Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979
19
ÁGÚST YIGFÚS
SON — 70 ÁRA
Lítt hef ég lagt það í vana minn
að skrifa afmælisgreinar í dag-
blöðin. Hins vegar hef ég alloft
minnzt fólks sem horfið er af
sjónarsviði mannlífsins.
í dag á sá maður afmæli, er ég
tel mér skylt að minnast í dag-
blöðum með nokkrum orðum.
Hann er þjóðkunnur orðinn af
útvarpserindum, blaðagreinum og
bókum, sem hann hefur skrifað.
Fyrir réttum áratug fluttist ég
með börn mín til Reykjavíkur og
settist að í íbúð, sem ég hafði
keypt nokkru áður. Ibúðin er í
fjölbýlishúsi. Fljótlega komst ég í
kynni við mann einn vel miðaldra.
Við áttum eitthvað sameiginlegt.
Það var lóðið. Má segja að síðan
höfum við hitzt svo að segja
daglega, þegar ég hef verið í
bænum. Hver er maðurinn?
Ágúst Vigfússon fyrrum barna-
kennari, sem er sjötugur í dag, er
fæddur vestur í Dölum, að Börða-
bóli. Voru foreldrar hans Vigfús
Ikkaboðsson bóndi á Borðabóli og
kona hans Margrét Sigurðardótt-
ir. Frá uppvexti sínum segir Ágúst
gjörla í þókum sínum, sem bera
heitin Mörg eru geð guma (1976)
og Dalamaður segir írá (1976).
Æska Ágústs var sannarlega
enginn dans á rósum. Föður sinn
missti hann á fyrsta árinu. í
barnaskóla var hann lítið sem
ekkert. Var á hrakhóium sem
barn og í vinnumennsku sem
unglingur. En þrátt fyrir allt
baslið, komst Ágúst í framhalds-
nám, að vísu búinn að losa
tvítugsaldur þegar það var. Lá þá
leiðin í héraðsskóla — að Laugar-
vatni. Þaðan var haldið í
Kennaraskólann við Laufásveg.
Skóladvöl þar var þrautalending
margra, sem á þessum árum gátu
ekki klofið langt nám í mennta-
skóla og háskóla sökum fjár-
skorts, Eftir kennaraprófið hélt
Ágúst vestur í Bolungarvík. Þar
kvæntist hann konu sinni, Aðal-
heiði Haraldsdóttur, og þar fædd-
ust og uxu upp tvö börn þeirra,
Sveinn og Dóra. Ágúst tafði
heldur betur í Víkinni — eða í 23
ár. Hann þótti góður kennari en
einkum við sögukennslu. Olli því
að sjálfsögðu meðfædd frásagnar-
kunnátta hans og minni. Þá var
Ágúst góður skriftarkennari,
hann skrifar listavel.
I Bolungarvík kom Ágúst
nokkuð við sögu opinberra mála
og sat í hreppsnefnd eitt kjörtíma-
bil. Ekki sóttist hann eftir lengri
setu í þeirri virðulegu samkundu.
Frá Bolungarvík fluttist Ágúst
með fjölskyldu sína til Reykjavík-
ur sumarið 1957. En kennarastöðu
fékk hann í Kópavogi og kenndi í
Kársnesskóla þar til hann var
orðinn ríflega hálfsjötugur. Þá
hafði hann kennt samfleytt í rúma
fjóra áratugi, og aðeins skipt einu
sinni um kennslustað. Sýnir það
ekki glöggt, að Ágúst hefur notið
trausts í starfi?
Ég hef dvalið fram að þessu í
grein minni við ævistarf Ágústs,
kennsluna. Þar hefur hann skilað
góðu og drjúgu ævistarfi, en mér
er þó til efs, að það varðveiti nafn
hans og minningu lengur en rit-
störfin, sem hann leggur á ríka
stund nú þegar um hægist og
aldurinn færist yfir.
Bækur tvær eru út komnar frá
hans hendi og ein bók mun enn
koma út undir hans nafni. Þá
hefur Ágúst skrifað fjöldann allan
af blaðagreinum, aðallega
minningaþætti, í Lesbók Morgun-
blaðsins og viðar. Þá er hann tíður
gestur í Utvarpinu í seinni tíð.
Allt sem Ágúst semur er á góðu
máli sem allir skilja. Það er engin
stofnanaíslenzka á greinum hans
Ágústs Vigfússonar heldur þrótt-
mikið tungumál, eðlilegt og
óþvingað. I útvarpi er Ágúst
skýrmæltur. Hvert orð kemst til
skila sem hann segir. Það að
Ágúst hefur ekki fyrr sent frá sér
efni mun aðallega stafa að því að
lífsönnin hefur ekki setið dottandi
í dyrum hans fram undir þetta. Ég
hef lesið flest það í handriti, sem
Ágúst hefur látið frá sér fara.
Mun ég upphaflega hafa hvatt
hann til að koma því á framfæri,
bæði í blöðum og útvarpi. Agúst
hefur oftast lesið fyrir mig það,
sem hann hefur verið að semja
hverju sinni, til að leita álits míns
á því. Stundum hefur hann beðið
mig að lesa það yfir, ef vera kynni
að ég fyndi einhverja agnúa á
máli, sem honum hefði sézt yfir.
Allt þetta vil ég þakka, vegna þess
trausts sem hann hefur sýnt mér.
Auk þess að vera vel ritfær í
óbundnu máli er Ágúst hagyrðing-
ur góður. Hann yrkir að sönnu
ekki mikið af vísum, en vandar
gerð þeirra því meir. Nokkrar af
vísum Ágústs eru í Vísnasafni
Sigurðar frá Haukagili.
Oft höfum við Ágúst ræðzt við.
Við förum gjarnan í stuttar
gönguferðir, þegar við höfum tíma
og vel liggur á okkur. Aðalum-
ræðuefnin eru þá gjarna stjórn-
mál, bókmenntir eða stórmenni
sögunnar, einnig persónulegir
hagir. Ágúst er jafnlyndur maður.
Honum gekk vel að umgangast
nemendur sína. Jafnvel verstu
óróaseggir róuðust í návist hans.
Ein vísa lýsir vel lundarfari
Ágústs — hann er höfundur
hennar?
Gott er að hafa létta lund.
— ljúfur eðlisþáttur.
Geta að lokum Guðs á fund
Kengið alveK sáttur.
Ef þú, lesari góður, skyldir eiga
erindi í Háskólabíó um helgi, þá
sérðu væntanlega mann einn
nokkuð við aldur, þéttvaxinn,
meðalháan og hæruskotinn, sem
rífur af miðanum hjá þér um leið
og þú gengur inn í anddyri kvik-
myndahússins. Þetta er hann
Ágúst, sem er sjötugur í dag.
Hann ber aldurinn vel. Og nú
sinnir hann áhugamálum sínum,
laus við fjárhagsáhyggjur og dag-
legt streð. Hann er gæfumaður.
Mig langar til að ljúka þessari
afmælisgrein með tveimur erind-
um, sem ég sendi Ágústi sextugf
um, rétt í þann mund er kynni
okkar hófust:
Eru okkar kynni
ekki lönjf — en greið.
Mestu skiptir máli
manns á æviieið
hitta þá sem hafa
hjartaþelið gott.
Býst ég; við að beri
báðir þessa vott.
Þessa tau« sem tengir
tvo. fær enjíinn séð.
Hún er innst í hjarta
hitnar mannsins geö.
Lengst um leið'ofarna
lifðu i trú ok von.
er það ósk míns hjarta.
ÁKÚst VÍKÍússon.
Auðunn Bragi Sveinsson.
Márítaníuher
á brott úr
Addahab
Rabat. 15. ágúst. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Morokkó til-
kynntu í dag. að innan
skamms yrði efnt til kosninga
i' Oued Addahab-héraðinu i'
Sahara. en fyrr um daginn
luku Máritaníumenn endan-
lega brottflutningi herja
sinna úr héraðinu sem Mor-
okkó hefur nú innlimað.
Tilkynnt var, að héraðið
fengi fulltrúa á þingi Morokkó
og að þingið yrði kvatt saman
innan skamms til að breyta
stjórnarskránni af þeim sök-
um. í gær sóru um 300 fulltrúar
ýmissa hreyfinga í héraðinu
Hassan konungi hollustu.
Máritaníustjórn dró herafla
sinn til baka frá héraðinu eftir
að hafa undirritað friðarsam-
komulag við skæruliðasamtök-
in Polisario 6. ágúst síðastlið-
inn.
GRUNDIG
22" 6212
Loekkun kr.114.500.
Núákr.546.600.
Hl J Bffl
L__ xT1* 3
% Útborgun: Mánaðargr.:
| 20% kr. 110.000 2 X kr. 219.000
30% kr. 164.000 3 X kr. 128.000
40% kr. 219.000 4 X kr. 82.000
50% kr. 274.000 5 X kr. 55.000
60% kr. 328.000 Frjálst innan árs
100% kr. 519.300 (5% staðgr.afsl.)
1 VEXTIR OG KOSTNAÐUR F.KKI INNIFALIÐ.
• Línumyndlampi. („Black-stripe inline“).
• Einingaverk.
• AFC og AGC (sjá 4613).
• Kalt kerfi. (Aukin ending).
• Framvísandi hátalari. (Betri hljómburður).
• Tónstillir fyrir bassa og diskant.
• Valhnotukassi. Stærð 67 X 5047.
Öll GRUNDIG tæki eru búin sömu grund-
vallareiginleikum. Yfirburð armyndgæði,
traust bygging og mikil ending eru þeirra
einkenni. Nokkur munur er hins vegar á
aukabúnaði þeirra.
Við öll GRUNDIG tæki má tengja mynd-
segulband og hvers konar leiktæki. -
Leiöandi fyrirtæki
á sviöi sjónvarps
útvarps og hljómtækja
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10.SÍMI: 27788 (4 LÍNUR).