Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 23 Minning: Grímur Gíslason „Skjótt hefir sól brugðið sumri“. Ennþá verður manni betri orða vant, þegar óvæntar harmafregnir berast, en þeirra, sem listaskáldið góða kvað fyrir nær 140 árum síðan. Þær hjuggu snöggt og óvænt, örlaganornirnar, þann 6. ágúst sl., þegar Finnbogi Jónasson varð bráðkvaddur að heimili sínu. Finnbogi Stefán Jónasson var fæddur að Geirastöðum í Þingi 16. maí 1923, sonur hjónanna Jónasar Stefánssonar og Aðalbjargar Signýjar Valdimarsdóttur, sem þar bjuggu. Konu sína missti Jónas 1927 frá tveimur ungum sonum þeirra, Finnboga og Jakob Valdimar, sem var 3 árum eldri. Hann er nú læknir í Reykjavík. Jónas flutti þá inn í Eyjafjörð með syni sína, fyrst að Kaupangi og síðar til Akureyrar, þar sem hann átti heimili til dauðadags. Þar kvæntist hann síðari konu sinni, Jónasínu Þorsteinsdóttur, og hjá þeim ólust þeir bræður síðan upp. Finnbogi varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1944 og tók próf í forspjallsvísind- um ári síðar við Háskóla íslands. Þá gerðist hann starfsmaður Kaupfélags Eyfirðinga, fyrst sem starfsmaður, en 1952 fór hann til náms í vélabókhaldi í Skotlandi. Sama ár var hann ráðinn aðalbók- ari hjá sama fyrirtæki og gegndi því starfi til ársins 1978. 4. nóvember gékk Finnbogi að eiga eftirlifandi konu sína, Helgu Svanlaugsdóttur, hjúkrunarkonu, en hún var systurdóttir Jónasínu, stjúpmóður hans. Þau eignuðust 3 börn. Elstur er Jónas, flugmaður hjá Flugfélagi Norðurlands. Hann er kvæntur Eyrúnu Eyþórsdóttur, hjúkrunarfræðingi, og eiga þau eitt barn. Yngri dæturnar: Aðal- björg Jónasína og Svanlaug Rósa, sem eru báðar við hjúkrunarnám í Reykjavík. Finnbogi vann mjög að félagsmálum á Akureyri. Var hann m.a. gjaldkeri Tónlistar- skóla Akureyrar frá stofnun hans 1946. Einnig var hann gjaldkeri Akureyrarkirkju og formaður sóknarnefndar mörg ár. 1. maí 1978 réðst Finnbogi forstöðumaður að Heilsuhælinu í Kristnesi. Það vissum við, vænt- anlegir samstarfsmenn hans, að það var með söknuði og eftirtöl- um, sem hann var kvaddur af fyrri samverkamönnum við Kaupfélag- ið, þar sem hann hafði starfað í þriðjung aldar og var af öllum talinn frábær starfsmaður. Það voru því miklar vonir bundnar við starf hans hér á hælinu, og allt útlit fyrir, að þær vonir mundu rætast, þegar svo sviplegur endir var á þær bundinn. Persónuleg kynni okkar Fjnn- bogi voru vart lengri heldur en samstarf okkar, en með konu hans hafði ég unnið áður og þekkti hana að miklum mannkostum, og milli hennar og konu minnar lágu gamlir vináttuþræðir. Við hjónin nutum þeirrar ánægju að eiga nokkrar notalegar kvöldstundir á heimili þeirra, friðsælu og menningarlegu. Fór þar saman rausn á veitingar og hjartans hlýju. Störf hans hér einkenndust fyrst og fremst af samviskusemi og trúmennsku. Þær dyggðir mat hann mikils og þess sama vænti hann af öðrum. Hann kynnti sér öll mál vel og var glöggur á leiðir til úrbóta. Reglusemi var honum í blóð borin, bæði í starfi og í einkalífi sínu. Ég hygg, að hann hafi verið fremur viðkvæmur í lund, en var þó fastur fyrir, þegar því var að skipta. í einkalífi sínu var Finnbogi hamingjumaður. Samrýndari hjón en þau Helgu hefi ég varla þekkt. Leiðir þeirra lágu snemma saman og bæði voru einlynd og trölltrygg. Öll var fjölskyldan mjög samheld- in. Þakklæti og tregi eru efst í huga okkar nú, þegar leiðir skilja. Helgu, börnum þeirra og öðrum ástvinum hans, sendi ég hugheilar samúðarkveðjur frá okkur hjón- unum. Sá sem mikið hefir átt hlýtur mikið að missa. En minningin um góðan dreng lifir. Brynjar Valdimarsson Kristneshæli Þann 8. ágúst lést Grímur Gíslason verslunarmaður. Hann var fæddur 6. október 1913 í Reykjavík. Hann bar nafn frænda síns í föðurætt, Gríms Thomsens skálds. Voru foreldrar hans Gísli Isleifsson sýslumaður og kona hans Lucinda Jóhannsdóttir Möll- er kaupmanns á Blönduósi og konu hans Alvildu Thomsen. Gísli Isleifsson hafði sýsluvöld í Húnaþingi um 15 ára skeið. Var heimili þeirra hjóna mjög rómað fyrir höfðingsskap, og Gísli vin- sæll meðal Húnvetninga, en faðir hans var ísleifur Einarsson er sat á Geitaskarði, var sýslumaður í Húnaþingi í 10 ár þar til hann gjörðist yfirdómari og flutti til Reykjavíkur. Gísli ísleifsson flutti til Reykjavíkur 1913 og gjörðist aðstoðarmaður í stjórnarráðinu og var síðan skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Hann var hið mesta glæsimenni á yngri árum, sem hann átti kyn til. Var haft á orði er hann flutti suður með konu og börn hve fjölskyldan væri mannvænleg. En sá vágestur, er þá var mesta mannamein, var berklaveikin, og kom sú veiki upp í fjölskyldunni og 1927 hafði andast kona Gísla og börn þeirra hjóna utan það yngsta, Grímur. Var þetta mikið áfall fyrir þá feðga. Én þó Gísli Isleifsson væri eigi heilsuhraustur vann hann sitt starf við góðan orðstír, starfsamur og glöggur embættismaður. Hlaut það nú að vera hans hugðarmál að koma einkasyninum Grími til manns og hann mætti heilsuhraustur vera. Enda var Grímur efnilegur, fríður sýnum, sem hann á ætt til, ljóshærður og mikill á velli. Hann var glaðlynd- ur og lét vel um bóklegt nám. Mátti því vænta þess að hann gengi menntabrautina og sneri sér þá að lögfræði. Faðir hans lét sér mjög hugar haldið um hann sem vænta mátti, enda var Grímur þess vel verður. Hann var reglusamur, og stundaði námið ágætlega. Settist hann í menntaskóla 1927 og undi sér þar vel. En er hann kom að lokatak- markinu og var í sjötta bekk 1932—33 kenndi hann heilsubrests þess, er þjáð hafði systkini hans og varð hann að hverfa frá námi. Komst hann þó yfir sjúkdóminn og lifði við góða heilsu um tugi ára. En eigi varð af frekara námi hjá honum enda hafði faðir hans Gísli ísleifsson andast 9. sept. 1932. Þeim feðgum var það mikil stoð að Kristín Björnsdóttir, hún- vetnsk kona er hafði dvalið um áratugi á heimili sýslumanns, fyrst á Blönduósi og svo í Reykja- vík, veitti því forstöðu eftir lát sýslumannsfrúarinnar og hélt svo heimili síðar með Grími. Grímur Gíslason fór nú út á vinnumarkaðinn og kom þá fram hneigð hans til skrifstofustarfa, viðskipta og umsvifa. Þótti hann kappsamur að öllu sem hann gekk og fljótur til úrskurða. Hóf hann störf í versluninni Penninn 1933 og var síðan við störf á póststof- unni og póstmálaskrifstofunni í Reykjavík. Vann hann þar á árun- um 1933—45. En póstmeistari var þá Sigurður Briem, mágur föður hans. Grímur mun hafa þráð að verða sjálfs síns húsbóndi. Réðst hann þá til Islendingasagnaútgáfunnar og var framkvæmdastjóri og með- eigandi hennar frá 1947—52 ásamt Gunnari Steindórssyni. Þá varð Grímur starfsmaður bóka- útgáfunnar Norðra og er síðan forstjóri Bókabúðar Norðra frá 1952-56. Öll þessi margháttuðu störf Gríms Gíslasonar við bókaútgáfu og bókasölu, gáfu honum marg- háttaða þekkingu um þessi mál, enda mátti segja að þau yrðu hans æfistörf. Mun það hafa orðið til þess að hann þótti kjörinn til þess að verða framkvæmdastjóri Inn- kaupasambands bóksala hf. frá stofnun þess 1957 og gegndi hann því starfi þar til í árslok 1975. Ég tel víst að hann hafi unnið að stofnun þessara samtaka, og starf hans hafi þar verið metið að verðleikum, þar sem hann um svo langt árabil hafði það á hendi. En 1976 réðst Grímur sem starfsmaður hjá Tryggingastofn- un ríkisins, og mætti ætla að hann hafi kosið sér það, er væri honum umsvifaminna starf. Það lætur nærri að slíkur mað- ur, sem Grímur Gíslason er hafði margvísleg störf á hendi, auk þess sem hann var heilsutæpur um skeið, hefði orðið einmana, hefði hann eigi kvænst. Þá hefði lífið í veröldinni orðið honum erfiðara án eigin heimilis og góðs lífsföru- nauts, eftir slíkan ástvinamissi er hann í æsku mátti þola og hlaut jafnan að sakna síns góða föður. En hér var Grímur Gíslason gæfumaður. Um það bil er hann hafði náð heilsu að nýju kvæntist hann 1934 Ingibjörgu Jónsdóttur Ágústssonar frá Vatnsleysu í Biskupstungum og Margrétar Gísladóttur frá Felli í sömu sveit. Þau hjón eignuðust fjögur börn, Lucindu, gifta Eiði Gunnarssyni söngvara, eru þau búsett í Þýzka- landi. Almar lyfjafræðing, kvænt- Fædd 15. júní 1896. Dáin 10. ágúst 1979. Þeir, sem nú aka austur Skúla- götu og muna fyrri tíð, sakna þegar innar dregur, gömlu Rauð- arárhúsanna, er settu lengi svip á það hverfi, en áður en bærinn byggðist upp frá Rauðarárvíkinni, voru þarna ræktuð tún og miklir matjurtargarðar, verk þeirra feðga Vilhjálms Bjarnarsonar frá Laufási, er fluttist suður 1893 frá Kaupangi í Eyjafirði, og Þorláks sonar hans, er snemma tók við búinu eftir lát föður síns 1912. Móðir hans, Sigríður Þorláksdótt- ir frá Skútustöðum í Mývatns- sveit, sat áfram á Rauðará, og Laufey rnóðir mín, systir Þorláks, átti þar heimili og faðir minn, Guðmundur Finnbogason, eftir að þau giftust 1914 um árabil. Bús- umsvifin hvíldu þó á herðum Þorláks, og það var því gleðidagur, þegar hann bætti ráð sitt og bað sér konu 1919, Sigrúnar Sigurð- ardóttur frá Flóagafli í Sandvík- urhreppi í Árnessýslu, en systkini hennar voru þeir kunnu bræður Árni fríkirkjuprestur, Ásgeir skipstjóri, Þorkell vélstjóri og Sigurður Ingi, lengi sveitarstjóri á Selfossi, og ein systir Steinunn, búsett í Reykjavík. Sigrún var hin föngulegasta kona og lét brátt að sér kveða við bústörfin. Þeim Þorláki varð fjögurra barna auðið, Vilhjálms, er var elztur og verið hefur síðan 1960 umsjónarmaður Fiske-safnsins svonefnda við Cornell-háskóla í íþöku í New York ríki. Vilhjálmur an Önnu Björk Guðbjörnsdóttur frá Hafnarfirði. Tvö börn misstu þau hjón Grímur og Ingibjörg, er dóu í frumbernsku, Margréti og Gísla. Þeim hjónum Grími og Ingi- björgu búnaðist vel og komust þannig vel áfram og studdu hvort annað með ráðum og dáð á lífsleiðinni. Eignuðust ágætt heimili í eigin íbúð. Þó leiðir Gríms og skólabræðra hans skildu fyrr en ætlað var í upphafi, þá var hann ávallt í góðum tengslum við þá. Voru þau hjón Grímur og Ingibjörg jafnan á Fæddur 25. febrúar 1891 Dáinn 7. ágúst 1979 7. ágúst s.l. kvaddi Kolbeinn Ivarsson bakaram. þennan heim, 88 ára gamall. I 25 ár hef ég kynnst trygglyndi hans, góðmennsku og léttu lundar- fari. Á unglingsárum mínum í Sveinsbakaríi var hann alltaf reiðubúinn að hjálpa okkur stúlk- unum í vinnunni, hvað sem á bjátaði. Alltaf mætti hann fyrstur á morgnana, hress að vanda. Hagmæltur var hann og margar vísurnar voru kveðnar um okkur starfsfólkið, allt í glettni og gamni. En það sem meira var, löngu eftir að við hættum að starfa saman, hélt hann tryggð við okkur öll. Eins og góður afi lét hann sér annt um framtíð okkar. Meðan ég dvaldi í Englandi skrifaði hann alltaf reglulega fréttir að heiman. Eitt sinn sendi hann mér í bréfi íslenska fánann til að minna á tryggð við land og þjóð og þá fylgdu oft vísukorn líka sem minntu á gamla Frón. Eftir að ég giftist og eignaðist mín börn, fylgdist hann með og gladdist yfir velferð okkar allra. Hann sendi jólagjafir til barn- anna og gladdist mjög þegar þau heimsóttu hann meðJítinn glaðn- ing. Þau voru góð heim að sækja, Þóra dóttir hans og hann, þá var gestrisnin í hávegum höfð. er kvæntur Dóru Eiríksson, vestur-íslenzkri konu frá Minnea- polis, og eiga þau tvo syni og eina dóttur. — Næstelzt barna Sigrún- ar og Þorláks var Ingibjörg, er lézt 1959. Hún var gift Jóni K. Haf- stein tannlækni, og eignuðust þau eina dóttur. — Þriðji í röðinni er Þorsteinn, kvæntur Elfu Thor- oddsen, en yngst systkinanna er Sigríður Aðalbjörg, gift Sigurði Egilssyni stórkaupmanni, og eiga þau fimm börn. Þegar allt virtist leika í lyndi fyrir hinum ungu Rauðarárhjón- um á þriðja áratugnum, bar þar snögglega skugga á, veikindi Þor- láks, er seinast drógu hann til dauða 1932. Sigrún lét þó ekki bugast og hélt áfram búskapnum og kom börnunum til mennta. Tengdamóðir hennar hafði flutzt til foreldra minna, þegar þau settust að í Suðurgötu, en foreldrar Sigrúnar, Sigurður Þorsteinsson og Ingibjörg Þor- kelsdóttir, sátu á efri árum sínum í skjóli dóttur sinnar. Að því dró upp úr 1940, að Reykjavíkurbær keypti Rauðar- árland og gömlu túnin bæði heima við og austar, þar sem Túnahverf- ið er nú, yrðu lögð undir >.ua stræti. Sigrún og Þorsteinn yngri sonur hennar, er hvarf frá menntaskóla- námi að búskapnum með móður sinni, færðu sig þá um set, frá Rauðará að Laugabrekku nokkru austar, rétt neðan Suðurlands- brautar. Þar bjuggu þau góðu búi, eftir því sem aðstæður leyfðu, allt fram til ársins 1966, er þau létu af stúdentamótum okkar og nutu gleðskaparins og lífsfagnaðar með okkur. Voru þau síðast með okkur á 45 ára stúdentaafmæli okkar 1978. Grímur Gíslason var sjúkur hið síðasta ár ævi sinnar og lá á sjúkrahúsi. Hann hafði verið starfsamur um ævina og fljótur að átta sig á hlutunum. Verið vel virtur ai samstarfsfólki sínu. Lífið hafðt lánast honum vel við góða hagi. Hann er hér kvaddur af skóla- bræðrum sínum með hlýjum hugai Pétur Þ. Ingjaldsson. Síðast er við heimsóttum Kol- bein var mjög af honum dregið, hann var farinn að heilsu. Nú að leiðarlokum vil ég og fjölskylda mín þakka honum fyrir allar góðar stundir sem við áttum saman. Kolbeinn var mjög trúaður maður og óskum við honum alls góðs í nýjum heimkynnum. Þóru og öðrum vinum og vandamönnum vottum við samúð. Nú legg éic auKun aftur. ó guð. þinn nóðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ. virst mÍR að þór taka mér yfir láttu vaka þinn enjfil svo ég sofi rótt. (S. Egilsson) „Bedda“. búskap og fluttust vestur á Kvisthaga. Yndi Sigrúnar varð nú að fylgj- ast með barnahópnum, er stöðugt óx í kringum hana, en barnabörn- in eru nú orðin 9 og barnabarna- börn 7. Sigrún fór eitt sinn vestur um haf að heimsækja Vilhjálm son sinn og fjölskyldu hans, en þau komu einnig nokkrum sinnum hingað heim til að vitja hennar og frændfólksins hér. Ég átti mörg sporin inn að Rauðará í gamla daga og eins að Laugabrekku, eftir að þangað var flutzt, en kom sjaldnar en skyldi á Kvisthagann. Sigrún var alltaf við mig sem væri ég einn af drengjun- um hennar, enda áttum við Vii- hjálmur, sonur hennar, margt saman að sælda á æskuárum og síðar í námi og störfum. Ég minnist Sigrúnar nú að leiðarlokum með þökk og virðingu og veit, að hún er fegin h\ eftir langa og stundum ævi. Blessuð sé minning he: Finnbogi Guðmur Sigrún S. Bjarnar —Minningarorð Kolbeinn Ivarsson, bak- arameistari — Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.