Morgunblaðið - 02.06.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979
7
Frásögn Postulasögunnar
af hvítasunnuundrinu og
öðru því sem gerðist þann
dag lýkur svo: „Og þeir
héldu sér stöðugt við
kenningu postulanna og
samfélagið og brotningu
brauðsins og bænirnar".
Hér var samfélag, hér
var eining, enda haföi
meistari þessara manna
sagt kveldiö fyrir kross-
festinguna: „Allir eiga þeir
að vera eitt“, og fagurlega
höfðu þeir varðveitt ein-
inguna fyrst í stað og þó
aöeins í fáein ár.
Fyrstu stóru átökin urðu
milli Páls postula og Jak-
obs bróður Jesú, en hvor-
ugur þeirra hafði fylgt
honum í lifanda lífi hans.
Til verulegs klofnings inn-
an kristninnar kom þó
fyrst síðar og nú er svo
komið, sem allir vita, að
sértrúarflokkar og kirkju-
deildir eru fleiri en svo aö
aörir en fróðir menn mjög
um þau efni kunni á því
skil.
Eftir því sem manna-
setningum um Krist hefir
fjölgar, hefur sundrungin
vaxið. Eftir því sem hin
kirkjulega guðfræði hefur
reyrt fastari böndum
frjálsa hugsun, hefur
flokkun innan kristninnar
fjölgað. Jöfnum skrefum
viö það, aö kirkjuþing —
og fundir — hafa sam-
þykkt fleiri og fleiri skilyrði
fyrir sáluhjálp kristinna
manna, hefur þeim mönn-
um sífjölgað, sem hafa
horfið úr röðum „réttrú-
aðra“. Tvö dæmi vil ég
nefna nýleg aö kalla má.
Ekki eru margir áratugir
liðnir síöan sá úrskurður
páfagarös var gefinn út,
aö sáluhjálparskilyröi væri
rómv. kaþ.mönnum að
trúa því, aö María móðir
Jesú hafi verið eingetin
eins og sonur hennar og
engan jarðneskan föður
átt. Nærri má geta, aö slík
krafa og þá einnig
kenningin um líkamlega
himnaför Maríu hljóta að
vera nærgöngular sam-
vizku góöra og hugsandi
kaþólskra manna. Það er
ekki kommúnistum einum
eða vinstrisinnuðu fólki að
kenna, hve stórum fer
fækkandi í röðum ka-
þólskra manna á Spáni
„kaþólskasta landi
Evrópu", einkum á Norð-
ur-Spáni.
í löndum mótmælenda
hefur verið mikið unnið og
markvisst í átt til einingar
á síðari árum, en einnig
þar hafa mönnum oröið
alvarleg mistök á. Á fjöl-
mennu kirkjuþingi í Amst-
erdam skömmu eftir að
síðari heimsstyrjöld lauk
og mönnum var Ijós
brennandi nauðsyn á ein-
ingu innan kristninnar, var
gerð sú krafa til trúar á
Jesúm Krist sem Guð, aö
sízt var til þess fallin
stuðla, að einingu krist-
inna manna. Nýlega birti
Mbl. frétt af skoðana-
könnun í Bretlandi, sem
leiddi í Ijós nokkuö vax-
andi guðstrú þar í landi,
en stórlega minnkandi trú
manna á guðdóm eða ein-
stætt guðssonareðli
Krists, eins og rétttrúnað-
urinn kennir. Svo mun
víðar.
Nú er eðlilegt að einhver
vilji minna mig á, að ég
eigi aö skrifa hugvekju á
hátíð andans, hvítasunnu.
Nei, ekki hef ég gleymt
því, en kirkjukenningin um
heil.anda sem „þriðju per-
sónu guödómsins" hefur
orðið Þrándur í Götu ein-
ingar innan kristninnar.
Leitum til frumheimild-
anna, frumkristninnar
sjálfrar áður en kirkjuþing
tóku að semja kenningar
um heil.anda, sem þeim
vísu mönnum var álíka
erfitt að skilgreina og
venjulegu fólki aö skilja.
Þar veröa fyrir mér tvær
meginkenningar: Önnur
sú, aö heil.andi sé starfs-
tæki Guðs á jörðu, tæki
hans til handleiöslu á
málefnum og mönnum.
Hins vegar sú sem mörg-
um ritningarorðum má
styöja, aö heil.andi sé
beinlínis andi hins upp-
risna Krists, sem lofað
hafði því, þegar jöröin
útskúfaöi honum og myrti
hann, aö aldrei skyldi
hann yfirgefa jarðneska
bræður og systur. Enda
trúðu menn því í frum-
kristni og síðan, aö þótt
Kristur væri með blóðugu
ofbeldi hrifinn frá starfi í
blóma manndómsáranna,
mundi hann frá æðra Ifs-
sviði halda starfi sínu
áfram. Þeir menn hinnar
fornu kirkju, sem liföu og
hrærðust í þessari sann-
færingu, höföu vitanlega
enga þörf fyrir þá kenn-
ingu seinni alda, að
heil.andi sé þriðja persóna
hins þríeina Guðs. „Krist-
ur, Krists er ég. Lát það
nafn þér nægja“ (My-
ers-Smári). Deilur um,
hver heil. andi sé, hafa
ekki hvað síst orðiö til að
kljúfa kirkju Krists, hindra
einingu hennar.
Einingin hefur að sjálf-
sögðu rofnað innan ann-
arra trúarbragða en
kristninnar. Búddha-
dómur, sem að eöli er
umburöarlyndastur allra
trúarbragöa, klofnaði í
tvær meginstefnur. Innan
Hindúismans, sem kom
fram sem mótvægi gegn
Búddhadómi í heimkynni
hans, eru margar stefnur
ráðandi. Og eftir það, sem
gerzt hefur í íran síðustu
mánuöi, er Ijóst, hver
klofningur hefur orðið í
íslam eftir daga Múham-
eös.
Ber þetta útaf fyrir sig
aö harma? Nei. Fjölbreytni
trúarhugmyndanna ber
vott um að auðlegð trúar-
heimsins og umfram allt
vott um fjölbreytni mann-
lífsins og hæfileika
mannsins til að hugsa á
ólíkum leiöum, hugsa
sjálfstætt og láta ekki leið-
ast í blindni af því, sem
menn finna aö þeir geta
ekki goldið jáyröi viö.
Fjölbreytnina og skoö-
anaágreininginn um trúar-
atriöin ber ekki að harma,
heldur það trúarofstæki,
aö þola ekki öðrum að líta
öörum augum á þau efstu
rök, þá huldu dóma, sem
viö sjáum öll aðeins svo
„sem í skuggsjá og í
óljósri mynd“ (Páll post-
uli). Ef okkur aðeins er
Ijóst, hve lítið viö vitum
um efstu og æöstu rök, þá
ætti að verða mögulegt að
menn hættu að fjandskap-
ast vegna skoðanaágrein-
ings og hrokinn yfir að vita
allt sjálfur aö hjaöna, þol-
inmæði og umburðarlyndi
í þeirra garð, sem öðruvísi
trúa, að vaxa.
Sagan sýnir okkur, að á
öllum sviðum mannlífs
hefur umburðarleysið
valdið ómælanlegu böli,
hvergi þó fremur en á sviði
trúarbragðanna, sem ættu
þó aö vera öflugasta ein-
ingarafl mannskepnunnar
á jöröu.
Síðasta kveldið sagöi
Jesús við lærisveinana, er
hann horföi fram til kom-
andi ára og alda: „Allir
eiga þeir að vera eitt“.
Eitt, sagöi hann, en ekki
eins. Til þess sá hann of
langt.
Gleðilega hátíð anda og
einingar.
Kappreiðar
félagsins verða haldnar II. hvítasunnudag á
Skeiðvelli félagsins að Víðivöllum og hefst
kl. 13.30, meö góöhestasýningu og keppni í
A. og B. flokkum. Sýning og keppni
unglinga í hestamennsku.
Kl. 14.30 hefjast keppnisgreinar í: skeiöi 150
m og 250 m, stökki 250 m, 350 m og 800 m.
Brokk 800 m. Þarna koma fram 180 hestar og
veröur afar hörö keppni í öllum hlaupunum,
og ekki síður í góöhestakeppninni. Hverjir
veröa dæmdir bestu hestar í Reykjavík 1979?
Veðbanki starfar
Vatnsveituvegur veröur lokaöur á meöan á
mótinu stendur, nema fyrir mótsgesti.
Hesthús Fáks á Víöivöllum, veröa lokuö, kl.
14—17.
Hestamenn, hestaunnendur, komiö og fylgist
meö keppni frá byrjun.
Hestaeigendur sem eru meö gæöinga í
A-flokki, mæti til dóms kl. 13. á laugardag. og
B-flokkur kl. 14.
Dregiö veröur í happdrætti Fáks um kvöldiö.
Vinningar: Hestur og flugferðir.
Hestamannafélagið Fákur.
Gallabuxur
og flauelisbuxur með
fellingum og án fellinga
STÆROIR: 26“ TIL 38“
ALLIR TÍSKULITIR