Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 4. MAI 1979 22 Minning: Jón Guðmundsson Hallsstöðum Talið er, að 18 daladrög liggi að Skeggöxl, en það fja.ll (815m) er nokkurs konar miðstöð á nesi því, sem gengur fram milli Gilsfjarðar og Hvammsfjarðar, og er um 40 km að lengd. Mestur af fjalladöl- um þeim, sem teygja drög sín að Öxlinni er Flekkudalur, inn af Efri-byggð á Fellsströnd. Forn munnmæki herma, að í dalnum hafi endur fyrir löngu verið nokk- ur býli, m.a. kirkjustaðurinn Staðarbakki.* Sú byggð er nú í auðn og saga hennar hulin móðu liðinna alda. Flekkudalsá, blátær og bakkafögur, liðast eftir daln- um. í hana falla lækir margir og gil. Nöfn þeirra sum með nokkrum huldu- og ævintýrablæ, svo sem Seljagil, Álfagil og Jötnagil að norðanveðu. í Hrishlíð við Álfagil var .lögrétt Fellsstrandahrepps, hlaðin úr grjóti. í dalnum eru landkostir góðir og kjarnmiklir sumarhagar. Eyrar meðfram ánni, brokflóar, lyngbrekkur, kjarrásar og gróður-geirar teygja sig upp í brattar hlíðarnar. í mynni Flekkudals, norðan árinnar, stendur bærinn Hallsstaðir undir hárri hlíð. Þegar haustar að og kólnar, gránar snemma í Halls- staðabrún. Þegar fer að vora og hlýna, nýtur sólar vel í norður- hlíðinni og jörðin kemur græn undan snjónum. Á Hallsstöðum bjó Jón Guðmundsson í tæpa hálfa öld. Jón var fæddur að Breiðaból- stað á Fellsströnd 19. janúar 1909. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson og kona hans, Kristín Jónasdóttir. Guðmundur andaðist 1918. Jón átti alla ævi heima á Fellsstfönd. Árið 1931 hóf hann búskap á Hallsstöðum. Hann kvæntist Jófríði Einarsdóttur frá Vogi. Þau eignuðust 5 sonu, sem allir eru á lífi: Guðmundur bóndi í Túngarði, kvæntur Ester Kristjánsdóttur frá Efri-Múla í Saurbæ. Hilmar, verkstjóri hjá O. Johnson og Kaaber, Reykjavík, kvæntur Kristínu Guðmundsdóttur frá Egilsá í Skagafirði. Einar Hólm, bóndi á Hallsstöðum. Kristinn, starfsmaður Kf. Hvammsfjarðar, Búðardal, kvæntur Valdísi Jóhönnu Sveinbjörnsdóttur. Svanur, starfsmaður á Grundar- tanga við Hvalfjörð. Ævisaga Jóns á Hallsstöðum er saga íslenzka bóndans á öldinni okkar. Hann varð snemma dug- mikill og framtakssamur. Myndarmaður í sjón og raun. Þéttur á velli og þéttur í lund. Hann hóf búskap á erfiðum krepputímum. Átti lítið til nema eigin kraft og áræði. Þurfti að vinna hörðum höndum. Sló ógreið- fært tún með orfi og ljá. Heyjaði á engjum. Batt votband og reiddi heim á klökkum. En smátt og smátt fór erfiðið að skila árangri. Túnið stækkaði og fénu fjölgaði. Ytri aðstæður breyttust. Vél- væðingin hófst. Sveitasími var lagður á bæina. Eitt sumarið var áin brúuð, sem oft hafði verið erfiður farartálmi á leiðinni heiman og heim. Seinna kom rafmagnið og létti heimilisstörfin. Jón endurbætti jörð sína á margan veg og byggði upp öll jarðarhús. Hann var í röð fjár- flestu bænda á þessum slóðum um langt skeið. Lagði jafnan kapp á að eiga nóg hey. Ávallt sá hann búi sínu vel borgið. Hann batt órofa tryggð við eignarjörð sína og undi sér hvergi annars staðar til lengdar. Þó var hann félagslyndur og glaðsinna. Hann komst ekki hjá þátttöku í opinberum störfum og félagsmálum. Hann átti sæti í hreppsnefnd um nær þriggja ára- tuga skeið, þar af eitt kjörtímabil sem oddviti Fellsstrendinga. Hann var árum saman vara-sýslunefndarmaður. Ræktunarmál voru honum hug- leikin. Hann sat lengi í stjórn ræktunarsambands sýslunnar og lagði alls staðar gott til mála. Þegar mér verður hugsað til lið- innar ævi þessa atorku- og iðju- manns, koma mér í hug hendingar úr kvæðinu „Smiðurinn “ í þýðingu Einars Benediktssonar: „Því ævi HÍnni hefur hann í heiðri og starfsemd eytt. Hann horfir djarft á hvern sem er, hjá honum á enginn neitt“. Jón vann einnig utan heimilis- ins, þegar færi gafst, m.a. mörg haust við sauðfjárslátrun í Búðar- dal hjá Kf. Hvammsfjarðar og áður sem sláturhússtjóri í Hjalla- nesi á Fellsströnd. Með þessum hætti tók hver önnin við af annarri í lífi hans. „llm norgun hvern er hafið verk, kvöl(j hvert sér endað starf, en dagsverk unnið, nokkurs nýtt, gefur næturhvíld í arf.“ Síðustu árin átti Jón við van- heilsu að stríða. Þrek hans dvínaði. Hann andaðist í sjúkra- húsi St. Franciskussystra í Stykkishólmi hinn 7. apríl s.l. og var jarðsettur að Staðarfelli laugardaginn fyrir páska, 14. apríl s.l. Útför hans var fjölmenn. Þennan dag var logn og heiðríkja. Sólskin skein á föla jörð. Fyrsti dagur vorleysingar við Hvamms- fjörð á þessu ári, enda sumardag- urinn fyrsti á næsta leiti. Eftirlifandi konu og aðstend- endum öllum er vottuð innileg samúð að leiðarlokum. Minning hins látna heiðursmanns mun lifa löngu eftir að þagnaðir eru rokkar hávaðamanna samtímans. Hún mun lifa lengst, þar sem vel nýtur sólar, og jörðin kemur græn undan snjónum. Friðjón Þórðarson. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar húsnæöi óskast Óskum eftir gistingu á einkaheimilum vegna þinghalds frá 25. júní til 2. júlí. Ferðaskrifstofan (WWáiTHí Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1 símar 28388 og 28580. 3—5 herbergja íbúð höfum viö veriö beönir aö útvega til leigu, sem fyrst. Málflutningsskrifstofa Ágústar Fjeldsted hrl. Benedikts Blöndal hrl. og Hákonar Árnasonar hrl. Ingólfsstræti 5, Reykjavík. Sími 22144. | húsnæöi i boöT Skrifstofuhúsnæði til leigu 170 fm skrifstofuhúsnæöi til leigu á 2. og 3. hæö í miöborginni. Hentugt fyrir skrifstofur, teiknistofur, o.fl. Tilboö leggist inn á afgr. Mbl. merkt: „Gamli miöbær — 5838“. Til leigu 450m2 Til leigu er skrifstofuhúsnæöi um 450m2 frá og meö 1. maí. Leigist í stærri eöa smærri einingum, til skemmri eöa lengri tíma. Uppl. í síma 32399 í dag milli kl. 1—5 og næstu daga. Vísindastyrkir Atlants- hafsbandalagsins 1979 Atlantshafsbandalagiö leggur árlega fé af mörkum til aö styrkja unga vísindamenn til rannsóknarstarfa eöa framhaldsnáms erlendis. Fjárhæð sú er á þessu ári hefur komiö í hlut íslendinga í framangreindu skyni nemur tæpum 7 mlllj. króna og mun henni veröa varið til aö styrkja menn, er lokiö hafa kandídatsprófi í einhverri grein raunvísinda, til framhaldsnáms eöa rannsókna viö erlendar vísindastofnanir, elnkum í aöildarríkjum Atlants- hafsbandaiagsins. Umsóknum um styrki af fé þessu — „Nato Science Fellowships" — skal komiö til menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 1. júní n.k. Fylgja skulu staöfest afrit prófskír- teina svo og upplýsingar um starfsferil. Þá skal og tekið fram hvers konar framhaldsnám eöa rannsóknir umsækjandi ætli aö stunda, viö hvaöa stofnanir hann hyggst dvelja, svo og skal greina ráögeröan svalartíma. — Umsóknareyöublöö fást í ráöuneytinu. MenntamálaráOuneytiö 30. apríl 1979. Happdrætti Lionsklúbbsins Fjölnis Dregiö var 2. maí. numer: 1. nr. 8837 2. nr. 29198. 3. nr. 15883. 4. nr. 20086. 5. nr. 2688. 6. nr. 19407. 7. nr. 3462. 8. nr. 11228. Upp komu eftirtalin 9. nr. 4149. 10. nr. 11612. 11. nr. 8966. 12. nr. 5713. 13. nr. 14466. 14. nr. 29672. 15. nr. 27190. íbúðalánasjóður Seltjarnarness Umsóknarfrestur um lán úr íbúðalána- sjóöi Seltjarnarness er til 1. júní n.k. Umsóknareyöublöö ásamt reglugerö sjóösins fást á bæjarskrifstofunni. Lán veröa afgreidd fyrir 15. júní. Bæjarstjórinn Seltjarnarnesi. Veitingastaður óskast til kaups Óska eftir aö kaupa grillstöö eöa kaffihús á stór-Reykjavíkursvæðinu sem er í gangi. Tilboö sendist Mbl. sem fyrst og eigi síöar en 10. maí merkt. „Grill — 5841“. Fariö veröur meö tilb. sem algjört trúnaöarmál. Uppboö Eftir beiðni lögreglustjórans í Reykjavík fer fram opinbert uppboö aö Borgartúni 7, laugardaginn 5. maí 1979 og hefst þaö kl. 13.30. Verða þar seldir margskonar óskilamun- ir, sem eru í vörzlum lögreglunnar svo sem: reiöhjól, úr, fatnaöur og margt fleira. Greiösla viö hamarshögg. Uppboðshaldarinn í Reykjavík. Utboð Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í byggingu fjögurra steinsteyptra starfs- mannahúsa viö Búrfellsstöö. Miöast verkiö viö afhendingu á húsunum í haust tilbúnum undir tréverk. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu Landsvirkjunar aö Háaleitisbraut 68, 108 Reykjavík, frá og meö mánudeginum 7. maí 1979 aö telja og kostar eintakiö kr. 10.000.-. Tilboösfrestur er til 28. maí 1979, en þá veröa tilboöin opnuð kl. 14:00 í skrifstofu fyrirtækisins. Reykjavík 4. maí 1979. Landsvirkjun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.