Morgunblaðið - 17.06.1979, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1979
Bréf til Barna- og
fjölskyldusídunnar
Ég heiti Tryggvi Björn Davíösson og
er 4 ára. Ég á heima á Hjaröarhaga í
Reykjavík.^Mamma mín skrifar þetta
fyrir mig. Ég segi henni, hvaö hún á
aö skrifa. Eg er alltaf aö teikna og
mig langaöi tii aö senda ykkur eina
mynd. Hún er af kónginum í
/Evintýralandi. Hann er úti f góöa
veðrinu. Þaö er skógur bak viö
höllina, en bara tvö tré við hliöina á
höllinni. Laufin eru alltaf aö detta af
trénu af því aö þaö er haust.
Tryggvi Björn Davíösson.
Díana Erlingsdóttir, Isafiröi.
Stundum sitjum viö ofí
krotum eitthvað á blað, þeg-
ar við erum að hufísa, hlusta
tala í síma o.s.frv. Við teikn-
um bara eitthvað út í
bláinn ojí sjáum ekki alltaf,
hvað fíetur komið út úr krafs-
inu. hefurðu nokkurn tíma
reynt að teikna krot-fífíúr-
ur? Hér sérðu nokkur dæmi,
sem þú fjetur tekið þer til
fyrirmyndar eða reynt ein-
hverntíma að krota eitt-
hvað álíka...
SOL OG SUMAR
Teikning: Ólöf Erna Leifsdóttir, 9 ára,
Hlíöabyggö, Garöabæ.
• •
Þórir.S. Guðbergsson
RúnaGísladóttir
Krotað og
krafsað!
Máttur
kærleikans
Maður nokkur var að vetrarlagi á ferð um eitt
af skörðum Alpafjallanna. Hann lenti í hríðar-
veðri.
Loks varð hann svo örmagna, að hann var að
því kominn að gefast upp. Hann vissi vel, að
honum var bráður bani búinn, ef hann settist
niður og lokaði augunum. En hann átti ekki
lengur þrek til að halda sér uppi.
Hann fann góðan stað, sem hann ætlaði að
setjast á. En einmitt þegar hann ætlaði að taka
af sér bakpokann, kom hann auga á eitthvaö,
sem stóð uppi úr snjónum.
Hvað gat þetta verið?
Það líktist mannsmynd. Allt í einu flaug
honum í hug:
— Þetta er maður, sem er að frjósa í hel. Eg
get ef til vill bjargað honum.
Örmagna ferðamaðurinn tók á öllu, sem hann
átti til og fór að nudda manninn. En við það
hitnaði honum sjálfum og færðist nýtt líf í
hann. Með því að bjarga náunga sínum, bjargaði
hann einnig sínu eigin lífi.