fá sem mest út úr okkar stutta sumri, sagði Haf- liði. Páll Sigurjónsson endur- kjörinn formaður V.S.Í. AÐALFUNDI Vinnuveitendasambands íslands lauk í gær og var Páll Sigurjónsson endurkjörinn formaður sambandsins og Hjalti Einars- son var endurkjörinn varaformaður. Framkvæmdastjórn VSÍ var og öll endurkjörin. í gær var síðari fundardagur aðalfundarins og var þá aðallega rætt um nýjar gjaldareglur innan sambandsins og umræður urðu um ályktanir, sem fundurinn samþykkti. Meðal ályktana, sem aðalfund- urinn samþykkti var ályktun um endurskoðun vinnulöggjafarinnar. Þar segir: „Aðalfundur Vinnuveit- endasambands íslands haldinn 2. og 3. maí 1979 beinir þeirri áskor- un til alþingismanna, að þeir hlutist til um endurskoðun vinnu- löggjafarinnar, sem nú er rúmlega 40 ára gömul, i því skyni að færa hana til samræmis við breytta atvinnuhætti í landinu.“ í annarri ályktun, þar sem vikið Páll Sigurjónsson. er að afskiptum ríkisstjórnarinn- ar af kjarasamningum segir: „Aðalfundur Vinnuveitendasam- bands íslands mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum ríkisstjórnar- innar að setja lög um uppsagnar- frest og greiðslur í veikinda- og slysatilvikum, án þess að taka afstöðu til ýmissa eldri samnings- bundinna og lögbundinna greiðslna, sem heyra þessum mál- um til, svo sem 0,352% gjalda til Tryggingastofnunar ríkisins, samningsbundinna slysa- og dánarbótatrygginga og greiðslna atvinnurekenda í sjúkrasjóði verkalýðsfélaga. Til þess að reyna að leiðrétta þessi mistök felur aðalfundur Vinnuveitendasambandsins fram- kvæmdastjórn að bjóða fulltrúum Alþýðusambands Islands og ríkis- stjórnar til viðræðna um þessi mál, sem miði að því að ábyrgð og áhætta þeim fylgjandi flytjist alfarið á vinnuveitendur samhliða niðurfellingu fyrrgreindra gjalda. Jafnframt verði stefnt að því að auka þessar tryggingar launþega í áföngum um leið og þær yrðu þannig úr garði gerðar að vinnu- veitendur gætu á frjálsum mark- aði tryggt sig gegn áhættunni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.