Morgunblaðið - 17.06.1979, Page 1
64 SIÐUR
134. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 17. JUNI1979
Prentsmiðja Morgúnblaðsins.
Sprengjur
á Korsíku
Parfc. 16. júní. Reuter.
HRYÐJUVERKAMENN létu til
skarar skríða á Korsíku og í
París í nótt, tveimur dögum eítir
að 21 korsískur skilnaðarsinni
var leiddur fyrir rétt ákærður
fyrir fjölda slíkra sprengjutil-
ræða.
Fimmtán sprengjur voru
sprengdar í bæjum víðs vegar á
Korsíku, aðallega við stjórnar-
byggingar.
Lögregla segir að mikið tjón
hafi orðið á stjórnarbyggingu í
suðurhluta Parísar. Ekkert
manntjón varð í sprengingunum.
Maður sem sagðist fulltrúi
Þjóðfrelsisfylkingar Korsíku
(FLNC) hringdi í fréttastofu og
sagðist bera ábyrgð á sprenging-
unum í París. Enginn hefur enn
lýst sig ábyrgan fyrir sprenging-
unum á Korsíku.
Brúðarrán
sviðsettí
Stokkhólmi
Stokkhólmi. 16. júní AP
ÖRVÆNTINGARFULLUR
brúðgumi tilkynnti að barns-
hafandi brúði sinni hefði verið
rænt í nótt, en lögreglan sagði
að þetta hefði verið „hrekkjar-
bragð“.
Brúðhjónin höfðu haldið upp
á brúðkaupið á veitingastað í
Djurgarden í Stokkhólmi og
biðu eftir strætisvagni. Þegar
brúðguminn fór yfir götuna til
að kalla á leigubíl heyrði hann
allt í einu konu sína hrópa á
hjálp. Hann sá að tveir eða þrír
ungir menn ýttu konu hans inn
í bíl og óku burt á ofsahraða, en
gat ekkert að gert.
Eiginmaðurinn, margir
sjónarvottar og lögreglumenn
sannfærðust um að raunveru-
legt mannrán hefði átt sér stað.
Eftir fjögurra tíma leit ráðlagði
lögreglan harmi lostnum eigin-
manninum að fara heim til sín
og þar fann hann konu sína í
fasta svefni. „Grátt garnan",
sagði lögreglan.
17. JÚNÍ — Fullorðna fólkið flytur ræðurnar og leggur blómsveigana að minnisvörðunum, en
þjóðhátíðardagur okkar íslendinga er allt um það og eins og vera ber dagur yngstu borgaranna. Á bls. 2
segir frá hátíðahöldunum hér í Reykjavik og í grannbæjunum og þar segir líka frá því helzta sem þeir
þafa á prjónunum á Akureyri, Neskaupstað, ísafirði og í Vestmannaeyjum.
Accra, 16. júní. AP. Reuter,
FYRRVERANDI þjóðhöfðingi Ghana, Ignatius Acheampong hershöfðingi, og annar
herforingi voru leiddir fyrir aftökusveit í morgun og teknir af lífi.
Áður hafði
skipaður af
stjórninni sem
fyrir 13
byltingardómstóll
nýju herforingja-
tók við völdum
dögum dæmt
Acheampong og herforingjann
sem var líflátinn með honum, E.K.
Outuka, til dauða. Outuka hers-
höfðingi var fyrrverandi yfirmað-
ur landamæravarðliðsins í Ghana.
Acheampong hershöfðingja var
steypt af stóli í byltingu í júlí 1978
og sá sem fyrir henni stóð var
Fred Akkuffo hershöfðingi, sem
sjálfum var steypt af stóli í
byltingu lágt settra liðsforingja
undir forystu Jerry Rawlings flug-
liðsforingja 4. júní. Þetta eru
fyrstu aftökur nýju stjórnarinnar.
Stjórn Akuffos hershöfðingja
hafði sleppt Acheampong hers-
höfðingja úr haldi í maí. Nýlega
sagði útvarpið í Accra að hann
hefði lýst yfir stuðningi við þá
stefnu nýju stjórnarinnar að bæta
lífskjör þjóðarinnar. Sjónarvottar
segja að hann hafi brosað og
veifað vasaklút þegar ekið var með
hann til aftökunnar.
Rawlings flugliðsforingi hét því
eftir byltinguna á dögunum að
standa við loforð Acheampongs
hershöfðingja um kosningar í
„Góður
fundur”
V(n. 16. júní. Reuter. AP.
FYRSTA fundi æðstu leiðtoga
austurs og vesturs lauk í dag
hálftima fyrr en ráðgert hafði
verið eftir umræður almenns
eðlis um heimsmálin.
Carter forseti sagði fréttamönn-
um að loknum 80 mínútna fundi
sínum með sovézka leiðtoganum
Leonid Brezhnev í bandaríska
sendiráðinu, „þetta var góður
fundur."
Blaðafulltrúi forsetans, Jody
Powll, sagði að leiðtogarnir hefðu
fyrst gefið yfirlýsingar um af-
stöðu sína og síðan skipzt á
skoðunum en ekkert óvænt hefði
gerzt.
Aðstoðarmenn Brezhnevs
studdu hann þegar hann steig upp
í bíl sinn og fór frá sovézka
sendiráðinu til fundarins og hann
var þungbúinn og virtist hrasa. En
hann var brosmildari en hingað til
þegar Carter tók á móti honum á
gangstéttinni fyrir framan banda-
ríska sendiráðið.
Þeir voru sammála um að
minnsta kosti eitt: að þeir ættu að
hittast oftar. Seinna um daginn
var ráðgerður annar 90 mínútna
fundur og á morgun hittast þeir í
sovézka sendiráðinu.
Fyrrum þjóðhöfðíngí líflátinn
þessum mánuði, en nú hefur þeim
verið frestað til 1. október.
Rawlings lýsti því yfir eftir bylt-
inguna að leiðtogum sem yrðu
fundnir sekir um spillingu yrði
stranglega refsað samkvæmt lög-
um. Hann hótaði líka að skjóta
alla sem reyndu að hindra valda-
tökuna.
Fyrsti
brandarinn
Vín, 16. júní. AP.
FYRSTI brandarinn frá fundi
Carters og Brezhnevs kom
fram í dagsljósið í blaðinu
„Arbeiter-Zeitung" í Vín í dag:
Carter og Brezhnev eru að
lesa dagblað í himnaríki.
Brezhnev: Hvað heldurðu,
Carter. Bandaríkjamenn hafa
kosið fyrsta kommúnistann
forseta.
Carter: Þú ættir að fletta
upp á bls. 2 þar sem segir í
fyrirsögn: „Annað landamæra-
stríð brýzt út á landamærum
Kína og Finnlands."
Aftökusveit á eftir keisaranum
Teheran, 16. júní. Reuter.
SVEIT múhameðskra skæruliða
cr á lcið til Mexíkó til þess að
ráða fyrrverandi íranskeisara af
dögum að því er byltingardómar-
inn Ayatokkah Sadeq Khalkhali
skýrði frá í dag.
„Ég hef kveðið upp dauðadóm
yfir keisaranum og sagt
Fedayeensveitum skæruliða að
refsa keisaranum hvar sem hann
er og koma fram hefndum fyrir
írönsku þjóðina," sagði dómarinn
á fundi með skæruliðum.
„Hópur skæruliða ieitar nú að
þessum landráðamanni og er far-
inn til Bahama-eyja. Þaðan munu
þeir fara til Mexíkó til þess að
framfylgja dauðadómnum," sagði
hann.
Hann sagði að Farah keisarafrú
og móðir hennar hefðu einnig
verið dæmdar til dauða þar sem
þær hefðu fyrirskipað fjöldamorð
þegar geðheilsa keisarans fór að
bila er dró að lokum valdatíma
hans eins og hann komst að orði.
Ayatollah Khalkhali kveðst
hafa kveðið upp flesta þá rúmlega
200 dauðadóma sem hafa verið
felldir yfir fyrrverandi stuðnings-
mönnum keisarans og segir að
hann hafi fyrst gefið skipun sína
um að „drepa keisarann“ í síðasta
mánuði. Fedayeen-skæruliðar
hafa játað að hafa staðið að
tilræðum við tvo íranska forsætis-
ráðherra.
Keisarinn og kona hans eru um
þessar mundir í Cuernavaca í
Mexíkó. Þau fóru þangað fyrr í
þessari viku frá Bahama-eyjum.