Morgunblaðið - 02.06.1979, Page 19

Morgunblaðið - 02.06.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979 19 Hvítasunnukappreiðar Fáks: Búist við geysilegri skeiðkeppni Mót sumarsins eru hafin. Tvennar kappreiðar hafa verið haldnar sunnanlands og norðlend- ingar munu vera komnir af stað líka. Fákur hélt sínar vor- kappreiðar 13. maí og Gustur í Kópavogi hafði sitt mót um sfðustu helgi. Fátt var stórra tfðinda á þessum mótum, fá af þekktustu hlaupahrossunum mættu til leiks og enginn markverður árangur náðist. Fyrsta stórmót sumarsins er nú sem fyrr hvftasunnumót Fáks, tveggja daga mót, sem verður haldið nú um helgina, á laugardag og mánudag. Það er alveg óhætt að hvetja fólk til að koma inn að Víðivöllum um helgina, því þar verður hörð og spennandi keppni. Nú mæta mörg af þekktustu hlaupahrossunum, þar á meðal margir hinna stórglæsilegu gæðinga, sem komu fram á degi hestsins fyrir skömmu. Gæðmgar Þrettán gæðingar keppa í A-flokki og tuttugu og þrír í B-flokki. Meðal þekktra hesta í A-flokki eru Garpur og Ljúfur, sem Sigurbjörn Bárðarson situr báða. Sigurbjörn er líka með Brján í B-flokknum og þar er fullt af frægum köppum, t.d. Gullfeti, sem Halldór gullsmiður á og situr, sá frægi og dýri Hannibal, sem Þor- kell Valdimarsson á en Aðalsteinn Aðalsteinsson situr núna, Stormur, Svarti september og f jöldi annarra minna þekktra og sjálfsagt eiga einhverjir í þcim hóp eftir að koma á óvart. Skeið Ekki treysti ég mér til að spá um úrslit í 250 m skeiði, en ég er illa svikinn ef þar verður ekki geysilega skemmtileg keppni. Flestar stærstu stjörnurnar frá síðasta sumri eru með. Fannar kemur, en í skránni er spurningamerki við knapann. Aðal- steinn Aðalsteinsson sem sat Fannar tvö síðustu sumur situr nú Ölver, þann sem varð annar á landsmótinu í fyrra. Alli á Hofi kemur með Skjóna, Siggi Sæm. með Þór, Erling með Vafa og Storm (Formanns-Grána), Trausti Þór með Villing og auk þeirra er fjöldi annarra snjallra vekringa, t.d. Ás, Elísa, Funi og Austri. Alls eru um þrjátíu keppendur í 250 m skeiði, en auk þess verður keppt í 150 m nýliðaskeiði og eins og gefur að skilja er fátt um þekkta vekringa þar. Og svo eins og til að tryggja að skeiðkeppnin haldi fullri reisn koma gömlu kapparnir Geiri í Gufunesi og Siggi Óla í Laugarnesi með hesta í keppnina. Brokk í brokk eru skráðir nítján hestar, þeirra á meðal Blesi og Fasi, sem báðir eru vanir keppnishestar. Keppni í brokki á sér ekki langa sögu hérlendis og vantar nokkuð á að hún hafi orðið eins skemmtileg og við mætti búast. Brokkurum virðist ekki sýndur fullur sómi, með örfáum undantekningum koma þeir illa þjálfaðir til leiks og sumir virðast ekki eiga erindi í keppni. Vonandi verður þetta rekið ofan í mig núna á hvítasunnukappreiðunum. Folahlaup Eins og að líkum lætur eru fáir þekktir hestar í folahlaupi svona snemma sumars, þó eru nokkrir svo sem Sáttur, Don, og Sesar frá Akureyri. Það bregst þó sjaldan að í folahlaupi verði spennandi keppni. Skráðir þátttakendur eru átján. 350 m stökk Þar er fyrst að nefna stórstjörn- urnar Maju og Gjálp, sem báðar hlupu á 24,7 sek. í fyrra og báðar eru með sömu knapa. Milli þeirra verður væntanlega hörð keppni ekki er útilokað að einhverjir blandi sér í þeirra uppgjör, t.d. Stormur Hafþórs Hafdal, sem var einn af allra fljót- ustu folunum í fyrra. Knapar í þessu hlaupi eru flestir kornungir og léttir og af þeim sem sátu fljótustu hiauparana í fyrra eru aðeins Gunnar Sigurðsson og Jósep Valgarð með núna. Fróðlegt verður að sjá hvort má sín meira, léttleiki þeirra ungu eða reynsla og harka þeirra eldri. Þátttaka er ekki mikil, 14 eru skráðir. Þau tíðindi hafa síast út að hvorki Nös né Loka séu fylfullar eins og til stóð og megi jafnvel vænta þess að þær komi til keppni í sumar. Methafinn Glóa mun vera meidd á fæti og því er hún fjarverandi nú. 800 m stökk Bestum tíma í fyrra náði Þróttur, sem Tómas Ragnarsson á og situr sjálfur. Þeir eru með núna, áSamt fjölda annarra þekktra hesta og ágætra knapa. Baldur Baldursson situr Rosta og Jerimías, Þórður Þorgeirsson situr Frúar-Jarp og Hörður Harðarson, sem er reynslu- minnstur þeirra sem hér eru taldir, hleypir þeim ágætu hlaupurum Reyk og Tinnu. Og svo kemur Einar Karelsson og heldur uppi merki þeirra „gömlu" og hleypir hesti sem er skráður undir nafninu Gauti en ég gæti trúað að ætti að vera Gutti, sem hljóp stundum í fyrra með ágætum árangri, varð í 4.-5. sæti á afrekaskrá ársins ásamt Rosta. Þótt Tómas sitji þann hest sem bestum tíma náði í fyrra er enginn vafi að hinir knaparnir hafa fullan hug á að sýna honum hvernig hestar þeirra hlaupa, séð aftan frá. Úrslitin Þetta eru vangaveltur um þekkt- ustu hrossin og knapana. Eitt af því skemmtilega við kappreiðar er að alltaf má búast við að óþekkt hlaupadýr komi fram á sjónarsviðið og skilji gömlu stjörnurnar eftir. Úrslitin ráðast á Víðivöllum á annan í hvítasunnu. Þar er gott að liggja í grasbrekku í sólskini og blíðu, nú en ef rignir er bara að drífa sig í pollabuxur og regnkápu og koma samt. S.V. GRUNDIG 20" 4613 Loekkun kr.70.500. Áðurkr.499.800. Núúkr.429.300. Vildarkjör Nesco % Útborgun: Mánaðargr.: 20% kr. 86.000 2 X kr. 172.000 30% kr. 129.000 3 X kr. 100.000 40% kr. 172.000 4 X kr. 64.000 50% kr. 215.000 5 X kr. 43.000 60% kr. 258.000 Frjálst innan árs 100% kr. 408.000 (5% staðgr.afsl.) VEXTIR OG KOSTNAÐGR EKKl INNIFALIÐ. • Línumyndlampi. („Black-stripe inline“). Ný og mjög fullkomin gerð. • Einingaverk. Einfaldar allar viðgerðir og gerir þær mögulegar í heimahúsum. • AFC (sjálfvirk tíðnistilling) og AGC (sjálfvirk mögnunarstilling). Þessi atriði tryggja bestu viðtöku hljóðs og myndar. • Kalt kerfi. Straumnotkun aðeins lOOw. (Tækið hitnar minna og endist lengur). • Framvísandi hátalari. (Superphon). Gefur betri hljómburð en hátalari á hlið. • Tónstillir fyrir bassa og diskant. • Valhnotukassi. Stærð 64 X 42 X 45. Þriggja ára myndlampaábyrgð og sjö daga skilaréttur á öllum tækjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.