Morgunblaðið - 04.05.1979, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAÍ1979
Jón Norðkvist Viggós
son — Minning
Fæddur 27. aprfl 1951.
Dáinn 4. aprfl 1979
„Lifðu lífinu lifandi" voru eink-
unnarorð hans. Sá ungi maður
sem nú er fallinn frá hafði þessi
orð ekki einungis í flimtingum,
heldur í öllum sínum gerðum. Það
má segja að dirfska hans og
hugrekki hafi leitt hann á breiðari
lífsbraut en gengur og gerist, enda
var hann opinn fyrir öllum nýj-
ungum sem kröfðust þessara eig-
inleika hans. Hann hafði ríka
kímnigáfu sem alltaf var til staðar
hvernig sem á bjátaði og óteljandi
eru þau hlátursköstin sem hann
hafur orsakað í fjölskyldu okkar á
sinn rólega og yfirvegaða hátt.
Eftir skólanám sitt hér heima
hóf hann sína æviferð um heim-
inn, fyrst um troðnar slóðir
Evrópu, en síðan um erfiðar
brautir svo sem Afríku og Asíu,
þar sem hann og dvaldist lang-
dvölum. Það átti ekki við hann að
þjóta land úr landi, borg úr borg,
heldur tók hann sér tíma til að
kynnast landi og fólki, sem hann
átti mjög auðvelt með vegna sinn-
ar lífsglöðu framkomu og litríka
persónuleika. Á sínum stutta lífs-
ferli hefur hann bróðir minn lifað
margar raunir og einnig gleði-
stundir, sem án efa hafa markað
hann og mótað í reynslumikinn
mann og hugsuð.
Bréf hans öll mikil og góð bera
þess merki og eru okkur sem
dýrmætt fróðleikskorn. Frásagn-
arsnilli hans var með eindæmum
og hefði án efa notið sín seinna er
hann hugsðist setjast í helgan
stein og setja á blað það sem á
daga sína hafði drifið. Af hinni
miklu reynslu sinni miðlaði hann
SINDRA
STALHR
Fyrirliqgjandi í birgðastöð
PRÓFÍLPÍPUR
□L 1 □ I I cr~~i i 1 □ □□ □ i 11 1 I I □ I in
Fjölmargir sverleikar.
Borgartúni31 sími27222
okkur af mikilli samviskusemi í
bréfum sínum og aldrei tók hann
sér penna í hönd án þess að koma
að nokkrum gullkornum eftir
sjálfan sig, eða aðra. Lestrarhest-
ur mikill var hann og eru þær
ófáar bækurnar sem hann hefur
borið augum, bæði á móðurmálinu
eða öðrum málum, því drengurinn
var mikill málamaður og lá létt
fyrir honum að læra af bók sem
öðru.
Aldrei kom það bréf frá honum,
sem ekki spurði um hagi okkar
systkina hans og foreldra og
hvatti hann óspart til dáða og gaf
góð ráð ef svo bar undir.
Eftir andlát hans hitti ég stúlku
erlendis sem kannaðist við bróður
minn. Hafði hann keypt farseðil
hjá stúlkunni er hann hugðist
halda heim á leið, um Japan og
Bandaríkin.
Þegar ég sagði henni hvernig
komið var, brast hún í grát og
sagði: „Ég trúi þessu ekki, hann
sat hér fyrir nokkrum dögum og
talaði við mig á reiprennandi
frönsku." Þetta litla dæmi sýnir
án efa hversu skyndilega lífið
hefur horfið honum sjónum, óund-
irbúnum, hjálparvana í ókunnu
landi. Bikar sorgarinnar er
barmafullur hjá fleirum en þess-
ari stúlku, er fréttin berst um
andlát hans. Orðið óréttlæti er
kannski ekki hægt að nota við
þessar kringumstæður, en vissu-
lega skýtur því upp í huga manns
og svo spurningin „hvers vegna?"
En með því gerum við okkur
sjálfum erfiðara fyrir og efalaust
einnig honum, sem nú hefur hafið
sína hinstu ferð. Við viljum ekki
íþyngja honum með slíkum hugs-
unum, heldur óska honum farar-
heilla eins og svo oft áður. Elsku-
legur bróðir minn og vinur var
einn hlekkurinn í samheldinni
fjölskyldu okkar. Vissulega mun-
um við ekki gleyma þeim hlekk, og
styrkist keðjan er opið verður
bætt með traustari böndum.
Sigrún Viggósdóttir.
Eldur í
Friðarhöfn
Eldur varð laus í nýrri vöruaf-
greiðslu Herjólfs í Friðarhöfn í
Vestmannaeyjum sl. miðviku-
dag og urðu skemmdir talsverð-
ar af eldi, vatni og reyk. Að sögn
lögreglunnar í Eyjum er líklegt
talið að kviknað hafi í út frá
rafmagni, en þó er það enn ekki
fullkannað.
COLA
Sanianbimkir á ólíkiini
tegundum drykkja.
HREINN ,
WELSINU
SAM
venjulkííik
kosdhykkjh
PILSNEK
NYMJOLK
Prótín-innihald:
7,4 grömm í lítra.
Hitaeiningar eru u.þ.b.
500, þær fást úr kol-
vetnum.
Annað næringargildi:
Hreinn appelsínusafi er
auðugur af C-vítamínum.
Verð á lítra kr. 472.-
(Öll verð mrðuð við 6. apríl 1979.)
Prótín-innihald:
5 grömm í lítra.
Hitaeiningar eru u.þ.b.
235» þær fást úr kolvetn-
um og alkóhóli.
Annað næringargildi:
Viss B-vítamín fást úr
pilsner.
Verð á lítra kr. 445.-
Prótín-innihald:
34 grömm í lítra.
Hitaeiningar eru u.þ.b.
630, þær fást úr prótíni,
fitu og kolvetnum.
Annað næringargildi:
Mjólk er alhliða fæða.
Hún er auðug af kalki,
fosfór, A-vítamíni, Bi- og
B2-vítamínum, einnig er í
henni nokkuð af D-víta-
míni.
Verð á lítra kr. 152.-
Prótín-innihald:
0 grömm í lítra.
Hitaeiningar eru u.þ.b.
420, þær fást úr kol-
vetnum.
Annáð næringargildi:
Getur innihaldið kofíin.
Verð á lítra kr. 310.-
Prótín-innihald:
0 grömm í lítra.
Hitaeiningar eru u.þ.b.
430, þær fást úr kol-
vetnum.
Annað næringargildi:
Breytilegt sykurinnihald.
Verð á lítra kr. 372.-
Frá Mjólkunlagsiiefnd.