Morgunblaðið - 02.06.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979
23
að hann muni eftir Lofti biskups-
syni, sem sagt er um að hann kvað
„mæla til manna hvarvetna gott“,
en færri sögur fara af því, að hann
hafi haft viljann til góðra verka.
Orðakonfekt getur verið gott í
hófi, en eitthvað þarf fleira en
sætindin ein, ef vel á að fara. Svo
fór lika fyrir biskupssyni, að hann
hrökklaðist út í Vestmannaeyjar,
en er hann spurði liðsdrátt
Þorvalds, segir í Sturlungu, „ok
þat, at hann ætlaði út í Eyjar,
þóttist hann þar kominn í brunn-
holu“.
Ég veit ekki, hvort ríkisstjórnin
eignast nokkurn tíma dómgreind
Lofts biskupssonar og forðar sér
eins og hann. En hitt þykir mér
líkara, að hún dúsi enn um hríð í
brunnholunni og láti við það eitt
sitja að „mæla til manna
hvatvetna gott“. Eins og á stendur
þýðir það 1,2 milljóna króna
tekjuskerðingu á bónda segir Ingi
á Kárhóli og prísar sinn land-
búnaðarráðherra.
Þegar málefni bænda eru
annars vegar er ríkisstjórn Ólafs
Jóhannessonar minnihlutastjórn.
Hún kemur engu fram sjálf, af því
að hún vill ekkert sjálf. Land-
búnaðarráðherra hefur farið að
dæmi biskupssonar og talar án
afláts og sjaldnast það, sem viti
gegnir. Ekki hvarflar að honum að
leita samráðs og samstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn, sem hann
myndi gera, ef honum væri það
full alvara að vinna bændum gagn
en ekki bara „mæla til þeirra
hvatvetna gott„.
Sighvatur Björgvinsson hafði
það að árásarefni á landbúnaðar-
ráðherra í sjónvarpsþætti fyrir
skömmu, að leitað hefði verið til
stjórnarandstöðunnar í sambandi
við málefni bænda. — „Hver
leitaði þangað?“ greip land-
búnaðarráðherra fram í ekki einu
sinni, heldur tvisvar til þess að
undirstrika fáránleikann í þessari
„ásökun“ og sagði sðan um þá
niðurstöðu Alþingis að gera ekki
neitt í málefnum bænda að hann
hugsaði að samkomulagið í ríkis-
stjórninni „versnaði ekkert við
þetta út af fyrir sig. Þetta er
náttúrlega hlutur sem við höfum
orðið að lifa við, búa við. En að
sjálfsögðu nýtur ríkisstjórnin þá
minna trausts að minnsta kosti
hjá bændum. Þeir hljóta að meta
hana af þessum verkum. En ég vil
andæmla því enn að það hafi verið
Holztu rádf'jatarnir í Iandhúnad-
armálum cr Lúðvík Jóscpssun og
Stctún Jónssón.
um nokkuð samspil stjórnarsinna
og stjórnarandstöðu að ræða.“
Þetta er kjarni málsins.
Landbúnaðarráðherra gerði
enga alvöru tilraun til þess að
vinna því íylgi, að úrbætur
fengjust málefnum bænda. Hann
lcit á sig um erkibiskup, en
íslendingar hafa löngum verið
ráðnir í að hafa boðskap slíkra
að engu, þótt þeir megi heyra
hann. íslendingar hafa verið
þingræðisþjóð í þúsund ár og
skilja að óhjákvæmilegt er að
koma til móts við sjónarmið
stjórnarandstöðunnar, þegar
hún ræður úrslitum í máli. bað
þýðir lítið að ana fram undir
slíkum kringumstæðum á sfðustu
stundu óundirbúið og reyna að
setja öðrum úrslitakosti, þegar
maður hefur staðið sig illa
sjálfur. Og af því súpa bændur
nú seyðið, að landbúnaðar-
ráðherra hefur sveipað um sig
rauðri kápu kardfnálans, en for-
sætisráðherra mátti ekki vera að
þvf að láta þingið starfa. unz
botn fengizt f málefni bænda.
Messur
um hvíía
sunnu
DÓMKIRKJAN: Hvítasunnudagur:
Kl. 11 hátíöarmessa., Sr. Hjalti
Guðmundsson. Kl. 2 hátíðarmessa.
Dómkórinn syngur viö messurnar.
Organleikari Marteinn H. Friöriks-
son. Sr. Þórir Stephensen. Annar í
hvítasunnu: Hátíöarmessa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Sr. Þórir
Stephensen. Hafnarbúðir: Hvíta-
sunnudag kl. 2 messa. Sr. Hjalti
Guömundsson. Landakotsspítali:
Hvítasunnudag kl. 10 messa.
Organleikari Birgir Ás
Guðmundsson. Sr. Þórir
Stephensen.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Hvítasunnudagur: Hátíöarguðs-
þjónusta í safnaðarheimili Árbæjar-
sóknar kl. 11 árd. Jóhanna Möller
altarisganga. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Lesmessa á þriðjudag
kl. 10.30 árd. Beðiö fyrir sjúkum.
L ANDSPÍT ALINN: Hvítasunnu-
dagur: Guösþjónusta kl. 10. Sr.
Karl Sigurbjörnsson
HATEIGSKIRKJA: Hvítasunnu-
dagur: Hátíðarguösþjónusta kl. 11.
Orgeltónlist: J.S. Bach:
Schubler-sálmforleikur B.W.V. 645
— „Vakna, Síons verðir kalla.“
Sálmforleikur B.W.V. 730—731 —
„Sæli Jesú, sjá oss hér“. Sálm-
forleikur B.W.V. 615 úr „Litlu
orgelbókinni" — „í þér er gleði".
Organisti dr. Orthulg Prunner. Sr.
Tómas Sveinsson. Annar
Hvítasunnudagur: Messa kl. 11.
Orgeltónlist: J.S. Bach: Fantasía í
G-dúr B.W.V. 631 úr „Litlu
ÚTVARPSGUÐSÞJÓNUSTAN á hvítasunnudagsmorgun kl. 11
verður f Hallgrímskirkju. Söngstjóri og organisti er Antonio D.
Corveiras. — Prestur er séra Ragnar Fjalar Lárusson. Þessi
sálmar verða sungnir: í Nýju Sálma- í Gl. Sálma-
bókinni: bókinni:
171 248
334 239
332 241
331 240
syngur stólvers. Sr. Guömundur
Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL:
Hvítasunnudagur: Hátíðar-
guösþjónusta kl. 2 að Norðurbrún
1. Sr. Grímur Grímsson.
BREIÐHOLTSPREST AK ALL:
Hvítasunnudagur: Hátíöarguös-
þjónusta kl. 11 f Breiðholtsskóla.
Athugið breyttan messutíma. Sr.
Jón Bjarman.
BÚSTAOAKIRKJA:Hvítasunnu-
dagur: Hátíöarguösþjónusta kl. 2.
Organleikari Guðni Þ. Guðmunds-
son. Sr. Ólafur Skúlason.
FELLA OG HÓLAPRESTAKALL:
Hvítasunnudagur: Hátíðarguðs-
þjónusta í kapellunni aö Keilufelli 1.
ki. 11 árd. Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSASKIRKJA: Hvítasunnu-
dagur: Guðsþjónusta kl. 11. Annar
í Hvítasunnu: Guösþjónusta á
Grensásdeild Borgarspítalans kl.
10.30 árd. Organleikari Jón G.
Þórisson. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Hvítasunnu-
dagur: Hátíöarguösþjónusta kl. 11
árd. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Hátíðarguösþjónusta kl. 14. Sr.
Karl Sigurbjörsson. Annar Hvíta-
sunnudagur: Hátíðarmessa kl. 11,
SELTJARNARNESSÓKN: Hvíta-
sunnudagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 2 e.h. í Félagsheimilinu. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Hvíta-
sunnudagur: Hátíöarmessa kl. 2.
Organisti Sigurður ísólfsson.
Prestur sr. Kristján Róbertsson.
DÓMKIRKJA KRISTS KONUNGS
Landakotí: hvítasunnudagur:
lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl.
10.30 árd. — Lágmessa kl. 2 síðd.
Alla virka daga er lágmessa kl. 6
síöd. nema laugardaga þá kl. 2
síðd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl.
11 árd.
FÍLADELFÍUKIRKJAN:
Hvítasunnudagur: Guðþjónusta kl.
5 síðd. (sjónvarpaö) Klukkan 8
síðd. er almenn guösþjónusta.
Annar hvítasunnudagur: Almenn
guðsþjónusta kl. 8 síöd. —
Söngstjóri og organisti Árni
Arinbjarnarson. Einar J. Gíslason.
KIRKJA ÓHÁÐA SAFNAÐARINS:
Hvítasunnudagur: Hátíðarmessa kl.
11 árd. Séra Emil Björnsson.
ELLIHEIMILID GRUND: Hvíta-
sunnudagur: Messa kl. 10 árd.
Séra Kr. Isfeld.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Hvítasunnudag: Helgunarsamkoma
kl. 11 árd. Bæn kl. 20 og
hjálpræðissamkoma kl. 20.30.
Deildarstjórahjónin tala.
VÍDISTADASÓKN:
Hátíðarguðsþjónusta í kapellu
sóknarinnar í Hrafnistu kl. 11 f.h. á
hvítasunnudag. — Sr. Siguröur H.
Guömundsson.
ST. JÓSEFSSPÍTALI Hafnarfiöi:
Hvítasunnudag: Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR Hafnarfiröi:
Hvítasunnudag: Messa kl. 8.30 árd.
Virka daga er messa kl. 8.30 árd.
KÁLFATJARNARKIRKJA:
Hvítasunnudagur. Hátíðarguös-
þjónusta kl. 11 f.h. Kór Kálfatjarn-
arkirkju. Organisti Jón Guönason.
Bragi Friðriksson.
NÝJA POSTULAKIRK JAN:
Strandgötu 29 í Hafnarfiröi. —
Messur hvítasunnudag kl. 11 árd.
og kl. 4 síðd.
KEFLAVÍKURKIRKJA:
Hvítasunnudag, hátíðarguösþjón-
usta kl. 14.
INNRI NJARÐVÍKURKIRKJA:
Annar hvítasunnudagur: Hátíðar-
guösþjónusta kl. 14. Prófasturinn,
séra Bragi Friðriksson, vísiterar og
setur séra Þorvald Karl Helgason
inn í embætti. — Organisti Helgi
Bragason. Sóknarnefnd.
GRIND AVÍKURKIRK JA:
Hvítasunnudagur. Messa kl. 2 síðd.
Sóknarprestur.
KIRKJUVOGSKIRKJA: Hvíta-
sunnudagur. Hátíðarmessa kl. 5
síðd. Sóknarprestur.
ÚTVARPSGUÐSÞJÓNUSTAN Útvarpsmessa, annan hvíta-
sunnudagsmorgun kl. 11 frá Garðakirkju. Prestur séra Bragi
Friðriksson. Garðakórinn syngur. Organisti Þorvaldur
Björnsson.
Þessir sálmar verða sungnir:
í Nýju Sálma- í Gl. Sálma-
bókinni: bókinni:
18 18
169 ekki til
332 241
42 114
orgelbókinni" — „Kom, skapari,
heilagi andi“. Organisti dr. Orthulf
Prunner. Sr. Arngrímur Jónsson.
KÓPAVOGSKIRKJA:Hvítasunnu-
dagur: Hátíðarguösþjónusta kl. 2.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Guðsþjónusta á Kópavogshæli kl.
4. Sr. Árni Pálsson. Annar Hvíta-
sunnu: Guðsþjónusta kl. 11 árd. Sr.
Árni Pálsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL: Hvíta-
sunnudagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11 f.h., Sr. Árelíus Níelsson.
Organleikari Guðni Þ.
Guðmundsson. (Athugiö breyttan
messutíma) Annar í hvítasunnu:
Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Sr.
Árelíus Níelsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Hvíta-
sunnudagur: Hátíöarguðsþjónusta
kl. 11. Þriöjudagur 5. júní: Bæna-
guðsþjónusta kl. 18.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Hvítasunnudagur:
Hátíðarguösþjónusta kl. 11.
Organisti Reynir Jónasson. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson. Annar
í hvítasunnu: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Ingólfur Guðmundsson messar.
Sr. Frank M. Halldórsson.
KIRKJA JESU KRISTS: Hinna
síöari daga heilögum;
skólavöröustíg 16. Hvítasunnudag:
Sunnudagaskóli kl. 14.
Sakramentissamkoma kl. 15.
GARÐA- og
BESSASTAÐASÓKNIR:
Hvítasunnudagur. Guösþjónusta í
Bessastaðakirkju kl. 2 e.h. Sigur-
veig Hjaltested syngur einsöng.
Garöakórinn. Organisti Þorvaldur
Björnsson. Bragi Friðriksson.
KAPELLA ST. JOSEFSSYSTRA
Garðabæ: Hvi'tasunnudag:
Hámessa kl. 2 síðd.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfiöi: Hvíta-
sunnudagur. Guðsþjónusta kl. 2
e.h. — Safnaðarstjórn.
HAFNARFJARÐARSÓKN:
Hvítasunnudagur. Guösþjónusta
kl. 11 f.h. (athugið breyttan
messutíma). — Annar hvítasunnu-
dagur. Skírnarguðsþjónusta kl. 3
e.h. — Sóknarprestur.
VÍÐIST AÐASÓKN: Hátíðarguðs-
þjónusta í kapellu sóknarinnar í
Hrafnistu kl. 11 f.h. á hvítasunnu-
dag. — Sr. Sigurður H.
Guðmundsson.
HVALSNESKIRKJA:
Hvítasunnudagur. Hátíðarmessa kl.
11 árd. Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Hvítasunnu-
dagur. Hátíðarmessa kl. 2 síðd.
Sóknarprestur.
EYRABAKKAKIRKJA: Hvíta-
sunnudagur. Guðsþjónusta kl.
10.30 árd. Sóknarprestur.
GAULVER J ABÆJARKIRK J A:
Hvítasunnudagur. Guðsþjónusta
kl. 2 síðd. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA : Annar
hvítasunnudagur. Guðsþjónusta kl.
2 síðd. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Hvíta-
sunnudagur. Messa kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA:
Hvítasunnudagur. Hátíðarguös-
þjónusta kl. 10.30 f.h. — Hátíöar-
guösþjónustur sama dag í sjúkra-
húsinu kl. 13 og Dvalarheimilinu
Höfða kl. 14. — Sr. Björn Jónsson.
HALLGRÍMSKIRKJA
VINDÁSHLÍD: Guösþjónusta
annan í hvítasunnu kl. 14.30. Prest-
ur dr. Gunnar Kristjánsson. Kaffisla
verður að lokinni guðsþjónustu.
Elfar Þórðarson með eitt verka sinna.
Málverkasýning á Stokkseyri
Elfar Þórðarson opnar mál-
verkasýningu i Gimli á Stokks-
eyri á morgun, laugardaginn 2.
júní. Sýningin verður opin virka
daga kl. 20—22 en um helgar kl.
14-22 til 10. júní.
Á sýningunni eru 45 vatnslita-
myndir málaðar á þessu og síðasta
ári. Þetta er fjórða einkasýning
Elfars. Hann hefur áður sýnt á
Selfossi og í Hveragerði en þetta
er önnur sýning hans á Stokks-
eyri. Elfar er sjálfmenntaður frí-
stundamálari.
Hreppsnefndin varð að
hafa afskipti af hestaleigu
HREPPSNEFND Mosfellshrepps varð síðari hluta vetrar að hafa bein
afskipti af starfrækslu hestaleigu, sem rekin hefur verið á því
þjóðfræga býli í Mosfellsdalnum, Laxnesi, vegna þess hve hestarnir
sættu þar slæmri meðferð eiganda hestaleigunnar.
Hófst þetta mál með því að
forðagæzlumenn Mosfellshrepps
-sneru sér til hreppsnefndarinnar
eftir að forðagæzlumennirnir
höfðu farið í könnunarferð á búið.
— Sögðu þeir eftir þá heimsókn
um eftirlit með hestum og fóðri,
að ástandið væri slæmt. Fóru
fóðureftirlitsmenn fram á viðeig-
andi ráðstafanir hreppsnefndar-
innar strax. — Áður en málið var
tekið fyrir á hreppsnefndarfundi
fóru dýraeftirlitsmaður hreppsins
og trúnaðarmaður Samb. dýra-
verndunarfél. íslands, að Laxnesi.
Þeir lögðu til að dregið yrði undan
þeim hestum, sem þá var búið að
járna og notkun reiðhesta þessar-
ar hestaleigu í Laxnesi tafarlaust
bönnuð.
Þeir lögðu ennfremur til að
hrossin þar yrðu sett undir dag-
legt eftirlit. — Þegar hreppsnefnd
Mosfellshrepps kom saman til
fundar í apríllok var samþykkt að
vinna að lausn þessa vandamáls
samkvæmt áliti eftirlits- og trún-
aðarmanna þeirra sem um málið
höfðu fjallað. — Málið var auk
þess sent sýslumannsembættinu.
Sýslumaður sá um framkvæmd
málsins. Hestarnir voru og settir
undir eftirlit dýraeftirlitsmanns
hreppsins.
Þessu hestamáli í Laxnesi mun
hafa miðað það síðan þetta gerð-
ist, að fyrir nokkru hafði forstöðu-
manni hestaleigunnar verið veitt
leyfi til þess að járna aftur hest-
ana.