Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 8
g MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979__ Undirbúningur er hafinn að komu flóttafólks frá Vietnam „Við höfum fyljfst með því hjá RKÍ hvernig flóttamannavandamálið í Suð-Austur Asíu hefur orðið sífellt alvarlegra og höfum, ekki síður en aðrir íslendingar, alið þá von í brjósti að mögulegt væri að leysa málið með milliríkjasamningum í þessum heimshluta,“ sagði Eggert Ásgeirsson framkvæmda- stjóri Rauða Kross íslands er Mbl. leitaði frétta hjá honum um komu flóttafólksins frá Víetnam. „Persónulega hræddist ég þá tilhugsun, að ef flóttafólk kæmi hingað, myndi það mæta hér andúð, sem myndi gera líf þess hér óbærilegt og skapa ýmis vandamál.'4 Að sögn Eggerts fellur flóttafólk í heiminum undir Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og er þeirra sambandsaðili, hér eins og annars staðar, ríkisstjórn- in. Það er því ríkisstjórnanna að ákveða móttöku flóttafólks og hvernig að henni skuli staðið. „Ríkisstjórnin ákvað að biðja Rauða krossinn að annast þetta fyrir hönd þjóðarinnar og var það sjálfsagt mál að verða við því, hversu erfitt sem verkefnið kynni að líta út fyrir að vera. Reyna veröur aö hjálpa flóttafólkinu aó veröa nýtir borgarar, og Þá launaö hæliö ríkulega. Um þær mundir sem ríkis- stjórnin var að ræða þetta mál, sat ég á fundi í Genf, í aðalstöðv- um Rauða krossins, raunar út af allt öðrum verkefnum, sem ég hef tekist á hendur. Á sama tíma stóðu yfir árlegir fundir neyðar- hjálparnefndar og þróunarhjálp- arnefndar og því voru þar stadd- ir fulltrúar nokkurra þeirra landa, sem mest hafa lagt af mörkum til lausnar flótta- mannavandamálsins, eða eiga við slíkan vanda að stríða. Einn morguninn kvaddi alþjóðaráðið alla þessa fulltrúa til fundar til að ræða um fyrirhugaðar að- gerðir. Á þessum fundi varð mér ljóst að Islendingar gætu ekki skorist úr leik með að leggja sitt af mörkum til lausnar flótta- mannavandamálinu, og jafnvel að taka á móti einhverjum, sem hingað kynnu að vilja koma. Að hlusta á fulltrúa Rauða krossins í Malaysíu lýsa ástandinu, hinni síþyngjandi byrði og landa- mæraerjum sem rynnu í kjölfar- ið, varð til þess að ég gerði mér ljóst að við gætum ekki setið hjá aðgerðarlaus, því hér væri ekki eingöngu um mannúðarmál að ræða, heldur mætti líkja þessu við tímasprengju, sem þá og þegar gæti brotist út í enn hryggilegri hildarleik en þegar er orðinn." Sagði Eggert að tilvist hins gífurlega fjölda flóttafólks í Malaysíu og Thailandi væri sýnilega farin að gera þjóðirnar örvinglaðar eins og sjá mætti á því er flóttafólkið var hrakið yfir landamærin, þvert ofan í allar mannúðarreglur. „Fólkið í þessum löndum verður ekki ásakað, því það hafði gert allt sem það mátti, en nú virtist mælirinn fullur," sagði Eggert. Að sögn Eggerts lá greinilegur ótti í andrúmsloftinu, þegar Rætt við Eggert Ásgeirs- son fram- kvæmda- stjóra RKÍ Thailendingar, Malaysíumenn, Singaporbúar, Indónesíumenn og Filippseyjamenn ræddu um málið. Aðrir, sem málið snerti óbeint, ræddu um mannréttindi, sem fótum væru troðin og nýr hildarleikur á borð við stormbyl síðari heimsstyrjaldarinnar væri í aðsigi. Flóttafólkið á ekki afturkvæmt heim „Það virðist augljóst að flótta- fólkið á ekki afturkvæmt heim, það er í nauð og það verður að heimsvanda, nema því sé séð fyrir hæli.“ Sagði Eggert að þegar honum bárust fréttir um ákvörðun ríkisstjórnarinnar og hann var beðinn um að kynna sér málið og hvers bæri að gæta við val og flutninga fólksins til Islands hefði það cerið augljóst, að öllum, sem hann ræddi við í Genf og á Norðurlöndum. hefði verið umhugað um að aðgerð okkar tækist sem best. Margir hafa gert mistök, þcí unnið hefur verið að málum af skammsýni í mörgum löndum. Flóttafjölskyldum hefur verið sundrað, sjálfsákvörðunarréttur fólksins fótum troðinn. Unga fólkið og menntaða fólkið hefur verið valið, en hið aldraða og sjúka skilið eftir. Öðrum hefur, með markvissu starfi og aðgæslu við hvert fótmál og virðingu fyrir flóttafólkinu, tekist á undra skömmum tíma að hjálpa flóttafólkinu að vera nýtir borg- arar, sem launað hafa hælið ríkulega. Það er þetta verk, sem við nú stöndum frammi fyrir og við, sem að þessum málum höfum starfað, erum fullkom- lega sannfærð um að vel muni takast, en til þess þarf að fá hjálp," sagði Eggert. „Hjálpin, sem þörf er fyrir er fyrst og fremst miskunnsemi og velvild. Ef við leggjumst öll á eitt um að taka vel á móti þessum gestum okkar, leyfum þeim að kynnast hinu góða í fari manna hér á landi og ef bróð- urþel nær til þessara minnstu bræðra okkar, þá er ég fullkom- lega sannfærður um að vel geti tekist." Undirbúningur móttök- unnar hér þegar hafinn „Það er mikill vandi á höndum þeirra, sem fara til að kynna landið og velja fólk til fararinn- ar til íslands, því á þeim byggist hvort valið tekst vel,“ sagði Eggert ennfremur. Sagði Eggert að nokkrar ákvarðanir hefðu þegar verið teknar af hálfu RKÍ og ríkis- stjórnarinnar í þessu sambandi og hafði séra Sigurður H. Guð- mundsson ritari RKÍ verið kjör- inn til að stjórna þessu máli af hálfu stjórnar félagsins. „Framkvæmdastjóri í þessu verkefni er Björn Þórleifsson félagsráðgjafi, deildarstjóri RKI og fyrrum félagsmálastjóri á Akureyri. Hann og Björn Frið- finnsson gjaldkeri RKI verða fulltrúar ríkisstjórnarinnar og RKÍ með umboði til að velja flóttafólkið og stjórna heimför- inni. Þeir munu fara til Kuala Lumpur í Malaysíu hinn 29. ágúst, með skammri viðkomu í Genf, þar sem þeir munu ræða við Alþjóða Rauða krossinn og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Heimferðardagurinn er að verða ljós og hafinn er undirbúningur móttökunnar hér, en til þess verks þarf margar hendur, en segja má þó að verkið sé komið á góðan skrið." Fleiri þjóðum að verða ljós skylda sín í málinu „Alþjóðlegur fundur um flóttamannamálið var haldinn í Genf í lok síðasta mánaðar og segja má að með honum hafi orðið tímamót í sögu málsins. Dregið hefur úr flóttamanna- straumnum og miklu fleiri þjóð- um orðið ljós skylda sín í málinu og hafa því ákveðið að taka á móti fleira fólki en áður. Margar þjóðir, sem aldrei hafa tekið á móti flóttamönnum eru nú farn- ar að búa sig undir slíkt," sagði Eggert. Að sögn Eggerts var á fundin- um ákveðið að Alþjóða Rauði krossinn skuli með aðstoð lands- félaga sinna takast á herðar margvísleg verkefni tið aðstoðar stofnunum Sameinuðu þjóðanna. í fyrsta lagi munu Rauða kross félögin (eða Rauði hálf- máninn, en svo kallast þau í Múhameðstrúarlöndunum, þangað sem fólkið hefur flúið) auka hjálparstarfið í móttök- unni og sjá um að láta flóttafólk- inu í té nauðþurftir, þ.e. byggja skýli yfir það, láta þvi í té læknishjálp, félagslega aðstoð og aðstoða það við að halda uppi sambandi við ættingja og vini, en að sögn Eggerts krefst slíkt hjálparstarf talsverðra fjár- muna, mannafla og tækja. í öðru lagi munu Rauða kross félög í löndunum, sem bjóða flóttafólkinu hæli, auka aðstoð sína við móttöku þess, og gjarn- an taka á sig framkvæmdina að öllu leyti með svipuðum hætti og hér gerist. í þriðja lagi mun Alþjóðaráð Rauða krossins hefja víðtæka leitarþjónustu, koma boðum á milli skyldmenna og annast sameiningu sundraðra fjöl- skyldna, með aðstoð Rauða kross félaga í öllum viðkomandi lönd- um Flóttamannastofnunarinnar. í fjórða lagi mun Alþjóðaráð Rauða krossins gera sitt ýtrasta til að koma hjálp til fórnar- lamba ófriðarins í Kambódíu (Kampútseu) og undirbýr nú sendingu læknishjálpar, lyfja og matvæla. „Að lokum má geta þess að alþjóðasamtök Rauða krossins vinna nú að því að aðstoða þau lönd, sem eru í neyð eftir lang- varandi ófriðarbál eða sem eru mergsogin eftir langvarandi flóttamannastraum, að koma málum sínum í lag,“ sagði Egg- ert. „Nú stöndum við íslendingar frammi fyrir því að vinna hjálp- arstarf fyrir fólk í neyð á okkar eigin landi. Við höfum hingað til borið gæfu til að geta sent aðstoðina með flutningatækjum til annarra landa. Við eigum mikið inni hjá forsjóninni og sýnum því í verki, að við séum * mem tll aft endurgjalda," sagfti f lokum, &

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.