Morgunblaðið - 04.05.1979, Síða 1
99. tbl. 66. árg.
Ofstækisöfl
drápu vörð
í Rómaborg
Róm. 3. maí. Reuter. AP.
IIRYÐJUVERKAMENN réð-
ust í da« á aðalstöðvar kristi-
logra demókrata á Ítalíu moð
spronjfjum og byssuskothríð
ok tókst að drepa lögreglu-
mann og særa tvo aðra alvar-
leíja áður en þeir komust
undan.
Grunur leikur á að ofbeldis-
hópurinn. um það bil fimm-
tán menn og konur, hafi verið
úr röðum „Rauðu herdeild-
anna“. en einhver árásar-
manna hafði skrapað stjörnu-
merki hreyfingarinnar á
vegg byggingarinnar með eft-
irfarandi orðum: „Við mun-
um gera stéttastríð úr svika-
kosningunum“.
Sjónarvottar segja, að
hryðjuverkamenn vopnaðir
vélbyssum og hljóðdeyfðum
skammbyssum hafi látið til
skarar skríða um tíuleytið í
morgun. Afvopnuðu þeir fyrst
tvo lögreglumenn og hand-
járnuðu utan byggingarinnar
nærri ánni Tíber og héldu því
næst upp á kosningaskrifstofu
flokksins á annarri hæð. Þar
hófu þeir skothríð, rændu og
rupluðu og komu síðan fyrir
fimm sprengjum sem gereyði-
lögðu tvær hæðir hússins, sem
er á sex hæðum. Sjónarvottar
segja að árásarmenn hafi
hrópað „þetta er öreigainnrás"
er þeir ruddust inn. Þeir ráku
starfsmenn flokksins út úr
húsinu með bundnar hendur
áður en sprengingarnar urðu.
— Sjá mynd á bls. 14.
Arðbær nafli
New York. 3. maf. AP. Reuter.
KONA nokkur, er kvartaði yfir að
skurðlæknar hefðu fært nafla
hennar um fimm sentimetra úr
stað, hefur fengið um 280 milljón-
ir islenzkra króna í skaðabætur.
Konan fór í aðgerð til að fá
„sléttan, fagran og kynæsandi
maga“. Hinn ákærði, Bellin skurð-
læknir, kallar úrskurðinn hlægi-
legan og hyggst áfrýja honum.
Aðgerðin fór fram 1974.
Sovézkar
stríðsþyrlur
á vettvang
Washington. 3.maí. AP.
SOVÉTMENN háfa sent
stjórnvöldum í Afghanistan
tólf eldflaugaþyrlur til
stuðnings hinum hliðhollu
bandamönnum sfnum í bar-
áttunni við fslamska upp-
reisnarmenn og fjallabúa.
Óstaðfestar heimildir banda-
rísku leyniþjónustunnar
herma að sovézkir flugmenn
stjórni þyrlunum.
Sovétmenn hafa þegar þrjú
til fjögur þúsund ráðgjafa í
Afghanistan og er talið að
um það bil þúsund þeirra séu
hernum til halds og trausts.
Heimildarmenn leyniþjón-
ustunnar, telja að þessi her-
stuðningur Sovétmanna
kunni að hafa úrslitaáhrif í
tilraunum stjórnarinnar til
að kveða uppreisnarmenn í
kútinn.
32 SÍÐUR
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Geir Hallgrímsson í setningarræðu á landsfundi:
1 frjálshyggju
eygja menn von
Rikisforsjáin hefur bedid skipbrot - Skattborgarar rísa upp
í setningarræðu sinni á 23. landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem hófst í Háskólabíói í gærkvöldi, sagði
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, að flokkurinn og þjóðin í heild stæðu á mikilvægum
tfmamótum. „Ríkisforsjáin hefur beðið skipbrot víða um lönd með atvinnuleysi, hægum eða engum
hagvexti og verðbólgu. Skattborgarar hafa risið gegn skattpíningarstefnu stjórnvalda. I frjálshyggjunni
eygja meiin von um betri tíma,“ sagði formaður Sjálfstæðisflokksins.
Geir Hallgrímsson sagði að sí-
felldar málamiðlunarlausnir
dygðu ekki lengur. Hér yrði að
brjóta blað. „Reynsla síðustu og
núverandi ríkisstjórnar í barátt-
unni við verðbólguna sýnir okkur,
að aðeins frjálsræði í samskiptum
manna er til þess fallið að koma á
jafnvægi og ráða hiðurlögum
verðbólgunnar."
Geir Hallgrímsson gerði að um-
talsefni gagnrýni andstæðinga
Sjálfstæðisflokksins á efnahags-
stefnu hans og sagði, að í því
frelsi, sem Sjálfstæðisflokkurinn
boðar fælist ekki réttur hins
sterka og kúgun hins veika, frelsi
einstaklingsins takmarkaðist af
frelsi annarra og frelsi fylgdi
aðhald og ábyrgð. „Kristin lífs-
viðhorf, sem eru grundvöllur vest-
rænnar menningar og óaðskiljan-
legur þáttur sjálfstæðisstefnunn-
ar, gera kröfu um samhjálp, sem
tryggir að enginn þurfi að líða
skort eða fara á mis við þjónustu í
sjúkdómum og elli. Eflingu þess-
arar samhjálpar er hvergi nærri
lokið og forsendan er traust
atvinnulíf og vaxandi fram-
leiðsla," sagði formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Geir Hallgrímsson fjallaði um
málefni launþega og verkalýðs-
samtaka í ræðu sinni og sagði að
þrátt fyrir árekstra á síðasta ári
væru Sjálfstæðismenn reiðubúnir
til þess að eiga jákvætt samstarf
við verkalýðssamtökin og forystu-
menn þeirra, hvar í flokki sem
þeir stæðu.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
gerði að umtalsefni innri málefni
flokksins og sagði: „Innan stjórn-
málaflokks sameinast menn um
hugsjónir, þess vegna byggist vel-
ferð flokks á því, að menn láti
stefnuna blómstra, en hafni valda-
streitu. Eðlilegt og sjálfsagt er að
kjósa um menn og málefni. Eng-
inn einn maður er sjálfsagður
formaður Sjálfstæðisflokksins,
ákvörðun er í höndum landsfund-
arfulltrúa. En formaður flokksins
á hverjum tíma verður að hafa
flokksmenn að baki sér og að
forsvari gegn sameiginlegum and-
stæðingum. Við látum ekki and-
stöðuflokka eða málgögn þeirra
velja okkur forystumenn.“
Sjá landsfundarræðu Geirs
Hallgrímssonar í heild á
miðopnu.
MSSI
Geir Hallgrímsson setur 23. landsfund Sjálfstæðisflokksins í Háskólabíói í gærkvöldi
Thatcher
London. 3. maí. AP, Reuter.
Allt benti til að íhalds-
flokkurinn ynni góðan sigur
í brezku þingkosningunum
er niðurstöður í um það bil
hundrað tuttugu og fimm
kjördæmum lágu fyrir í nótt.
Þrátt fyrir að menn hefðu
litið svo á að framúrskar-
andi kjörsókn yrði Verka-
mannaflokknum til fram-
dráttar gáfu síðustu spár til
kynna að Margaret Thatcher
kynni að njóta allt að sextíu
sæta meirihluta á næsta
þingi og þar með verða
fyrsta konan til að fara með
embætti forsætisráðherra í
Vestur- Evrópu.
Þegar úrslit voru fengin
í forystu
þótti ljóst að atkvæðasveiflan
frá Verkamannaflokki til
Ihaldsflokks næmi um 5,3 af
hundraði. Firystumenn
Verkamannaflokksins játtu í
nótt að svo virtist sem
Thatcher bæri hinn efri
skjöld enn sem komið væri en
neituðu þó að viðurkenna
ósigur. Allt bendir til að
íhaldsfiokkurinn hafi einkum
bætt við sig fylgi í suðurhluta
landsins en Verkamanna-
flokkurinn hins vegar haldið
sínu í Skotlandi, þar sem
gífurlegt hrun skozkra
þjóðernissinna hefur vakið
athygli.
Sjá „Thatcher á von á 5 prósent
meirihluta" á bls. 2.