Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 5 Gallerí Suðurgata 7: Alberto Cameiro sýnir FÖSTUDAGINN 17. ágúst klukk- an 20.00 opnar í gallerí Suður- götu 7 sýning á verkum Portú- galans Alberto Carneiro. Hann er fæddur 1937 og hefur unnið mikið af verkum sínum úr náttúrunni. Þar styðst hann við minningar frá æskuárum sínum en hann bjó lengi vel í nánum tengslum við náttúruna því faðir hans er vínyrkjubóndi þar í landi. Á sýningunni í gallerí Suðurgötu eru nokkur verk úr stórri seríu sem Carneiro nefnir Body Art / Art Body. Carneiro hefur haldið fjölda einkasýninga víðs vegar um heim og hann var m.a. fulltrúi Portúgals á Feneyja-Biennale 1976. Sýningin er opin daglega frá kl. 16 til 22 og lýkur 27. ágúst. Eitt verka listamannsins úr seríunni Body Art / Art Body. V erðlaunaaf hending á Reykjavíkurvikunni DAGSKRÁ Reykjavíkurvikunn- ar verður haldið áfram í dag. Klukkan 16 verða afhent viður- kenningarskjöl í Nauthólsvík, en klukkan 17 til 19 verður kynnis- ferð í Rafmagnsveitu Reykjavík- ur. Þá verður Æskulýðsráð Reykja- víkur með bátsferðir í Nauthóls- vík á tímanum frá 17 til 19. Fórst af slys- förum í Alaska MYNDIN er af Gísla Jóhanni Yngvasyni, sem fórst af slysförum í Alaska þann 31. júli' s.l. Hann fæddist í Reykjavík 30.9.1947. Foreldrar séra Yngvi Þórir Árnason og Jóhanna Helga- dóttir, Prestbakka, Hrútafirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu. Minningarathöfn fer fram í Seattle, Bandaríkjunum. Shirley MacLaine og Anne Bancroft fara með aðalhlutverkin í kvikmyndinni „Á krossgötum", sem Nýja bíó sýnir um þessar mundir. Nýja bíó: Á krossgötum NÝJA BÍÓ sýnir um þessar rnundir bandarísku kvikmyndina „Á krossgötum“ (The Turning Point). Leikstjóri og framleið- andi, ásamt Arthur Laurents, er Herbert Ross en handritið er einnig eftir Laurents. Búninga- höfundur er Albert Wolsky. Með helstu hlutverkin fara Anne Bancroft, Shirley MacLaine, Mikhail Baryshnikov og Leslie Browne. I myndinni dansa ýmsir þekktustu balletdansarar Banda- ríkjanna fræg ballettverk við tón- list ýmissa helstu tónskálda heims. „Á krossgötum" greinir frá tveimur gömlum vinkonum sem hittast eftir langt árabil. Báðar hófu þær ballettnám í æsku og störfuðu saman um tíma. Þó kom þar, að önnur þeirra hætti að dansa og gifti sig en hin hélt áfram á listabrautinni. En nú er hún komin á þann aldur að hún verður að hætta hvort sem henni líkar betur eða verr. Athugasemd frá Bjama Braga Jónssyni Aðstandendur afmælisskemmtunar útimarkaðsins ræða við blaða- mönn. Ljósm. Ól.K.M. Afmælisskemmt- un útimarkaðarins í TILEFNI eins árs afmælis úti- markaðsins á Lækjartorgi og í tilefni af ári barnsins mun markaó- urinn sjá fyrir skemmtun fyrir börn í dag. föstudaginn 17. ágúst. kl. 14 —16 á Lækjartorgi. Útimarkaðurinn og nokkrir vel- unnarar hans hafa annast allan undirbúning. Meðal annars verður komið upp nýstárlegu kúlutjaldi sem félagar úr Spilaborg h.f. hafa gert, kvenfélagið Hringurinn mun baka kökur og sjá um að gefa afmælisgestunum og Tóti trúður, nokkrir spánskir leikarar og aðrir skemmtikraftar munu sjá um fjörið. Þá munu börnunum verða gefnar pappahúfur og ýmislegt góðgæti. Á blaðamannafundi sem aðstand- endur þessarar skemmtunar héldu vildu þeir taka það fram, að ef einhver vildi koma niður á torgið og skemmta börnunum þá væri það velkomið. Einnig vildu þeir hvetja afmælisgesti til að koma prúðbúnir á skemmtunina. Morgunblaðinu barst í gær eft- irfarandi athugasemd frá Bjarna Braga Jónssyni hagfræðingi Seðlabanka íslands: Hér með óska ég að koma á framfæri leiðréttingu við frétt blaðsins í dag um væntanlega vaxtahækkun, en þessi frétt er til þess fallin að valda þeim misskiln* ingi, að ég hafi „lekið“ upplýsing- um um tölulega hæð vaxtabreyt- ingarinnar í fréttamann blaðsins. Hið rétta er, að ég harðneitaði að veita nokkrar upplýsingar þessa efnis, þar sem málið er á algeru undirbúningsstigi, svo og neitaði ég að tjá mig um getgátu blaða- mannsins. Aðspurður um reglur vaxtabreytingarinnar, benti ég á þær reglur, sem birtar hafa verið. Mun átt við það í fréttinni, en hið óheppilega orðalag „vaxtahækkun þessi", geti bent til þess, að ég hafi staðfest hina tölulegu hugmynd. Þetta vil ég gjarnan, að komi fram, þar sem það varðar nokkru, að ekki sé álitið, að starfsmenn opinberra stofnana bregðist trún- aðarskyldu sinni. Virðingarfyllst, Bjarni Bragi Jónsson. ÍS||1 i u « í * M|«f I TOPPURINN ffrá Finnlandi Mér finnst þessi mynd bjartari 3ara ábyrgð á myndlamps Serstakt kynningarverö Verö kr. 629.980. • 26 tomimir • 60% bjartari mynd • Ekta viður • Palesander, hnota • 100% einingakarfi • Gert fyrir fjarlægöina • 2—6 metrar Staðgr. kr. 598.000 # Greiðslukjör frá 200.000 kr.ut og rest á 6 mán I # Fullkomin Þjónusta Versliðisérverslun meó LITASJÓNVÖRPog HUÓMTÆKI BUÐIN 29800 Skipholti19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.