Morgunblaðið - 17.06.1979, Síða 14

Morgunblaðið - 17.06.1979, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ1979 65 þúsund bílar flutt- ir inn frá árinu 1959 nokkur atriði í sambandi við bílainnflutning og bflanotkun. Ingimundur Sigfússon formaður Bílgreinasambandsins tók saman nokkur atriði er hann fjallaði um á nýlegum fundi Bílgreinasam- bandsins og kemur þar m.a. fram að þróun í bílaeign landsmanna hafi orðið langhröðust síðustu áratugina og hafi árið 1959 verið til um 20 þúsund bílar og um 65 þúsund bætzt við síðan. í spá Framkvæmdastofnunar um bíla- eign er talið að bílafjöldinn verði orðinn 115 þusund árið 1985 og þýði það 4—5 þúsund bíla fjölgun á ári. Þá kemur fram í ræðu Ingimundar að stærstu tímamótin hafi orðið árið 1961 er bílainn- flutningur var gefinn frjáls og sé bílaeign íslendinga nú ein hin mesta á Norðurlöndum að Svíþjóð undanskildri. Er talið að ísland sé í 10.—20. sæti í heiminum með 330—340 fólksbíla á hverja þús- und íbúa. „Það er líklega ekki ofsagt að þeir hafi verið framsýnir menn- irnir. sem aátn á alhinsri fvrir 75 MIÐVIKUDAGINN 20. júní verða liðin 75 ár frá því íyrsti bfllinn kom hingað til lands. Nú eru til í landinu kringum 85 þúsund bflar eða um einn á hverja 3 þúsund fbúa. I tilefni afmælis bflsins hér á landi boðaði Bflgreinasambandið fréttamenn á sinn íund þar sem rakin voru Forráðamenn Bflgreinasambandsins: Jónas Þór Steinarsson, Jón Bákon Magnússon, Þórir Jónsson og Ingimundur Sigfússon. Ljósm. Kristinn. Blacksi Decken Mest selda garðsláttuvél landsins Hin vinsæla rafknúna Black & Decker MEÐ NÝTT ÚTLIT STÆRRI MÓTOR OG TVÖFALDA EINANGRUN D 606 380 w D. 808 525 w m/ grasskúffu Slær blautt gras Stutt og langt - snöggt og gróft að yðar vilja. ÓDÝR - LÉTT - HANDHÆG Lítiö inn á næsta útsöiustað. G. Þorsteinsson & Johnson ÁRMÚLA 1 - SÍMI 85533 Fjórtán sæta Fíat, leigubfll frá B.S.R. árum og samþykktu styrkveitingu til Thomsens konsúls til kaupa á mótorvagni," segir í samantekt Ingimundar, „því að bíllinn og umferðin hafa frá öndverðu verið ríkisvaldinu mikil tekjuupp- spretta, en aðeins hluta verið skilað aftur sem framlögum til vegamála. Hér á landi er verð bíla mun hærra en í nágrannalöndun- um í krónutölu og ekki óvarlegt að áætla að hér þurfi verkamaður að vinna u.þ.b. tvöfalt fleiri vinnu- stundir til að geta keypt sér bíl en starfsbróðir hans í Noregi." Þá var á fundi með forráða- mönnum Bílgreinasambandsins rætt um innflutning bíla. Er talið að í ár verði fluttir inn kringum 6 þúsund bílar, sem sé nokkru minna en þarf, en til að endurnýj- un sé eðlileg þarf að flytja inn 10—12 þúsund bíla á ári, en meðalendingartími bíla hérlendis er um 7 ár. Gert er ráð fyrir að tekjur af bílum og umferð nemi í ár kringum 30 milljörðum króna og að til vegamála verði varið rúmum þriðjungi þess fjár. Þá kom fram á fundinum að meðal- endingartími bíla í Svíþjóð hefur verið kringum 10 ár en er nú kringum 14 ár og töldu forráða- menn Bílgreinasambandsins að verði átak gert í vegamálum myndi meðalending bíla hérlendis vaxa og þyrfti að áætla 5—10 ára tímabil þar sem sett yrði varan- legt slitlag á aðalþjóðvegi lands- ins. Myndi það án efa vera arðbær fjárfesting fyrir þjóðina, ekki sízt þegar tillit væri tekið til þess að bíllinn væri aðalsamgöngutæki íslendinga. Minnispeningur um Jón Sigurðsson Minnispeningur Jóns Sig- urðssonar forseta verður seldur í dag, 17. júní, í tilefni af 100. ártíð forsetans. Peningurinn er úr bronsi og kostar 10 þús. krónur. Hrafnseyrarnefnd hefur látið slá peninginn til fjáröflunar vegna umbóta á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar og til að koma upp minjasafni um forsetann á fæðingarstað hans Hrafnseyri við Arnarfjörð. Peningurinn verður boðinn til sölu fyrir framan aðaldyr Út- vegsbankans og hjá styttu Jóns Sigurðssonar eftir hádegi 17. júní. Borðtennismót Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur BORÐTENNISMÓT Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur fyrir efri bekki grunnskólans var haldið f félags- miðstöðinni Feilahelli 28. aprfl s.l. Mót þetta fer fram árlega að loknum tómstundanámskeiðum Æskulýðsráðs Reykjavíkur í skólunum. Að þessu sinni mættu til leiks 16 keppnissveitir úr 12 skólum, alls 96 þátttakendur á aldrinum 11 — 15 ára. Sigurvegari varð sveit Lauga- lækjarskóla og hlaut hún farand- bikar, sem gefinn er af STIGA í Svíþjóð og heildverslun Herluf Clausen, en keppt var nú um bikarinn í fyrsta sinn. Annað sæti skipaði sveit Réttarholtsskóla, en það þriðja sveit Breiðholtsskóla, og hlutu þær viðurkenningarskjöl. Mótsstjóri var Aðalsteinn Eiríks- son. Sigursveit Laugalækjarskóla með Stigabikarinn sem keppt var um í fyrsta sinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.