Morgunblaðið - 02.06.1979, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979
Raul Newman og Lce Remick í einu atriða biómyndarinnar sem sýnd verður í sjónvarpinu í kvöld.
S jónvarp kl. 21.30:
„Aldrei ad gefa eftir”
SJÓNVARPIÐ sýnir í kvöld
bandarísku bíómyndina „Aldrei
að geía eftir“, en hún er frá
árinu 1972. Lcikstjóri er Paul
Newman og leikur hann aðal-
hlutverk ásamt Henry Fonda og
Lee Remick.
Sagan gerist í Oregon-fylki í
Bandaríkjunum. Greinir myndin
frá fjölskyldu sem á nytjaskóg
og baráttu hennar við skógar-
höggsmenn sem eru í verkfalli,
en einnig koma ýmiss konar
fjölskyldumál inn í söguna. Fað-
irinn, höfuð fjölskyldunnar, rek-
ur fólk sitt áfram með harðri
hendi og við sama tón kveður hjá
syni hans. Kemur þá til sögunn-
ar annar sonurinn sem hinir
álíta dugleysingja en með komu
hans kemur ýmislegt óvænt á
daginn.
Mun óhætt að mæla með
myndinni, en hún er eftir sama
höfund og Gaukshreiðrið sem
sýnd var hér fyrir skömmu við
miklar vinsældir. Þýðandi
myndarinnar er Dóra Hafsteins-
dóttir.
Sjónvarp annan hvítasunnudag kl. 20.30:
Skemmtiþáttur með ABBA
ANNAN Hvftasunnudag mun
sjónvarpið sýna tónlistarþátt
með hljómsveitinni ABBA,
einnig koma þar fram Kate
Bush, Ted Garlestad og Roxy
Music.
Flytur ABBA gömul og ný lög
sem vinsæl hafa orðið. Myndin
er tekin í smábæ og brugðið er
upp svipmyndum af úti- og
íþróttalífi. Þess má geta að
ABBA gefur allar tekjur sínar af
þessum skemmtiþætti til Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Þessi skemmtiþáttur ætti að
vera hvalreki á fjörur hinna
fjölmörgu aðdáenda hljómsveit-
arinnar á íslandi.
„Stundin okkar”
í síðasta sinn
Síðasti þáttur barnatímans „Stundin okkar" verður á dagskrá
sjónvarpsins á hvítasunnudag. Þátturinn verður með svipuðu sniði
og verið hefur undanfarið. Það barnaefni sem kemur til með að leysa
barnatímann af hólmi verður svipað því sem verið hefur á
miðvikudögum og má því segja að það efni flytjist yfir á sunnudaga.
Sú venja hefur verið að barnaefni falli niður á laugardögum, en svo
verður ekki nú því að þátturinn „Heiða" mun halda áfram.
Umsjónarmaður Stundarinnar er Svava Sigurjónsdóttir.
Nemendur úr Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar sýna dans
byggðan á sporum úr kvikmyndinni Saturday Night Fever.
Sjónvarp kl. 20.55:
Sjónvarp kl. 18.00 hvítasunnudag:
Discodans
Nemendur úr Dansskóla Heið-
ars Ástvaldssonar munu f kvöld
sýna discodans f sjónvarpinu og
hefst þátturinn kl. 20.55.
Unglingar munu eingöngu
dansa í þessum þætti, sem er
hálftíma langur, og sýna dansa
byggða upp á sporum úr myndun-
um Saturday Night Feaver og
Grease. Einnig koma fram ís-
landsmeistarinn í slíkum dönsum,
svo og unglingameistarinn og
munu þeir sýna dansa sína. Eins
og sýnt er, er þátturinn svo til
eingöngu byggður upp á svokölluð-
um discodönsum, en þó munu tvö
pör sýna hinn gamalkunna dans
jiwe sem er mun eldri en discoæð-
ið; Að síðustu munu nemendurnir
sýna svokallaðan jazzdans, en
slíkir dansar eru alls óskyldir
discodönsunum sem njóta mikilla
vinsælda um þessar mundir.
Útvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
2. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi
7.20 Bæn
7.25 Ljósaskipti: Tónlistar-
þáttur í umsjá Guðmundar
Jónssonar pfanóleikara.
(endurtekinn frá sunnudags-
morgni).
8.00 Fréttir. Tónleikar. 8.15
Veðurfr. Forustug' dagbl.
(útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir
ýmis lög að eigin vali.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.20 Leikfimi
9.30 Óskalög sjúklinga: Ása
Finnsdóttir kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir).
ii.20 Við og barnaárið. Jakob
S. Jónsson stjórnar þætti, ar
sem fjallað verður um börn á
sjúkrahúsum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.38330 í vikulokin. Umsjón:
Edda Andrésdóttir. ólafur
Geirsson, Jón Björgvinsson
og Árni Johnsen.
15.30 Tónleikar. Fflharmonfu-
svcitin f Brno leikur polka
og tékkneska dansa eftir
Bedrich Smetana; Frantisek
Jílek stjórnar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin.
Vignir Sveinsson kynnir.
17.00 Tannvernd barna. bor-
grfmur Jónsson trygginga-
tannlæknir flytur síðara
erindi sitt.
17.20 Tónhorn. Umsjón:
Guðrún Birna Ilannesdóttir.
17.40 Söngvar í léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Vcðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 „Góði dátinn Svejk“ Saga
eftir Jaroslav Ilasek í
þýðingu Karls ísfelds. Gísli
Halldórsson leikari ies (16).
20.00 Hljómplöturabb. Þor-
stcinn Hannesson kynnir
sönglög og söngvara.
20.50 „Við ána“, smásaga eftir
Kristmann Guðmundsson.
Hjalti Rögnvaidsson leikari
les.
21.05 Dansasvfta eftir Béla
Bartók. Ungverska ríkis-
hljómsveitin lcikur; Janos
Fprpnr^ilf cti
21.20 Kvöldljóð! Tónlistarþátt-
ur í umsjá Ásgeirs Tómas-
sonar og Helga Péturssonar.
22.05 Kvöldsagan: „Gróða-
vegurinn“ eftir Sigurð
Róbcrtsson. Gunnar Valdi-
marsson les (20).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Danslög.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
' LAUGARDAGUR
2. júní 1979
16.30 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Heiða
Níundi þáttur.
býðandi Eiríkur Haralds-
son.
18.55 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og vcður
20.25 Auglýsingar og
dagskrá
20.30 Stúlka á réttri leið
20.55 Eigum við að dansa?
Nemendur úr Dansskóla
Ileiðars Ástvaldssonar
sýna.
Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
21.30 Aldrei að gefa cftir
(Sometimes A Great
Notion)
Bandarfsk bíómynd frá
árinu 1972.
Leikstjóri Paul Newman,
og Icikur hann aðalhlut-
verk ásamt Hcnry Fonda
og Lec Rcmick.
Sagan gerist f
Oregon-fylki. Skógarhöggs-
menn eru í verkfalli, en
Stamperfjölskyldan, sem á
nytjaskóg, er staðráðin í að
fleyta timbri sínu til sögun-
armyllunnar, hvað senj það
kostar.
býðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
22.20 Dagskrárlok