Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 + Maöurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi GUÐNI JÓNSSON, •kipstjóri, andaðist 15. ágúst. Tómasarhaga 51, Guórún Pétursdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Bróðir minn HALLURJÓNSSON Bakarameistari lést í Heilsuverndarstöö Reykjavíkur þ. 16 ágúst. Álfheiöur Jóna Jónsdóttir. t Eiginmaöur minn, ÁRNI BJÖRN ÁRNASON, fyrrverandi héraóslæknir, Grenivík, andaöist aðfaranótt 15. ágúst. Kristín Þórdís Loftsdóttir. t Eiginmaöur minn, faöir og afi PÁLL AÐALBJÖRN VALDIMARSSON, Noróurbrún 1, lést aö morgni 16. ágúst í Borgarspítalanum. Ásta Mariusdóttir, Ingvar M. Pólsson og barnabörn. Eiginmaöur minn ÁGÚST PÉTURSSON, Silfurgötu 17, Stykkishólmi, sem andaöist föstudaginn 10. ágúst, veröur jarösunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 18. ágúst kl. 2. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Ingveldur Stefónsdóttir. t Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ODDRÚNARJÓNSDÓTTUR Mýrarhúsum, Vesturgötu 127, fer fram frá Akraneskirkju laugardaginn 18. ágúst kl. 2. Aöstandendur. t Þökkum auösýnda hluttekningu og samúö við andlát og útför HELGU SIGFÚSDÓTTUR, Brekkugötu 10 Akureyri. Oddur Jónsson löunn Heiöberg Önundardóttir Herdís Halblaub Oddsdóttir. + Viö þökkum af alhug vináttu og samúð viö fráfall og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa HELGA ÞÓRARINSSONAR Æöey Guórún Lárusdóttir Jónas Helgason Þórarinn Helgason Bára Jósefsdóttir Guðmundur L. Helgason Brynhildur Júlíusdóttir Einar Helgason Svava Þ. Þóröardóttir Guöjón Helgason Kristín G. Helgadóttir og barnabörn Lokaö vegna jaröarfarar í dag frá kl. 14.30. Heildverzlun Egils Guttormssonar h.f. Suðurlandsbraut 4. I -________________________________________ Finnbogi S. Jón- asson — Minning Fæddur 16. maí 1923 Dáinn 6. ágúst 1979 „Skjótt hefir sól brugðið sumri", megum vér segja nú, er Finnbogi S. Jónasson var kvaddur snögg- lega yfir um tjaldið mikla hinn 6. ágúst s.l. Hefir mér sjaldan brugð- ið meira en er ég frétti lát hans á heimleið eftir þriggja vikna dvöl erlendis. Ég hafði hitt hann glað- an og reifan að vanda skömmu áður en ég fór að heiman, og vænti þá síst, að það yrðu síðustu sam- fundir, og því meir brá mér, þar eð hann hafði frá æsku verið einn nánasti vinur minn og fjölskyldu minnar, æskuvinur og skólabróðir sonar míns og næstum sem heimamaður árum saman, og aldrei hafði nokkurn skugga borið á þær samvistir og kynni. Og fáa hygg ég þá hafa verið vandalausa, sem móður minni voru kærari en hann. En svo var það raunar hvarvetna sem Finnbogi kom eða. kynntist. Hann vann sér hvar- vetna traust og vináttu samferða- manna sinna sakir mannkosta sinna og viðmóts, enda einn þeirra manna, sem ætíð skildi eftir eitt- hvað gott við hvern samfund. En nú er hann fallinn í valinn. Sláttu- maðurinn slyngi spyr ekki að aldri manna né kostum þeirra þegar hann sveiflar ljá sínum. Finnbogi var Húnvetningur að ætt og uppruna, fæddur að Geira- stöðum í Þingi 16. maí 1923 og því aðeins 56 ára að aldri. Foreldrar hans voru Aðalbjörg Valdemars- dóttir og Jónas Stefánsson. Finn- bogi var enn í bernsku er móðir hans iést, en faðir hans fluttist með syni sína tvo til Eyjafjarðar, þar sem hann dvaldist fyrst í Kaupangi en síðar á Akureyri til dánardægurs. Nokkru eftir að til Akureyrar kom kvæntist hann Jónasínu Þorsteinsdóttur, hinni merkustu konu. Hún átti drýgstan þátt í að synirnir voru settir til mennta, og varði til þess eignum þeim, er hún átti, og gekk hún þeim í móðurstað í hvívetna. Var henni ljóst að þeir bræður báðir voru betur fallnir til mennta- starfa en erfiðis. Jakob gerðist læknir en Finnbogi sneri sér að verslunar- og skrifstofustörfum. Hann lauk stúdentsprófi með 1. einkunn 1944. Nam hann síðan eitt ár í Háskóla íslands og lauk heimspekiprófi 1945. Kynnti hann sér síðan bókhalds- og endurskoð- unarstörf og nam vélabókhald í Skotlandi 1942. Hafði hann áður en það var gerst starfsmaður hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, þar sem hann vann þar til síðastliðið ár, að hann gerðist ráðsmaður heilsu- hælisins í Kristnesi. Var hann lengst þess tíma aðalbókari kaup- félagsins. Fagnaði hann hinu nýja starfi, og þá ekki síður vinir hans og aðrir, sem annt létu sér um hag hælisins, því að öllum, er til þekktu var ljóst, að til þess starfs mundi vandfenginn hæfari maður + Hjartkær eiginkona mín KATRÍN VALTÝSDÓTTIR ÞÓRARINSSON lést hinn 7. ágúst. jaröarförin hefur fariö fram. Þakka auösýnda samúö. Ásgeir Þórarinsson. Útför eiginkonu minnar og móöur okkar, DRAFNAR SUMARLIÐADÓTTUR, Eystra-Miöfelli, fer fram frá Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfjaröarströnd. laugardaginn 18. ágúst kl. 14. Fyrir hönd vandamanna, Þorvaldur Valgarösson og synir hinna látnu. + Hjartans þakkir færum viö þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna fráfalls ÓLAFS A. GUDMUNDSSONAR, frá Eyri, Vesturgötu 53. Gunnhildur Árnadóttir Valtýr Pétursson, Herdís Vigfúsdóttir, Elín Þórhallsdóttir, Reynir Jónasson, Þórdís Bjarnadóttir, barnabörn. + Þökkum innilega hlýhug og samúö viö andlát og jaröarför, DANÍELS HARALDSSONAR, Rénargötu 5, Grindavík. Fyrir hönd bræöra hins látna og annarra vandamanna. Ragnheiöur Ragnarsdóttir og börn. + Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför ARNA SVEINSSONAR Neskaupstaö. Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki Borgarspítalans deild 7A. Guörún Árnadóttir, Sveínn Á. Sveinsaon, Oddur Þór Sveinsson, Sígurlaug Sveinsdóttir, Ásrún Björg Sveinsdóttir, Bjarni Sveinsson, Laufey Sveinsdóttir, Dóra Geröur Stefánsdóttir, Pálína Pálsdóttir, Stefán Halldórsson. eða traustari. En sjálfan mun hann hafa fýst að þreyta krafta sína á nýjum vettvangi. En enginn má sköpum renna. Finnbogi var félagslyndur, enda starfaði hann í mörgum félags- skap, og unni flestum menningar- og mannúðarmálum, og mun það ekki síst hafa kvatt hvatt hann til að hefja sitt nýja starf. Hann átti lengi sæti í sóknarnefnd Akureyr- arkirkju, og var lengstum gjald- keri hennar eða formaður og stundum hvorttveggja. Var það svo löngum þar sem hann starfaði í félögum, að hann var kvaddur til trúnaðar- og framkvæmdastarfa, því að hann var hvorttveggja í senn starfsfús og ötull að koma fram málum, og engum var betur trúandi fyrir hag þess félagsskap- ar eða stofnunar, sem hann vann fyrir. Þekkti ég það gjörla, er hann fyrir beiðni mína tók að sér reikningshald og fjárvörslu Menntaskólans á Akureyri. Var það ómetanlegt mér, að geta varp- að allri þeirri áhyggju á hann, og vita, að þar yrði ekki betur að unnið, né af meiri trúnaði, en slík var reynsla allra þeirra, sem Finnbogi starfaði hjá. Ekki kann ég að rekja öll þau félög, sem hann hegaði tómstundir sínar, en lengi var hann í Lúðrasveit Akureyrar og síðar Tónlistafélaginu og hafði með höndum fjárreiður Tónlistar- skólans um langt skeið. Hann var lengi virkur félagi í Frímúrara- reglunni, og verður þar sem ann- ars staðar skarð fyrir skildi, þegar hann er horfinn á braut. Hann var kvæntur Helgu Svan- Iaugsdóttur hjúkrunarkonu, hinni ágætustu konu, og hallaðist ekki á um mannkosti þeirra og mann- dóm. Voru þau samhent um að skapa fagurt heimili, þar sem gestrisni og hlýja mætti hverjum, sem þar kom, og þeir voru ekki fáir, því að vinsældir beggja voru miklar, og víst var um það, að enginn fór svo dapur á þeirra fund, að hann hyrfi ekki glaðari brott. En slíkir hæfileikar hefðu vissulega komið að góðu haldi ef þeim hefði enst tími til að fara með forystu Kristneshælis lengur en raun varð ár. Börn þeirra eru þrjú: Jónas flugmaður, Aðalbjörg við háskólanám í hjúkrunarfræð- um og Svanlaug við hjúkrunar- nám. Eldri systkinin tvö eru stúd- entar. Og nú er Finnbogi minn horfinn yfir móðuna miklu. Minningin lifir um góðan vin og traustan drengskaparmann, sem hvarvetna gegndi kröftum sínum þar sem betur gegndi og gróa mátti undan. Og vissulega verður hann minnis- stæður öllum, sem hann þekktu, fyrir hlýjuna, sem frá honum stafaði og góðlátlega gamansemi þegar svo bar undir. En þótt hann sé horfinn sjónum vorum efast ég ekki um að hann hafi næg við- fangsefni í nýjum heimi, þar sem ekki síður en hér er þörf hjálpar og góðvildar. Það er huggun í harmi, að starfsþráðurinn er ekki slitinn, þótt samvistum sé lokið um skeið. Um leið og ég þakka vini mínum og samstarfsmanni allar samverustundir og alla hlýjuna, sem ég hefi notið frá hans hendi, sendi ég Helgu og börnum hennar, svo og öðrum nánustu innilegar samúðarkveðjur, og bið þeim allr- ar blessunar í sorg sinni. Steindór Steindórsson frá Hlöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.