Morgunblaðið - 02.06.1979, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1979
15
Jóhann
G. sýnir í
Hamra-
görðum
JÓHANN G. Jóhannsson opnar
málverkasýningu í Hamragörðum,
Hávallagötu 24, í dag, 2. júní kl.
15. Á sýningunni eru 40—50 mál-
verk, máluð með vatns- og olíulit-
um. Ekkert þessara málverka hef-
ur áður verið sýnt í Reykjavík.
Sýningunni lýkur 11. júní en hún
er opin milli 15 og 22 daglega.
Jóhann með eitt af málverk-
unum sem verður á syóing-
unni.
Ljósm. Emilía.
AfmælishappdrættiSjálfstæðisflokksins:
Dregið eftir viku
Afmælishappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins er nú í fullum
gangi, enda verður dregið eftir 7
daga, þ.e. 9. júní. Sala miða hefur
gengið vel, en enn eiga margir
eftir að gera skil á heimsendum
miðum og fer því að verða skamm-
ur tími eftir til að koma því í
kring. Skrifstofa happdrættisins
er í Sjálfstæðishúsinu, Háaleitis-
braut 1, og mun hún sjá um að
senda miða og sækja greiðslur til
þeirra, sem óska eftir því.
Skrifstofan er opin í dag kl. 13
til 17 og sfminn er 82900.
(Frá SJál(KtæðÍHflokknum).
Olíukostnaður
8-900 þúsund
í frétt Mbl. í gær um hitaveitu-
mál íbúa í Setbergslandi í Hafnar-
firði slæddist inn prentvilla, þar
sem getið er um olíukyndingar-
kostnað fyrir 140 fermetra ein-
býlishús. Kostnaðurinn er
800—900 þúsund krónur á ári.
Þetta leiðréttist hér með.
0
INNLENT
Rainbow Warrior
mættur til leiks
„RAINBOW Warrior“, skip bar-
áttumanna gegn hvalveiðum,
lagði að bryggju f Reykjavfk um
hádegisbilið f gær. Þetta er f
annað skipti sem skipið kemur til
íslands f þeim tilgangi að trufla
veiðar fslenzkra hvalveiðiskipa.
Að sögn Allan Thorntons, tals-
manns umhverfisverndarsamtak-
anna „Greenpeace“ er hópurinn,
20 manns, nú betur f slaginn
búinn þar sem áhöfn er hæfari en
áður og hefur auk þess yfir að
ráða nýjum hraðskreiðum gúm-
báti er stöðugt mun fylgja einu
hvalveiðiskipanna eftir.
Geithellnahreppur:
Kosið
annan
sunnudag
KJÖRSTJÓRN Geithellnahrepps
hefur auglýst að uppkosningar til
hreppsnefndar og sýslunefndar
skuli fram fara sunnudaginn 10.
júní n.k.
Kosið verður eftir kjörskrá
þeirri óbreyttri, sem kosið var
eftir hinn 25. júní 1978 og um
sömu framboðsíista.
Félagsmálaráðuneytið úr-
skurðaði í fyrravor að kosningin
í Geithellnahreppi hefði verið
ólögleg og skyldi endurtekin.
Dráttur hefur orðið á því að
kosningin færi fram aftur, m.a.
vegna þess að kjörstjórnin sagði
af sér.
Markmiðið með leiðangri um-
hverfisverndarmanna til íslands
er að þessu sinni tvíþætt. Auk
þess sem „Rainbow Warrior" mun
eftir fremsta megni reyna að
hamla veiðitilraunum hvalveiði-
skipa hyggjast aðstandendur beita
sér fyrir áróðurs- og upplýsinga-
herferð innanlands, með bækling-
um og fundarhöldum, og reyna að
hafa áhrif á stefnumótun hér-
lendra ráðamanna í hvalveiðimál-
um.
Hinn nýi gúmbátur áhafnarinn-
ar er tuttugu og átta feta langur
og mun hafa verið notaður við
olíupaila í Norðursjó með góðum
árangri. Er hann búinn raftækja-
kosti sem gerir honum kleyft að
vera í sambandi við móðurskipið í
hundrað míina fjarlægð. Báturinn
getur siglt með þrjátíu til fjörutíu
sjómílna hraða á klukkustund og
mun í sífellu sigla í milli er
hvalskip reynir að athafna sig.
Samkvæmt upplýsingum Allan
Thorntons gera leiðangursmenn
sér vonir um að takast megi að
draga úr afla íslenzkra hvalveiði-
skipa í ár um tuttugu af hundraði.
Hann sagði að þó væri ekki síður
mikilvægt að vekja almenning til
umhugsunar um þá hættu er
hvalastofnum stafaði af veiðinni
og einkum þó að efla rannsóknir á
stöðu þeirra við ísland.
Næsti fundur alþjóða hvalveiði-
ráðsins verður haldinn í London 9.
júlí og mun Þórður Ásgeirsson
ráðuneytisstjóri verða forseti
hennar. Talsmenn „Greenpeace"
kváðu því miklu varða hvernig
íslendingar beittu áhrifum sínum
á ráðstefnunni.
Guðrún Á. Símonar tók lagið fyrir blaðamenn á fundinum. Söng hún m.a. lagið Aprés Toi, lagið sem varð heimsfrægt
fyrir fáum árum f söngvakeppni sjónvarpsstöðva f Evrópu. Guðrún mun einnig syngja það Iag á kvöldskemmtuninni.
Kvöldskemmtim með GuðrúnuA.
og kompaný íleltum dúrogmoU
GUÐRÚN Á. Sfmonar efnir til
kvöidskemmtunar í iéttum stíl f
Háskólabíói miðvikudaginn 6.
júnf n.k. kl. 7.15. Ber skemmtunin
heitið Kvöldskemmtun með Guð-
rúnu Á. og kompany í léttum dúr
og moll.
Guðrún mun flytja fjölmörg létt
lög, innlend og erlend, sum heims-
kunn dægurlög og söngleikjalög.
M.a. mun hún syngja lög sem hún
söng fyrst með hljómsveit Bjarna
Bö. Af söngieikjalögum á efnis-
skránni sem Guðrún og aðrir sem
fram koma, munu syngja, má
nefna lög úr West Side Story,
Sound of Music og Oklahoma.
Guðrún hefur fengið til liðs við sig
aðra listamenn sem munu koma
fram á milli atriða hennar á
kvöldskemmtuninni. Eru það Þur-
íður Pálsdóttir, Guðmundur Jóns-
son, Magnús Jónsson, Kristín Sæ-
dal, Guðrún Kristinsdóttir, Árni
Elvar, félagar úr kór Söngskólans í
Reykjavík og Árni Johnsen. Þá
mun Guðrún að sjálfsögðu mæta
með nokkra af köttum sínum og
tvo hunda og munu dýrin bregða á
leik á sviðinu.
Dagskrá skemmtunarinnar hefgt
með því að Guðrún syngur lögin
My own og All The Things You Are
við undirleik Árna Elvar og lögin
Little Things Mean a Lot og Lisa
við undirleik Guðrúnar Kristins-
dóttur.
Að loknu hléi hefst dagskráin
með því að Þuríður Pálsdóttir og
Guðrún Á. flytja Kattadúettinn.
Félagar úr kór Söngskólans í
Reykjavík hefja lokaþátt skemmt-
unarinnar með því að syngja laga-
syrpuna Bless Them All, Wish Me
Luck og Well Meet Again, lög frá
tímum beggja síðustu heimsstyrj-
alda. Lokalagið mun Guðrún A.
syngja ásamt Söngskólakórnum,
Auf Wiedersehen umkringd hund-
um og köttum. Á milli söngatrið-
anna koma fram og leika listir
sínar kettirnir John John, Nino og
Tíbrá og hundarnir Puskin og
Rydy.
Á blaðamannafundi sem Guðrún
hélt kvaðst hún myndu hafa nokk-
urskonar tískusýningu fyrir feitt
fólk, jafnhliða söngskemmtuninni.
„Eg verð tískusýningardaman og
kem fram í 4—5 mismunandi
lýólum og skipti líka um hárkollu.
Eg ætla að vera svolítið smart,“
sagði Guðrún.
Miðasala á þessari kvöld-
skemmtun í léttum dúr og moll
með Guðrúnu Á. og kompaný hefst
í Háskóiabíói kl. 16 þriðjudaginn 5.
júní, daginn fyrir tónleikana.
Spjallað við nýjan útvarpsþul:
Kópavogsbú-
ar ekki á eitt
sáttir
um miðbæjar-
skipulagið
Ekki munu Kópavogsbúar allir
á eitt sáttir um hugmyndir að
skipulagi miðbæjarsvæðis Kópa-
vogs. Borgarafundur um þetta
mál var haldinn s.l. mánudag og
stóð hann fram yfir miðnætti og
var þá frestað. Ákveðið hefur
verið að fundinum verði fram
haldið þriðjudagskvöldið 5. júní
og hefst hann kl. 20.30 í
Víghólaskóla.
Einnig mun sýningin að
Hamraborg 1, þar sem skipulags-
hugmyndirnar eru kynntar, verða
framlengd til fimmtudagsins 7.
júní.
Er í uppeldi hjá
Jóhannesi og Gerði
Útvarpshlustendur hafa eflaust tekið eftir þvf að ný rödd hefur
hljómað við lestur tilkynninga og frétta nú sfðustu dagana, en nýr
þuiur hefur verið f þjálfun til að taka að sér afleysingastörf f sumar.
Þulurinn er sr. Kristján Róbertsson Fríkirkjuprestur og innti Mbl.
hann eftir þvf hvað hefði komið honum til að huga að þessu starfa:
— Starf mitt er nú frekar
rólegt yfir sumarmánuðina og
gefur tækifæri til að sinna ýms-
um öðrum efnum og því datt mér
í hug að prófa þetta starf. Ég
gerði það með samþykki og
samráði við safnaðarstjórnina
þannig að þularstörfin koma
ekki niður á mínu aðalstarfi,
enda hefi ég alls ekki í hyggju að
hætta því.
— Ég býst við að vera við
þetta í óákveðinn tíma og verður
sjálfsagt mest þörfin nú yfir
sumarmánuðina og síðan ræðst
það hvort leitað verður til mín
síðar ef afleysingamann vantar
við önnur tækifæri.
Sr. Kristján Róbertsson er
ekki alveg ókunnur útvarps-
hlustendum, en hann sagðist
hafa komið fram í útvarpi á
skólaárum sínum er hann var
igripamaður og las stundum
aðsent efni, en ekki kvaðst hann
hafa verið við þularstörf áður.
— Þessa fyrstu tvo daga var
ég í uppeldi hjá Jóhannesi Ara-
syni og Gerði G. Bjarklind og
vonast ég tii að komast smám
saman inn í starfið og lízt bara
vel á það, sagði sr. Kristján að
lokum, en í dag mun hann m.a.
koma viö sögu í þættinum í
vikulokin.