Morgunblaðið - 04.05.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1979
11
Laun bankamanna
lækkuðu um 3 %
Afangahækkunin fyrir apríl ekki tekin til baka
BANKARNIR lækkuðu laun
bankastarfsmanna við útborgun
launa um þessi mánaðamót um
3% og er áfangahækkunin þar
með tekin af og marzlaun í gildi.
Hins vegar létu bankarnir starfs-
fólkið ekki endurgreiða 3%
áfangahækkunina, sem greidd
hafði verið fyrir aprflmánuð.
Hafði verið um það rætt, að kæmi
til slfks, yrðu tekin til baka 2%,
þar sem lög ríkisstjórnarinnar
um efnahagsráðstafanir hefðu
verið samþykkt 10. aprfl eða um
það bil.
Böðvar Magnússon, fyrsti vara-
formaður Sambands íslenzkra
bankamanna, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að stjórn SÍB
léti nú kanna, hvaða aðgerða
sambandið gæti gripið til til þess
að ná rétti bankamanna, þ.e.a.s. að
fá umsamda áfangahækkun
greidda áfram. Ýmis starfs-
mannafélög bankamanna munu
næstu daga ætla að halda fundi
um málið og í gær var fyrirhugað-
ur fundur meðal starfsfólks Seðla-
bankans. Samningar bankamanna
renna út 1. október.
Vestmannaeyjar:
80% vertíðarþorks
í 1. flokk í vetur
í NÝLEGU tölublaði Vest-
mannaeyjablaðsins Fylkis er að
finna yfirlit yfir gæðamat og
stærðarflokkun þorsks þrjár
síðustu vertíðar. í inngangs-
orðum segir að aflabrögð á
vertíðinni hafi verið misjöfn
hjá Eyjabátum, en í heild hafi
vertíðin verið betri en í fyrra,
enda hafi hún þá verið með
eindæmum léleg. Miklar um-
ræður hafi verið á opinberum
vettvangi um friðunaraðgerðir
á þorski, en í umræðum í
þingsölum og í fjölmiðlum hafi
menn nær undantekningar-
laust tekið afstöðu með hags-
muni sinna byggðarlaga og
landshluta f huga og segir í
Fylki að öll umræða hafi ein-
kennst af hreppapólitík.
Vestfirðingar og Norðlendingar
hafi haldið því fram að gæði
vertíðarþorsks sunnanlands
væru mun lakari en hjá þeim.
Af þessum sökum hafi verið
tekin saman yfirlit yfir
þorskveiði í Eyjum þrjár síðustu
vertíðir, þ.e. frá 1. janúar til 15.
apríl. I yfirlitinu kemur fram
gæðamat og stærðarflokkun og
fer það hér á eftir úr Fylki
Vestmannaeyjum:
GÆÐAMAT: 1979
1. fl. 5.722,3 79,4%
2. fl. 1.046,7 14,5%
3. fl. 439,7 tonn 7.208,7 1978 6,1%
1. fl. 5.312,4 78,7%
2. fl. 981,5 14,5%
3. fl. 459,3 tonn 6.753,2 1977 6.8%
1. fl. 4.449,5 64,7%
2. fl. 1.709,5 24,9%
3. fl. 716,5 tonn 6.875,5 10,4%
STÆRÐARFLOKKUN:
1979
Stór 6.933,5 96,2%
Miðl. 261,9 3.9%
Smár 13,3 0,2%
tonn 7.208,7
1978
Stór 6.222,9 92,2%
Miðl. 507,2 7,5%
Smár 23,1 0,3%
tonn 6.753,3
1977
Stór 6.753,2 98,2%
Miðl. 101,0 1,5%
Smár 21,3 0,3%
tonn 6.875,5
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Fréttir frá
Bridgesambandi
Vesturlands
Vesturlandsmót í sveita-
keppni var haldið í Borgarnesi
helgina 17.—18. mars s.l. Sex
sveitir tóku þátt í mótinu. Sig-
urvegarar urðu sveit Alfreðs
Viktorssonar, en auk hans spil-
uðu í sveitinni Karl Alfreðsson,
Guðjón Guðmundsson og Ólafur
G. Olafsson.
Úrslit mótsins urðu þessi:
1. Sveit Alfreðs Viktorssonar
Akranesi, 83 stig.
2. Sveit Halldórs Sigurbjörns-
sonar, Akranesi 68 stig.
3. Sveit Jóns Þ. Björnssonar,
Borgarnesi 64 stig.
4. Sveit Eyjólfs Magnússonar,
Borgarnesi 43 stig.
5. Sveit Viggó Þorvarðar-
sonar, Stykkishólmi 26
6. Sveit Sigurðar Magnús-
sonar, Reykholtsdal 11 stig.
Vesturlandsmót í tvímenn-
ingskeppni var haldið í Stykkis-
hólmi helgina 21.—22. apríl s.l.
Þátt tóku 23 pör, auk eins
gestapars, Reykjavíkurmeistar-
anna Sigurðar Sverrissonar og
Vals Sigurðssonar. Keppninni
lauk með sigri gestanna, sem
hlutu 176 stig, en röð efstu para
í Vesturlandskeppni varð þessi:
1. Ketill Jóhannesson —
Sigurður Magnússonar
Reykholtsdal 161 st.
2. Ellert Kristinsson —
Halldór S. Magnússon,
Stykkish. 142 st.
3. Jón A. Guðmundsson —
Níels Guðmundsson,
Borgarn. 125 st.
4.-5. Kristinn Friðriksson —
Guðni Friðriksson,
Stykkish. 104 st.
4.-5. Steingrímur Þórisson —
Þórir Leifsson,
Reykh.dal 104 st.
6. Eiríkur Jónsson —
Karl Alfreðsson,
Akranesi 98 st.
7. Hólmsteinn Arason —
Unnsteinn Arason,
Borgarn. 82 st.
8. Eyjólfur Magnússon —
Guðjón Karlsson,
Borgarn. 74 st.
9. Guðjón Stefánss. —
Jón Þ. Björnsson,
Borgarnesi 67 st.
Guðmundur Sigurjónsson —
Jón Gíslason,
Akranesi 22 st.
11. Davíð Stefánsson —
Jón Jóhannesson,
Búðardal 5 st.