Morgunblaðið - 02.06.1979, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1979
17
Goðsögnin um Niccolo Pagan-
ini, sem um þessar mundir er
framhaldsþáttaefni sjónvarpsins,
hefur sveipað hann dularfullum
töfraljóma. Þessi töfraljómi hef-
ur tryggt honum sess sem mesta
fiðlusnillingi allra tíma, og úr
þeim sessi verður honum sjálf-
sagt ekki velt, þótt ekki væri
nema vegna þess að Paganini
situr öruggur í órjúfandi þögn
þess tíma þegar hljóðritanir voru
ekki komnar til sögunnar, þannig
að samanburður við menn eins og
Heifetz, Menhuin og Oist-
rach-bræðurna, svo einhverjir
séu nefndir, kemur ekki til
greina. Það kann að vera fánýtt
að leita ævinlega að þeim, sem er
mestur og beztur, því að slíkt mat
á listamönnum verður ávallt háð
tilfinningum og getur ekki orðið
hlutlægt. En það breytir ekki þvi
að frægð og orðstír Paganinis
sem mesta fiðlusnillings allra
tíma hafa staðizt.
Ein skýringin á þessari lífseigu
goðsögn eru eflaust hinar gífur-
legu vinsældir, sem Paganini átti
að fagna í samtíð sinni. Hann
kunni ekki síður að spila á áheyr-
endur sína en fiðluna, og notfærði
sér margs konar brellur til að
fanga hug þeirra þegar tónelska
þeirra dugði ekki til. Margar
sögur eru til af því hvernig
„poppari
nítjándu
aldar-
innar"
Paganini tókst að fá fíngerðar og
yfirliðagjarnar yfirstéttarkonur
til að missa glóruna á þeim
viðkvæmu augnablikum er hann
horfði á þær seiðandi augum yfir
bogann sem dróg angurblíða tóna
úr fiðlunni. Hann lagði Evrópu að
fótum sér í fjögurra ára tónleika-
ferð árin 1928 til 1932, og kannski
er ekki fjarri lagi að segja, að í
því ferðalagi hafi Paganini orðið
nokkurs konar „poppari nítjándu
aldarinnar". Tröllasögurnar voru
komnar á undan honum hvar sem
hann fór og alls staðar hópaðist
að honum múgur og margmenni.
Paganini mun hafa verið maður
fégjarn, og á þessu mikla ferða-
lagi safnaði hann auði ekki síður
en aðdáendum.
Niccolo Paganini var fæddur í
Genúa 27. október árið 1782.
Faðir hans var efnalítill kaup-
maður, músíkalskur og tilfinn-
ingaríkur. Drengurinn hóf reynd-
ar fiðlunámið hjá föður sínum, en
var brátt komið til hinna ágæt-
ustu kennara. Ekki er þó talið að
kennararnir hafi haft ýkja mikil
áhrif á þroska hans, því að
pilturinn var þrjózkur og gjarn á
að fara sínar eigin leiðir. Hann
var ekki síður uppreisnargjarn
gagnvart foreldrum sínum, og
sextán ára gamall losaði hann sig
úr viðjum fjölskyldulífs og regiu-
bundins náms, strauk að heiman
og lagði land undir fót með
fiðluna undir hendinni. Hann
flakkaði vítt og breitt um Ítalíu
um árabil og lifði af því sem
hrifnir áheyrendur létu af hendi
rakna, og ekki fara sögur af því
að hann hafi liðið skort á þessu
tímabili ævi sinnar.
Fjárhættuspil var ein mesta
ástríða Paganinis og svo mikið
var hann reiðubúinn að leggja í
sölurnar fyrir möguleikann á
skjótfengnum peningum, að hann
spilaði jafnvel fiðlunni út úr
höndunum á sér. En hin ágæta
lífsregla um nýjan skilding með
nýjum degi sannaði sig, því að
von bráðar var honum gefin
forláta Guarnerius-fiðla, sem enn
þann dag í dag er þjóðargersemi
á Italiu.
Á tímum Paganinis tíðkaðist
sá siður meðal aðalsfólks á Italíu,
sem og annars staðar í Evrópu,
að halda tónlistarmenn, rétt eins
og nútímafjölskyldur eiga hljóm-
burðartæki. Þannig lifði Paganini
löngum í góðu'yfirlæti, ekki sízt í
skjóli hefðarkvenna eins og Elízu
Bónaparte Bacciochi keisarasyst-
ur og prinsessunnar í Lucca.
Hann var mjög upp á kvenhönd-
ina og á árunum upp úr aldamót-
um stóð hann í svo rómantísku
sambandi, að hann lokaði sig frá
umheiminum, bjó í kyrrþey með
ástkonu sinni og lék ekki opinber-
lega. Á þessu tímabili sinnti hann
tónsmíðum af miklum krafti, og
samdi þá meðal annars einleiks-
kaprissurnar tuttugu og fjórar,
sem löngum hafa verið taldar
meðal helztu tónverka fyrir fiðlu,
og bæði Liszt og Schumann settu
síðar út fyrir slaghörpu. Meðal
annarra merkra verka eftir Pag-
anini má telja Moto Perpetuo,
konsertinn í E-dúr; og tvo flokka
með sex sónötum hvorn fyrir
fiðlu og gítar, en Paganini var
einnig frábær gítarleikari.
Paganini átti einn son barna og
hafði á honum svo mikið dálæti
að dýrkun stóð næst. Síðustu ár
ævi sinnar bjó hann á sveitasetri
sínu í námunda við Parma, og
hélt sig ríkmannlega, enda var
auður í garði. Paganini var alla
tíð veikbyggður og heilsuveill, og
árið 1834 tók heilsu hans að
hraka mjög og síðustu árin lék
hann sjaldan opinberlega.
Niccolo Paganini andaðist úr
tæringu í Nizza árið 1840.
greindum aðgerðum með setningu
bráðabirgðalaga eða eftir öðrum
leiðum sem ríkisstjórnin hefur á
sínu valdi. Framsóknarflokkurinn
leggur hins vegar áherzlu á að
slíkar aðgerðir verða að vera
víðtækar, ef þær eiga að ná þeim
árangri, sem að er stefnt."
Steingrímur Hermannsson lagði
á það áherzlu á fundinum að
bráðabírgðalög yrðu að vera all-
víðtæk til þess að þau fengju
staðizt. Hann var spurður að því í
ljósi þeirrar staðhæfingar að
nauðs.vn væri aðgerða á allra
næstu dögum, hvort von væri um
að samstaða næðist innan ríkis-
stjórnarinar á þeim tíma um
aðgerðir að gagni. Steingrímur
kvaðst sannarlega ekki vonlaust
um að samstaða næðist innan
ríkisstjórnarinnar. Hann kvað sér
Fr amsóknar flokkurinn:
Neyðarástand og holskefla
óðaverðbólgu blasir við
MEGININNTAK vandans er að í þjóðfélaginu er að skapast neyðarástand, olíuleysi vofir yfir, skortur á
áburði og ennfremur vantar fóðurbæti til þess að drýgja hey í stórum landshlutum. Þetta er allt á því stigi,
að jaðrar við neyðarástand, sem taka mun tíma að leysa. Astandið er að verða óþolandi og því verður
ríkisstjórnin að grípa inn í á allra næstu dögum. — Á þessa leið mæltist Tómasi Árnasyni
fjármálaráðherra á blaðamannafundi, scm hann og Steingrímur Ilermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins. hoðuðu til í gær. „Við viljum ekki fallast á þá skoðun, að ekki sé fullkomlega eðlilegt að setja
bráðahirgðalög til þess að lcysa þennan vanda. Við föllumst ekki á. að ekki megi setja lög til þess að koma
í veg fyrir tjón. sem seint eða aldrci verður bætt.“ sagði Tómas.
Tilefni þess að forysta Fram-
sóknarflokksins, formaður hans,
ritari, gjaldkeri og framkvæmda-
stjóri boðuðu til blaðamannafund-
ar var fundur framkvæmdastjórn-
ar flokksins, sem haldinn var í
f.vrradag. Þar var samþykkt yfir-
lýsing um ástandið. í yfirlýsing-
unni er fyrst vitnað til samstarfs-
yfirlýsingar stjórnarflokkanna,
lýst er markmiðum um hjöðnun
verðbólgu og um að tryggja at-
vinnuöryggi. Fagnað er því að
tekizt hafi að afgreiða lög um
stjórn efnahagsmála og „af-
greiðslu greiðsluhallalausra fjár-
laga“. Hins vegar segir að launa-
stefnan hafi farið úr böndunum,
m.a. með lyftingu launaþaks, fyrst
hjá Reykjavíkurborg og síðan stig
af stigi.
Ljóst er, segir í yfirlýsingunni,
að nú blasir við ný holskefla
óðaverðbólgu. Þá er minnt á til-
lögur framsóknarmanna í ríkis-
stjórn, sem lagðar voru fram 15.
maí í 7 liðum. Tillögurnar hafa
áður verið birtar í Morgunblaðinu,
en síðan segir:
„Framsóknarflokkurinn vekur
sérstaka ath.vgli á því neyðar-
ástandi sem er að skapast vegna
vinnudeilna og harðinda. Leggur
flokkurinn áherzlu á að ríkis-
s^jórnin grípi þegar til allra til-
tækra ráða því til lausnar. Gífur-
legar verðhækkanir á olíuvörum
auka enn á vandann.
Framsóknarflokkurinn er
reiðubúinn að standa að ofan-
hafa virzt sem samstarfsflokkar
Framsóknarflokksins'i ríkisstjórn
hafi smátt og smátt verið að gera
sér ljóst, að þessi mikli vandi yrði
ekki leystur nema með forystu
ríkisvaldsins. Hann kvaðst von-
góður um að það tækist.
Tillögur framsóknarmanna frá
15. maí, sem áður er getið, voru að
láglaunamenn fengju þá grunn-
kaupshækkun, sern aðrir hefðu
fengið, að vísitöluþak yrði sett á
laun, að grunnkaup yrði óbreytt út
árið og vinnudeilum frestað, að
verðlagshækkanir yrðu takmark-
aðar, að skyldusparnaður yrði
settur á hærri laun, að undirbún-
ingur hæfist að gerð heildarkjara-
samninga, sem m.a. veröi einfald-
aðir og að þeir giltu í næstu tvö ár.
Svæðamótið í Luzem:
Helga nægir jafntefli
í síðustu umferð til
að komast í úrslitin
BIÐSKÁKIR voru tefldar í gær
á svæðaskákmótinu í Luzern í
Sviss. Ilelgi Ólafsson gerði jafn-
tefli við stórmeistarann Pach-
mann og na'gir Ilelga jafntefli í
síðustu skákinni til þess að
komast í úrslitin. I>á gerði
Margcir Pétursson jafntefli við
Bcla Soos.
Staðan í riðlunum er.sem hér
segir fyrir 11. og síðustu umferð-
ina í riðlakeppninni:
A-riðill: Hiibner 7,5 vinningar í
9 skákum, Guðmundur Sigur-
jónsson 6,5 vinningar i 10 skák-
um, Wedberg 6 vinningar í 9
skákum og Kagan 5,5 vinningar í
9 skákum. Þessir fjórir menn eru
öritggir í úrslitin.
B-riðill: Grúnfeld 7 vinningar í
10 skákum, Karlsson 6 vinningar
í 9 skákum, Helgi Ólafsson 5,5
vinningar í 9 skákum, Hoi 5,5
vinningar í 9 skákum og Helmers
5 vinninga’- í 9 skákum.
Guðmundur hefur lokið sínum
skákum, hann vann Soos í 9.
umferð en gerði jafntefli viö
Hammer í 10. umferðinni. Mar-
geir teflir við Hammer í síðustu
umferðinni en Helgi við Dúk-
stein.
Jean-Pierre Jacquillat
Níunda sinfónía
Beethovens
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur tónleika í Háskólabíói n.k.
fimmtudag, 7. júnf. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30.
Verkefni á þessum tónleikum er
aðeins eitt og er það sinfónía nr. 9
eftir Beethoven. Stjórnandi á
þessum tónleikum er franski
hljómsveitarstjórinn Jean-Pierre
Jacquillat. Hann hefur verið hér
oft áður og stjórnað Sinfóníu-
hljómsveit Islands í Reykjavík og
víðar.
Söngsveitin Fílharmónía syngur
á þessum tónleikum, en Marteinn
H. Friðriksson hefur æft kórinn
og undirbúið hann fyrir þessa
tónleika. Söngsveitina skipa nú
um 150 manns.
Einsöngvarar verða Sieglinde
Kahmann, Ruth Magnússon,
Sigurður Björnsson og Guðmund-
ur Jónsson.
Tónleikarnir verða endurteknir
í Háskólabíói laugardaginn 9. jui i
1979 og hefjast þeir kl. 15.00